Dagur - 22.12.1999, Side 3

Dagur - 22.12.1999, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 19 9 9 -19 í LANDINU Jæja, Siv. Nú er alþjóð búin að heyra lesið upp úr leyni- skýrslu norska sendiherrans, þar sem hann vitnar í samtal við umhverfisráðherra Is- lands og samstarfsráðherra Norðurlanda, Siv Friðleifs- dóttur. Eg er búinn að lesa skýrsluna í hcild. Eg verð því miður, og þá meina ég því miður, að hryggja þig með því að útskýring þfn á skýrsl- unni stenst ekki athugun. Hér er mikið málum blandið. Almennar mnræður Þú sagðir í útvarpinu að þið hefðuð aðeins átt almennar umræður um stjórnámála- ástandið og viðhorf Iandsmanna vegna Fljótsdalsvirkjunar. I þínu máli hefði ekki komið neitt fram um það að hætti Norsk Hydro við samstarf um álver á Reyðarfirði myndi það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir samskipti ríkjanna. Norski sendiherrann segir frómt frá sagt allt annað. Samkvæmt norska sendiherranum munt þú hafa Iagt á þunga áherslu með ótvíræð- um orðum að íslenska ríkisstjórin hafi lagt mikið að veði vegna málsins, pólitískt. Slík orð eru ekki almennar umræður um stjórn- málaviðhorfið. í skýrsliumi stendur: „Hun benyttet ogsa samtalen til - i svert klare ordelag - a fortelle a regjeringen hadde lagt mye politisk prestisje i a kjöre denne saken frem. Det er en vanskelig sak med betydelig motstand blant folk. Derfor ville det kunne bli en betydelig belastning pa for- holdet mellom Norge og Island hvis Norsk Hydro valgte a trekke seg fra investeringen“. Þetta þarf ekki að þýða. Hvert tólf ára barn skilur hvað um er að ræða. Þetta eru tæpast vangaveltur „norska sendiherrans11 eins og þú hélst fram í útvarpinu í gær. Sér- staklega ekki vegna þess að í framhaldi af þessari klausu er haldið áfram og vitnað um hve staða Framsóknarflokksins yrði erfið með málið tapað, sérstaklega fyrir Halldór Asgrímsson, í kjördæmi sínu. Þessi klausa í skýrslu norska sendiherrans er mjög skýr. Hún er alveg ótvírætt um sam- tal þitt og hans. Hún er ekki vísun í almenn viðhorf til stjórnmálaástandsins, heldur mjög beinskeytt greining á sérstöku máli, þar sem sendiherrann vísar einmitt til hve ákveðið hafi verið komist að orði - af þinni hálfu. Þá vísar klausan í heild sinni á mjög sérstaka pólitíska stöðu formanns flokks þíns og utanríkisráðherra. Þegar þessari málsgrein lýkur tekur við út- skýring á henni fyrir norska lesendur, þar sem stöðu Halldórs Asgrímssonar er lýst svo orð þau sem áður hafa komið verði betur skiljanleg. Síðan kemur næsta málsgrein á eftir og sendiherrann segir: „Ambassadens vurdering er a dette kan bli en sak sem i ökende grad kan bli problematisk for forholdet mellom UMBUÐA- LAUST Stefán Jón Hafstein skrifar Ég er búinn ad lesa skýrsluna í heild. Ég verð því miður, og þá meina ég þvímiður, að hryggja þig með því að útskýring þín á skýrslunni stenst ekki athugun. Jæja, Siv Norge og Island". Að þessu sinni er skýrt tekið fram að sendiráðið „meti“ stöðuna svo að til vandræða geti horft í vaxandi mæli samskiptum þjóðanna. I fyrra skiptið þegar á sama mál er minnst er það í samhengi við hin mjög svo óvíræðu orð þín um stjórn- málaástandið. Þar er komist mun kröftugar að orði um hve hættulegt málið geti reynst samskiptum ríkjanna heldur en þegar sendi- herann tekur fram að hann lýsi sínu eigin mati. Þá lætur hann sér nægja að segja að málið geti vaxið að vandræðum fyrir sam- skipti ríkjanna. Svo er nú það. Hér fer Iítið á milli mála. Norsk mistök? Það eru reyndar möguleikar á því að norski sendiherrann sé mjög lélegur skýrsluhöf- undur, geri lítinn mun á málsatriðum og fari stöðugt úr einu í annað og hreinlega rugli með eigin álit og annarra. Eftir viðtölum við þig að dæma virðist þú vera þeirrar skoðun- ar. Það sem virðist ómögulegt að skilja ann- að en sem endursögn af samtali við þig, seg- ir þú að séu „vangaveltur hans“. Skýrslan í hcild bendir reyndar til að norski sendiherrann sé frekar skýr í hugsun og framsetningu. Illt í augimum? Sé þessi skýrsla frekar sönn lýsing á fundi ykkar, sem því miður verður að álíta, hvaða þýðingu hefur hún? Eg ætla ekkert að móralisera yfir umhverf- isráðherra. Þú vinnur svona og hver og einn verður að meta það. A sama hátt ætla ég ekkert að messa yfir iðnaðarráðherra. Frekar en formanni iðnaðarnefndar, Hjálmari Árna- syni. Þið virðist öll lesa eitthvað annað út úr því sem stendur fyrir framan ykkur en af- gangurinn af þjóðinni. Finnur Ingólfsson sér miklu meira um meint tímahrak Norsk Hydro í álmálinu en nokkur annar. Þú sérð miklu minna en allir aðrir í skýrslu norska sendiherrans. Og Hjálmar Arnason sér ekki neitt af því sem hann vill sjá frá Skipulags- stjóra. Er ykkur illt í augunum? Það sem mig undrar núna er hvernig þið ætlið að semja við Norsk Hydro um al- mennilegt orkuverð. Eg hitti einu sinni hnífakaupmann í Katmandú. Hann sagðist eiga 12 sveltandi börn, eiginkonu, tengda- móður og aldraðan föður sem hann þyrfti að sjá fyrir, enginn vildi kaupa af sér nokkurn skapaðan hlut og því yrði ég að bjarga sér í hvelli með því að kaupa þennan rokdýra hníf sem hann sýndi mér. Eg var á leið út á flugvöll og sagðist svo sem geta tekið hníf- inn fyrir ldinkið, sem ég vissi ekki hvað ég ætti að gera við. Þið megið hvenær sem er koma heim til mín og skoða hnífinn. Eg gæti trúað að Norsk Hydro kunni svona sögur líka. IMENNINGAR LÍFID Allirsem koma með bauka í Há- skóiabíó eiga Star Wars í Háskólabíói Nýja Star Wars- myndin The siguröardótör Phantom Menace verður sýnd aftur í stórum sal í Háskólabíói á annan í jólum. Myndin verður sýnd í viku til að byrja með eða fram til 2. janúar. Aðeins er um sex sýn- ingar að ræða. Allir þeir sem koma með fullan jólabauk frá Hjálparstarfi kirkjunnar sem dreift , varíhúsfýr- mo9ulerka á vinn irjólinogaf- ,n9'- henda starfsmanni Hjálparstarfs kirkj- unnar baukinn eiga möguleika á glæsilegum vinningum þessa sýningarviku. Yfír 400 vinning- ar eru í boði, meðal annars Star Wars legókubbar, gjafa- bréf á veitingastaði, frostpinn- ar, kóladrykkir og svo mætti lengi telja. Aðalvinningurinn er flug og bíll, gisting á Hótel Legolandi í tvær nætur og að- göngumiði inn í garðinn. Komið verður fyrir stórum bauki í Háskólabíói merktum Hjálparstarfi kirkjunnar og mun starfsmaður þess hella úr öllum jólabaukunum. Agóðinn rennur til innanlandsaðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar fyrir þurfandi íslenskar fjölskyldur um hátíðarnar. Hvað öðravísi? I tilefni jól- anna birtist eftirfarandi gáta: Ef vitringarnir hefðu Hvað verið konur, hvað hefði farið þá? öðruvísi í -------— Betlehem ef vitring- arnir þrír hefðu verið þrjár vitr- ar konur? Svar: Þær hefðu spurt til vegar og komið tímanlega fyrir fæðinguna, tekið á móti baminu, þrifið fjárhúsið, eldað vel útilátinn pottrétt og fært barninu hagnýtari og heppilegri gjafir! Núllþol Fyrir allnokkrum vikum síðan ráku lögreglumenn í Reykjavík upp ramakvein. Lögreglufélag Reykja- víkur birti auglýsingu þar sem at- hygli atvjnnurekenda var vakin á því að rríargir lögreglumenn væru knúnir til að leita út á almenna vinnumafkaðinn ög var ástæðan sögð stórfelldur niðurskurður og aðhaldsaðgerðir stjórnvalda hjá lögregluembættinu í Reykjavík. Skömmu síðar rakst ég á konu, heiðvirðan og meinlausan borgara, sem halði þá nýlega lent í tveimur þjónum lögreglunnar, þessari stétt sem telur sig Iítið geta aðhafst í verndun almennra borgara sökum „aðhaldsaðgerða stjórnvalda". Konan hafði verið að keyra heim til sín eftir stutta leikhúsferð á laug- ardagskvöldi, stöðvað bíl sinn við stöðvun- arskyldu á götuhorni enda annað eigi hægt á viðkomandi horni þar sem háreist húsalengja byrgir útsýnið til suðurs og því væri það ámóta lífshættulegt að stöðva ekki bílinn og að leika sér í rússneskri rúll- ettu. Fáeinum metrum síðar drógu tveir aðkrepptir verðir laganna hana uppi, þess- MENNINGAR VAKTIN ir þjónar sem vernda eiga almenna borgara en geta ekld sökum tíma (þ.e. peningajskorts, og lcröfðust þess að fá að sekta hana fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu. Lóa Aldísardóttir skrifar NúHþoliö brenglast í hali Einhverjir lagavarðaspekúlantar, þ.á.m. fyrrum lögreglustjóri í New York, halda því fram að sé byrjað í grasrótinni megi uppræta illgresið. M.ö.o. að ef hart er tekið á létt- vægum lögbrotum eins og vændi, -veggjakroti og smásölu eiturlylja þá sé mogulegt að stöðva andfé- lagslega einstaklinga áður en þeir ná að vaxa úr grasi sem stórglæpamenn. Allt hljómar þetta afskaplega skynsamlegt enda snarlækkaði glæpum í NewYork upp úr 1994 þegar William Bratton þáverandi lögreglustjóri tók upp þessa stefnu sem sumir hafa viljað kalla „núllþol" (zero tolerance). Ekki veit ég hvernig reykvískri lögreglu hugnast þessi stefna en einhver brenglað- ur angi hennar viröist þó hafa smitast hingað til höfuðstaðar Islands þar sem Brenglaður angi „núllþols- ins“ hefur borist til höfuð- borgarinnar. fjársvelt lögregla telur sig hafa tíma til að norpa á götuhornum í von um að öngla saman aurum í embættiskassann. En eins og téður Bratton sagði eitt sinn þá var til- gangur stefnu hans að endurheimta sam- félagið fyrir hinn almenna borgara svo hann geti óhræddur notið tilverunnar. Hér virðast menn hins vegar líta svo á að rétt sé að krunka úr buddum heiðarlegra skattborgara svo halda megi uppi vellauð- ugum eiturlyljastórlöxum í fangelsi. Enda er óneitanlega mun arbærara að elta uppi heiðvirða borgara sem ekkert hafa að fela en hjólaþjófa og veggjakrotara sem at- hafna sig í skjóli nætur. Því hér forgangsraðar Iögreglan verkefn- um eftir mikilvægi eins og fram kom hjá lögreglustjóra í fréttaviðtali fyrr í haust út af fyrrnefndu ramakveini Lögreglufélags- ins. Hann taldi jafnframt „að þrátt fyrir aðhald og samdrátt í rekstri, þá muni það ekki bitna á viðbúnaði lögreglunnar gegn haráttunni gegn fíkniefnum svo dæmi sé nefnt." Eðlilega því lengi má strauja vísa- kort almennra borgara og lengja þeirra skuldahala. Gleðileg jól! PS: ...og munið nú að heimta frí milli jóla og nýárs svo tími gefist til að Iesa bækurnar, hlusta á diskana, spila spilin, skarta sparifötunum og éta matinn sem við keyptum (vrir helgina. Ioa@ff.is iríuiM.H,—um—I— ------1-->»»»« !«{#

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.