Dagur - 02.12.1999, Síða 4
4 — FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
Ð^tur
SUÐURLAND
Karlakór Selfoss er meðal þeirra
sem tekur þáttí útgáfutónleikun-
um þann 14. desember.
Sameinast um
litgáíutónleika
Tónlistarmenn á Selfossi sem eru
að gefa út geisladisk fyrir þessi jól
munu sameinast um útgáfutón-
leika, sem haldnir verða á sal
Fjölbrautaskóla Suðurlands
þriðjudagskvöldið 14. desember.
Tónleikana halda Labbi, sem nú
er að senda frá sér geisladiskinn
Leikur að vonum, Karlakór Sel-
foss, sem gefur út í Ijúfum Iækj-
arhvammi og Cun Decore heitir
diskur Kórs Fjölbrautaskóla Suð-
urlands. Ekki er útilokað að aðrir
tónlistarmenn í bænum sem
einnig eru að gefa út geisladiska
þessa dagana komi að tónleikun-
um, það er Unglingakór Selfoss-
kirkju og hljómsveitin O.FL.
„Eg held að þetta geti farið vei
saman, það eru skemmtilegar
andstæður í þessu; popplög og
svo sígildur karlakórasöngur,"
sagði Eyvindur Þórarinsson, for-
maður Karlakórs Selfoss, í sam-
tali við Dag. Aðspurður um hvers-
vegna þessi gróska væri nú í
geisladiskaútgáfu Sunnlendinga
sagði Eyvindur að fyrst væri til að
taka að mun auðveldara væri í
dag í allri framkvæmd og jafn-
framt ódýrara en áður hefði verið
að gefa út geisladiska. Síðan
mætti í raun segja að tónlistarleg
vakning hefði orðið í byggðarlag-
inu á allra síðustu árum og þar
hefði tilkoma Utvarps Suðurlands
haft mikil áhrif. Frá því það hóf
útsendingar sínar lyrir tveimur
árum væri mun auðveldara fyrir
alla tónlistarmenn að koma efni
sínu á framfæri, það vekti áhuga
hlustenda, smitaði út frá sér og
hvetti fólk til dáða.
-SBS.
Hugað verði að
undirbúningi skóla
Bæjarfulltmar Arborg-
arlistans bókuðu um
skólamál á síðasta bæj-
arstjómarfundi í Ar-
borg. íbúum fjölgar og
huga þarf að uppbygg-
ingu skóla.
Á fundi bæjarstjómar Árborgar í
sl. viku lagði Sigríður Olafsdóttir
fram bókun frá Árborgarlistan-
um, þar sem segir að bæjarfull-
trúar listans leggi á það mikla
áherslu að við gerð Ijárhagsáætl-
unar lyrir árið 2000 verði hugað
að undirbúningi og kostnaði sem
af honum stafar vegna hönnunar
nýs skóla á Selfossi í Árborg.
I greinargerð með tillögunni
segir að það sem af sé þessu ári
séu aðfluttir umfram brottflutta í
Árborg 119. Jafnframt hafi
grunnskólanemendum Ijölgað um
48 í byijun skólaárs í haust. Fyrir-
huguð er 1200 manna byggð í
Suðurbyggð og önnur 1200
manna byggð á Selfossjörðinni.
Bygging nýs skóla verður áfanga-
skipt og svo mun einnig verða
með nýju byggingasvæðin.
Bent er á það í bókuninni að
við Sandvíkurskóla, þar sem séu
380 nemendur, séu ýmis smáhýsi
sem ætluð hafi verið til bráða-
birgða og því telja bæjarfulltrúar
listans „...því ekki ofsagt að horfa
þurfi til framtíðar með aukinn
húsakost í huga eins og sfðasta
bæjarstjórn Selfosskaupstaðar
hafði samþykkt".
SUÐUR LANDS VIÐ TALIÐ
SUÐURLAND
Lokað vegna árþúsundamóta
Á síðasta fundi bæjarráðs Vestmannaeyja var samþykkt tillaga frá
bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins um að mánudaginn 3. janúar
árið 2000 verði stofnanir og fyrirtæki bæjarins lokuð í tilefni árþús-
undamóta, eftir þvf sem við verður komið. Jafnframt beinir bæjarráð
því í samþykkt sinni til fyrirtækja í Vestmannaeyjum að þau leitist við
að hafa þennan dag sem almennan frídag í Vestmannaeyjum sem
kostur er.
Frá Vestmannaeyjum.
Sækja um styrk til að
gera Tyrkjaránsmyndir
Þá lá á síðasta bæjarráðsfundi í Vestmannaeyjum fyrir bréf frá Ulfari
Þormóðssyni, þar sem hann fer fram á styrk til gerðar kvikmyndar
um Tyrkjaránið. Jafnframt lá fyrir bréf frá Seylunni ehf. þar sem leit-
að er eftir stuðningi við samskonar verkefni. Bæjarráð taldi sig ekki
geta orðið við erindunum.
MiUjónir í menningarhús
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu einnig fram tillögu sem var
samþykkt, þar sem segir að í framhaldi af samþykkt ríkisstjórnarinn-
ar um menningarhús samþykki bæjarráð að veita 1,5 millj. kr, sem
tekin verður af fjárhagsáætlun næsta árs, til frumhönnunar og
kostnaðaráætlunar um möguleika á byggingu fjölnota menningar-
húss í nýja hrauninu á svæði gömlu Rafveitunnar. I húsinu er meðal
annars gert ráð fyrir samkomuhúsi, sýningarhúsi, tónlistarhúsi með
leiksýningarmöguleikum og söfnum svo sem gosminja- og náttúru-
gripasafni. „Bæjarráð felur bæjarstjóra framgang málsins og einnig
að ræða við ríkisvaldið er varðar fjármögnun," segir í tillögunni.
Fjós hyggt í Steinum
Verið er að byggja þessa dagana nýtt 80 kúa legubásafjós að Steinum
undir Eyjafjöllum. Fjósið er byggt samkvæmt nýjustu kröfum og
stöðlum og verður þar meðal annars mjaltaróbóti til að mjólka kýrn-
ar. Búist er við því að flutt verði í fjósið í kringum 10. desember og
verða þar um 70 kýr til að byrja með. Mjaltaróbóti er nýjung í ís-
lenskum fjósum, fjósið í Steinum verður annað í röðinni á landinu.
Fyrsti mjaltaróbótinn var settur upp hjá Sæmundi Ágústssyni, bónda
í Bjólu í Djúpárhreppi. -SBS.
Jólaversliuiin að vakna
Gísli
Bjömsson,
kaupmaður í Barón og Casa í
Kjamanum á Selfossi.
Jólaverslun á Selfossiað
fara á skríð. Languropn-
unartími, mikiðvöruúr-
val, jólasveinar og kór-
sötigur. Jólaglögg ogpip-
arkökur.
- Er jólaverslunin á Suður-
landi hafin að einhverju
marki?
„Það virðist sem nú sé að
færast eitthvað líf í verslun í
bænum. Síðasta laugardag voru
verslanir í Kjarnanum opnar al-
veg fram til miðnættis og við-
skiptavinum var boðið uppá
jólaglögg og piparkökur en þær
veitingar var boðið uppá í sam-
vinnu við Kaffi Krús og H.M.
Café. Það var talsvert líf í
lvjarnanum þctta kvöld, til
dæmis mikið af utanbæjarfólki.
I þeirri kuldatfð sem hér hefur
verið síðustu daga dregst fólk
að því að koma í hlýjuna í
Kjarnanum."
- Hvernig verður opnunar-
tíma verslana svo háttað á
næstunni?
„Um næstu helgi verða versl-
anir í Kjarnanum opnar frá
klukkan 10 til 16 á laugardag
og á sunnudag milli 12 og 18,
en reyndar lengur í KA. Síðan
lengist opnunartíminn smátt
og smátt eftir þvf sem nær
dregur jólum. Um aðra hclgi
þegar jólasveinarnir úr Ingólfs-
fjalli koma f bæinn verður mik-
ið um að vera og einnig koma í
heimsókn til okkar kórarnir hér
á staðnum og syngja jólalög, en
ekki hefur verið tímasett ná-
kvæmlega hvenær kórnarnir
verða á ferð. Þannig gæti ég
haldið áfram að nefna
skemmtilega viðburði sem hér
verða á dagskránni alveg fram
til jóla. Frá 16. desember leng-
ist opnunartími verslana hérna
stórlega, þá verða þær opnar
alla daga frá klukkan tíu á
morgnana og fram til jafn-
lengdar á kvöldin og á Þorláks-
messu verður opið fram til kl.
23.“
- Hvernig eru auraráð fólks
um þessar mundir finnst þér?
„Eg tel að þau séu góð. Hjá
mér, bæði í Barón og eins í
Casa, hefur verið aukning í
sölu í öllum mánuðum þessa
árs sem segir auðvitað sitt urn
efnahagsástandið. Síðan er líka
vakning meðal fólks um að vera
vel til fara nú um jól og alda-
mót.“
- Telur þú að Iengri opnun-
artími verslana skili sér í
meiri verslun eða ráða þar
meiri peningar sem fólk hef-
ur á milli handanna?
„Þegar opnunartími verslana
er Iengri fer fólk meira út og
skoðar í verslanir, sér eitthvað
sem það fellur fyrir og kaupir.
Mér finnst þessi lengri opnun-
artími hafa skilað sér í þessum
efnum. En hitt sjónarmiðið um
rýmri peningaráð fólks á líka
lullan rétt á sér, þetta er sjálf-
sagt raunin að einhverju leyti."
- Hvernig koma sunnlenskir
kaupmenn út í samkeppni við
verslunarferðir til Evrópu?
„Mér finnst að við höfum
talsvert styrkt okkur í þessari
samkeppni á síðustu fjórum
eða fimm árum. Staðreyndin er
sú að vöruverð hér heima hefur
lækkað og úrvalið hefur aukist.
Vissulega er alltaf til staðar hjá
fólki spenningur gangvart því
að fara í utanlandsferðir, en er
þá ekki um að gera að njóta
ferðarinnar til fullnustu og
slappa vel af þegar maður er á
annað borð að fara út fyrir
landsteinana? I stað þess að
sprcngja sig alveg í búðarápi og
koma heini til Islands með
fulla poka af varningi, sem
einnig fæst hér heima á góðu
verði."
-SBS.