Dagur - 02.02.2000, Blaðsíða 5

Dagur - 02.02.2000, Blaðsíða 5
MIDVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 - 5 FRÉTTIR Kveður Samherj a með 3 milLíarða í hondum Síðustu vikumar fyrir sölu Þorsteins Vil- helmssouar til Kaup- þings hækkuðu hréf Samherja um 23%. Þorsteinn segist kveðja fyrírtækið með smá söknuði. Þorsteinn Vilhelmsson, einn þriggja eigenda og stofnenda Sam- herja á Akureyri, stærsta sjávarút- vegsfyrirtækis landsins, hefur selt 21,6% eignarhlut sinn í fyrirtæk- inu. Fyrirtækið var stofnað fyrir 17 árum. Heildarnafnverð hlutabréfa í Samheija er 1.374,7 milljónir króna og hfutur Þorsteins og hans fjölskyldu því tæpar 297 milljónir. Bréfin voru seld Kaupþingi á geng- inu 10,60 og söluverð þeirra því 3.147.479.000 krónur. Þorsteinn sagði í samtali við Dag í gær að hann ætlaði að flytja búferlum frá Akureyri til Reykjavíkur. Fjárfestar bíða Samkvæmt upplýsingum frá Kaup- þingi hefur eng- inn einn stór aðili lýst sig reiðubú- inn til að kaupa hlut. Þó er reikn- að með að bréfin fari fljótlega út til stórra fjárfesta, þar sem eftir- spurnin er fyrir hendi. Kaupþing kemur til með að halda litlum hlut eftir, þar sem um áhugaverðan fjár- festingarkost er að ræða. Gengi bréfa Samherja hefur verið að hækka jafnt og þétt á Verðbréfaþingi Islands síðustu vikur. Um miðjan janúar var geng- ið 8,6 og endaði í gær í 10,55. Hækkunin á rúmum tveimur vik- um nemur 23%. Gengið er þó ekki komið í það sem það var hæst f ágúst á síðasta ári, ríflega 11,00. Þorsteinn sagði að að baki þess- ari ákvörðun fægi fyrst og fremst hagkvæmnissjónarmið en einnig mörkuðust þau af þvf viðhorfi að góður samstarfsandi þurfi að ríkja innan hlutafé- laga. Það væri öll- um aðilum fyrir bestu að hafa hreinar Iínur og því vildi hann óska stjórn, hlut- höfum og starfs- fólki Samherja velgengni á kom- andi árum. Akvörðun um sölu væri þó eng- in vísbending um að hann væri hættur afskiptum af rekstri sjávar- útvegsfyrirtækja. Undanfarið hefur hann, fjöfskyld- an og eignarhaldsfélag hennar, Ránarborg, fjárfest verulega í nokkrum sjávarútvegsfyrirtækjum, meðal annars í Hraðfrystihúsinu- Gunnvöru, SH, Fiskeldi Eyjafjarð- ar auk enska knattspyrnufélagsins Stoke. Ekki að fara á sjó! „Eg fer út úr Samheija með smá söknuði, því þarna hef ég eignast margt gott samstarfsfólk gegnum lífið og fólk scm ég var í daglegum samskiptum við, bæði á skrifstofu, vélaverkstæði, skipaþjónustu og sjómennirnir. Þessi tengsl munu auðvitað eitthvað slitna. Eg er hins vegar búinn að gera upp hug minn gagnvart fyrirtækinu, þessum kafla í lífi mínu er lokið og ég sný mér að öðru, meðal annars umsýslu eigna,“ sagði Þorsteinn. - Ertu aðfara að kaupa skip? „Nei, það er alls ekki á dagskrá og ég er heldur ekki að fara aftur á sjó. Þeim hluta er einnig lokið. En ég er alls ekki hættur afskiptum af sjávarútvegi, það eru margir mögu- leikar en það kemur í Ijós hvernig maður mun nýta sér þá.“ - Þú ert hluthaji í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Eru einhverjar hræringar þar í gangi? „Eg er ekki þar í stjórn, aðeins hluthafi, og veit það því ekki. Mér er ekki kunnugt um neinar undir- öldur í þá veru að koma Róberti Guðfinnssyni úr formannssætinu á aðalfundinum 31. mars. Eg til- heyri alla vega engri blokk, ef þær eru til,“ sagði Þorsteinn Vilhelms- son. — GG Hvergætir réttar bama? Þingmenn voru margir hverjir heldur mæðuiegir undir umræðum utan dagskrár um gagnagrunnsmálið. Kristján Möller er hér íbygginn á svip og það sama má segja um Ástu Möller. - mynd: teitur Stefán Haraldsson og Ingibjörg Sólrún kynntu tillögurnar. Breyting geínr 200 mUjónir Borgarráð hefur samþykkt átak í uppbyggingu og fjölgun bílastæða í miðborginni. Það felur m.a. í sér fjölgun bílastæða um 100, gjald- skrárbreytingum bílastæðasjóðs sem flestar eru til hækkunar að undanskildri lækkun á íbúðakort- um sjóðsins úr 5 þúsund í 3 þús- und á ári. Þá fækkar gjaldskyldu um eina klukkustund í bílastæði á laugardögum. Gjaldskrárbreyting- in kemur til framkvæmda um miðjan apríl og á að skila Bíla- stæðasjóði um 200 miljón króna tekjuauka á ári. Óhjákvæmilegt Þetta kom m.a. fram á blaða- mannafundi sem borgarstjóri og miðborgarstjórnin efndu til í gær. Þar kom fram að miðborgarstjórn- in samþykkti þessar breytingar að því undanskildu að borgarfulltrúi sjálfstæðismanna sat hjá. Þá hafa ýmsir kaupmenn á Laugaveginum lýst yfír andstöðu við þessar breyt- ingar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir að þótt borgaryf- irvöld vilji ekki stofna til illdeilna um miðborgina þá séu þessar breytingar óhjákvæmilegar til að mæta þeirri uppbyggingarsókn sem á sér stað á svæðinu. Með breytingunum verður hægt að greiða í stöðumæla með 5, 10 og 100 krónu mynt. Þá verður ódýr- ara að nota stæði í hliðargötum en dýrara að nota eftirsóttustu stæðin við Laugaveg og í Kvosinni. Ekki er áformað að Ijölga stöðumælavörð- um en Ijárfest verður í nýjum stöðumælum vegna gjaldskrár- breytinganna. — GRH Starfsleyfi miðlægs gagnagnmns rætt utan dagskrár. Kolbrún Hall- dórsdóttir spurði: Hvers eiga böm að gjalda þegar þau kom- ast að því 18 ára gömul að foreldrar þeirra hafa ekki gætt réttar þeirra sem skyldi? I gær fóru fram utandagskrárum- ræður um starfsleyfi það sem heil- brigðisráðherra veitti Islenskri erfðagreiningu fyrir miðlægum gagnagrunni. Ogmundur Jónasson hóf umræðuna. Hann sagði að í uppsiglingu væru málaferli á veg- um Mannverndar og að læknar teldu sig ofríki beitta og margir þeirra hafi lýst því yfir að þeir muni leita til dómstóla. Ofan á allt saman ættu læknar í vök að verjast gagnvart sjúkrahúsunum vegna þessa máls. Hann sagði það alvar- legt þegar trúnaðarbrestur væri orðinn jafn djúpstæður og raun bæri vitni á milli stjórnvalda og Iækna vegna þessa máls. Þess vegna væri málið rætt utan dag- skrár á fyrsta degi þinghalds á ár- inu. Heilbrigðisráðherra yrði að svara þvf á hvern hátt hann ætlaði að tryggja að ekki yrði brotið á starfsmönnum heilbrigðisþjónust- unnar sem vilja gegna skyldum sínum. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð- isráðherra sagði að óánægja ákveð- inna lækna kæmi sér ekki á óvart eftir að rekstrarleyfið var gefið út. Óánægjan byggist á því að um væri að ræða persónugreinanlegar upp- Iýsingar. Hún sagði að gagna- grunnurinn myndi ekki innihalda slíkar upplýsingar. „Ég vænti þess að þegar menn hafa kynnt sér þær ströngu örygg- iskröfur sem gerðar verða til að tryggja að einstaklingar verði aldrei persónugreinanlegir, muni draga verulega úr andstöðu við gagna- grunninn," sagði lngibjörg. Hún sagði að virtir lagaprófessorar fjöll- uðp um málið í læknatímariti sem er að koma út og þeirra skoðanir væru að annað eins öryggisnet þekktist ekki í veröldinni og væri í miðlægum gagnagrunni IE. Réttur bama fótum troðinn Kolbrún Halldórsdóttir spurði heilbrigðisráðherra einnar spurn- ingar en það var hvers vegna ekki væri krafist upplýsts samþykkis sjúklinga fyrir flutningi upplýsinga í gagnagrunninn? Heilbrigðisráð- herra svaraði þessari spurningu ekki. Kolbrún sagðist líka vilja beina sjónum að börnum í gagnagrunn- inuni. Hún sagði að vegna þess að samþykkis væri ekki leitað fy'rir því að upplýsingar færu í gagnagrunn- inn, færu þangað inn allar upplýs- ingar um börn. Líka benti hún á að upplýsingar sem einu sinni væru komnar inn í grunninn væru þar fastar. Ekki verði hægt að afmá þær. „Hvers eiga börn þá að gjalda þegar þau komast að því 18 ára gömul að foreldrar þeirra hafa ekki gætt réttar þeirra sem skyldi? Þau eiga engan rétt vegna þess að þau geta ekki fengið afmáðar upplýs- ingarnar urn sig í gagnagrunnin- um. Það er glapræði að fótum troða rétt bama á þennan hátt og ég treysti því að á einhverju stigi, alþjóðaréttar, ef ekki vill betur, verði hægt að forða þeim frá þess- ari ósvinnu," sagði Kolbrún. Hún spurði einnig hver stæði vörð um rétt þroskahefta og allra þeirra sem vegna veikinda hafa ckki mögu- leika á að tjá sig um vilja sinn. Hún spurði líka hver væri réttur látinna gagnvart gagnagrunninum. Réttar þeirra gætti enginn. Fleiri þingmenn tóku til máls en fátt nýtt kom fram í máli þeirra. - S.DÓR Banaslys á Reykjanesbraut Kona um fertugt beið bana í um- ferðarslysi á Reykjanesbrautinni við Kúagerði í gærmorgun. Hún var ein á ferð á litlum sendiferða- bíl þegar hún missti stjórn á hon- um. Lenti hún framan á fólksbif- reið sem var ekið á leið suður. Ökumaður þeirrar bifreiðar slas- aðist ekki alvarlega. Konan var flutt með þyrlu á Sjúkrahús Reykjavíkur en var látin er þangað var komið. Akstursskilyrði voru slæm á Reykjanesbrautinni, kóf- hríð og slæmt skyggni. Umferð um brautina lá niðri um nokkurn tíma vegna slyssins, meðal annars vegna þess að beðið var eftir full- trúum frá umferðarslysanefnd en þeir hafa ekki útkallsskyldu líkt og lögregla og björgunarlið, og voru því seinni á vettvang. Högnamálið dregst Vegna mikilla anna hjá Land- læknisembættinu hefur enn ekki unnist tími til að taka fyrir siða- nefndarkæruna gegn Högna Ósk- arssyni geðlækni fyrir þátt hans í kynferðisbrota- málinu svokall- aða. Að sögn Matthíasar Halldórs- sonar aðstoðarlandlæknis cr enn verið að safna gögnum. Siðanefnd Læknafélags íslands, þar sem eiga sæti þeir Alan Vagn Magnússon, Asgeir B. Ellertsson og Runólf Pálsson, vísaði kærunni til land- læknisembættisins með ósk um umfjöllun þess á málinu. Gagna- öflun hefur að sögn Matthíasar tekið langan tíma og annir tafið fyrir afgreiðsiu málsins. „Svona mál geta tekið drjúgan tíma í vinnslu og auk þcss var, með hlið- sjón af önnunum hér, komist að þeirri niðurstöðu að ekki bráðlægi á niðurstöðunni," segir Matthías. - FÞG Skjámi í íslandsbanka Félag heyrnarlausra á 40 ára af- mæli um þessar rnundir og af því tilefni hefur sérstakt þjónustuúti- bú fyrir heyrnarlausa verið sett á Iaggirnar í útibúi Islandsbanka í Lækjargötu 12 í Reykjavík. Þar hefur verið sett upp forritið Skjámi sem gerir heyrnarlausum kleift að hringja í útibúið og ræða við starfsfólk útibúsins. Skjámi er textasímaforrit fyrir PC-töIvur og getur notandi þess nýtt tölvuna sína sem textasíma. íslendingar í flugslysi? Fréttavefur CNN birti í gær far- þegalista flugvélar Alaska Airlines, sem fórst í fyrradag úti fyrir strönd Los Angeles. A listanum eru fjög- ur nöfn af norrænum uppruna, þ.e. Karl og Carol Karlsson og Ro- bert og Lorna Thorgrimsson. Atli Ásmundsson, upplýsingafulltrúi í utanríkisráðuneytinu, sagði við Dag í gærkvöldi að ráðuneytið hefði fengið staðfcstar upplýsing- ar frá flugfélaginu um að engir ís- lenskri ríkisborgarar hefðu verið um borð. Atli taldi þó ekki útilok- að að einhver þessara Ijögurra far- þega væru af íslenskum uppruna, ekki síst Robert og Lorna Thor- grimsson. Eftirnafnið Karlsson væri hins vegar þekkt víðar á Norðurlöndum, t.d. í Svíþjóð. Nánar er sagt frá slysinu í erlend- um fréttum á bls. 11. — BJR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.