Dagur - 29.12.1999, Blaðsíða 4
4 - MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1999
VÍKURBLAÐIÐ
T>nptr
Göm/u f/ug/ínutækin
afhent Safnahúsinu,
ásamt björgunarhring
úr Hvassafellinu.
Stjórn Garöars ásamt
Viihjáimi Pálssyni,
fyrrverandi fórmanni,
og Guðna Halldórs-
syni, forstöðumanni
Safnahússins. F.v.
Karl Halldórsson,
Þórarinn Gunnarsson,
Jón Friðrik Einarsson,
Viihjáimur, Guðni,
Friðrik Jónsson og
Einar Örn Arnarson.
Bj örgunar s veitir
sameinast
18. desember s.l. sameinuðust björg-
unarsveitirnar Garðar á Húsavík og
Víkingur í Kelduhverfi. Að sögn Jóns
Friðriks Einarssonar, formanns Garð-
ars, hafa björgunarsveitir verið hvattar
til að sameinast eftir sameiningu
Landsbjargar og SVFI, því stærri ein-
ingar séu öflugri og betur í stakk búnar
til að sinna þeim verkefnum sem upp
kunna að koma.
Þennan sama dag afhenti stjórn
Björgunarsveitarinnar Garðars Safna-
húsinu á Húsavík gömlu fluglínutæki
sveitarinnar. Þetta eru söguleg tæki og
raunar var Garðar stofnaður um þessi
tæki árið 1959, en þá voru tækin í eigu
karladeildar Slysavarnafélagins. Þessi
fluglínutæki voru síðast notuð árið
1975 þegar Hvassafellið strandaði við
Flatey á Skjálfanda en þá var 19
manns bjargað í land í Flatey með
tækjunum. Eftir þessa frækilegu björg-
un fékk Garðar ný fluglínutæki og
þeim gömlu var lagt. Og fá væntanlega
verðugan sess á sjóminjadeild Safna-
hússins þegar hún verður tekin í notk-
un' Formenn björgunarsveitanna handsaia sameiningu, Hlynur Bragason og Jón Friðrik Einarsson.
Hvalamiðstöð-
m a fjarlog
Afmælisár Ilúsavíkur
hefst með hvelll
Hvalamiðstöðin á Húsavík er
komin inn á fjárlög ríkisins og að
sögn Asbjörns Björgvinssonar
skiptir það verulegu máli fyrir
framtíð þessarar starfsemi, burt-
séð frá þeim fjármunum sem
þarna falla til. „Þarna er ríkisvald-
ið í raun að taka stefnumarkandi
ákvörðun um að þessi starfsemi,
Hvalasafnið og fræðslumiðstöð
um hvali á Islandi, verði staðsett
á Húsavík og þar fari uppbygging
á þessu sviði fram en ekki annars-
staðar," segir Asbjörn.
Hann segir og að Húsavíkur-
bær muni einnig leggja fram
ákveðna upphæð til Hvalamiö-
stöðvarinnar sem mótframlag við
ríkið og nú sé hægt að einbeita
sér að því að fara að huga að
stærra húsnæði fyrir starfsemina
af fullum krafti. „Framtíðin er
okkar á þessu sviði," sagði As-
björn kátur. JS
Á miðnætti um áramót eru lið-
in 50 ár frá því Húsavík fékk
kaupstaðarréttindi þannig að
um leið og árið 2000 heldur
innreið sína fagna Húsavíking-
ar 50 ára kaupstaðarafmæli.
Og allt næsta ár verður helgað
hálfrar aldar afmæli bæjarins
með ýmsum hætti. Sérstök Af-
mælisnefnd hefur lokið störf-
um og sett saman Ijölbreytta
dagskrá afmælisársins og Ás-
björn Björgvinsson hefur verið
ráðin framkvæmdastjóri afmæl-
isársins og IVlaría Axfjörð hon-
um til aðstoðar.
Að sögn Ásbjörns hefst af-
mælisárið í raun með hvelli og
ljósadýrð á miðnætti um ára-
mótin, því þá gengur hálfrar
aldar afmælisár Húsavíkur í
garð. „Sunnudaginn 2. desem-
ber verður síðan fyrsta uppá-
koman, en þá verður haldin
mikil fjölskyiduhátíð í boði
Bæjarstjórnar Húsavíkur í
íþróttahúsinu frá kl. 16-18, þar
sem saman fer jólatrésskemmt-
un Kvenfélagsins og formleg
kynning á dagskrá afmælisárs-
ins. Þarna verða kaffiveitingar í
boði bæjarstjórnar og vonandi
sjá sem flestir bæjarbúar á öll-
um aldri sér fært að mæta. Auk
barnaballs, kaffiveitinga og
kynningar á afmælisárinu verð-
ur fjölbreytt tónlist, Stórsveit
Húsavíkur leikur, svo og lúðra-
j. ioo.i.i.i
sveitin og Lára Sóley og félag-
ar.“
Sérstök dagskrá verður síðan
í gangi allt árið og hver mánuð-
ur hefur sitt þema. „Við byrjum
í janúar og kynnum menning-
arbæinn Húsavík. Og síðan
verða mánuðir belgaðir orku-
bænum Húsavík, skólabænum,
barnabænum, matarbænum og
hvalabænum Húsavík, svo
nokkuð sé nefnt," segir As-
björn.
Sérstakt dagatal verður gefið
út þar sem uppákomur afmæl-
isársins verða tíundaðar og það
verður prýtt myndum og punkt-
um úr 50 ára kaupstaðarsögu
Húsavíkur. JS
Alvöru banka-
stjórar á lands-
byggðinni
Ein af ástæðum fólksllótt-
ans af landsbyggðinni til
höfuðborgarsvæðisins er sú
að menn huga ekki alltaf af
þeim gæðum sem til staðar
eru á heimaslóð, nálægðin
gerir sem sé fjöllin brún.
Einn af kostum Iands-
byggðarinnar er sá að þar
starfa eingöngu alvöru
bankastjórar. Menn sem
bafa faglega þekkingu, bafa
unnið í bönkum árum sam-
an, kunna skil á lánveiting-
um og þekkja mun á debet
og kredit.
I höfuðborginni eru það
fyrst og framst afdankaðir
pólitíkusar sem stjórna
bönkunum, menn sem hafa
fengið nóg af flokknum sín-
um eða flokkurinn nóg af
þeim. Eins og dæmin
sanna, nýleg og eldri.
Landsbyggðin býr sem sé
við þau forréttindi að
stjórnvöldum dettur aldrei í
hug að gera ónothæfa
stjórnmálamenn að útibús-
stjórum úti á Iandi. Hins-
vegar eru blikur á lofti í
þeim efnum, ef fleiri bank-
ar verða sameinaðir. Þá
fækkar bankastjórastólun-
um í Reykjavík og náttúr-
lega stórhætta á því að
gripið verði til þeirra ör-
þrifaráða að gera úrelta al-
þingismenn að útibússtjór-
um á landsbyggðinni.
Og þá fyrst fer náttúrlega
að harðna þar verulega á
dalnum.
'irt
Gleðibankastj ór-
innbrosir!!
Menn tala um að hróker-
ingum í ráðherraliði fram-
sóknar sé ekki lokið og að
þegar sé farið að marka
bankastjórastólastefnu
Framsóknarflokksins til
framtíðar. Talið er líklegt
að Ingibjörg Pálmadóttir
taki við Blóðbankanum
innan tíðar og Páll Péturs-
son við Búnaðarbankanum.
Þegar fram lfða stundir er
svo gert ráð fyrir að Guðni
Ágústsson taki við Gena-
banka alþjóðlega kynbóta-
sambandsins og Valgcrður
Sverrisdóttir verði yfirmað-
ur hjá Sparisjóði loðdýra-
framleiðenda.
Í sjálfum Gleðibankanum
mun svo að sjálfsögðu vera
frátekinn stóll fyrir Halldór
Ásgrímsson, þegar og ef
hann kemst í stuð eða gam-
alt bros tekur sig upp.