Dagur - 13.01.2000, Blaðsíða 1
Senn geta landsmenn
faríð að safnast saman
við útvarpstækin sín
til aðfylgjast með
spumingakeppninni
Gettu betur. Hún erað
fara í loftið einngang-
inn enn ogfyrstu út-
sendingar verða n.k.
þríðjudagskvöld. Höf-
undur spuminga og
dómarí að þessu sinni
er Ólína Þorvarðardótt-
ir þjóðfræðingur.
„Ég kom ekki að þessu verkefni
fyrr en um mánaðamótin nóvem-
ber, desember og síðan hafa dag-
amir hjá mér algerlega snúist um
það,“ segir Ólína.
- Er þetta rosa vinna?
„Já, það em 1.600 spurningar
sem ég þarf að semja í ýmsu formi
og auðvitað er heimildaöflun og
grams í kring um þær. Þetta er
heilmikil vinna en hún er
skemmtileg. Þetta skerpir ýmislegt
hjá mér sem farið var að snjóa í og
ég get mokað ofan af núna. Ég
finn ,að ég hef gott af þessu.
Sex keppnir á viku
Tuttugu og fjórir framhaldsskólar,
allsstaðar að af landinu taka þátt í
keppninni. Tveir sitja hjá í fyrstu
umferð, m.a. sá sem sigraði í íyrra
þannig að í fyrstu umferð keppa
ellefu lið. Sex keppnir verða á viku
til að byija með, tvær á kvöldi, þijú
kvöld vikunnar, þriðjudags, mið-
vikudags og föstudagskvöld og
verða þær sendar út á Rás 2. Síð-
an er stefnt að því að flytja keppn-
ina í sjónvarpið um miðjan febrú-
ar og þar verða háðar sjö viður-
eignir. Spyrill verður Logi Berg-
mann Eiðsson.
- En verdur þátturinn með sama
sniði og áður?
„Já, ég reikna með því. Það er
komin svo föst hefð á þessa
keppni að ég held það borgi sig
ekki að fara að róta mikið í upp-
byggingunni. Það verða hraða-
spurningar, bjölluspumingar, vís-
bendingarspurningar og sennilega
leikin atriði í sjónvarpi. Við erum
Keppendur vita að
þeirþurfa að vera
vel að sér í ákveðn-
um grundvallar-
flokkum og það
breytist ekkert
ekki alveg búin að útfæra þau enn.
- Hm, um hvað verður svo spurt?
„I þessum þáttum hefur þess
alltaf verið gætt að sinna tiltekn-
um málaflokkum og leitast verður
við það eins og fyrr. Þó kann að
vera að vægið breytist eitthvað.
Það er nokkuð sem menn verða að
reka sig á þegar þar að kemur.
Keppendur vita að þeir þurfa að
vera vel að sér í ákveðnum grund-
vallarflokkum og það breytist ekk-
ert.
- Væri ekki til bóta að brydda
upp á nýjunguni?
Auðvitað eru alltaf einhveijar
nýjungar, þær mega bara ekki
verða of miklar. Ungmennin byija
snemma að undirbúa sig og annað
hitt að þjóðin er íhaldssöm. Hún
er vön að fylgjast vel með þáttun-
um og veit að hveiju hún gengur
þannig að ég tel hollast að vera
ekld með haflarbyltingar á þessu
vinsæla efni.“
Öll þjóðin dæmir
- A/ þeim sem áður hafa gegnt
dómaraembætti í spumingakeppn-
inni má nefna Ragnheiði Erlu
Bjamadóttur, Ólaf B. Guðnason,
Gunnstein Ólafsson og llluga Jök-
ulsson. Ólína, leitaðir þií ráða hjá
fyrirrennurum þínum í þessu
starfi?
„Já, ég talaði við þijá þeirra áður
en ég samþykkti að taka þetta
verkefni að mér svo ég þykist vita
nokkurn veginn að hveiju ég geng.
Mér sýnist á þeirri reynslu minni
sem þegar er fengin að þeir hafi
ekki ýkt stórlega vinnuálagið og
annríkið í kring um þetta. Þeir
sögðu mér líka allir að þetta væri
skemmtilegt og það tek ég undir.
Svo verður að koma í ljós hvort ég
verð vandanum vaxin sem dómari.
Það dæma fleiri en keppendur,
það dæmir öll þjóðin."
Saknar útreiðanna
- Ertu í öðmm störjum utan heim-
ilis um þessar mundir?
„Já, ég veiti um þessar mundir
forstöðu Þjóðháttadeild Þjóð-
minjasafnsins og kenni þjóðfræði
við Félagsvísindadeild Háskólans.
Ég er auk þess nýbúin að leggja
fram doktorsritgerð sem ég þarf að
fara að undirbúa vörn að með
sumrinu - má bara ekki vera að því
að hugsa um það núna meðan
þetta gengur yfir. Svo er það fjöl-
skyldan og hestarnir og vinir mín-
ir. Það er í mörg horn að líta.
Hinsvegar mun ég fresta því að
taka hross á hús til járningar og út-
reiða meðan mesta annríkið er
kring um keppnina. Það er eigin-
lega það versta við þetta alltsaman
að geta ekki farið að ríða út!“ GUN.
iýjaunfóðua'biönd'Ui1 ©g
grasköggiar - gæðavara
á góðu verði.
wmmmmm
VALLHOLMUR
FÓÐURSMIÐJA
Afgreiðsla Opin frá kl. 8.00 - 16.00 Sími 453-8233 Skagafirði