Dagur - 04.12.1999, Blaðsíða 2
II-LAUGARVAGUR 4. DESEMBER 1999
Dagur
SÖGUR OG SAGNIR
Framhald afforsíðu
Til íimilar viö Einar
Aakraiin
Það lætur Kátt í umferðinni í
höfuðstað Luxembourg síðdegið
þegar við María Huesmann
heimsækjum höfuðstöðvar Flug-
leiða/Icelandair. Það er ætíð svo
á þessari eykt. Umferðin er þung
og hægstreym eins og eimyrja
þegar María stýrir þungum
BMW-bíl sínum gegnum mið-
borgina.
Sólskinið sem þrengir sér
gegnum mistrið gyllir þök og
turna sem við þokumst niður
Boulevard Royale, þar sem
leyndardómsfullar bankabygg-
ingar, gerðar úr marmara og
skyggðu gleri, liggja hlið við hlið.
Hátt í 200 sh'kar stofnanir er að
finna í höfuðstaðnum.
Pont Adolphe
Leiðin liggur yfir stærstu stein-
brú Evrópu, Pont Adolphe, er
hvelfist á bogadregnum undir-
stöðum yfir feiknlegt gljúfrið,
sem skiptir borgarkjarnanum í
tvennt. Fyrirbæri án hliðstæðu í
höfuðborgum veraldarinnar.
Sjálf brúin, í nýklassískum stíl,
er í senn listaverk og byggingar-
tæknilegt afrek, byggð um síð-
ustu aldamót af frönskum snilli,
Paul Sejourné að nafni. Mann-
virkið er hlaðið úr óteljandi
tilhöggnum steinblokkum, sem
tímans tönn hefur unnið á hið
ytra, en ber með sóma uppi
mesta umferðarþunga sem um
getur f Luxembourg í dag; burð-
argetan er raunar fagur vitnis-
burður um ótrúlega hæfni
manna til að reisa tæknilega
vandasöm mannvirki með til-
tölulega einföldum verkfærum.
Glæsigatan sem tekur við af
brúnni varð við þýsku innlimun-
ina í seinni heimsstyrjöld skýrð
upp og fékk nafnið Adolf Hitler
Strasse, en eftir frelsun landsins
endurskýrð og heitir nú Avenue
de la LiberYte. Sagana segir að
við undanhald Þjóðverja í stríðs-
lokk, þegar öll mannvirki sem
töldust hafa hernaðarlega þýð-
ingu voru sprengd í loft upp, hafi
Pont Adolphe verið þyrmt nafns-
ins vegna, þótt það megi rekja til
annars Adolfs, Adolfs Stórher-
toga af Nassau sem ríkti hér
1890-1905.
Hylling
A hægri hönd, 50 metra niðri í
svimandi djúpum gilbotninum,
eygir maður sitrandi læk, bleika
haustliti gilgróðursins og túrista
á makindalegu sveimi á götu-
slóðunum þar niðri í drottins
dýrðar koppalogni. A vinstri
hönd stórvaxin tré og í fjarska
hinir eldfornu virkismúrar, þús-
und ára gamall vísirinn að her-
togadæminu. En hæst á tróni, á
Place de la Constitution, ber við
himinþilið gulli lögð Charlotte
stórhertogaynja; hún réttir til
himins lárviðarsveig úr skíra
gulli, þakkargjörð til allra þeirra
sem fórnuðu Iífi sínu í barátt-
unni fyrir frelsi Luxembourg í
fyrri heimsstyrjöld. A fótstalli
minnismerkisins krýpur ungur
maður við hlið fallins félaga síns.
Pont Adolphe er að baki. Við
keyrum niður Avenue de Ia
Liberté, beygjum inn í Rue Gles-
ener þar sem höfuðstöðvar Flug-
leiða/Icelandair eru til húsa.
Okkar bíður fundur með Norð-
manninum Einari Aakrann, for-
stjóra Flugleiða í Luxembourg
síðan 1955.
Staðreyndir
Fyrst nokkrar staðreyndir sem ég
hef á takteinum. Einar Aakrann
er fæddur við Óslófjörð. Ungur
gegndi hann herþjónustu í Loft-
varnadeild norska hersins. Þótt
honum að eigin sögn fyndist
hann vera rangur maður á röng-
um stað, heillaðist hann af flutn-
ingamöguleikunum í háloftun-
um, þar sem Ieiðir Iiggja yfir og
leiðir undir og leiðir til allra átta,
eins og það heitir í gömlum nor-
rænum gátuleik.
Auk starfsins sem forstjóri
Flugleiða í Luxembourg er Aakr-
ann einnig Heiðurskonsúll Is-
lands í Luxembourg síðan 1988.
1963 varð hann vararæðismaður
og þar næst aðalræðismaður
1968. Aðalræðismaðurinn er að
sögn gæddur óvenjulegum um-
gengnishæfileikum sem hafa
vafalaust orðið honum til fram-
dráttar gagnvart áhrifamönnum í
atvinnulífi og rfkisstjórn, alla leið
að borði Stórhertogans. Þau
sambönd munu, ef að líkum læt-
ur, hafa komið Loftleiðum/Flug-
leiðum til góða í áranna rás. For-
stjórinn er þríkrossaður; hann er
handhafi Commmandeur de
I’Ordre de Mérite du Grand-
Duché de Luxembourg; Comm-
andeur de l’Ordre Civil et
Militaire d’Adolphe de Nassau
og Stórriddarakross íslensku
Fálkaorðunnar.
Mtldð meira veit ég ekki
Við erum loks komin á leiðar-
enda og á uppleið í lyftunni, sem
nú opnast innandyra á skrifstofu
Flugíeiða erum við boðin vel-
komin af sérlega kurteisum og
hraðmælskum eldri herra: Norð-
manninum Einari Aakrann, fjör-
legum fjöltungumanni, sem er
jafnvígur á ein fjögur erlend
tungumál, ensku, þýsku, frönsku
og Iúxembúrgísku.
Forsaga Luxembourg sem
bækistöðvar
Og þá erum við komnir að for-
sögunni að Ameríkufluginu frá
Luxembourg. I árslok 1952
hafði Einar ráðist til starfa hjá
norska flugfélaginu Braathens
SAFE, og þaðan tengdist hann
Loftleiðum sem hófu samstarf
við Braathens á þessum tíma.
Fram að þeim tíma að Loftleiðir
hófu Ameríkuflug sitt frá Lux-
embourg, hafði félagið frá 1952
stúndað áætlunarflug yfir Atl-
antshafið og frá íslandi til Norð-
urlanda og Hamborgar. Þar áður
var aðeins um að ræða leiguflug
á Atlantshafsleiðinni. Raunar í
takmörkuðum mæli, en fól ein-
nig í sér flutning á suðurevrópsk-
um útflytjendum til Suður-Am-
eríku, og vélarnar íluttu ávexti
tilbaka á íslenska markaðinn.
En reglubundið áætlunarflug var
fyrst hafið á Atlantshafsleiðum
1952, sama ár og samvinna Loft-
leiða við Braathens SAFE hófst.
Þá var flugleiðin þannig: flogið
var frá Hamborg, Kaupmanna-
höfn, Gautaborg, Ósló og
Stafangri um lsland til New
York. Það hafði skilað góðum ár-
angri. Engu að síður gat maður
séð fyrir að reksturinn myndi
bráðlega verða fyTÍr skakkaföll-
um af völdum aukins framboðs á
hinum hefðbundnu mörkuðum
og þrýstingi keppinautanna á
viðkomandi yfirvöld að setja lág-
fargjaldafélaginu stólinn fyrir
dyrnar. Þar að auki var líklegt að
Þýskaland myndi, áður langt liði,
taka sömu afstöðu og það kom
svo sannarlega á daginn þegar
gagnkvæmi samningurinn milli
Islands og Þýskalands var skert-
ur 1956, sama ár og Lufthansa
vaf Stófnáð. Sjá næstu' síðu.
Tímamót
í tilefni flutnings okkar
aö Malarhöföa 2 bjóöum
viö lækkað verö
30. nóv. til 4. des
M. Benz C-180 sport, árg. 1995,
flöskugrænn, ek. 110 þús. km, 17“
álf., o.fl. Verð áður 2.150.000.
Verð nú 1.750.000.
M. Benz 200E, árg. 1991,
blásanseraður, 17“ AMG-álfelgur,
topplúga, leður, rafdr., CD, ABS o.fl.
Verð áður 1.490.000
Verð nú 1.250.000.
BMW 735 ÍA, árg. 1992,
grásanseraður, ssk., ek. 190 þús. km,
þjónustubók, 17“ Alpine-álfelgur, rafdr.
o.fl. Verð áður 1.850.000
Verð nú 1.250.000
BMW 316i, árg. 1995,
vínrauður, ek. 100 þús. km, central,
ABS, álfelgur. Verð áður 1.580.000.
Verð nú 1.380.000.
BMW 520, árg. 1989,
svartsans., ek. 170 þús. km, álfelgur,
toppl., ABS, central. o.fl.
Verð áður 780.000.
Verð nú 620.000.
Nissan Maxima, 3,0 IV-6, árg. 1990,
grásans., ek. 170 þús. km,
ssk., leður, álf. o.fl. Verð 750.000.
Verð nú 480.000.
Volvo 460 GLE, 2,0 I, árg. 1994,
vínrauður, ek. 120 þús. km,
vetrardekk á felgum.
Verð áður 850.000.
Verð nú 730.000.
Ch. Corvette 350, árg. 1984,ssk.,
svartur, mikið yfirfarinn, allur sem nýr.
Verð áður 1.380.000
Verð nú 1.050.000
Dodge Durango SLT, árg. 1998, svartur,
ek. 20 þús. km, leður, álfelgur, ABS, rafdr.
o.fl.Verðáður 4.600.000
Verð nú 4.200.000
Chevrolet Siiverado SLT Carime
6,5 TD, árg. 1995,grænn, ek. 60 þús
mílur, 35“ álf., breyttur hjá Bílabúð
Bennaf yrir 1,5 millj. Verð 3,3 millj.
M. Benz 300E, 24 v., 220 hö„ árg. 1992,
ek. 110 þús. km, svartsans., leður,
toppl., CD, rafm., ABS o.fl.
Verð áður 2.400.000.
Verð nú 1.850.000.
M. Benz C-200 Sport Atptour, árg.1997,
blásans., ek. 65 þús. km, leður,
17“ AMG álf., o.fl.
Verð áður 2.850.000.
Verð nú 2.450.000.
Ford Ranger, 4,0 i, árg. 1992,
blár, 5 g., ek. 110 þús. km, góður
vinnubíll. Verð áður 1.080.000.
Verð nú 850.000.
MMC L-200 double cab dísil, árg.1992,
rauður, ek. 230 þús. km.
Verð áður 850.000.
Verð nú 630.000.
Toyota 4Runner, 3,0 1,1992,
vínrauður/grár, ssk., 5,7 I, 38“, kantur,
læsingar, toppl., mikið yfirfarinn.
Verð áður 1.650.000.
Verðnú 1.380.000.
Nissan Patrol 2,8 TD, árg. 1995,
grár, ek. 140 þús. km, mikið breyttur.
Spyrjið sölumann.
Verð 2.700.000.
Ford Aerostar V6, árg.1993,
blár/hvítur, ek. 120 þus. km,
7 manna. Toppeintak.
Verðáður 1.150.000.
Verð nú 850.000.
Ford Windstar V6, árg. 1995,
gylltur, ssk., ek. 60 þús. mil.,
7 manna. Verð 1.850.000.
Verð nú 1.450.000.
Sveigjanleg greiðslukjör
Allt að 100% lánsfé
Opiö virka daga frá 9-19
og laugardaga, kl. 10-17.
Bílasalan
Malarhöfða 2, sími 567 2000,
www.bilfang.is
rifiéiti nr