Dagur - 16.12.1999, Qupperneq 3
FIMMTVDAGVR 16. DESF.MBER 1999 - 3
Ðugur
SUÐURLAND
Lýsingaháttur fortíðar
„Almennt má segja að Landeyingasaga sé
hinn besta bók og eigum við ekki að gefa
henni svo mikið sem þrjár stjörnur. Gallarnir
eru þó nokkrir, “ segir meðal annars hér í
greininni.
Út er komin
Landeyingabók,
þar sem fjallað
er um bæi og
ábúendur í Aust-
ur-Landeyjum.
Bókin er að
grunni til unnin
úr handriti Val-
geirs heitins
Sigurðssonar,
fræðimanns á
Þingskálum á Rangárvöllum, en
hann safnaði um sína daga
miklum og mikilsverðum heim-
ildum um mannlíf í sveitum í
Rangárþingi fyrr á tíð auk þess
sem hann var mikilvirkur ætt-
fræðingur. Valgeir féll frá snem-
ma árs 1994 og kom það þá í
hlut æskufélaga hans, Ragnars
Böðvarssonar, að annast loka-
frágang verksins. „I bókinni er
merki Valgeirs Sigurðssonar
haldið á lofti og þess gætt svo
sem kostur er að hafa það held-
ur sem sannara reynist," segir á
bókarkápu, þar sem segir enn-
fremur að Landeyingabók sé
nauðsynlegt heimildarit fyrir þá
sem áhuga hafa á byggða- og
persónusögu, sem og ættfræði.
Þá segir ennfremur að rakin sé
saga jarða í Austur-Landeyjum
og fólksins sem þær hefur byggt
frá því er sögur hófust og fram
til okkar daga. „Getið er allra
bænda og húsmæðra sem heim-
ildir hafa fundist um, ættir þeir-
ra og æviferill rakinn og sagt frá
börnum þeirra.“
Stðrvirki rétta
lýsingarorðið
Um bók þessa er stórvirki rétta
lýsingarorðið. Ljóst er að rnikil
vinna hefur verið lögð af hálfu
Valgeirs Sigurðssonar og þeirra
sem síðar tóku við merki hans í
að afla heimilda og skrá niður
sögu byggðar og mannlífs í
Austur-Landeyjum. Villulaus
getur bók sem hefur að geyma
jafn ítarlegar upplýsingar um
ættir, fólk og fæðingardaga þess
tæpast verið, þó ég geti hinsveg-
ar ekki, sakir ókunnugleika,
rökstutt þessa kenningu frekar.
En þetta býr í hlutarins eðli. Vel
og ítarlega er sagt frá jörðum og
landkostum þeirra með tilvitn-
unum í ýmsar heimildir, gamlar
sem nýjar. Frásagnir urn seinni
tíma fólk, sem nýlega er látið,
eru ágætar með tilvitnunum f
minningaorð. Þá er einnig sagt
frá lífshlaupi þeirra sem nú búa
í Austur-Landeyjum þó þær frá-
sagnir mættu ef til vill vera
nokkuð ítarlegri, sem upplýs-
ingar um búskap á hverri jörð.
Frásagnir um það sem hæst ber
í lífi og starfi Austur-Landey-
inga nú um aldarlok væru ein-
nig kærkomnar.
Það er fyrst og fremst matsat-
riði þeirra sem bókina setja
saman á hvað áhersla
skuli lögð og enginn
áfellisdómur er hér
lagður á bókina þó þeir
hafi tekið þann pól í
hæðina að hafa fortíð-
ina sem áhersluatriði,
fremur en nútíðina.
Hefði þessu verið
breytt af útgefendum
hefði það ef til vill líka
verið frávik frá því
hvernig Valgeir á Þing-
skálum hugsaði verkið
í upphafi, þannig að á
því sést best að erfitt er
fyrir alla að taka við
verki sem annar hefur
verið langt kominn
með, en ekki auðnast
að ljúka.
Margar myndir - en
augljósir gallar
I Landeyingasögu eru
alls um 500 myndir af
fólki úr sveitinni. Um
myndir frá fyrri áratug-
um tek ég viljann fyrir
verkið að þeirra hafi
verið aflað, en á hinn
bóginn finnst mér sko-
rta myndir úr búnaðarsögu
sveitarinnar og mannlífi, en
myndir þessar eru sjálfsagt víða
til. Þá hefði gjarnan mátt birta
myndir af hverjum bæ um sig.
Um myndir af því fólki sem nú
byggir sveitina er það að segja
að margar þeirra eru nýjar og
góðar, en klént er þó að í all-
mörgum tilvikum eru aðeins
myndir sem birst hafa annars-
staðar í sambærilegum ritum,
svo sem Sunnlenskum byggð-
um. Það hefði varla kostað
mikla vinnu fyrir góðan mynda-
smið að bæta úr þessum aug-
ljósa galla.
Almennt má segja að Landey-
ingasaga sé hinn besta bók og
eigum við ekki að gefa henni
svo mikið sem þrjár stjörnur.
Gallarnir eru þó nokkrir, einsog
ég hef tíundað hér að framan,
og það hefði ekki verið stórmál
að bæta úr þeim. Þetta þurfa
menn að hafa í huga við útgáfu
annarra sambærilegra rita úr
öðrum sveitarfélögum, en víða
er um þessar mundir einmitt
staðið í útgáfu bóka af þessum
toga.
Landeyingabók
Útgefandi: Austur-Land-
eyjahreppur.
Höfundur: Valgeir Sigurðs-
son og fleiri.
Blaðsíður: 566.
BÆKUR
Karlakór Selfoss í
fögmm hvammi
Karlakór Selfoss
hefur gefið út
geisladiskinn „I
ljúfum lækjar-
hvammi“, sem er
titillag geisla-
disksins. Það
flytur kórinn af
mikilli orku, inn-
lifun og ekld síst
sönggleði sem
einkennir mörg
laga karlakórs-
ins, en ekki öli.
Lagið „Minning" er þunglama-
legt, tenórinn nær sé ekki full-
komlega á strik, rétt eins og þeir
séu eitthvað feimnir og fyrir
bragðið vantar töluverða íyllingu
í hljóm tenóranna og þeirra sam-
hljóm. Þess sama gætir í „Omum
vorsins". Gylfi Þ. Gíslason syng-
ur einsöng í „Islands lagi“, fer vel
með en án allra tilbrigða. Hefði
að ósekju mátt leggja meiri inn-
lifun í sinn söng. Drynjandi bassi
Helga Helgasonar nýtur sín vel í
„Tina Rondoni" og er mjög
áheyrilegur og söngurinn svo
átakalaus, og þar með skemmti-
legur og tvísöngur Jónasar Lilli-
endahl og Sigurðar Karlssonar er
góður, raddirnar falla vel saman
og þeir félagar syngja af mikilli
sönggleði. Kórinn syngur lag um
eigin flugreynslu til Eyja og gerir
vel í skemmtilegu lagi og Ijóði
eftir Omar Ragnarsson. Berglind
Einarsdóttir syngur „Vín, borg
minna drauma" og gerir áheyri-
lega en það vantar þessa gömlu
Vínarsveiflu í lagið og bakraddir
kórmanna eins og ekki alltaf í
takti.
GEISLA-
DISKAR
skrifar
„Saknaðarljóð“ fer kórinn ein-
staklega vel með, reyndar eru ró-
legri lögin á geisladiskinum heilt
teldð áheyrilegri og betri hluti
þessarar söngskemmtunar úr Ár-
nesþingi. Mansöngur þeirra
Valdimars Karls Guðlaugssonar
og Ólafs Björnssonar til eigin-
kvenna sinna, líldega, í „Til konu
minnar“ er þrunginn tilfinningu
og ást enda segir m.a. í textanum
að hún sé fríð sem runnarós, rík
af þýðum hljómi. Karlakórinn
Hytur skemmtilega lag Bubba
Mortens „Það er gott að elska“
og sýnir svo ékld er um villst að
kafjlakórar geta vel flutt dægurfl- legn
ugur í góðri útsetningu. Það hafa
fleiri kórar sannað fyrr. Þar hefur
undirleikara kórsins, Helenu
Káradóttur, tekist frábærlega.
Fagmannlegur og líflegur undir-
Ieikur nokkurra hljóðfæraleikara
í lokalagi geisladisksins „Leikur
að vonum“ er góður punktur yfir
i-ið.
Það cr góður kostur við þenn-
an geisladisk að mörg laganna
hafa ekki heyrst áður og útsetn-
ingarnir eru margar hverjar
skemmtilegar og hæfa vel Karla-
kór Selfoss. I Ijúfum lækjar-
hvammi er í heild mjög áheyri-
'iówv
UTVARP SUÐURLANDS
FM 96,3 & 105,1
Fimmtudagurinn 16. desember
07:00-09:00 Góöan dag Suðurland. Sigurgeir H
09:00-12:00 Allt önnur Ella á jólakjólnum. Sotfía M
12:00-13:00 Meö matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds
17:00-18:25 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason
18:25-19:00 Svæðisútvarp Suðurlands Soffía S
19:00-22:00 Sportröndin. Fanney og Svanur
22:00-01:00 Kvöldsigling. Kjartan Björnsson
Föstudagurinn 17. desember
07:00-09:00 Góðan dag Suðurland. Sigurgeir H
08:20-09:00 Svæðisútvarp Suðurlands Soffia S
09:00-12:00 Allt önnur Ella á jólakjólnum. Soff ía M
12:00-13:00 Með matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds
17:00-18:25 Á ferö og flugi Valdimar Bragason
18:25-19:00 Svæðisútvarp Suðurlands. Guðrún
19:00-20:00 íslenskir tónar. Jóhann Birgir
20:00-22:00 Dýsel. Unnar Steinn
22:00-01:00 Lífið er Ijúft. Valdimar Bragason
Laugardagurinn 18. desember
09:00-12:00 Morgunvaktin. Valdimar Bragason
12:00-13:00 íslenskt tónlistarhádegiJóhann Birgir
13:00-16:00 Vanadísin. Svanur Gisli
16:00-19:00 Tipp topp. Gulli Guðmunds
19:00-22:00 Draugagangur. Kiddi Bjarna
22:00-01:00 Bráðavaktin. Eyvi og Anton
Sunnudagurinn 19. desember
10:00-11:00 Heyannir. Soffía Sigurðardóttir
11:00-13:00 Kvöldsigling (e). Kjartan Björnsson
13:00-15:00 Grænir Tónar. Skarphéðinn
15:00-17:00 Lestur úr jólabókum. Soffía M .
17:00-19:00 Daviðs sálmar. Davíð Kristjánsson
19:00-20:00 íslenskir tónar. Jóhann Birgir
20:00-21:00 Elvis frá A-Ö. Jói og Halli
21:00-22:00 Lestur úr jólabókum. Ýmsir
22:00-24:00 Sögur og sígild tónlist Friðrik Erlings
Mánudagurinn 20. desember
07:00-09:00 Góðan dag Suðurland. Sigurgeir
09:00-12:00 Allt önnur Ella á jólakjólnum. Soffía
12:00-13:00 Með matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds
17:00-19:00 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason
19:00-21:00 Ókynnt tónlist. Tölvukallinn
21:00-22:00 Morgunspjall (e) Valdimar Bragason
22:00-24:00 Lestur úr jólabókum. Ýmsir
Þriðjudagurinn 21. desember
07:00-09:00 Góðan dag Suðurland. Sigurgeir
09:00-12:00 Allt önnur Ella á jólakjólnum. Soffía
12:00-13:00 Með matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds
17:00-19.00 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason
19:00-22:00 Skeggjaða beljan. Vignir Egill
22:00-24:00 Lestur úr jólabókum. Ýmsir
Miðvikudagurinn 22. desember
07:00-09:00 Góðan dag Suöurland. Sigurgeir
09:00-12:00 Allt önnur Ella á jólakjólnum. Soffía
12:00-13:00 Með matnum. Tölvukallinn
13:00-17:00 Rjómagott. Gulli Guðmunds
17:00-18:25 Á ferð og flugi. Valdimar Bragason
18:25-19:00 Svæðisútvarp Suðurlands. Guðrún
19:00-20:00 Með matnum. Tölvukallinn
20:00-22:00 Jólabókalestur. Soffia M
22:00-24:00 Jólatónlist. ýmsir
Þorláksmessa 23. desember
07:00-09:00 Góðan dag Suðurland. Sigurgeir
09:00-12:00 Jólavakan Gestir og gaman. Sofffa
12:00-13:00 Jólavakan Lif og fjör. Tölvukallinn
13:00-17:00 Jólavakan opið húsGulli Guðmunds
17:00-18:25 Jólavakan fylgist með. Valdimar
18:25-19:00 Svæðisútvarp Suðurlands.Soffía
19:00-22:00 Jólavakan á hjólum
22:00-01:00 Jólavakan inn I nóttina. Kjartan
Hvað er á seyði?
Tónleikar, sýningar,
fyrirlestrar o.s.frv...
Sendu okkur upplýsingar á netfangi, í símbréfi eða hringdu.
ritstjori@dagur.is / fax 460 6171 / sími 460 6100
Útvörður upplýsinga
’im-»ífí‘Mí;rir!'. '■rnírj dncj .jmufilisaejjhrttbv 1