Dagur - 20.11.1999, Síða 8
VHl-LAllGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999
MINNINGARGREINAR
L
V&*r
Bóthildur Benediktsdóttir
frá Amarvatni
Bóthildur Benediktsdóttir
fæddist á Arnarvatni í Mý-
vatnssveit 12. febrúar 1906.
Hún lést á Sjúkrahúsi Húsavík-
ur 13. nóvember sl. Foreldrar
hennar voru Benedikt Krist-
jánsson og Sólveig Stefánsdótt-
ir. Systkini Bóthildar voru
Kristján, Sigurbjörg og Krist-
björg. Þau eru öll látin. Utför
Bóthildar fór ftam ftá Skútu-
staðakirkju 19. nóvember s.l.
Bóta mín blessunin er dáin.
Fyrir nokkrum árum sagði hún
mér að sér fyndist þetta orðið
nóg, heyrnin var farin að bila og
sjónin að versna svo hún átti erf-
iðara með að taka þátt í samræð-
um og lesa bækurnar sínar sem
hún hafði alltaf við höndina og
veittu henni ómælda ánægju.
Hún var tilbúin að Ieggja í hinstu
ferðina til Sibbu og Stjána og
allra hinna.
Að kynnast þeim Sibbu og
Bótu, systrunum á Arnarvatni var
mér ævintýri líkast. Að koma inn
í litla húsið þeirra á hólnum, þar
sem vefstóllinn tók hátt í helm-
ing gólfplássins í stofunni,
heimaofín gluggatjöld héngu fyr-
ir gluggum og sunnudagshanda-
vinna þeirra systra prýddi alla
veggi, opnaði mér sýn inn í ann-
an heim; heim með öðrum
áherslum og gildismati en við
eigum að venjast. Það var heimur
stöðugleika og tíma.
Og Sibba hitaði súkkulaði á
meðan Bóta týndi fram „soði-
brauð“ og allra handa kökur.
Borðið var dúkað og hvítu boll-
arnir með rauðu rósunum drifnir
fram. Og svo var spjallað, mikið
höfðu þær gaman af að spjalla
systur og stundum kólnaði
súkkulaðið í pottinum og Bóta
stóð lengi, lengi með kökudunk-
inn í höndunum, því það var svo
gaman að spjalla að ekkert annað
komst að.
Eftir að Sibba dó, 1985, flutti
Bóta út á Hvamm, elliheimilið á
Húsavík. Hún tók með sér
kommóðuna sína og bækur; Föð-
urást, Jerúsalem, Ljóðabók Jóns
Þorsteinssonar, Vísur Þuru í
Garði o.fl. o.fl. Þegar við heim-
sóttum hana áttum við að kjósa
okkur ljóð. Bóta opnaði ljóðabók
af handahófí, við nefndum hvort
við vildum hægri eða vinstri,
uppi eða niðri og Bóta las ljóðið
sem fyrir varð. Þetta var
skemmtilegur leikur og oft hafði
Bóta sögur að segja um Ijóðin.
Bóta dvaldi hjá okkur mörg jól
eftir að hún flutti á Hvamm.
Alltaf var það jafnmikil tilhlökk-
un þegar hún kom með gömlu
brúnu ferðatöskuna sem hafði að
geyma útsaumaða púða, vegg-
stykki eða gólfmottur handa öll-
um í fjölskyldunni. Og þulurnar
sem hún kunni og var óþreytandi
við að segja börnunum; Poki fór
til Hnausa, kunni margt að
rausa; Karl sat við stokk sinn, var
að berja fisk sinn... Alltaf var hún
til í að spila og kunni ótalmörg
gömul spil. Börnin mín eru þessa
dagana að rifja upp spilin hennar
Bótu, Imperial og Skelk.
Bóta var tilbúin að fara en með
henni höfum við misst mikið.
Hún var amman okkar, hafsjór af
fróðleik um liðna tíð og hún var
Bóta. Ég bið góðan Guð að
geyma Bótu mína og þakka fyrir
allt sem við áttum saman.
Solla
Nú þegar þú ert ekki hérna hjá
okkur lengur, verður okkur hugs-
að til allra gleðistundanna sem
við áttum og jólanna sem þú
varst hjá okkur.
Þú þreyttist aldrei á að segja
okkur þulur, þó að við hefðum
alltaf jafn gaman af þeim og vild-
um heyra þær aftur og aftur. Þú
varst líka alltaf til í að spila við
okkur, gömul spil sem þú kennd-
ir okkur eins og imperial, skelk
og undansteypu.
Þegar við heimsóttum þig á
Húsavík, fengum við alltaf kon-
fekt, sem þú hafðir fengið í jóla-
gjöf og varst aldrei búin að borða,
og fallega útsaumaða púða.
Þú varst yndisleg manneskja,
alltaf í góðu skapi og góð við okk-
ur. Við munum alltaf sakna þín.
Jón Ámi og Bergþóra
Halldór Ingiberg Amarson
Halldór Ingiberg Arnarson,
Drekahlíð 5, Sauðárkróki, and-
aðist 15. nóvember sl. á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Hall-
dór var fæddur á Sauðárkróki
17. júlí 1951. Foreldrar hans
eru Örn Friðhólm Sigurðsson,
f. 24. júlí 1921; d. 12. nóvem-
ber 1970, og Guðrún Erla Ás-
grímsdóttir, f. 12. janúar 1927.
Systkini Halldórs eru Sölvi
Stefán, f. 18. maí 1947, Elísa-
bet Ósk, f. 31. júlí 1953, Arn-
fríður, f. 15. apríl 1958, Ingólf-
ur, f. 15. desember 1959, og
Anna Björk, f. 15. mars 1961.
Halldór giftist 13. maí 1972
Ólöfu Sigrúnu Konráðsdóttur,
f. 8. júlí 1950. Synir þeirra eru
Örn Sölvi, f. 25. febrúar 1971,
maki Elva Ösp Ólafsdóttir, f.
24. mars 1972. Dóttir þeirra er
Andrea Anna, f. 19. júní 1996;
Halldór Heiðar, f. 5. apríl
1976.
Halldór vann almenn verka-
mannastörf á Sauðárkróki, en
síðustu 25 árin vann hann hjá
Steypustöð Skagafjarðar á
Sauðárkróki.
Útför Halldórs fer fram frá
Sauðárkrókskirkju í dag, laug-
ardaginn 20. nóvember, kl. 14.
Okkur langar með nokkrum
orðum að minnast mágs okkar og
svila, Halldórs Arnarsonar, sem
fallinn er frá eftir erfiða og
snarpa baráttu við þennan vágest
sem fellt hefur margan manninn
^Fft^ARSTQ^
/SLANDS
Markmið Útfararstofu íslands er að veita trausta og persónulega
þjónustu, Aðstandendur geta leitað útfararstjóra hvenær sólarhrings
sem er. Útfararstofa íslands er aðstandendum innan handar um alla
þá þætti er hafa ber í huga er dauðsfall ber að. Útfararstjórar
Útfararstofu íslands búa yfir mikilli reynslu og hafa starfað við
útfararþjónustu um árabil.
Útíararstofa Islands sér um:
Útfararstjóri tekur að sér umsjón útfarar í
samráði við prest og aðstandendur.
- Flytja hinn látna af dánarstað í líkhús.
- Aðstoða við val á kistu og líkklæðum.
- Undirbúa lík hins látna í kistu og snyrta ef
með þarf.
Útfararstofa íslands útvegar:
- Prest.
- Dánarvottorð.
- Stað og stund fyrir kistulagningu og útför.
- Legstað í kirkjugarði.
- Organista, sönghópa, einsöngvara, einleikara
og/eða annað listafólk.
- Kistuskreytingu og fána.
- Blóm og kransa.
- Sálmaskrá og aðstoðar við val á sálmum.
- Líkbrennsluheimild.
- Duftker ef líkbrennsla á sér stað.
- Sal fyrir erfidrykkju.
- Kross og skilti á leiði.
- Legstein.
- Flutning kistu út á land eða utan af landi.
- Flutning kistu til landsins eða frá landinu.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
Sverrir Olsen,
úttararstjóri
Útfararstofa íslands - Suöurhlíð 35-105 Reykjavlk.
Sími 581 3300 - allann sólarhringinn.
á besta aldri. Á stundum sem
þessum er erfitt að sætta sig við
orðinn hlut. Öll héldum við í
vonina um að Halldór næði
heilsu á ný, hann barðist hetju-
lega við sjúkdóminn og af miklu
æðruleysi. En örlögin voru ráðin.
Við viljum ekki minnast þess-
ara erfiðu mánaða á árinu heldur
allra þeirra skemmtilegu stunda
sem við áttum með Halldóri og
Ólu til margra ára. Upp úr
standa allar þær skemmtilegu
fjallaferðir sem við fórum saman.
Halldór hafði yndi af því að vera
á fjöllum og erfitt er til þess að
hugsa að fara næstu ferð án hans
og fjallabílsins góða, honum Ind-
riða. Við munum til dæmis sakna
stundanna sem við áttum yfir
grillhlóðunum. Hver hafði þar
sitt fasta hlutverk og hlutverk
Halldórs var m.a. að sjá um kart-
öflurnar. I þeim efnum var hann
orðinn algjör sérfræðingur.
Halldór var trapstur maður og
yfirvegaður öllum stundum, hvað
sem á gekk. Kurteis og kom vel
fyrir. Sannur vinur vina sinna og
þrælduglegur til verka. Margra
ára farsæl störf hans hjá steypu-
stöðinni á Króknum sanna það
og enginn var betri kranamaður
en hann. Þau eru nefnilega ófá
handverkin, og fleiri en margan
grunar, sem hann hefur lagt til í
uppbyggingunni á Króknum og í
öllum Skagafirði. Þolinmæði var
hans dyggð og af henni hafði
hann nóg þegar t.d. þungur kran-
inn læddist um allar sveitir
Skagafjarðar.
Margmáll var Halldór ekki en
þegar hann tók til máls þá var
eftir því tekið. Hann kom með ný
og skemmtileg sjónarhorn á hlut-
ina og oftar en ekki þau spaugi-
legu. Þessum einkennum hélt
hann þrátt fyrir veikindin og
minnisstæð er sú góða stund er
við áttum með honum í Hjalta-
dalnum í sumar. Þar bar hann sig
vel og innst inni vonuðumst við
eftir að getað átt fleiri slíkar sam-
verustundir. Nú verður bið á því.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umhverfi blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó sviði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikindaviðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er Ijós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku Óla okkar, Halldór Heið-
ar, Örn Sölvi, Elva og Andrea
Anna. Við biðjum algóðan Guð
að vera með ykkur á þessari sorg-
arstund og um alla framtíð. Við
færum ykkur einnig hugheilar
samúðarkveðjur frá foreldrum
okkar, systkinum og fjölskyldum
þeirra.
Þorsteinn og Sólveig, Alda og
Trausti.
íslendingaþættir birtast í Degi alla laugardaga.
Skilafrestur vegna minningagreina er til þriðjudagskvölds.
Reynt er að birta allar greinar eins fljótt sem verða má en
ákveðnum birtingardögum er ekki lofað.
Æskilegt er að minningargreinum sé skilað á tölvutæku formi.
ÍSLENDING/SItTÍR