Dagur - 23.11.1999, Qupperneq 13
o o <> * m n m '4 'f h ií f r qn o niTinivm . ^ t
ÞRIÐJUDAGU R 23. NÓVEMBER 1999 - 13
í
ÍÞRÓTTIR
SH vann bikariim
mnmta anð í roð
SH-ingar fagna fimmta bikarsigrinum í röð, ásamt Hrafnkeli Marinóssyni, formanni SH, og Magnúsi Gunnarssyni,
bæjarstjóra, sem fékk óvænt bað.
Simdfélag Hafiiarfjarö
ar vann um helgina
glæsilegan sigur í bik-
arkeppni SSÍ. Félagið
vann stigakeppnina
bæði í kvenna- og
karlaílokki og setti
nýtt stigamet í saman-
lögðn. Þrjú ný íslands-
met voru sett á mótinu.
Bikarkeppni Sundsambands fs-
lands fór fram í Sundhöll Reykja-
víkur um helgina. Eins og við var
búist varði Sundfélag Haf'narfjarð-
ar bikarmeistaratitilinn frá því í
fyrra og hefur þá unnið bikarinn
fimm ár í röð. I fyrra rufu Hafn-
firðingarnir 30.000 stiga múrinn á
nýju stigameti, sem var 30.422
stig, en gerðu nú enn betur og
fengu alls 30.476 stig, með því að
sigra bæði í kvenna- og karlaflokki
eins og í fyrra.
I öðru sæti urðu Ægismenn með
samtals 28.267 stig, en félagið
mætti nú til leiks með mun sterk-
ari sveit en f fyrra og bætti við sig
2.127 stigum miili ára, sem er frá-
bær árangur.
Keflvíkingar sem urðu í öðru
sætinu í fyrra lentu nú í þriðja sæti
með samtals 26.932 stig sem er
646 stigum minna en þeir náðu í
fyrra.
Þrjú íslandsmet
Þrjú íslands- og fjögur aldurs-
flokkamet voru sett á mótinu, sem
er mun minna en í fyrra, þegar
metin urðu alls sautján. Jakob J.
Sveinsson úr Ægi setti nýtt ís-
Iands- og piltamet í 200 m bringu-
sundi karla, þegar hann synti á
2:14.52 mín., en eldra metið átti
Hjalti Guðmundsson, SH, sem var
2:16.82 míri. Jakob setfi líka nýtt
piltamet í 100 m bringusundi, þeg-
ar hann synti á 1:03,66 mín.
Lára Hrund Bjargardóttir úr SH
setti nýtt íslandsmet í 200 m skrið-
sundi kvenna þegar hún synti á
2:03.33 mín, en þar átti Eydís
Konráðsdóttir úr Keflavík eldra
metið, sem var 2:03.67 mín.
Kvennasveit SH bætti síðan eigið
íslandsmet í 4x100 m fjórsundi
kvenna, þegarþær syntu á 4:26.77
mín., en eldra metið var 4:27.46
mín. Þá setti karlasveit Ægis nýtt
piltamet í 4x100 m skriðsundi,
þegar þeir syntu á 3:37,20 mín. Að
lokum setti Birkir Már Jónsson úr
Keflavík svo nýtt sveinamet í 200
m skriðsundi þegar hann synti á
2:19,43 mín. Eldra metið átti
Gunnar Steinþórsson, UMFA,
2:19,78 mfn.
Örn lilaut S undli all arb ik a ri ii n
í upphafi móts voru veittir tveir
bikarar; Sundhallarbikarinn sem
gefinn er af Sundhöll Reykjavíkur
og stigabikar SSÍ. Sundhallarbik-
arinn er veittur fyrir besta sund-
afrek, samkvæmt stigatöflu á sl.
keppnistímabili og hlaut Om Am-
arson hann að þessu sinni fyrir
100 m baksund á tímanum 55.72
sek., sem hann synti á Bikarkeppn-
inni 1998. Stigabikar SSÍ er veitt-
ur fyrir mestu bætingu á Sund-
meistaramóti íslands þ.e.a.s. frá
Stigakeppn i 1. [leild
Félag: Konur Karlar Samtals
SH 14709 15767 30476
Ægir 13181 15086 28267
Keflavík 12968 13964 26932
Ármann 11470 12671 24141
ÍA 12556 9768 22324
Njarðvík 10759 1 1001 21760
ÍA og Njarðvík falla í 2. deild.
SMÍ í fyrra, en hann hlaut Berg-
lind Bárðardóttir úr SH.
í annarri deild urðu KR-ingar
sigurvegarar eftir spennandí
keppni við Breiðablik, þar sem að-
eins munaði átta stigum í lokin.
Félögin færast bæði í 1. deild, en
Njarðvík og IA sem urðu neðst í 1.
deild falla niður.
Stigakeppn i - 2. áeild
Félag: Konur Karlar Samtals
KR 11392 11353 22745
Breiðabl. 12912 9825 22737
Selfoss 8785 11355 20140
Óðinn 9112 8273 17385
Vestri 8772 7491 16263
Keflav. b. 7878 8029 15907
ÍBV 5534 4216 9750
Austri 869 0 869
UMSB 408 0 408
KR og Breiðablik færast t 1. deild.
Hollensk hátíð á Highbury
Arsenal lék sér að
Boro. Liverpool klifrar
í áttina að toppnum.
Vialli í vondum mál-
um. Sir Alex og Jim
Smith í hár saman.
Sheffield Wednesday
dæmt til að falla.
Það var fátt um fína leiki f enska
boltanum um helgina. Einu leik-
irnir sem eitthvert skemmtanagildi
höfðu fyrir áhorfendur voru
Arsenal og Middlesbrough, Sund-
erland og Liverpool og sunnudags-
leikurinn milli West Ham og
Sheffield Wednesday.
Engu var Iíkara en það væri
þjóðhátíðardagur Hollendinga á
Highbury þegar Arsenal tók á móti
meðalmennskuliðinu frá Middles-
brough. Eftir dapurt gengi í meist-
arakeppni Evrópu virtust leikmenn
Arsenal búnir að heimta sjálfs-
traust sitt að nýju og hreinlega
spiluðu með gesti sína. Dennis
Bergkamp sýndi loks sitt rétta and-
lit og hvað hann getur í návígum
og landi hans, Marc Overmars,
nýtti hraða sinn gegn slakri vöm
gestanna. Fimm hollensk mörk
voru uppskera Lundúnaliðsins eft-
ir níutíu mínútur.
Leikur Sunderland og Liver-
pool, á Stadium of Light, var ekki
sérlega góður en hann bauð áhorf-
Dennis Bergkamp stekkur héryfir
Mark Schwarzer, markvörð Midd-
lesbrough.
endum upp á mikla spennu og
skemmtan. Heimamenn, sem ekki
höfðu tapað Ieik á Leikvangi
Ljósanna í rúmlega ár, hefðu sigr-
að gesti sína með betri nýtingu
marktækifæra sinna. En svo fór að
Michael Owen, sem hefur harð-
lega verið gagnrýndur eftir EM
Ieikina við Skotland, nýtti hraða
sinn, tækni og viljann til að skora í
seinni hálfleik þegar hann skoraði
glæsimark eftir að hafa einleikið
frá miðju. Kannski að markið verði
til þess að Keegan landsliðsþjálfari
hætti við að láta táninginn aftur í
unglingalandsliðið. Patrick Berger
skoraði síðan óvænt mark með
hægri fæti sínum eftir snilldar
undirbúning David Thompson.
Tvö - núll fyrir Liverpool var stað-
reynd en kannski ekki sanngjarn
sigur.
Sir Alex reif kjaft við Smith
Manchester United vann sinn
fyrsta sigur í Derby í ellefu ár þeg-
ar liðið sótti hrútana heim á laug-
ardaginn. Leikur liðanna þótti
varla í meðallagi góður en skaps-
munir leikmanna og stjórnenda
liðanna voru í aðalhlutverki eftir
að Derbyleikmaðurinn Stefan
Schnoor var rekinn útaf eftir stór-
karlaleg viðskipti við David Beck-
ham og síðan Dwight Yorke.
Sennilega vilja Jim Smith og Sir
Alex gleyma þessum leik sem fyrst,
þar sem þeir urðu sjálfum sér og
liðum sínum til skammar með
munnsöfnuði sem ekki er hafandi
eftir í virtum fjölmiðlum.
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum er farið að volgna sætið
undir Gianluca Vialli, knatt-
spyrnustjóra Chelsea. Sennilega
getur hann þakkað Norðmannin-
um Tore Andre FIo, að hann fær
annað tækifæri til að stjórna liðinu
eftir að FIo tryggði liði sínu jafn-
tefli við Everton í viðbótartíma á
Goodison Park. Meistaravonir
Lundúnaliðsins ‘jara nú út með
hverjum leik, þar sem liðið hefur
ekki sigrað í fimm síðustu deildar-
leikjum sínum.
Sheffield Wednesday kemur
ekki til með að vinna marga leiki
meðan Kevin Pressmann stendur í
marki Iiðsins. Það var fyrst og
fremst honum að kenna að liðið
náði ekki að vinna sinn fyrsta úti-
sigur á leiktíðinni þegar liðið sótti
slakt lið West Ham heim. Leikur-
inn bauð upp á flest það sem sóst
er eftir í knattspyrnu, mörk,
spennu og dramatík. Tvisvar náðu
gestirnir forystu á Upton Park og
áttu sannarlega skilið að sigra í sjö
marka leiknum á Upton Park. En í
fótbolta er ekki spurt um sann-
girni. Vítaspyrna á silfurfati og
rautt spjald á Wednesday auk
hörmulegrar frammistöðu Press-
mann í marki gestanna varð til
þess að sigurglampinn sem sást í
augum Danny Wilson um tíma
drukknaði í tárum um leið og leik-
urinn var flautaður af. Hann veit
að lið hans cr dæmt til að falla
með slíkri frammistöðu. — GÞÖ
Arsenal - Middlesbrough 5-1
(Overmars, 26. 61. 78. Bergkamp, 40.
49.) - (Richard, 68.)
Derby - Man. United 1-2
(Delap, 90.) - (Butt, 53. Cole, 83.)
Everton - Chelsea 1-1
(Campell, 15.) - (Flo, 90.)
Leeds - Bradford 2-1
(Smith, 54. Harte, 80. víti)
- (Windass, 90.)
Leicester - Wimbledon 2-1
(Cottee, 22. 58.) - (Gayle, 21.)
Southampton - Tottenham 0-1
(Leonhardsen, 81.)
Sunderland - Liverpool 0-2
(Owen, 63. Berger, 85.)
Watford - Newcastle 1-1
(Ngonge, 53.) - (Dabizas 59.)
West Ham - Sheffield W. 4-3
(Wanchope, 28. Di Canio, 62. Víti,
Foe, 70. Lampard, 76.) - (Rudi, 38.
Jonk, 48. Booth, 67.)
Úrslit í einstök- nm greimun Bikarkeppni SSÍ Fyrri dagur: 800 m skriðsund kvenna
1. íris E. Heimisdóttir, Kef. 9:19.95 2. Louisa Isaksen, Ægi 9:24.95 3. Berglind Ó. Bárðard., SH 9:48.52 1 500 m skriðsund karla
1. Tómas Sturlaugss., Ægi 16:00.94 2. Ómar Sn. Friðrikss., SH 16:01.70 3. Halldór K. Halldórs., Kef.. 17:01.81 200 m fjórsund kvenna
1. Lára H. Bjargardóttir, SH 2:20.02 2. Kolbrún Ýr Kristjánsd., ÍA 2:22.74 3. Sunna B. Hclgadóttir, SH 2:25.83 200 m flugsund karla
1. Hjörtur M. Reynisson, Ægi 2:09.05 2. Davíð F. Þórunnarson, SH 2:09.46 3. Vadim Forafonov, Árm. 2:12.90 200 m flupsund kvenna
1. Elva B. Margeirsd., Keflav. 2:31.98 2. Anna Ármannsdóttir, IA 2:35.71 3. Gígja H. Árnadóttir, Ægi 2:36.18 100 m haksund karla
1. Örn Arnarson, SH 54.53 2. Guðm. S. Hafþórsson, SH 1:00.19 3. Eðvarð Þór Eðvarðs., Kef. 1:00.38 100 m haksund kvenna
1. Kolbrún Ýr Kristjánsd., ÍA 1:05.04 2. Elín Sigurðardóttir, SH 1:08.18 3. Anja R. Jakobsdóttir, SH 1:08.99 200 m brineusund karla
1. Jakob J. Sveinsson, Ægi 2:14.52 2. Jón O. Sigurðss., UMFN 2:29.00 3. Magnús S. Jónsson, Keflav. 2:30.66 200 m bringusund kvenna
1. íris E. Heimisdóttir, Kef. 2:36.78 2. Berglind Ó. Bárðard., SH 2:41.00 3. Hafdís E. Hafsteinsd., Ægi 2:44.57 200 m skriðsund karla
1. Ómar Sn. Friðriksson, SH 1:55.28 2. Tómas Sturlaugsson, Ægi 1:58.06 3. Guðm. S. Hafþórsson, SH 1:58.43 200 m skriðsund kvenna
1. Lára H. Bjargardóttir, SH 2:03.33 2. Eva D. Heimisdóttir, Kef. 2:12.50 3. Sunna B. Helgadóttir, SH 2:15.21 4x100 m fiórsund karla
1. A-Karlasveit SH 3:53.09 2. A-Karlasveit Keflavíkur 4:03.91 3. A-Karlasveit Ægis 4:08.83 4x100 m fiórsund kvenna
1. A-Kvennasveit SH 4:26.77 2. A-Kvennasveit Ægis 4:39.56 3. A-stúlknasveit ÍA 4:40.64 Seinni dagur: 200 m fiórsund karla
1. Örn Arnarson, SH 2:04.37 2. Jakob J. Sveinsson, Ægi 2:11.01 3. Ómar S. Friðriksson, SH 2:11.64 100 m flugsund kvenna
1. Elín Sigurðardóttir, SH 1:04.53 2. Gígja H. Árnadóttir, Ægi 1:10.19 3. Anna L. Ármannsdóttir, ÍA 1:10.43 100 m flugsund karla
1. Hjörtur M. Reynisson, Ægi 57.37 2. Davíð F. Þórunnarson, SH 57.49 3. Guðgeir Guðmundsson, ÍA 1:01.27 100 m brinausund kvenna
1. íris E. Heimisd., Keflav. 1:14.28 2. Hafdís E. Hafsteinsd., Ægi 1:15.40 3. Berglind Ó. Bárðard., SH 1:15.60 100 m bringusund karla
1. Jakob J. Sveinsson, Ægi 1:03.66 2. Magnús Konráðsson, Kef. 1:07.51 1 3. Þórður Ármannsson, SH 1:08.21 200 m baksund kvenna
1. Sunna B. Helgadóttir, SH 2:26.00 2. Lousia ísakscn, Ægi 2:28.87 3. Sigurbj. Gunnarsd., UMFN 2:30.52 200 m baksund karla
1. Örn Arnarson, SH 1:58.98 2. Ásgeir H. Ásgeirsson, Árm. 2:10.70 3. Vadim Forafonov, Árm. 2:12.10 100 m skriðsund kvenna
1. Lára H. Bjargardóttir, SH 57.89 2. Kolbrún Ý. Kristjánsdóttir, ÍA 58.63 3. Elín Sigurðardóttir, SH 1:00.33 100 m skriðsund karla
1. Hjörtur M. Reynisson, Ægi 53.76 2. Magnús Konráðsson, Keflav. 54.31 3. Davíð F. Þórunnarson, SH 55.06 4x100 m skriðsund kvenna
l.SveitSH 4:03.45 2. Sveit Ægis 4:09.63 3. SveitÍA 4:11.96 4x100 m skriðsund karla
l.SveitSH 3:31.56 2. Sveit Ægis 3:37.20 3. Sveit Ármanns 3:41.58
Li