Dagur - 25.01.2000, Síða 1

Dagur - 25.01.2000, Síða 1
T ímyndaður Humphrey Bogart er aðal ráðgjafi örvæntingarjulls karl- manns sem hefurmisst alla trú á sjálfum sér frammifyrirhinu kyn- inu. Raunverulegtfólk reynirlíkaað koma honum til hjálpar. Við sjáum hvemig til tekst í nýju gamanleikriti sem Jrumsýnt verður í Loftkastalanum 26. janúar. Leikritið heitir Panódílfyrir tvo og er eftir WoodyAllen. „Þetta er gamanleikrit með alvar- legum undirtóni,“ segir Hallur Helgason leikstjóri verksins. Það heitir á frummálinu Play it again Sam og Woody Allen skrifaði það 1967. Leikritið sló all rækilega í gegn á sínum tíma í Bandaríkj- unum og átti sinn þátt í að út- breiða nafn höfundarins, en hann var reyndar á þessum tíma orðinn þekktur sem uppistands- grínari í New York. Verkið var kvikmyndað og sú mynd var frumsýnd 1972. „Jón Gnarr vakti athygli mína á leikritinu í fyrra,“ segir Hallur. „Þá var hann búinn að gera á því þýðingu, staðfæra það og færa til nútímans. Það er snilldarlega gert hjá honum og sannar enn bctur en áður hvað Jón Gnarr er Jón Gnarr í aðaJJilutverki ,/Efingarnar hafa gengið mjög vel og við höfum fengið góðan og samhentan Ieikhóp þótt hann hafi ekki unnið saman áður. Auk Jóns Gnarr sem er í aðalhlutverk- inu eru fjórir leikarar í stykkinu. Við erum þarna með leikkonu í stóru hlutverki sem heitir Katla Margrét Þorgeirsdóttir. Hún er að byrja að láta að sér kveða f leiklistinni og Iék til dæmis í Baneitrað samband á Njálsgöt- unni. Síðan er Þorsteinn Guð- mundsson, félagi Jóns Gnarr úr Fóstbræðrum einn leikenda. Ingibjörg Stefánsdóttir söngkona sem er nýkomin heim úr leiklist- arnámi í Bandaríkjunum leikur eitt hlutverkið og Jón Atli Jónas- son útvarpsmaður er í hlutverki stórleikarans Humphrey Bogart. Panódíl fyrir tvo er drepfyndið en undir yfirborðinu skyggnumst við í sálardjúpin og kynnumst öflum sem eru víðar að verki en menn almennt þora að horfast íaugu við,“ sagði Hallur Helga- son. -GUN. Jón Gnarr og Katla Margrét í hlutverkum sínum i Panódíl fyrir tvo. lunkinn. Leikhæfileikar hans njóta sín líka vel í aðalhlutverk- inu. Eftir lesturinn sá ég fyrir mér að hægt væri að gera úr þessu skemmtilega sýningu og mér virðist á æfingunum að það sé að sannast. Við bíðum auðvit- að eftir hinum stóra dómi sem eru viðbrögð áhorfenda." Endar með óskðpum „Panódíl lýrir tvo er um þrítugan kvikmyndagagnrýnanda sem stendur í skilnaði og á mjög erfitt með að sætta sig við ástandið. Hann er algerlega á tauginni yfir öllu saman. Gamall vinur úr menntaskóla og konan hans reyna að koma honum til hjálpar, hug- hreysta hann og lappa upp á sak- irnar. Þau fara í að að reyna að koma honum saman við nýja konu. Þær tilraunir enda með ósköpum og þar blandast inn í samskipti hans og eiginkonu vinarins. Þetta er svona grunnþráðurinn. Þótt Panódíl fyrir tvo sé skrifað fyrir þrjátíu árum á það mjög mikið erindi við samtímann. Meðal þess sem gert er grín að er að vinur gagnrýnandans sem er mikill athafnamaður þarf að vera mikið f símanum. Þegar leikritið og þó sérstaklega kvikmyndin kom fram var hann alltaf í tí- kallasímum og allsstaðar þar sem hann kom f hús þurfti hann að fá aö hringja og gefa upp númerin þar sem hann var staddur svo hann væri ínáanlegur. I nútíman- um erum við að sjálfsögðu með hann GSM væddan." „Þau fara í þaö að reyna að koma honum saman við nýja konu en þær til- raunir enda með ósköpum." wmammmmm^^mmmmmmmmmwmtmmi^^^m VALLHÓLAAUR FÓÐURSMIÐJA Afgreidsla opin frá kl. 8.00 - 16.00 Sími 453-8233 Skagafirði

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.