Dagur - 07.01.2000, Page 3

Dagur - 07.01.2000, Page 3
FÖSTUDAGVR 7. JANÚAR 2 000 - 3 T^ir. Fólkið úr fjöllunum Vagna Sólveig Vagnsdóttir opnar sýningu á tréskúlptúrum sín- um í baksal Galleris Foldar við Rauðarárstíg í Reykjavík laugar- daginn 8. janúar kl. 15.00. Sýninguna nefnir listakonan Fólkið úr fjöllunum. Vagna er í hópi svokallaðra nævista eða einfara í listinni. Hún er algert náttúrubarn og sjálfmenntuð að öllu leyti. Verkfærið er vasahnífur og efniviðurinn mestmengis rekaviður og annað sem til fellur úr nágrenni hennar á Þingeyri, þar sem hún býr. Það telst ávallt til tíðinda þegar fram koma listamenn af hennar toga og verk margra þeirra hafa verið eftirsótt af söfnurum. Gallerí Fold er opið daglega frá kl. 10 til 18, laugar- daga frá 10 til 17 og sunnudaga frá 14 til 17. Sýning Vögnu Sólveigar stendur til 23. janúar. Fyrsta bókin 2000 Eina sekúndu yfir miðnætti á nýársnótt kom fyrsta bók érsins út. Hún heitir Bók í mannhafið og var fyrstu eintökunum dreift í mannhafinu í Perlunni á nýársnótt. Henni verður einnig bráðlega einnig sleppt til 1000 viðskiptavina í Bónusverslun- Bók í mannhafið inniheldur Ijóð eftir 13 ung skáld og þetta er sérstök bók þvi hana má enginn eiga heldur bara lesa og skrifa nafn sitt og fundar- ______________________________ stað á gestalista aftast í bókinni og skilja hana síð- an eftir eða afhenda hana næsta manni. Bók í mannhafið á semsagt aldrei að rykfalla í bókahill- um heldur verða stöðugt í umferð víðs vegar um heiminn. Hvar sem fólk rekst á hana getur það lesið Ijóð sér til yndis og hugarhægðar og skráð nafn sitt á spjöld hennar. Andri Snær Magnason er ritstjóri og umsjónarmaður Ijóðasleppinganna, sem em í samvinnu við Bónus. Fyrsta skífan 2000 „Þetta er heimsviðburður. Við teljum okkur vera með fyrstu skífu ársins 2000 í heiminum. Hún kom út 1 mínútu yfir miðnætti á nýársnótt að staðartíma í konungsríkinu Tonga sem er rétt hjá Nýja Sjálandi, en þar hófst nýja árið fyrst," sagði Gunnlaugur Lárusson einn úr hópi hljómsveitarinnar Brain Police. Skífan kom reyndar bara út á Netinu (slóðin brainpolice) á þessum tíma en verður gefin út í föstu formi nú á næstu vikum. Hún flytur 10 frumsamin lög eftir þá félaga, Vagn Leví, Hörð Stefáns- son, Jón Björn Ríkarðsson, og Gunnlaug Lár- usson sem mynda sveitina Brain Police.“Petta er rokk í anda Led Zeppelin og fleiri slíkra höfðingja," sagði Gunnlaugur. frá kl. 14.00 til 18.00 nema mánu- daga. galleri@hlemmur.is Særún Stefánsdóttir myndlistarkona opnar nýja sýningu í gallerí@hlemmur.is, Pverholti 5, Reykjavík, laugardaginn 8. janúar kl. 20:00. A sýningunni sem ber nafnið hér, sýnir Særún verk sem hún hefur unnið að á síðast liðnu ári. Þetta er fyrsta einkasýning Særúnar síðan hún lauk mastersnámi frá Glasgow School of Art. Sýningin stendur til 30. janúar. Vefsíða gallerisins er: http://galleri.hlemmur.is Galleri@hlemmur.is er opið alla daga nema mánudaga frá klukkan 14 til 18. Samsýning í Gallerí Geysi Fjórar ungar konur, Ingunn Birta 1 linriksdóttir, Elísabet Yuka Takefusa, Sigrún Huld Hrafnsdóttir og Guðrún Telma Ásmundsdóttir opna samsýningu í Gallerí Geysi, Ilinu Húsinu v/Ingólfstorg n.k. laugardag þann 8. janúar kl: 16:00. Verkin eru unnin með þurrpastel og akríllitum. 'Filgangur samsýningarinnar er að vekja áhuga fólks á að skemmtilegt væri að opna vinnuaðstöðu og gallerí í miðbæ Reykjavíkur fyrir þroskahefta einstaklinga árið 2000. Sýningin stendur til 23 janúar og er opin alla virka daga frá kl. 9:00.-17:00. QG SVO HITT... Hvítur hrafn í MÍR Hvítur hrafn er fyrsta sýning IVIÍR á þessu ári. Hún verður í bíósalnum að Vatnsstíg 10 næsta sunnudag 9. janúar k. 15.00. I myndinni er sagt frá námu- manninum Jegor Ikonnikov, Iífsglöðum ungum manni, sem dreymir um ham- ingjusama framtíð. Á heilsuhæli við Svartahaf hittir hann Sonju, unga og aðlaðandi konu og með þeim þróast smám saman tilfinningalegt samband. Sonja snýr heim á undan honum og þegar hún er að undirbúa veislu í til- efni afmælis eiginmannsins, Arkadís, birtist jegor í dyrunum öllum að óvör- um. IVlyndin er með enskum texta. LANDIÐ OG SVO HITT... Mamma, pabbi, hvað er að? ICrabbameinsfélag Akureyrar og ná- grennis gengst íyrir námstefnu á morg- un í tilefni af útkomu bæklingsins „Mamma, pabbi, hvað er að?“. Nám- stefnan verður haldin í Menntaskólan- um á Akureyri að I lólum og hefst klukk- an 10. Áætlað er að henni ljúki um klukkan 15. Bæklingurinn „Mamma, pabbi, hvað er að?“ fjallar um þau áhrif sem böm verða fyrir þegar foreldrar þeirra veikjast alvar- lega. Tilgangur námstefnunnar er að íjalla um þær aðstæður sem skapast við alvarleg veikindi, andlát og önnur erfið áföll sem starfsólk skóla og leikskóla get- ur þurft að standa frammi fyrir í starfi. Mjög nauðsynlegt er að sinna þessum aðstæðum af kunnáttu og þckkingu. Námstefnan er einkum ætlað starfsfólki grunnskóla og leikskóla en Krabba- meinsfélagið sendi út bréf til skólastjóra og kennara, formanna foreldraráða og forcldrafélaga sem og dagmæðra. Við- brögðin voru góð og eru þegar um 150 manns skráðir á námstefnuna en mögu- legt að bæta við ef óskað er. Námstefnu- gjald er 1.000 krónur og er boðið upp á léttan hádegisverð. Dagskráin er í stuttu máli þessi: Kl. 10: Setning og kynning, Jónas Franklin, formaður Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, og Þorbjörg Ingvadóttir framWæmdastjóri. Kl. 10.30: „Um tilfinningar barna“, Kristján Kristjánsson prófessor í hcim- speki \ið Háskólann á Akureyri. KI. 11.00: „Ungir aðstandendur", Rúnar Andrason sálfræðingur við FSA. Kl. 11.30: „Sjá - skilja - styðja“, Guðrún Alda Harðardóttir leikskólakennari og lektor við kennaradeild HA. Kl. 12.00, matarhlé. Kl. 12.40: „Skóli sem veit og skilur gerir gæfumuninn“, Margrét Héðinsdóttir skólahjúkrunarfræðingur og Hafsteinn Karlsson skólastjóri Selásskóla. Kl. 13.10: „Unglingur og krabbamein / Hugmyndir barna um dauðann“, Elísa- bel Hjörleifsdóttir hjúkrunarfræðingur við FSA og Heimahlynningu. Kl. 13.55: „Börn og sorg“, Jóna L. Þor- steinsdóttir sóknarprestur í AkureyTar- kirkju. Kl. 14.25: Samantekt og lokaorð, Þor- björg Ingvadóttir og Ragna Dóra Ragn- arsdóttir, starfsmenn Krabbameinsfélags Akurcyrar og nágrennis. . í ^ Utanríkisráðuneytið Læknar Störf í Kosovo og Bosníu- Hersegóvínu Auglýst er eftir læknum til starfa með friðargæslusveitum Atlantshafsbandalagsins í Kosovo (KFOR) og Bosníu- Hersegóvínu (SFOR). Gert er ráð fyrir að ráðningartíminn verði þrír tjl sex mánuðir og að viðkomandi hefji störf á tímabilinu febrúar til júní n.k. Leitað er að duglegum, samviskusömum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt við erfiðar aðstæður, eiga auðvelt með að umgangast aðra og taka leiðsögn. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi gott vald á ensku og hafi mikla aðlögunarhæfileika. Umsóknir með upplýsingum um menntun, fyrri störf, tungumálakunnáttu og meðmælendur sendist utanríkisráðuneytinu, alþjóðaskrifstofu, Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Umsóknarfrestur er til og með 21. janúar 2000. Upplýsingar um kaup og kjör fást á alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, nema annað sé sérstaklega tekið fram í umsókninni. Utanríkisráðuneytið Utanríkisráðuneytið Hjúkrunarfræðingar Störf í Kosovo og Bosníu- Hersegóvínu Auglýst er eftir hjúkrunarfræðingum til starfa með friðargæslusveitum Atlantshafsbandalagsins í Kosovo (KFOR) og Bosníu-Hersegóvínu (SFOR). Gert er ráð fyrir að ráðningartíminn verði sex mánuðir og að viðkomandi hefji störf í febrúar/mars á þessu ári. Leitað er að duglegum, samviskusömum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt við erfiðar aðstæður, eiga auðvelt með að umgangast aðra og taka leiðsögn. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi gott vald á ensku og hafi mikla aðlögunarhæfileika. Umsóknir með upplýsingum um menntun, fyrri störf, tungumálakunnáttu og meðmælendur sendist utanríkisráðuneytinu, alþjóðaskrifstofu, Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Umsóknarfrestur er til og með 21. janúar 2000. Upplýsingar um kaup og kjör fást á alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, nema annað sé sérstaklega tekið fram í umsókninni. Fyrri umsækjendur sem vilja koma til greina eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Utanríkisráðuneytið

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.