Dagur - 23.11.1999, Blaðsíða 2
M p o r a ^ pt 7 'j n »
V C «11 * n '1 < *M rt
2 - PRIDJUDAGVR 23. NÓVEMBER 1999
FRÉTTIR
Flokksstofnun
er á fnUri ferð
MiMl vinna er nú í
gangi vid uiidirbún
ing ilokksstoiiiunar
Samfylkiugariuuar í
byrjuu næsta árs.
Skrifstofa flokksius.
Framkvæmdastj óri.
Ný lög og kyuniug á
skipuriti. Alt þetta er
í fulliim gangi.
Skoðanakannanir undanfarið
hafa mælt slakt gengi Samfylk-
ingarinnar miðað við úrslit þing-
kosninganna í vor. Samfylkingar-
menn segja að þegar búið verður
að stofna formlegan stjórnmála-
flokk í byrjun næsta árs og kjósa
flokknum forystu muni þetta
breytast. En hvað er verið að
vinna í þessum málum. Guð-
mundur Arni Stefánsson alþing-
ismaður segir undirbúning
flokksstofnunar á fleygiferð en í
mörg hom sé að líta.
„Fulltrúar flokkanna, sem að
Samfylkingunni standa, hafa
fundað reglulega um þessa und-
irbúningsvinnu og næstu skref í
málinu. Sömuleiðis er málið til
umræðu hjá þingflokknum og
var það síðast í dag. Það er verið
að leggja drög að mjög mörgu í
einu,“ sagði Guðmundur Árni.
Ný lög fyrir SamfylMngima
Hann segir að verið sé að undir-
byggja stofnun flokksins í byrjun
næsta árs en dagsetning hefur
ekki verið ákveðin. Flestir stansi
þó við marsmánuð. Það sé í mjög
mörg horn að Ii'ta þegar stjórn-
málaflokkur sé stofnaður.
„Það er verið að undirbyggja
skrifstofu Samfylkingarinnar.
Starfsfólk flokkanna sameinast á
þeirri skrifstofu og framkvæmda-
stjóri verður ráðinn. Þá er verið
að ganga frá fjármálahlið máls-
ins, bæði uppgjöri kosninganna
og síðan framtíðarmúsíkinni í
þeim efnum. Þá er unnið að því
að setja flokknum ný Iög. Einnig
hefur verið farið vítt og breitt um
landið á vegum flokl^anna með
hugmyndir að skipuriti þcssara
samtaka og aðkomu flokkanna
og einstaklinga að Samfylking-
unni. 1 því sambandi hafa menn
verið að horfa til fyrirmynda
bæði í Bretlandi og hjá jafnaðar-
mönnum í Frakklandi. Mörgum
finnst þetta allt taka langan tíma
en flokksstofnun er ekki hrist
fram úr erminni og á heldur ekki
að hrista fram úr crmi. Það skal
vanda sem lengi á að standa,"
sagði Guðmundur Árni.
Hann sagði að mestur þungi
þessa starfs hvíldi á formönnum
A-flokkanna, Margréti Frí-
mannsdóttur og Sighvati Björg-
vinssyni, sem og fulltrúa
Kvennalistans, Þórunni Svein-
bjarnardóttur. — S.DÓR
Frá Litla Hrauni þar sem yfirlæknir
hefur haft áhyggjur af einangrunar-
föngum.
Fangarí
lausagæslu
Nokkrir þeirra gæslufanga sem
lengst hafa verið í einangrun
vegna stóra fíkniefnamálsins
hafa verið færðir í lausagæslu
með öðrum föngum síðustu
daga, en það var ekki síst gert
vegna eindreginna tilmæla yfír-
Iæknis Fitla-Hrauns, sem Dagur
greindi frá fyrir helgi.
Rannsóknir stóra ffkniefna-
málsins og Barcelona-málsins
hafa haldið ótrautt áfram og nú
sitja 10 inni vegna eldra málsins
og 3 vegna nýrra málsins, fyrir
utan handtökur í Barcelona.
Fíkniefnadeild lögreglu hefur
lagt hald á talsvert magn af
fíkniefnum síðustu daga í
tengslum við stóra fíkniefnamál-
ið. Við húsleitir hefur verið lagt
hald á hass, amfetamín og kóka-
ín. „Það er lítið hægt að segja
um gang rannsóknarinnar á
þessari stundu. Við tökum þetta
stig af stigi, skref fyrir skref,"
segir Ómar Smári Ármannsson,
aðstoðaryfírlögregluþjónn.
Þá vinnur efnahagsbrotadeild
Ríkislögreglustjóra sleitulaust
að því að rekja peningaslóð mál-
anna og er talið að kyrrsettar
eignir meintra brotamanna séu
komnar upp í nær 100 milljónir
króna um þessar mundir. — FÞG
Allt að milljarðiir
í tryggiiigasvik
Mikll kostnaður fellur til vegna tryggingasvika og meirihluti þessara svika
tengist ökutækjatryggingum.
Um 60% vegna öku-
tækjatrygginga. Tjón
oftast ofmetin. Dæmi
um sviðsetningu.
Aukið eftirlit og betri
skráning.
Talið er að heildarkostnaður
vegna vátryggingasvika hér á
landi gæti numið allt að 500-
1000 milljónum króna á hverju
ári, eða 5-10% af bótakröfum og
bótagreiðslum tryggingafélaga.
Af því er talið að um 60% megi
rekja til ökutækjatrygginga.
Vill fá meira
Þetta kemur m.a. fram f nýút-
kominni skýrslu um vátrygginga-
svik á Norðurlöndum, sem var
sameiginlegt verkefni allra nor-
rænu vátryggingasambandanna.
Helsta ástæðan fyrir þessum
tryggingasvikum er sögð stafa af
þeirri einföldu staðreynd að fólk
vill fá meira fé til ráðstöfunar,
hvort heldur einstaklingur eða
heimili þurfi beinlínis nauðsyn-
lega á því að halda. í það
minnsta var það meðal þess sem
fram kom í skoðanakönnun sem
Norsk Gallup gerði um afstöðu
þarlends almennings til vátrygg-
ingasvika. Fangalgengustu svikin
felast í þvf að tjónþoli gerir meira
úr tjóni sínu en efni standa til
þegar hann krefst bóta hjá sínu
félagi. Þá sé stundum gerð krafa
um bætur vegna tjóns sem ekki
hefur átt sér stað auk þess sem
dæmi séu um tjón vegna ásetn-
ingar og einnig að þau séu sett á
svið.
AuMð eftirlit
Af hálfu Sambands íslenskra
tryggingafélaga er bent á að senn
hefjast frekari umræður á milli
norrænu vátryggingasamband-
anna um sameiginlegar aðgerðir
til að koma í veg fyrir vátrygg-
ingasvik. í því sambandi er m.a.
horft til aukins samstarfs við
stjórnvöld, auk breyttra starfs-
hátta hjá vátryggingafélögunum.
Bent er á að íslensku félögin
hafa í áranna rás reynt að koma í
veg fyrir vátryggingasvik og m.a.
átt sinn þátt í því að upplýsa slík
mál. Nærtækast í þeim efnum er
að benda á umfangsmikil trygg-
ingasvik sem flett var ofan af hér
um árið, þar sem m.a. voru svið-
sett umferðarslys í Hvalfirði. Til
að reyna að fækka vátrygginga-
svikum eru íslensku félögin að
efla sína eftirlitsþætti og hæta
alla skráningu. — GIÍH
Textiui sjónvarpsefnis
Sigríður Jó-
hannesdóttir,
Þórunn Svein-
bjarnardóttir og
Jóhann Ársæls-
son hafa lagt
fram þingsálykt-
unartillögu um
textun íslensks
sjóvarpsefnis.
Segir í greinar-
gerð m.a. að
ljóst sé að heyrnarlausir og
heyrnardaufir eigi niun erfiðara
að fylgjast með innlendu sjón-
varpsefni en erlendu því aðal
tengiliður þeirra við efnið sé text-
inn sem fylgir með
Hækkun á lífeyrisiðgjaldi
Guðjón A. Kristjánsson hefur Iagt
fram frumvarp til laga um breyt-
ingar á Iögum um Lífeyrissjóð
sjómanna. I frumvarpinu er gert
ráð fyrir að 1 1% af heildarlaun-
um sjómanna renni í lífeyrissjóð.
Þar af greiði sjómenn 4% en út-
gerðarmenn 7%. Bendir hann á í
greinargerð að eignir Lífeyris-
sjóðs sjómanna hafi ekki staðið
undir framtíðarskuldbindingum
sjóðsins um Iangt skeið og úr því
þurfi að bæta.
Fjárfestingar útlendinga
Fjórir þingmenn Samfylkingar-
innar, undir forystu Svanfríðar
Jónasdóttur, hafa lagt fram frum-
varp til laga um breytingar á lög-
um um fjárfestingar erlendra að-
ila í atvinnurekstri. Frumvarpið
gerir ráð fyrir að um fiskiðnað
gildi almennt sömu reglur og urn
annan iðnað hvað varðar þ'árfest-
ingar erlendra aðila.
Aflaheimildir boðnar út
Sömu þingmenn hafa lagt fram
frumvarp þess efnis að sá 1500
lesta aflakvóti sem Byggðastofnun
mun úthluta árlega fram til 2006
skuli boðinn út ef það er vilji
þeirra sveitarstjórna sem kvótan-
um er úthlutað í samráði við.
Bjór og léttvín í matvöru-
verslanir
Lúðvík Bergvinsson og fjórir aðr-
ir þingmenn Samfylkingarinnar
hafa lagt fram frumvarp til Iaga
um að bjór og létt vín verði selt í
matvöruverslunum. Lagt er til að
skipuð verði nefnd til að endur-
skoða Iögin um sölu, gjöld og
tolla á áfengi.
Fjárreiður riMsins
Þingflokkur
Samfylkingar-
innar, með Sig-
hvat Björgvins-
son sem fyrsta
flutningsmann,
Ieggur til í laga-
frumvarpi að
söluandvirði
eigna ríkisins,
sem verið er eða
fyrirhugað er að
selja fari í að greiða niður skuldir
ríkissjóðs eða til eignamyndunar.
ÚtteM á stöðu byggðasafna
Þrír þingmenn VG undir forystu
Gunnars Ólafssonar Ieggja til í
þingsályktunartillögu að mennta-
málaráðherra láti gera óháða út-
tekt á stöðu byggðasafna, minni
safna og sérsalna á landsbyggð-
inni.
Þórunn Svein-
bjarnardóttir.