Dagur - 18.12.1999, Blaðsíða 7

Dagur - 18.12.1999, Blaðsíða 7
LAVGARDAGVR 18. DESEMBER 1999 - 7 Við vðnmarbj ðllur kliiigj a - hver hlustar? Búið er að klifa svo mikið á góð- æri síðustu ára og sífellt bjartari framtíðarhorfum að engu er lík- ara en að þjóðin og fjármálakerfi hennar séu búin að fá sig full- södd og sé orðið bumbult af öll- um glæstu spádómunum og vel- megunarhjali. Ríkisstjórnin legg- ur fram fjáraukalög til að taka til baka það sem hún taldi sig hafa unnið á frjárlögunum og fer að sneiðast um tekjuafgangana, sem samt eru miklu meiri en gert var ráð fyrir vegna, eyðslu, þenslu og allskyns flottræfils- háttar, sem aukið hefur skatt- tekjunar verulega. Þegar við svo siglum hraðbyri inn í enn meira góðæri og allra fyrirheita þúsaldarinnar klingja við viðvörunarbjöllur úr öllum áttum. Viðskiptahallinn eykst hröðum skrefum og er orðinn meiri en nokkurn óraði fyrir. Þar með aukast tekjur af innflutn- ingi, svo að ríkissjóðstekjurnar eru meiri en nokkurn óraði fyrir og það eykur aftur á þensluna, sem kvað vera efnahagslífinu af- skaplega óholl. Svona gengur þetta koll af kolli og verðbólgan kemst á skrið með öllum sínum óbærilega léttleika. Svo eru menn að reikna út að einkaneyslan sé komin á hærra stig en almenningur fær staðið undir, en samt gera fjármálafyr- irtæki allt sem í þeirra valdi stendur til að fá fólk til að taka meiri Ián og kaupa meira, því peningarnir fljóta upp úr öllum hirslum peningastofnana og sjóðirnir þurfa að ávaxta sitt pund. Þórður Friðjónsson, forstöðu- maður Þjóðhagsstofnunar, ein- faldar málið: „Þjóðarútgjöld eru einfaldlega að aukast mun hrað- ar en þjóðartekjur og það liggur í augum uppi að það getur ekki gengið til lengdar." Spamaðaráfonn Ríkissjóður veit vart aura sinna tal, er haft eftir Jóni Kristjáns- syni, formanni fjárlaganefndar, í Degi. Þenslan í þjóðfélaginu veldur því að skatttekjur ríkissjóð eru margfalt meiri en gert var ráð íyrir og tekjur af bankasölu eru mun meiri en reiknað var með í upphafi árs. Jón er varkár maður og tekur fram, að réttast væri að nota allan þennan óvænta gróða til að greiða niður skuldir ríkissjóðs og leggja eitt- hvað inn í Seðlabankann. Nú er eftir að sjá hvernig þau sparnaðaráform reynast þegar eyðsluklærnar komast í þá feitu hita sem þensla, ofvöxtur, við- skiptahalli og alls kyns óáran færa þjóðinni sem umbun fyrir óráðssíu og fyrirhyggjuleysi. Þessar miklu peningafúlgur sem safnast að Iandssjóðnum og koma úr óvæntustu áttum, eru farnar að minna á alla óværuna sem settust að pressaranum í Dúfnaveislu Halldórs Laxness. Að honum streymdu peningar úr Kauptíð í algelymingi. Líf og fjör á markaðstorgi Kringlunnar. öllum áttum án þess að hann vissi hvernig hann hafði til þeirra unnið. Hann vissi ekkert hvað gera átti við alla þessa peninga sem ekkert pláss var orðið fyrir í hreysi þeirrra hjónaleysanna, pressarans og ráðskonu hans. Loks datt honum það ráð í hug að bjóða símaskránni til veislu, ef vera mætti að það grynnkaði eitthvað á öllu því peningaað- streymi sem var að gera pressar- anum lífið illbærilegt. Stórgróði af hættiunerkjum Vegir hagfræðinnar eru ekki alltaf auðrannsakanlegir. Eftir Iangt stöðugleikatímabil er órói farinn að gera vart við sig og er engu líkara en að stórgróði sé af helstu hættumerkjunum. Eftir því sem þensla, verðbólga og við- skiptahalli eykst verður gróði rík- issjóðs meiri og þeir sem honum ráða hafa úr meiru að spila. En þá er prédikað aðhald, til að ár- gæskan vaxi ekki allri stjórnsýsl- unni yfir höfuð. Úti í hinum stóra efnahags- heimi vara margir við þeim mikla vexti sem hlaupinn er í efnahags- lífið og fjármálakerfin yfirleitt. Hlutabréf hækka jafnt og þétt, sérstaklega í þeim geira sem kenndur er við hátækni og hug- búnað. Sjóðir vaxa óðfluga og peningastofnanir þurfa að ávaxta fé og eru því mjög fús að veita lán og þeir sem þau taka safna skuldum. Talað er um ofhitnun í peningakerfunum og er bent á að svona geti þetta ckki gengið til langframa. En allt hefur þetta slampast hingað til og spádómar um hrun hafa ekki ræst. Fyrir tveim árum lék efnahags- kerfi Asíu á reiðiskjálfi, upp úr þurru að því er best verður séð, að minnsta kosti var því ekki spáð af sérfræðingum. En nú kvað það vera að rétta við aftur og dansinn kringum gullkálfinn er stiginn á ný, en þó ekki af sömu ákefð og áður. Bjartsýnis- menn taka þetta sem dæmi um að allt sé í lagi þótt slæmska hlaupi í fjármálamarkaðinn, hann rétti aftur úr kútnum sé réttum ráðum beitt. En samt skilur titringurinn í Asíu eftir sig sár sem ekki gróa. Fjöldi fyrir- tækja og einstaklinga urðu gjald- þrota og eiga sér ekki endur- reisnar von. Sparifé fjölskyldna horfið og framtíðarvonir brostn- ar. En þar sem eyðslan eykst leik- ur allt í lyndi. I Bandaríkjunum eru menn afar bjartsýnir vegna þess að aukning í smásöluversl- un eykst jafnt og þétt. Það hleyp- ir fjöri í öll viðskipti og velmeg- unin blasir við. En samt losna þjóðirnar ekki við svartagallsrausið. Einkum hafa hagfræðingarnir hjá The Economist allt á hornum sér og segja fullum fetum að efnahags- kerfi Vesturlanda sé eins og út- blásin blaðra sem hljóti að springa. Velmegunin sé byggð á skuldasöfnun. Slegin eru lán til að kaupa hlutabréf, sem sífelltl hækka vegna aukinnar eftir- spurnar og á meðan svo er, sé allt með felldu á yfirborðinu. En þegar, ekki ef heldur þegar, verð- ið lækkar þá komi að skuldadög- um og lánin falla í gjalddaga, en eignirnar sem þeim var varið til að kaupa, verðfalla. Það var eitthvað þessu líkt sem skeði þegar verðhrunið mikla varð í Wall Street 1929 og hleyp- ti af stað kreppunni miklu, sem náði langt út fyrir landamæri Bandaríkjanna. En aðrir segja að þetta sé ekk- ert sambærilegt. Nú vita menn svo miklu meira um lögmál efna- hagslífsins og geta varast stór- slysin. Samt sáu þeir ekki íyrir Asíukreppuna fyrir tveim árum. ísland sker sig úr Islenskt efnahagslíf er samtvinn- að fjármálakerfum Evrópu, sem aftur dregur dám af hvernig kaupin gerast á eyrinni í Amer- íku. En engin haldgóð skýring hefur verið gefin á því, hvers vegna efnahagslífið á Islandi er allt í einu farið að skera sig úr með þcnslu og verðbólgu, sem er mun meiri en í öðrum ríkjum Evrópu. Stjórnvöld segjast hafa öll ráð í hendi sér og tala digurbarkalega um að fjárlög séu með tekjuaf- gangi og að einhverjar smávægi- legar vaxtahækkanir muni draga úr eftirspurn eftir lánum. En lánamarkaðurinn heldur áfram að bjóða lán með gylliboðum og ekki sýnist standa á eftirspurn- inni. Það er sama hvort um er að ræða fjárfestingar eða neyslulán, þar dregur hvorki úr framboði né eftirspurn. Engin þjóðarsátt Nú standa kjarasamningar fyrir dyrum og er boðuð miklil hóf- semd í öllum kaupkröfum, ella muni illa fara. Sú þjóðarsátt sem ráðherrarnir bjóða nú upp á til að trygga stöðugleika, sem raun- ar er glataður, er varla fyrir hendi. Þeir sáu sjálfir fyrir því fyrr á árinu. Gjörsamlega ábyrgðarlaus Kjaradómur og kjaranefnd hækkuðu Iaun allra stjórnenda og embættismanna ríflega og slóu þar með tóninn. Hópar opinberra starfsmanna veittu sjálfum sér nær einsdæmi um kjör sín og komust upp með það. Leiðtogar launþega á almenn- um vinnumarkaði mótmæltu og bentu á hvílík hervirki var verið að vinna. En á þá var ekki hlust- að. Ráðherrar, þingmenn og vel aldir embættismenn tóku náðug- samlegast við öllu því sem að þeim var rétt og kærðu sig koll- ótta um afleiðingarnar. Nú standa atvinnurekendur frammi fyrir því að gerðar eru til þeirra svolitlar kröfur um að greiða hærri laun en þeir þykjast geta staðið undir. En þeir hafa ekki ríkissjóð að bakhjarli eins kjara- dómur og kjaranefnd. En einhvern veginn og ein- hvern tíma munu samningar takast þegar kemur fram á næstu öld. En hvert efnahagsumhverfið verður þá er réttast að spá sem minnstu um. Sem fyrr segir klingja viðvörunarbjöllur í öllum gáttum, en fæstir vilja heyra í þeim eða taka hið minnsta mark á. Hið eina sem við viljum vita er, hvað vel menntuðu og óreyndu ungmennin við tölvuskjái pen- ingamusteranna hafa að segja um velgengni okkar á hluta- bréfamarkaði.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.