Dagur - 25.01.2000, Blaðsíða 6

Dagur - 25.01.2000, Blaðsíða 6
22- ÞRIÐJUDAGUR 2S. JANÚAR 2000 LIFID I LANDINU SMATT OG STORT UMSJÓN: SIGURDOR SIGURDÓRSSON Alþmgismenn og öryrkjar Sá kunni leigubíl- stjóri, hljóð- færastilling- armaður og fyrrum knatt- spyrnudóm- ari, Bjarni Bjarni Pálmason, Pálmason, leigubílstjóri. skefur ekki utan af hlutunum ef honum þykir eitthvað vera öðruvísi en það á að vera, að hans dómi. Jón Kristjánsson for- maður Qárlaganefndar, þurfti á leigubíl að halda á dögun- um og Bjarni Pálmason mætti. Að sjálfsögðu tóku þeir tal saman og þar kom að Bjarni sagði Jóni að alþingis- menn væru upp til hópa vor- kunsöm dusilmenni. „Það eru tveir hópar sem ég rukka ekki eftir akstur," sagði Bjarni. „Það eru al- þingismenn og öryrkjar." Jón Kristjánsson þingmaður. Verið óhræddir Listmálari fékk leyfi til að mála mynd af Leó XIII páfa. Páfinn sat fyrir af hinni mestu þolinmæði. Þegar hann svo sá málverkið full- gert, leist honum ekki á blik- una, þótt hann hefði ekki orð á því. Málarinn hætti þó á að spyrja páfa hvort hann vildi ekki skrifa nafn sitt á mál- verkið. Leó XIII hugsaði sig um smá stund, tók svo pensilinn og skrifaði: „Matt. 14.. 27. - Leó XIII. Málarinn flýtti sér heim og fletti upp í Biblíunni. Þar stóð, í Matt.. 14. 27. „Það er ég, verið óhræddir." Ekkert ermdi I framdöl- um Skaga- Ijarðar bjuggu á sínum tíma bíllaus sómahjón, sem voru mjög ósammála í pólitík. Hún kaus alltaf Framsóknarflokk- inn, en hann Sjálfstæðis- flokkinn. Eitt sinn á kjördag var bíll sendur eftir hjónun- um. Húsfreyja kom til dyra og sagði bílstjórinn henni er- indið. Hún bað hann bíða smá stund, fór inn en kom fljótt út aftur uppábúin með lykil í höndunum og læsti húsinu með hengilás utan frá. „En hvað með húsbónd- ann?“ spurði bílstjórinn hissa. ,/Etlar hann ekki að kjósa?“ Húsfreyjan svaraði að bragði: „Hann á ekkcrt erindi á kjörstað.“ Skagafjardar- fögiir -sýsla Haraldur Hjálmarsson frá Kambi er í hópi kunnustu hagyrðinga þessa Iands. Hann var pinnamaður og þessi vísa hans þarfnast ekki skýringa: Skagujjardar- fögur -sýsla fer að verða miður sín. Hún skeljur alveg eins og hrísla ef ég smakka brennivín. FINA OG FRÆGA FOLKIÐ Giftast 1 airnað sinn Celine Dion og eiginmaður hennar Rene Angelil staðfestu hjúskaparheit sitt í annað sinn í athöfn á hóteli í Las Vegas. Celine lét hanna einn veislusal hótelsins þannig að gestum fannst eins og þeir væru að ganga inn í veröld úr Þúsund og einni nótt. 235 gestir voru við athöfnina sem samkvæmt heimildum er sögð hafa kostað 100 milljónir. Hátindur athafnarinnar var þegar hjónin voru krýnd kórónum. Eins og kunnugt er hefur Celine tekið sér frí frá söng og tónleika- haldi til að annast eiginmann sinn sem þjáist af krabbameini. Heitasta ósk hjónanna er að eign- ast barn og það er kannski eitt af því fáa sem þau geta ekki keypt. Celine og eiginmaður hennar endurnýjuðu hjúskaparheitið við glæsilega athöfn. KRAKKAHORNIÐ Bjallan ogbeiin Maríubjallan veit af gómsætum sólberj- um í horninu en ratar ekki. Getiði hjálpað henni að komast í kræsingarn- ar? Áskjön Á hverri myndanna fjögurra er atriði sem ekki á heima þar. Getiði fundið hvað það er? Við viljum hvetja alla sem hafa eitthvað í pokahorninu að senda okkur efni. Utanáskriftin er: Dagur - Barnahorn Strandgata 31 600 Akureyri Tölvupóstur: pjetur@dagur.is ANDRÉS ÖND STJÖRNUSPA Vatnsberinn Leggðu fram tannfé handa nýj- um heimi og komdu með síð- búna tertu í vinn- una. Þú heimtir fjörtíu ær af fjalli. Fiskarnir Hættu í sand- kassaleik við sjálfan þig. Upp- byggilegur kubbaleikur við aðra er meira þroskandi. Hrúturinn Ekki ásaka sjálfa þig um alla skap- aða hluti. Þú ert að vísu sek um það allt, en samt óþarfi að fóðra sektarkenndina í sífellu. Nautið Útlitið gott en það er ekki sjón að sjá sjálfan þig. Farðu í allsherjar klöss- un. Tvíburarnir Hamingjan er inn- an seilingar - en ekki þinnar, því miður. Krabbinn Þú hittir mann með spanjólu. Taktu honum tveim fótum. Ljónið Þið eruð skip sem mætast að nóttu og bæði kvótalaus. Það er ekki gæfuleg byrjun á sam- bandi. Meyjan Dustaðu rykið af rúllukragapeys- unni. Þær eru orðnar móðins á ný. Vogin Fitjaðu upp með gráyrjóttu á hringprjón, u.þ.b. 66 lykkjur. Láttu þær svo allar falla. Sporðdrekinn Þú hittir konu í grárri kápu en mannst ekki hvað hún heitir. Leitaðu í kápusíma- skránni. Bogamaðurinn Nú liggja Danir í því! Enda þurfa þeir ekki að vera edrú til að vinna íslendinga. Steingeitin Óvænt gleðitíð- indi berast þér innan 5 daga. Haltu þig áfram innan skattleysis- marka.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.