Dagur - 29.01.2000, Qupperneq 1

Dagur - 29.01.2000, Qupperneq 1
Laugardagur 29. janúar - 4. tölublað 2000 Teikning af hluta Hafnarstrætis frá 1801. Húsiö sem merkt er númer 9 erJóska húsið og er núna Hafnarstræti 16. Svona ieitþað upprunaiega út og var nafngiftir eftir þeim sem byggði, sem var frá Jótlandi. í aldana rás hefur verið byggt ofan á húsið og því breytt eftir hentugleikum. Þegar þessi mynd var gerð var Hafnarstræti á sjávarkambinum og fjöruborðið rétt norðan við húsa- röðina, sem sfðar var reist handan strætisins. Þar sem Tryggvagata er nú var uppsátur báta. Sveitamaður með klyfjaða trússahesta ríður mikinn eftir Hafnarstræti og er greinilega í verslunar- ferð. Það er því ekkert nýtt að fólk af iandsbyggðinni sæki verslanamusteri Reykjavíkur. Hafnarstræti 16 (Hótel Alexandra) 200 ára Á þeim slóðum sem Hafnarstræti 16 er stóð áður eitt af húsum Innréttinganna, Kaðlarahús, sem var við enda Kaðlarabrautarinnar er lá eftir sjávarkambinum. Talið er að það húsið hafi verið rifið árið 1792 og í kjölfar þess hafi Morten Jensen Rödgaard sem fyrst verslaði í Kaðlarahús- inu, byggt á lóðinni húsið sem enn stendur en hefur verið stækkað. Húsið var fyrst kallað Jóska húsið eða Faneyjarhúsið. Líkur benda til að nafnið tengist því að M.J. Rödgaard sem var skipherra frá Fanö, byggði húsið fyrir „Det fanöeske in- tressenskabl", sem stóð á bak við hann í verslunarrekstrinum. I heimildum er talið að M.J.Röd- gaard hafi byrjað að versla í Kaðl- arahúsunum en síðan byggt versl- unar og íbúðarhús. Kaðlarahúsið hafi M.J. Rödgaard keypt af Páli Brekkmann sem keypti það á uppboði. Til gamans má geta þess að Páll Brekkmann var stjúpfaðir Þórunnar Vigfússdóttur frá Arn- arhóli sem síðar giftist Grími Olafssyni syni Olafs Jónssonar prests á Möðruvöllum og víðar. Sonurinn Grímur var ódæll og komst fyrst undir mannahendur eftir innbrot á bænum Gröf á Höfðaströnd árið 1796. Afbrota- ferill Gríms var talsvert skrautleg- ur og meðal annars falsaði hann gjafabréf til sín frá Páli Brekk- mann á svokölluðu Norska húsi sem Grímur síðan veðsetti. Fyrir þá sök og aðrar Ienti Grímur á Brimarhólmi en tókst að strjúka þaðan árið 1808. Talið var að Grímur hafi komist til Englands. M.J.Rödgaard verslaði ekki lengi í húsinu og seldi eignina eftir þrettán ár. I bókinni „Sagt frá Reykjavík", eftir Árna Óla, segir að næsti eigandi að Jóska húsinu hafi verið Adser Knudsen kaupmaður, en hann hafi aldrei verslað þar. Ennfremur segir að verslunarstjórar hjá M.J. Röd- gaard hafi verið bræðurnir Magn- ús og Helgi Bergmann, bróður- synir Þorkels Bergmans, forstjóra Innréttinganna. Árið 1810 er Ole Peter Christian Möller eigandi að húsinu. Hann bjó þar og rak þar einnig verslun í l'élagi við verslun- arfélagið Andresen og Schmidt til ársins 1833. Samkvæmt manntali frá árinu 1835 húa íjóska húsinu: Gudný G. Möller, 26 ára ekkja, H.A. Jonsen, 26 ára studiosus og fact- or, Margrét Gísladóttir, 17 ára stofustúlka, Rósa Magnúsdóttir, 23 ára þjónustustúlka og Peter Petersen, 42 ára vinnumaður. Árið 1844 er húsið tekið til virðingar ásamt öðrum húsum sem stóðu á lóðinni. Þá er eignin skráð við Strandgötu og er lýst á eftirfarandi hátt: Gaflar hússins snúa í austur og vestur, norður- hlið snýr að Strandgötu, það er 28 álnirX 12 að grunnfleti, byggt af bindingi, múruðum í grind, klætt utan með listasúð. Hliðar hússins og annar gafl er máðað en hinn er tjargaður. Það er með tvöföldu borðaþaki lagt á sextán sperrur. Tvennar dyr eru á norð- urhlið, aðrar til inngöngu í versl- un, en úr hinum dyrunum er gengið inn í stóra forstofu og það- an er gengt bæði í verslun og íbúð. Ibúðin skiptist í dagstofu, eldhús, stúlknaherbergi, kontór, borðstofu og svefnherbergi. Her- bergin eru þiljuð með panel og máluð. 1 eldhúsinu er skorsteinn úr múrsteini og við hann eru tengdir tveir kolaofnar og eldavél. I öðrum enda hússins er verslun með disk (afgreiðsluborði ), hill- um og skápum. Gluggar í húsinu eru allir sex faga. Framhald á hls. 3 Hafnarstræti 16 áður en Hótel Alexandra var stofnsett. Margir merkir menn bjuggu og störfuðu í þessu húsi. Þar voru löngum verslanir og um það leyti sem þessi mynd var tekin voru veitingastofur á efri hæð. ffölnotahús

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.