Dagur - 07.01.2000, Síða 4

Dagur - 07.01.2000, Síða 4
Föstudagur 7. janúar 2000 Vesturlandsskógar að rísa Skógarbændur af Vesturlandi og Vestfjörðum staddir í Guttormslundi í Hallormsstaðaskógi á sfðasta sumri. Þór Þorfinnsson skógarvörður talar í hljóðnemann. - mynd: friðrik aspelund í fjárlögum þessa árs er gert ráð fyrir 17 milljóna króna fram- lagi til imdirbúnings og stofnsetningar Vesturlandsskóla. Þetta er landshlutaverkefni í skógrækt og byggt á lögum síðan f mars á sfðasta ári. A sama tíma vcrða stofnsett sams konar verk- efni á Norðurlandi og Vestfjörð- um. Verkefnissvæði Vesturlands- skóga er Vesturlandskjördæmi og Kjósarsýsla. „Þetta verkefni kemur til með að stækka mikið á næstu árum. Samkvæmt lögunum á að rækta upp 5% láglendis og er gert ráð fyrir því í skýrslu nefndar um Vesturlandsskóga að þegar verk- efnið verði fullskapað verði Ijár- veitingar til þess 125 milljónir á ári. A næsta ári fara peningarnir aðallega í undirbúning, í að halda áfram þeim verkefnum sem eru í gangi eða í burðarliðn- um í skógrækt og skjólbeltarækt á svæðinu og undirbúning að stækkun verkefnanna eða aukn- ingu skógræktar hér,“ segir Frið- rik Aspelund skógræktarráðu- nautur Skógræktar ríkisins. Hann segist vera í nokkurs konar Ijósmóðurhlutverki við stofnun Vesturlandsskóga, en landshluta- skógarnir munu heyra beint und- ir landbúnaðarráðuneytið. Friðrik segir lög um lands- hlutabundin skógræktarverkefni fjalla aðallega um skógrækt á lög- býlum og þá mest í einkaeigu. Þetta sé í raun og veru stuðn- ingskerfi við skógrækt almenn- ings og byggi á reynslunni sem komin sé af Héraðsskógum og Suðurlandsskógum. „Mönnum hefur þótt takast vel til. Þar af leiðandi hefur þetta verið fært yfir landið allt. Það er margvís- legur ágóði af þessu, svo sem sá að þarna er verið að búa til nýja auðlind fyrir framtíðina, sem get- ur skipt verulegu máli, samanber það að þjóðfélög nágrannalanda okkar margra byggja velmegun sína á skógrækt og skógum. En það sem við höfum fyrst og fremst út úr þessu til að byrja með er tengt byggðastefnu. Það lítur út fyrir það á Fljótsdalshér- aði að þetta hafi skilað fólksfjölg- un í stað fólksfækkunar. Það hef- ur fjölgað um nokkur prósent í þeim hreppum sem hafa haft að- gang að Héraðsskógum en í hreppunum sem ckki hafa haft aðgang að þessu á Héraði hefur orðið sambærileg fækkun á við hreina sveitahreppa annarsstaðar á landinu - fækkað uni á milli 15 og 20%. Það virðist vera þörf fýr- ir þessa auknu atvinnu sem þetta skapar, þó þetta verði aldrei ann- að en aukabúgrein hjá fólki á meðan á uppbyggingarstarfinu stendur," segir Friðrik. Verið er að skipa stjórn Vestur- landsskóga og mun hún að öllum líkindum fljótlega auglýsa eftir framkvæmdastjóra. Friðrik segir að gera megi ráð fyrir að þrjá til fjóra starfsmenn þurfi við Vestur- landsskóga þó megnið af fjár- mununum fari til greiðslu á hlutastörfum við skógræktar- verkefni. Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. 41 útskrifast úr Fva KB selur eignir Kaupfélag Borgfirðinga hcfur selt húseign sína á Engjaási, en það hús hýsti áður Mjólkursam- lag Borgfirðinga. Sparisjóður Mýrasýslu keypti. Þá hefur KB hug á að selja eignarhlut sinn í Vírneti hf. og hafa m.a. verið viðræður við fyr- irtækið Lfmtré á Flúðum um kaup þess á eignarhlutanum. Þær viðræður hafa ekki borið ár- angur ennþá. Aðalframleiðsla Vírnets er þakjárn og naglar. Tilgangurinn með eignasöl- unni er að fjármagna nýbygg- ingu verslunarhúss í Borgarnesi sem KB hyggst byggja á næst- unni. Svínin f iim- hverfismat Fyrirhugað stórbú svínabænda sem rísa á á Melum í Melasveit á að fara í umhverfismat sam- kvæmt niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Umhverfisráðherra hafði áður úrskurðað á sama veg, en Stjörnugrís hf. sem hyggst byggja búið kærði þann úrskurð. Dagur-Vesturland óskar lesendum sínum gleðilegs °g gæfuríks nýárs með þökkfyrir samfylgdina á liðnum árum. Laugardaginn 18. desember fór fram brautskráning nemenda í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi á haustönn 1999. Brautskráðir voru 41 nemandi; 34 stúdentar, 3 nemendur í raf- virkjun, 2 nemendur í vélsmíði, 1 nemandi af uppeldisbraut og 1 nemandi í rafsuðu. Mjög margir af þessum nemendum náðu af- bragsgóðum námsárangri og hlutu ýmsar viðurkenningar fyrir. Viðurkenningu fyrir bestan ár- angur á stúdentsprófi hlaut Gauti Jóhannesson, en námsár- angur hans var sérlega glæsileg- ur. Gauti hlaut einnig viðurkenn- ingu fýrir ágætan námsárangur í raungreinum, íslensku, sögu og stærðfræði. Veitt voru verðlaun úr Minningarsjóði Þorvaldar Þorvaldssonar fyrrum kennara skólans, verðlaunin hlaut Unnar Bachmann fýrir framúrskarandi árangur í stærðfræði og eðlis- fræði. Hann hlaut einnig viður- kenningu fyrir ágætan námsár- angur í náttúrufræði, sögu, tölvufræði og þýsku. Anna Berg- lind Halldórsdóttir hlaut viður- kenningu fyrir ágætan árangur í stærðfræði, þýsku og viðskipta- greinum. Ingibjörg Gestsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í dönsku. Sigrún Halla Gísladóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í eðlisfræði, efnafræði, líffræði, stærðfræði, þýsku og viðskiptagreinum. Val- þór Ásgrímsson hlaut viðurkenn- ingu fyrir ágætan árangur í ensku, frönsku, raungreinum og stærðfræði. Þóra Björg Jónsdótt- ir hlaut viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur íslensku, dönsku, ensku og þýsku. Loks hlaut Þórbergur Guðjónsson við- urkenningu fyrir ágætan árangur í dönsku, stærðfræði og við- skiptagreinum. Verslunarmanna- félag Akraness gaf verðlaunin fyrir námsáragnur í viðskipta- greinum. Þórir Ólafsson skólameistari ávarpaði útskriftarnemendur og hvatti þá til að nýta vel menntun sína, nota hana sem lykil að heildstæðari skilningi á lífinu, lykil að frekari menntun og betra lífi. „Notið menntunina til að láta gott af ykkur leiða fyrir ykk- ur sjálf og aðra,“ sagði Þórir að lokurn. Hvatningar- verðlaim á Akranesi Skaginn hf. fékk hvatningar- verðlaun Atvinnumálanefndar Akraness og verslunin Sjón- glerið fékk viðurkenningu Átaks Akraness fyrir frumleg- ustu gluggaútstillinguna á Akranesi í desemher. Verslun- in Bjarg fékk viðurkenningu fyrir fallegustu útstillinguna. Viðurkenningarnar voru af- hentar lýrir ármótin. Við það tækifæri var sagt að skreytingarnar hjá Sjónglerinu hafi verið fallega settar fram, hafi höfðað vel lil jólanna og borið hlýlegan og skemmtileg- an húmor með „mikla ást á gleraugum“. Um gluggaútstillinguna hjá Bjargi sagði að glugginn væri smekklega unninn og úthugs- aður, ágætlega uppbyggður með „smá englahúmor". Fötin vel sett saman og myndi eina heild. Fyrirtækið Skaginn hf. framleiðir vinnslulínur fyrir fiskvinnslu á sjó og Iandi og kemur með heildarlausnir á því sviði eftir óskum kaup- enda. I framleiðslu fyrirtækis- ins sameinast hugvit og tækni sem ásamt vöruþróun er aðall fý'rirtækisins. Framleiðsla þess vakti verðaskuldaða athygli á Sjáv- arútvegssýniningunni sl. sum- ar. Skaginn hf. er ungt fyrir- tæki sem byggir á gömlum grunni en það var stofnað á árinu 1997. Stærstu eigendur eru Ingólfur Arnason sem er stjórnarformaður þess og Þor- geir og Ellert hf. en Þorgeir Jósefsson er framkvæmda- stjóri. Atvinnumálanefnd Akra- ness ákvað á fundi sínum nú í desember að velja fyrirtæki ársins á Akranesi og veita því viðurkenningu í hvatningar- skyni. Við val á fyrirtækinu var tekið tillit til frumkvæðis í sölu eða kynningarstarfssemi, aukins eða bætts vöruúrvals á árinu, góðrar þjónustu við við- skiptavini, skemmtilegs um- hverfis inni í íýrirtækinu og nýjunga, nýsköpunar eða markaðssóknar á nýja mark- aði. Sérstakur starfshópur innan atvinnumálanefndar tók að sér að velja fyrirtæki sem til greina komu og velja þar úr eitt lýrirtæki. Þótti hópnum mjög erfitt að velja þar sem mikil gróska hefur verið í rekstri fyrirtækja á Akranesi undanfarin ár. Átak Akranes sem er félag fyrirtækja og einstaklinga í rekstri á Akranesi ákvað á stjórnarfundi í haust að verð- launa fallegustu og frumleg- ustu gluggaútstillinguna á Akranesi í desember. Sólveig Ágústsdóttir hjá fyrirtækinu ÓSSÁ f Reykjavík var fengin til að leggja mat á útstillingar í verslunum og þjónustufyrir- tækjum og velja þar úr falleg- ust og frumlegustu útstilling- una.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.