Dagur - 07.01.2000, Side 1

Dagur - 07.01.2000, Side 1
FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000 - 1 LEIKHÚS KVIKMYNDIR TÓNLIST SKEMMTANIR Spemiutiyllir í Hafnarflrði Magnþrunginn spennutryllirmeð gamansömu ívafi stendur í kynningar- texta umfyrstufrum- sýningu ársins í leik- húsunum, 8.janúar. Verkið erHvenærkem- urðu aftur rauðhærði riddari? Hafnaifjarðar- leikhúsið sýnir. ,,Þetta er ákaflega vel uppbyggt leikrit. Það gerist á litlum veit- ingastað í suðurríkjum Bandaríkj- anna þar sem Iífið er lognmolla. Þeir sem starfa á veitingastaðnum eiga náðugar stundir við dagdrauma þegar þangað kcmur skyndilega maður úr öðru um- hverfi sem er ekki allur þar sem hann er séður. Hann kemur róti á líf þessa rósemdar bæjarbúa svo enginn verður samur á eftir,“ seg- ir Viðar Eggertsson, leikstjóri. „Nafn verksins er dregið af því að á veitingastaðnum vinnur ung- ur maður sem dreymir um að hann sé hin fræga teiknimynda- persóna og kúreki rauði riddarinn sem var þekkt teiknimyndaper- sóna í Bandaríkjunum og hefur tekið upp háttu hans og væntir að hann hafi lfka hugsunarhátt þessa riddara sem lætur sér ekk- ert fyrir brjósti brenna. En við sjá- um að hann hefur ekki burði til að fylla upp í þá mynd þegar út í alvöruna er komið. Það sést best Lárus Vilhjálmsson, Gunnar B. Guðmundsson, Huld Úskarsdóttir og Daníel Viggósson íhlutverkum sfnum í Hvenær kemurðu aftur rauðhærði riddari? Viðar Eggertsson, leikstjóri. þegar þessi ókunni töffari birtist úr myrkviðum stórborgainnar sem hristir upp í öllum. Við þessar aðstæður fáum við smátt og smátt að sjá bak við þær grímur þeirra einstaklinga sem við höfum kynnst. Þessi ókunni maður nær að fara inn fyrir þau og lætur þau afhjúpa drauma sína, langanir og veikleika. Þeir sem eru í helstu hlutverk- um eru Olafur Steinn Ingunnar- son, Halldór Magnússon, Tania Iris Melero og auk þess koma fimrn aðrir leikarar við sögu. „Eins og ég sagði er þetta mjög vel skrifað verk af Mark Medoff og er í þýðingu Stefáns Baldurs- sonar. Frægasta verk Medoffs er Guð gaf mér eyra sem sýnt var í Iðnó fyrir allnokkm og kvikmynd- að. Þetta verk, Hvenær kemurðu aftur, rauðhærði riddari? hefur verið kvikmyndað líka. Það var frumsýnt á sviði 1973 í Banda- ríkjunum og sett upp hjá Leiklist- arskóla íslands 1985 og það var kannski þar sem Valdemar Flyger- ing sló fyrst í gegn. Þeirri sýningu stýrði Stefán Baldursson núver- andi Þjóðleikhússtjóri. Stuttu síð- ar var það líka sýnt hjá Lcikfélagi Akureyrar," segir Viðar Eggerts- son. Nú er Hvenær kemuröu aftur rauðhærði riddari? sýnt í nýju húsnæði Hafnarfjarðarleikhúss- ins að Vestugötu 11 í Hafnarfirði (Inngangur er við höfnina) og frumsýningin hefst kl. 20.00 laugardaginn 8. janúar. GUN. Fjartónleikar áHLióðtælaii- aaginn Óvenjulegur tónlistar- flutningur. Tónlistar- menn spila saman í fimmhundruð kíló- metra fjarlægðfrá hvor öðrum. í dag verður haldið upp á Hljóðtæknidaginn af Verkfræð- ingafélagi tslands og Tækni- fræðifélagi íslands í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs og hefst dagskráin kl. 13.00. Þar munu flytja erindi fremstu sérfræðingar Iandsins á sviði hljómburðar. Erindi þessi eru ætluð jafnt leikmönn- um sem Iærðum. Fjölmargir tónlistarmenn nær og fjær munu koma fram og seiða fram fjölbreytta tóna fyrir viðstadda. Þó ber hæst nokkuð sem er ekki daglegt brauð í tón- listarflutningi, það er að Daníel Þorsteinsson, píanóleikari og Sigurður Þorbergsson básúnu- Ieikari leika saman en þó í sund- ur, því Daníel verður við píanóið á Akureyri en Sigurður hinsveg- ar í Salnum. Aheyrendur sem staddir eru í Salnum fá píanó- tóna og mynd af Daníel í gegn- um fjarbúnað sem Islenska út- varpsfélagið og Landssíminn hafa gengið frá tæknilega. Daníel Þorsteinsson, píanóleikari spilar á fjartónleikum á Hljóðtæknidegi TFÍ og VFÍ. Vatn í 9vídd Þá verður f fyrsta sinn flutt hljómverkið „Novem soni aquae“ sem þýðir Vatn í 9vídd og er eftir Hrein Valdimarsson, hljómsmið RÚV. Sigurður Rúnar er sá eini á Is- landi sem fæst við að spila á ís- lenska fiðlu og ekld á hveijum degi sem tónlistarunncndum gefst kostur á að hlýða á tóna hennar. Söngvar verða ekki sfður sungnir og mun meðal annars Sesselja Kristjánsdóttir, ung söng- kona sem stundar nám í Berlín og er ennþá í jólafríi hér á landi syngja einsöng. Dagskráin hefst eins og áður segir kl. 13.00 í dag og er öllum opinn. -w ■umhelgina) Um Krítarhrmgmn Dagskrá verður í Listaklúbbi Leikhúskjallarans í tengslum við sýningu Þjóðleikhússins á Krítarhringnum í Kákasus mánudagskvöldið 10. janúar. Leikritið er eftir Bertolt Brecht og er eitt af hans vin- sælustu verkum. Hann skrif- aði það í Bandaríkjunum árið 1944 í útlegð frá Þýskalandi nasismans. Það er nú sýnt í fyrsta skipti á íslensku leik- sviði. í því er tekið til með- ferðar efni sem frægt hefur orðið í bókmenntum, en það er deila tveggja kvenna um barn, deila sem dómari leiðir til Iykta með óvenjulegum hætti. Umsjón með dagskránni hefur Melkorka Telda Ólafs- dóttir sem flytur inngang um verkið og höfundinn. Leikar- ar úr sýningunni lýsa þeim aðferðum sem beitt var við uppsetninguna og leika atriði úr verkinu. Dagskránni lýkur með umræðum gesta og nokkurra af aðstandendum sýningarinnar. Leikarar eru margir og þjóðþekktir, má þar nefna Arnar Jónsson, Ingvar E. Sigurðsson og Kristbjörgu Kjeld. Frá Goðum til Guðs Hvernig var tilveran á tím- um víking- anna, séð með augum barns? Hvaða áhrif hefur kristnin haft á viðhorf og lífsgildi í samfélaginu? Furðuleik- húsið sýnir fjölskylduleikritið Frá goðum til Guðs sem er samið í tilefni af 1000 ára afmæli kristni á íslandi. í leikritinu er stefnt saman heiðinni og kristinni siðffæði og trúarhugmyndum og farið í ferðalag aftur í tím- ann, til ársins 999; er heiðni var enn ríkjandi. Ahorfendur eru leiddir inn í heim land- vætta og skapanorna, þar sem hefndarskyldan ríkir en fyrir- gefningin þekkist ekki. Leikstjóri er Asa Hlfn Svav- arsdóttir. Handrit gerði Ólöf Sverris- dóttir og leikhópurinn. Leikarar eru: Ólafur Guð- | mundsson, Steinunn Ólafs- dóttir og Ólöf Sverrisdóttir. Verkið verður sýnt við barna- og fjölskylduguðsþjón- ustu sunnudaginn 9. janúar f Grafarvogskirkju kl. 11.00 og þann 16. janúar kl. 11.00 í Engjaskóla. V_____________________________J Ása Hlín Svavarsdóttir.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.