Dagur - 14.01.2000, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 2000 - 3
.1 , L iiíí
Fiðla og planó
Salurinn, tónlistarhúsið góða í Kópavogi býður upp á tónleika
laugardaginn 15. jan. kl. 16.00. Þar leika þær Pálína Árnadóttir
fiðluleikari og Sopah Chae píanóleikari. Á efnisskránni eru
Capriccio eftir Gade, Chacconne eftir Bach, sónata nr. 2 í D-
dúr eftir Prokofief og fiðlusónata í Es-dúr eftir Richard Strauss.
Pálína hóf fiðlunám 6 ára gömul hjá föður sínum, Árna Arin-
bjarnarsyni, og hefur numið síðan við virta tónlistaskóla, bæði
hérlendis og erlendis. Hún hefur tekið þátt í mörgum keppnum
og komið fram sem einleikari með hljómsveitum í Mexíkóborg,
Texas og víðar.
Sooah Chae dæddist í Suður-Kóreu og hóf sitt tónlistarnám
þar en fór síðan til Bandaríkjanna til frekara náms. Þar vinnur
húh nú að doktorsgráðu. Hún hefur margoft komið fram á tón-
leikum og á síðasta ári vann hún 2. verðlaun í Young Texas
Artists Music Competion.
Fjársjóðskistill opnaður
Bryddað verður upp á nýjung við helgihald í Hallgrímskirkju
sunnudaginn 16. janúar kl. 17.00. Þá verður haldin guðs-
þjónusta þar sem flutt verður kantanta eftir Johann Sebasti-
an Bach. Fjórir ungir einsöngvarar flytja verkið, ásamt
Mótettukór og kammersveit Hallgrímskirkju undir stjórn
Harðar Áskelssonar. Einsöngvararnir eru þau Hulda Björk
Garðarsdóttir sópran, Sigríður Jónsdóttir alt, Finnur Bjarna-
son tenór og Ólafur Kjartan Sigurðsson bassi. Prestur í
guðsþjónustunni er séra Sigurður Pálsson.
Sérstök áhersla verður lögð á verk eftir Bach í tónlistarlífi
Hallgrímskirkju á næstu vikum í tilefni þess að 250 ár eru lið-
in frá andláti hans og 1000 ára kristnitökuafmæli er á íslandi.
Jóhannesarpassían verður flutt þar í dymbilviku, og nokkrum
af kantötum tónskáldsins verður fundinn staður í síðdegis-
guðsþjónustum.
Kammer-
tónlist
Kammermúsikklúbbur-
inn heldur tónleika í Bú-
staðakirkju sunnudaginn
16. janúar 2000 kl.
20.30. Þar leikur Eþos-
kvartettinn en í honum
eru Auður Hafsteinsdótt-
ir, 1. fiðla, Gréta Guðna-
dóttir 2. fiðla, Guðmund-
ur Kristmundsson lág-
fiðla og Bryndís Halla
Gylfadóttir knéfiðla. Á
efnisskránni eru þrjú stór
verk. Það eru Strengja-
kvartett í G-dúr, op.76.1
eftir Franz Joseph
Haydn, Strengjakvartett í
g-moll op. 10 eftir
Claude Debussy og
Strengjakvartett í Es-dúr,
op. 127 eftir Ludwig van
Beethoven. Þetta eru
fjórðu tónleikar klúbbsins
ástarfsárinu 1999-2000.
■ HVAD ER Á SEYDI?
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
TÓNLIST
Tónlistarveisla á Gauk á Stöng
Fös. 14.1 verður sveitt ball með kon-
ungum sveitaballanna „ SSSól „ í
beinni á www'.xnet.is
Lau. 15.1 verður disco-gleðisveitin „
Hunang „ í sparigallanum.
í beinni á www.xnet.is
Sun 16.1 & mán. 17.1 verða seiðandi
tónar og rólegheit í aðalhlutverki.
Austfirðingaveisla á Broadway
Las Vegas-veisla Austfirðinga verður
haldin á Broadway í kvöld. Stuðkopp-
arnir og Hin alþjóðlega danshljóm-
sveit Agústar Armanns leika fyrir
dansi.
SÝNINGAR
Þetta vil ég sjá
Vigdís Finnboga-
dóttir fyrrver-
andi forseti velur
verk úr röðum
fimmtán lista-
manna á sýning-
unni „Þetta vil
ég Sjá“ sem opn-
ar í Menningar-
miðstöðinni
Gerðubergi laug-
ardaginn 15.jan-
úar kl. 16.00. Listamennirnir eru:
Aðalheiður Valgeirsdóttir - Ásgerður
Búadóttir
Guðmunda Andrésdóttir - Hafdís
Ólafsdóttir
Hildur Hákonardóttir - Inga Ragnars-
dóttir
Karólína Lárusdóttir - Kristín ísleifs-
dóttir
Kristjana Samper - Louisa Matthías-
dóttir
Messíana Tómasdóttir - Olga Berg-
mann
Ráðhildur Ingadóttir - Rúna
Sigrún Eldjárn.
Sýningin stendur til 6. febrúar.
Vormenn
Sunnudaginn 16. janúar lýkur þeim
þremur sýningum sem staðið hafa yfir
í Listasafni Islands, þ.e. Vormenn í ís-
lenskri myndlist, Við aldamót og Móðir
og barn. Á sýningunum eru einungis
verk í eigu safnsins. Myndlist þeirrar
kynslóðar sem kom fram um aldamót-
in 1900 og á fyrstu áratugum 20. aldar
er orðin dijúgur þáttur í sögu og sjálfs-
mynd íslenskrar þjóðar. Hin nýja alda-
mótakynslóð er okkur meira eins og
óráðin gáta. Engu að síður endurspegl-
ar hún stöðuga viðleitni sérhverrar
kynslóðar til að leita sér að sjálfsmynd
og skapa sfna sögu. Um leið endur-
speglar hún nýjar og flóknar þjóðfé-
lagsaðstæður við upphaf nýs árþús-
unds. Þessar tvær sýningar eiga að
varpa ljósi á stöðu íslenskrar myndlist-
ar við aldarlok. Sýningin Móðir og
barn var sett upp á aðventu í tengslum
við dagskrá fyrir börn. Safnið mun
verða lokað fram til 29. janúar en þá
hefst menningarborgarárið formlega
með opnun sýningar á verkum ítalska
listamannsins Claudio Parmiggiani í
Listasafni Islands kl. 15.00.
Uppgangan
Sunnudaginn 16. janúar kl. 15.00
verður myndin Uppgangan sýnd í híó-
sal MÍR á Vatnsstíg 10. Myndin er frá
1976. Leikstjóri er Larisa Shepetko. I
myndinni er sagt frá atburðum sem
gerðust veturinn 1942 í Hvíta-Rúss-
landi að baki víglínunnar. Sveit skæru-
liða leitar skjóls undan árásum her-
námsliðs Þjóðverja í snæviþöktu skóg-
lendi. Með skæruliðunum eru konur
og börn og allir úninda af þreytu og
hungri. Tveir menn eru sendir af stað
til að afla matar. Ryhak, sem lengi hef-
ur harist af hörku með skæruliðunum
og Sotnikov, liðsforingi í sovéska hern-
um sem tókst að sleppa úr herkví Þjóð-
verja og ganga til liðs við skæruliðana.
Sotnikov er veikur en tekur þó ekki í
mál að verða eftir heldur leggur þeim
mun harðar að sér að fylgja félaga sín-
um eftir í ófærðinni. Kvikmyndin hlaut
Gullbjörninn á kvikmyndahátíðinni í
Berlín árið 1977. Enskur texti.
FUNDIR OG MANNFAGNAÐIR
Islenska málfræðifélagið
Fjórtánda Rask-ráðsteína Islenska
málfræðifélagsins verður haldin í
fundarsal Þjóðarbókhlöðunnar laug-
ardaginn 22. janúar nk. Ráðstefnan
hefst klukkan 11:00 og flytja sex
fræðimenn fyrirlestra.
Dagskrá ráðstefnunnar:
Fundarstjóri: Þórunn Blöndal
11:00 Ráðstefnan sett.
11:05 Jón Aðalsteinn Jónsson: Rn-
og rl-framburður Austur-Skaftfell-
inga.
11:35 Kristján Árnason: Tvíhljóð
og orðasafnshinding.
12:05 Ari Páll Kristinsson: Smá-
vegis um smáyrði.
12:35 Matarhlé
Fundarstjóri: Höskuldur Þráinsson
13:15 Jón Axel Harðarson: Horf
(aspekt) í íslensku.
13:45 Jóhannes Gísli Jónsson:
Tveggja andlaga sagnir í íslensku.
14:15 Diane Nelson: Counting and
-i -1*1"-
the Grammar: Numerals in Inari
Sami.
14:45 Ráðstefnunni slitið. Veit-
ingar í boði félagsins.
OG SVO HITT...
Skíðagöngukennsla
fyrir aImenning
Nú er komið að því! Uthreiðsluátak
Skíðasambands Islands, Skíðagöngu-
kennsla fyrir almenning er komið af
stað og mun líkt og íyrri ár hjóða al-
menningi upp á kennslu í grunnatrið-
um skíðagöngunnar, almenningi að
kostnaðarlausu. Við höfum til umráða
útbúnað fyrir um 60 manns sem lán-
aður er út án endurgjalds við kennsl-
una.
Fyrirkomulag átaksins mun verða með
þeim hætti að búnaðurinn verður stað-
settur hér á höfuðborgarsvæðinu
stærstan hluta vetrar. Á þeim tíma
gefst almenningi, skólum, fyrirtækjum,
starfsmannahópum svo og öðrum hóp-
um tækifæri á að fá kennslu og viljum
við biðja áhugasama um að hafa sam-
hand við okkur með tölvupósti. Net-
fang okkar er: ski@toto.is. Við munum
jafnframt heimsækja þá staði á
landsbyggðinni þar sem þátttaka var
góð síðasta vetur.
St)TktaraðiIar átaksins í ár eru
Bakkavör hf., Ingvar Helgason hf.,
Olíshf., Tóbaksvarnarnefnd, DV,
Nanoq, Fálkinn, Utilíf, Intersport og
Leppin.
Upplýsingar um dagskrá átaksins
verður aðgengileg á síðu 369 í
textavarpi RUV, auk þess sem
auglýsingaveggspjöldum verður dreift á
alla kennslustaði.
Norrænugreinanefnd SKÍ
Dagskrá átaksins næstu daga
lau 15.jan. Mosfellsbær:
kennt á íþróttasvæðinu að Varmá kl.
11-16
sun 16. jan. Skagaströnd
kl. 13
þri 18.jan. Hvammstangi kl.
17
Flugeldasýning Skýrr
I dag föstudaginn 14. Janúar verður
haldin flugeldasýning á vegum Skýrr
hf. í Ármúla. Flugeldasýningin hefst
klukkan 18:00 og verður skotið upp á
baklóð Skýrr við Ármúla 2. Tilefni
sýningarinnar er að marka upphaf
LoftNets Skýrr á nýju ári og upphaf
markaðsherferðar LoftNetsins.
LoftNet Skýrr er byltingarkent verk-
færi sem gerir fyrirtækjum kleift að-
nýta sér kosti internetsins til hins
ítrasta með öflugri tengingum en hing-
að til hefur almennt tíðkast. LoftNet
Skýrr byggir á neti örbylgjusenda sem
tengja viðskiptavini við gríðarlega öfl-
ugt gagnaflutningsnet Skýrr.
Þar sem LoftNet Skýrr er nú farið í
loftið og fer í gegnum loftið, fannstokk-
ur alveg tilvalið að lýsa loftið aðeins
upp og því er boðið til fyrrnefndrar
flugeldasýningar. Sýningin á að sjást
vel á öllu svæði póstnúmerana 105 og
108 og hefst eins og áður sagði kl
18:00.
LANDIÐ
TÓNLIST
Fmmkg til friðar
Alþjóðlegi trúarbragðadagurinn er á
sunnudaginn 16. janúar. Á Húsavík
hefur þessi dagur verið heiðraður opin-
herlega tvívegis. Nú hafa einstaklingar
á Húsavík, í Aðaldal, á Laugum og á
Akureyri tekið sig saman og skapað
dagskrá til að gera öðrum kleift að taka
þátt í þessari stund Framlag til friðar
og leggja sitt framlag til friðar á vogar-
skálar einingar í fjölhreytileika með
virkri þátttöku í umræðu og tónlistar-
flutiningi. Dagskráin verður flutt að
Grenjaðarstað í Aðaldal, Suður Þing-
eyjarsýslu sunnudaginn 16. janúar kl.
16.00.
SÝNINGAR
Gallerí 4*
Myndlistarsýning Hólmfríðar Harðar-
dóttur í Gallerí +, í Brekkugötu á Ak-
ureyri verður opin laugard. og sunnu-
daga frá kl. 14-17 og aðra daga eftir
samkomulagi. Fjölmennt var \ið sýn-
ingaropnunina 29. des. s.l.. Þetta er
fyrsta einkasýning Hólmfríðar á Is-
landi, en hún er Akureyringur búsett
og starfandi í New York. Á sýningunni í
Gallerí + eru listaverkin unnin með
blandaðri tækni m.a. skúlptúrar og
ljósmyndir.
MANNFAGNAÐIR
Spurningakeppni Báldursbrár
Önnur umferð í spurningakeppni
Baldursbrár verður í kvöld kl. 20.00 í
Safnaðarsal Glerárkirkju. 16 lið hófu
keppni í október s.l. og nú eru 8 lið
eftir, en þau eru:
Karlakór Akureyrar Geysir - Ásprent
Poh
Dagur - Síðuskóli
Eldri borgarar - Trillukarlar
Rúvak - Vélsmiðja Steindórs
Aðgangur er kr. 500 og gildir miðinn
sem happdrættismiði. Kaffi og kokk-
teill í hléi. Ágóðinn rennur til kaupa á
tölvubúnaði fyrir langveik hörn. Mætið
vel og skemmtið ykkur um leið og þið
styðjið gott málefni.
KA dtigurinn
Sunnudaginn 16. janúar heldur Knatt-
spyrnufélag KA sinn árlega KA dag milli
kl. 14 og 16. Tískusýning o.fl. en aðal
skemmtiatriðið er leikur milli Old star
liða frá handboltanum og fótboltanum.
Hápunktur dagsins er þegar krýndur
verður íþróttamaður KA fyrir 1999.
Kaffiveitingar í boði allann tímann.
OG SVO HITT...
Frá Minjasafninu á Akureyri
Vegna iramkvæmda við safnhús Minja-
safnsins á Akureyri verða sýningar þess
lokaðar frá og með föstudeginum 14.
janúar um óákveðinn tíma. I undirbún-
ingi er að opna nýja sýningu næsta sum-
ar um sögu Akureyrar. Vinna við hand-
ritsgerð og hönnun sýningarinnar er
hafin og störf verktaka við endurbætur á
neðri hæð Norðurhúss að fara í gang.
Hvað er á seyði?
Tónleikar, sýningar,
fyririestrar o.s.frv...
Sendu okkur upplýsingar á netfangi, í símbráfi eða hringdu.
ritstjori@dagur.is / fax 460 6171 / sími 460 6100
Útvörður upplýsinga
um allt land.
Tkiqftr
Askriftarsíminn er 800-7080
i\ o(i ‘liiiwimi f
Vigdís Finnboga-
dóttir.
flr'iíit
I 111/ T‘