Dagur - 14.01.2000, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2000 - 1
LEIKHÚS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
Hláturinn lengir lífið
IÆKHASKOP FRÁ t/ÖGGO 7IL GRAFAR
Hláturgas - Læknaskop frá vöggu til grafar. 80 síðna bók sem dreift verður
ókeypis á 10 sjúkrahúsum um allt land.
Nýfarandssýning
„Hláturgas“. Meinlaus
gamansemi ájákvæð-
um nótum.
Hláturgas kemur í framhaldi af
sýningunni Lífæðar sem sett var
upp á ellefu sjúkrahúsum hring-
“ inn í kringum landið árið 1999 af
Islensku menningarsamsteypunni
ART.IS, en hún samanstóð af
verkum eftir nafnkunna myndlist-
armenn og Ijóðskáld. Hugmyndin
að baki þessum sýningum er að
lífga upp á yfirbragð sjúkrastofn-
ana og gera þannig sjúldingum og
aðstandendum dvölina þar bæri-
Iegri.
Glaxo Wellcome fagnar 10 ára
starfsafmæli á Islandi á þessu ári
og í tengslum við þessi tímamót
gekk fyrirtækið í samstarf við
Menningarsamsteypuna ART.IS
og Norræn samtök um Iækna-
skop, um sýninguna „Hláturgas -
Læknaskop frá vöggu til grafar".
Sýningin verður opnuð á Land-
spítala í dag föstudaginn 14. jan-
úar og henni lýkur á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur eftir hringferð um
landið.
inátur í stað lyfja
Á sýninginunni „Hláturgas“ sem
snýst um læknaskop og húmor
með skemmtilegum teikningum
og textum er að finna skopteikn-
ingar eftir bæði innlenda og er-
lenda höfunda, en af íslenskum
teiknurum má nefna Þorra
Hringsson, Hallgrím Helgason,
Rrian Pilkington, Gísla Ástþórs-
son og Halldór Baldursson. Efnið
er ýmist gamalt eða unnið sér-
staklega fyrir Hláturgasið.
Einnig hefur verið gefin út 80
síðna bók með skopteikningum,
bröndurum, íslensku rímnaskopi
og spaugilegum læknaskýrslum
sem dreift verður ókeypis á við-
komandi skjúkrahúsum.
Ingibjörg Pálmadóttir, heil-
brigðisráðherra segir meðal ann-
ars í ávarpi sínu í bókinni. „Hlát-
urinn lengir ekki
aðeins lífið, hann
gerir tilveruna bæði
skemmtilegri og
íyrirhafnarminni.
Hlæjandi læknar
ættu því að hafa
hugfast, þegar þeir
skrifa út lyfseðil við
vægum krankleika,
að einn og einn
brandari gæti
kannski komið í
stað lyljastauks í
einhverjum tilvikum.“
Kínmiheftir
Bjarni Jónasson, heimilislæknir er
varaforseti Norrænna samtaka
um Iæknaskop, hann segir meðal
annars í sínu ávarpi. „Læknaskop
snýst um að njóta
þeirra spaugilegu
tilvika sem lífið og
líðandi stund býð-
ur upp á. Lífið er
morandi af slíkum
skemmtilegheit-
um; við þurfum
ekki að gera annað
en að opna augun
fyrir hinu skoplega
og (þora að) njóta
þess. Ekki hafa þó
allir jafn gott skop-
Úr sjúkraskrám
Skoðun við komu leiðirí Ijós
unglingspilt...
Það semjyllti mælinti var
þvagleki...
Þegarhann varlagðurinn
hafði örhjartslátturstoppað
oghonum leiðbetur...
Sjúklingur er ekki þekkturfyr-
irað fremja sjálfsmorð...
Sjúklingur erfertug, að öðru
leyti ekkert athugavert...
skyn. Pétur Pétursson, læknir á
Akureyri segir að þeir sem eru
sneyddir öllu skopskyni séu
„kímniheftir“.“
Skopleg opnun
Það hefur alltaf verið sagt að hlát-
urinn lengi lífið og skrýtlur um
lækna og starfsmenn sjúkrahúsa
hafa löngum skemmt fólki. En
það er ekki fyrr en nú á síðustu
árum að skilningur hefur vaknað
á því að skop og gamanmál geta
átt raunverulegan þátt í lækning-
um, létt lund sjúldinga og virkjað
þann líkningarmátt sem í líkam-
anum býr.
Eins og fyrr segir opnar fyrsti
áfangi sýningarinnar á Landspít-
alanum í dag kl. 1 5. Að sjálfsögðu
verður byrjað á því að hlæja
hressilega, því það er enginn ann-
ar en eftirherman og brandara-
karlinn Jóhannes Kristjánsson
sem skemmtir á opnun.
-W
Hefur þér einhvern tímann dottið í hug að gefa
afrísku þorpi kvöldmatinn þinn?
ítilefnl
dagsins
Félagar í Serpent, Guðmundur Hafsteinsson trompetleikari, Jóhann Björn
Ævarsson hornleikari og Einar Jónsson básúnuleikari. Sveitin var stofnuð
1997 en hún er mismunandi að stærð og samsetningu eftirþví hvaða verk-
efni verið er að fást við hverju sinni. Serpent nafnið þótti tilvalið þvíþað er
fengið frá hljóðfæri sem kom fram á 16. öld og er eins og snákur í laginu en
snákar eru mismunandi að stærð og lögun. mynd: hilmar
„Við æltum að blása inn nýja
árið,“ sagði Guðmundur Oli
Gunnarsson hljómsveitarstjóri
Sinfóníuhljómsveitar Norður-
lands um tónleika þá sem verða
haldnir í Akureyrarakirkju kl.
17.00 sunnudaginn 16. janúar.
„Það verður sinfónísk málmblás-
arasveit, blásarar úr Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands ásamt
gestum úr Serpent sem leikur og
það er óvanalegt að við höldum
tónleika með einum hljóðfæra-
flokki.
Þetta verða góðir tónleikar því
efnisskráin er fjölbreytileg. Það
verða átta verk Ieikin, gömul og
ný. Tvö af þeim eru íslensk, þar
af annað splunkunýtt. Það er
eftir Tryggva Baldvinsson og
heitir I tilefni dagsins. Hitt verk-
ið er Þorlákstíðir, samið 1994 af
einum félaganna í Serpent, Ein-
ari Jónssyni. Af öðrum verkum
á efnisskránni má nefna Fanfare
for the common man eftir Aaron
Copland sem er mjög þekkt verk
í málmblásaraheiminum og
Russian funeral eftir Benjamin
Britten.
Forkólfarnir í Serpent flokkn-
um eiga hugmyndina að tón-
leikunum, þeir eru norðanmenn
þótt þeir starfi núna aðallega
sunnan heiða og koma norður
með félaga með sér. I sveitinni
eru líka hljóðfæraleikarar af öllu
Norðurlandi, frá Sauðárkróki
austur í Þingeyjarsýslu, alls um
tuttugu manns, málmblásarar og
tveir slagverksleikarar. Þetta er
fólk úr Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands sem er að sinna
öðrum störfum flesta daga svo
fyrir tónleika er æft frá því á
föstudagskvöld fram á sunnu-
dag. Þetta reynir á hæfni hljóð-
færarleikaranna sem taka þátt
en þeir kunna sitt lág. Þess
vegna er þetta hægt, sagði Guð-
mundur Oli að Iokum.“
GUN.
Listamennirnir Claus Egemose,
Johan van Oord og Tumi Magn-
ússon.
Rauðvik - málverk
í og utau fókuss
Yfirskrift sýningarinnar sem
opnuð verður á Kjarvalsstöð-
um laugardaginn 15. janúar
kl. 16.00 „Rauðvik - málverk í
og utan fókuss“ er fengið frá
sýningu á eðlisfræðilegu fyrir-
bæri um breytingu Ijóssins,
þar sem orðið sjálft ásamt
verkunum á sýningunni
túlka hreyfíngu lita og útvíkk-
andi kraft.
Sýningin byggir á verkum
íjögurra mikilvirkra lista-
manna, sem óháð hver öðr-
um hafa í mörg ár unnið af
mikilli elju með ytri mörk
málverksins. Verk þeirra
Claus Egemose, Johan von
Oord, Tuma Magnússonar og
Ninu Roos vísa öll í hið hlut-
bundna málverk, þar sem
stórir einlitir fletir eða
litaraðir ná yfir allt yfirborðið.
Þau eiga það sameiginlegt að
vekja tilfinningu fyrir stöðug-
um víxláhrifum samdráttar og
útþennslu.
Sýningin er samstarfsverk-
efni Trapholt-safnsins í Kold-
ing í Danmörku, Kunsthalle
Helsinld í Finnlandi, Lista-
safns Reykjavíkur og Centr-
um Beeldende Kunst í Rott-
erdam í Hollandi, en þangað
fer sýningin þegar henni lýk-
ur að Kjarvalsstöðum.
Dansari og
(lanshöfuiulur
Mánudaginn
17. janúar
fjallar
Maureen
Fleming
dansari og
danshöfund-
ur um efnið
„The Chang-
ing Role Of
Art ln Soci- Maureen Flem-
ety“ í Lista- ing dansari.
klúbbi Leik-
húskjallarans, fyrirlesturinn
fer fram á ensku og hefst kl.
20.30. Maureen kom hingað
fyrst árið 1996 er hún sýndi
verk sitt „Eros“ á Listahátíð í
Reykjavík. Hún fæddist í Jap-
an, lærði klassískan dans og
einnig „butho-dans“ undir
handleiðslu Kazuo Ohno og
Min Tanaka. Undanfarin ár
hefur Maureen ferðast víða
um heim með danssýningar,
en kennir nú hjá Ex-
perimental Theater Wing við
New York University.
Maureen verður með nám-
skeið í Kramhúsinu sem Iýkur
með sýningu í Tjarnarbíói
sunnudagskvöldið 16. janúar.
v__________________________✓