Dagur - 15.01.2000, Blaðsíða 2
r em ftivo,s s v> navi ljl
2~-~f A~ITG Á r'DA 'g'U H ~í 5 ~f ÁN ÍÍÁR~2 0Ö'Ó..
FRÉTTIR
Speirn-
andimál
Ekkert verið rætt í
utanriMsmálanefiid
Margrét Frímannsdóttir, talsmaður Samfylkingarinnar.
Margrét Frímanns-
dóttir segir að breytt
viðhorf í vamarmál-
u iii í Evrópu hafi enu
ekki verið rætt í al-
vöru í utanríkismála-
nefnd. Húu segist eiga
von á að málið verði
rætt á Alþingi þegar
þaö kemur samau í
fehrúar.
Eins og fram kom í viðtali við
Halldór Asgrímsson utanríkis-
ráðherra í Degi í gær hefur hann
tekið þátt í umræðum um utan-
ríkis- og varnarmálastefnu Evr-
ópusambandsins undanfarið
með utanríkisráðherrum Evr-
ópusambandsríkjanna. Evrópu-
sambandið er að taka yfir varnar-
mál þeirra ríkja sem mynda sam-
bandið. I skýrslu norskra sér-
fræðinga, sem unnin er fyrir ut-
anríkisráðuneyti Noregs, kemur
fram ótti um að Noregur sé að
einangrast £ varnarmálum vegna
þess að áhugi NATO á vörnum
norðurhvelsins sé að verða að
engu. Bandalagið hafi snúið sér
alfarið að svæðum í Austur- Evr-
ópu.
„Þetta mál hefur enn ekki ver-
ið rætt í utanríkismálanefnd og
það hefur ekki verið farið yfir
þær breytingar sem verða um
leið og Evrópusambandið tekur
yfir öryggis- og varnarmál af
neinni alvöru. Ég tel mjög eðli-
legt og tímbært að utanríkis-
málanefnd taki þessi mál fýrir
ekki síst fyrst farið er að birta op-
inberlega úr þessari norsku
skýrslu," sagði Margrét Frí-
mannsdóttir, sem sæti á í utan-
ríkismálanefnd, um þetta mál.
Hún bætti því við að fljótlega
eftir að þing kemur saman í byrj-
un febrúar muni fara fram um-
ræða um utanríkismál á Alþingi.
Þessi mál hljóti þá að koma til
umræðu, annað sé útilokað.
Norðmenn hræddir
Norska blaðið Dagavisen segir
að í skýrslunni sé fullyrt að Nor-
egur sé að einangrast varnarlega
sé. Þar segi ennfremur að vegna
inngöngu Finna og Svía í Evr-
ópusambandið hafi þyngdar-
punkturinn í varnarmálum í
Skandinavíu færst frá Barents-
hafi og Atlantshafinu yfir á
Eystrasaltið. NATO hafi misst
áhugan á varnarmálum norður-
hvelsins en snúið sér að Eystra-
saltsríkjunum og Rússlandi í
staðinn. Noregur sé ekki lengur
jafn mikils virði fyrir NATO og
áður var.
Sænska blaðið Dagens Nyhct-
er segir að í skýrslunni komi
fram að vegna þeirra miklu
breytinga sem það hefur í för
með sér að Evrópusambandið
taki varnarmál sinna ríkja yfir,
muni það leiða til þess að deilan
um inngöngu Noregs í bandalag-
ið muni blossa upp að nýju.
- S.DÓR
„Þetta er mjög
spennandi
mál. Tvímæla-
laust ættí
þetta að koma
sér vel fyrir
tannlækna og
ekki síst lýrir
neytendur. Ef
dæmið gengur
upp mun þetta
stórlækka kostnað, bæði fyrir
neytendur og tannlækna, efnið
verða handhægara í notkun en
verið hefur með þessar fyllingar.
An þess að ég hafi kynnt mér
málið rækilega virðist þetta við
fyrstu sýn gera fleira fólki kleift
að fá fullnægjandi meðferð,"
sagði Bolli Valgarðsson, fram-
kvæmdastjóri. Tannlæknafélags
Islands, um hugmynd Egils
Jónssonar, tannlæknis á Akur-
eyri, sem Dagur greindi frá í
gær. Egill hefur hlotið styrki til
að þróa nýja tækni og efni til
tannfyllinga, tækni sem er ódýr-
ari og heilsusamlegri en sú sem
notuð er í tannlyllingum í dag,
m.a. með notkun silfurs og
amalgams.
BoIIi sagði Tannlæknafélagið
ekki hafa vitað af þessari hug-
mynd Egils, hann hefði fyrst vit-
að af þessu við lestur Dags í gær.
Þegar rætt var við Bolla var Eg-
ill nýfarinn frá húsakynnum fé-
lagsins þar sem hann kynnti
hugmyndir sínar Iauslega. - BJB
Egill Jónsson.
Forsversmenn FBA kynna nýjar áherslur og kaup á enskum banka. mynd: þök
FBA víkkar lít
Fjárfestingabanki atvinnulífsins,
FBA, kynnti í gær nýjar áherslur í
rekstri sínum um leið og tilkynnt
voru kaup FBA á rótgrónum
banka í Englandi, Raphael Bank,
þeim næstelsta þar í iandi, fyrir 1
milljarð króna. Tilgangur breyt-
inganna er m.a. að bjóða einstak-
lingum upp á einkabankaþjón-
ustu en FBA hefur til þessa ein-
göngu þjónað stærri fyrirtækjum,
stofnunum og fagfjárfestum.
Einkabankaþjónustu FBA mun
Svanbjörn Thoroddsen stýra en
hann hefur verið framkvæmda-
stjóri markaðsviðskipta bankans
frá upphafi.
Enski bankinn, sem formlega
nefnist R. Raphael & Sons, var
stofnaður árið 1787 af Raphacl
Raphael. Bankinn var í einkaeigu
Raphael-ættarinnar allt til ársins
1983 en þá keyptu James Frost
og fjölskylda hans bankann.
james Frost, sem er núverandi
stjórnarformaður R.Raphael, er
kunnur frumkvöðull í hresku at-
vinnulífi, en hann er m.a. einn
aðaleigenda Save Group PLC.
Frost fjölskyldan hefur samþykkt
kauptilboð FBA í bankann, en
endanleg kaup eru með fyrirvara
um samþykki enska fjármálaeft-
irlitsins. James Frost hefur sam-
þykkt að sitja áfram í stjórn bank-
ans eftir að kaupin eru frágengin.
Vaxandi slugs í verðmerkmgum
Nákvæmni verðmerkinga í mat-
vöruverslunum á höfuðborgar-
svæðinu hefur stórlega hrakað.
Nær tíunda hver vörutegund
reyndist rangt eða óverðmerkt í
könnun Samkeppnisstofnunar á
12.000 vörum á síðasta ári.
Hlutfallið var tæp 7% árið áður
og innan við 5% 1995 og hefur
þannig versnað um helming sfð-
an. í fyrra var 4,2% vara óverð-
merkt í hillu, í 2,5% tilvika var
verðið hærra á afgreiðslukassa en
í hillu og jafn oft lægra.
Samkeppnisstofnun segir
ástandið algerlega óviðunandi,
en hún er „tannlaus“. I sam-
keppnislögum eru ekki nægilega
virk úrræði til þess að hægt sé að
taka á fullnægjandi hátt á brot-
um á reglum um verðmerkingar.
Fjöldi athugasemda var lang-
mestur í 11-11 búðum (28 að
meðaltali í búð) og 10-11 búð-
um (18 að jafnaði), en nokkru
minni (13-14) í Bónus, Nýkaupi
og Nóatúni. Hagkaup í Skeif-
unni fékk aðeins 1 athugasemd
um „Iægra verð við kassa“. - HEI
Stóraukin kortavelta
I veltutölum frá kortafyrirtækinu Visa Island fyrir
árið 1999 kemur fram gríðarlég aukning á flestum
sviðum. Heildarviðskipti með Visa-kort jukust um
16% á síðasta ári, fóru úr 134 milljörðum árið
1998 í tæpa 157 milljarða króna í fyrra. Kortavelt-
an var 110 milljarðar hjá Visá árið 1997 þannig að
aukningin er 41% á tveimur árum. Að sögn Einars
S. Einarssonar hjá Visa er markaðshlutdeild þeirra
um 73% í viðskiptum með kreditkort og 68% í
debetkortaveltunni. Að meðaltali er hlutdeildin í
greiðslukortaviðskiptum hér á Iandi um 70%. Jóla-
mánuðurinn var engin undantekning hjá Visa. Við-
skiptin jukust stórum. Eingreiðslur í desember sl.
námu alls 11,3 milljörðum króna, samanborið við 9,2 milljarða í des-
ember 1998. Aukningin er 22,8%. Þar af námu viðskipti með kredit-
kortum 5 milljörðum og með debetkortum 6,3 milljörðum. Stofnað
var til raðgreiðslna fyrir um 500 milljónir sem dreifast á allt að 36
næstu mánuði.
i
Einar S. Einarsson
hjá Visa getur
brosað breitt.
Europay með kort fyrir rikið
Europay Island og
fjármálaráðherra
hafa samið um
innleiðingu á inn-
kaupakortum fyrir
stofnanir ríkisins
til næstu fjögurra
ára. Samningurinn
var undirritaður í
vikunni, að undan-
gengnu útboði
meða kortafyrir-
tækjanna. Einnig
stendur til að
hanna kort sem
aðrir, t.d. sveitarfé-
lög og stærri fyrir-
tæki, geta nýtt sér.
Tilgangur með sér-
stökum innkaupa-
kortum fyrir ríkið
er að einfalda
greiðsluferli reikninga, minnka umsýslukostnað við smáinnkaup og
auka sýn stjórnenda yfir innkaup, sem eru stór þáttur í rekstri ríkis-
ins. Aætlað er að 25-30% af öllum útgjöldum ríkisins falli undir op-
inber innkaup, eða 45-55 milljarðar króna.
Ragnar Önundarson, framkvæmdastjóri Europay, og
Geir Haarde fjármálaráðherm handsala samninginn.
mynd: eól