Dagur - 01.03.2000, Blaðsíða 4
4 - MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2 000
rD^ir
I í
. FRÉTTIR
Nær 40% hunsa
hrj óstamyndatoku
Athygli vekur að hlutfallslega fæstar konur mæta í reglubundna brjóstakrabbamelns-
leit með röntgenmyndatöku á Stór-Reykjavíkursvæðinu
Margar og mismimandi
ástæður virðast valda því
að aðeins 63% íslenskra
kvenna þiggja boð um
krabbameinsleit með
myudatöku á brjóstum.
Otti við sársauka og geislun virðist
meðal þess sem dregur úr konum að
mæta í reglubundna Ieit að
brjóstakrabbameini, sem öllum 40-69
ára íslenskum konum er boðin á tvegg-
ja ára fresti hjá Leitarstöð Krabba-
meinsfélagsins. Aðeins um 63% þeirra
þiggur það boð, 72% á þriggja ára
fresti, sem er töluvert lægra hlutfall en
kemur í leit að leghálskrabbameini og
töluvert Iægra hlutfall en almennt ger-
ist í nágrannalöndunum. Og raunar
bara rétt yfir þeim mörkum (60%) sem
breskir og sænskir sérfræðingar telja
Iágmarksmætingu eigi að tryggja að leit
leiði til lægri dánartíðni.
Slökust mæting í höfuðstaðnum
Hlutfallið er líka talsvert misjafnt eftir
landshlutum. Athygli vekur að hlut-
fallslega fæstar konur mæta í reglu-
bundna brjóstakrabbameinsleit með
röntgenmyndatöku á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu, þar sem slík röntgenmynda-
taka sýnist hvað aðgengilegust. Enda
er mæting höfuðstaðarkvenna hreint
ekki nægilega góð að mati Krabba-
meinsfélagsins. Konur á Austurlandi
og Suðurlandi mæta hins vegar best.
Ótti við sársauka og geislun
í nýju Læknablaði segir frá viðamikilli
rannsókn sem var hluti af meistara-
prófsverkefni Guðrúnar Arnadóttur við
félagsvísindadeild Háskóla Islands á
því hvað hindrar íslenskar konur í að
mæta í brjóstamyndatöku. Niðurstöð-
urnar sýndu meðal annars að ótti við
sársauka og geislun draga úr mætingu.
Þekkingarskortur á gildi myndatöku
dró einnig úr mætingu svo og efi þeirra
eigin lækna um gildi brjóstamynda-
töku. Sumar konur sem fara í bijósta-
skoðun hjá sínum eigin lækni telja
brjóstamyndatöku óþarfa. Jafnframt
kom fram að því óánægðari sem konur
voru með þjónustu leitarstöðvarinnar
þeim mun óreglulegri var mæting þeir-
ra í myndatöku. Af 19 nefndum ókost-
um reyndust tímaleysi og gjaldtaka fyr-
ir myndatökuna hins vegar þeir þættir
sem síst stóðu í vegi fyrir mætingu í
myndatöku.
Almenn ánægja
Mestrar óánægju gætti með viðmót
sérfræðinganna (11%), biðtíma á
staðnum (9%), færibandavinnu (6%)
og að svara sömu spurningunum ár
eftir ár (4%). Almennt séð var viðhorf
til leitarstöðvarinnar þó jákvætt (87%)
og nær þriðjungur kvennanna sagði
ekkert sem þeim líkaði illa við. Mesta
ánægja var með hlýlegt viðmót starfs-
fólks (43%), skjóta, góða afgreiðslu
(17%) og hreinlæti (5%).
Rúm 70% lifa í fímm ár
Reglubundin Ieit að brjóstakrabba-
meini með röntgenmyndatöku hófst
hérlendis árið 1987. Brjóstakrabba-
mein er langalgengasta krabbamein
sem greinist meðal íslenskra kvenna og
ásamt lungnakrabba algengasta dánar-
orsök kvenna á miðjum aldri. Nýgengi
brjóstakrabba hefur aukist verulega
undanfarina áratugi bæði hér og ann-
ars staðar í Vestur-Evrópu, en dánar-
tíðni þó að mestu haldist óbreytt.
Enda hafa fimm ára heildarlífslíkur
kvenna sem greindust með brjós-
takrabba aukist úr 48% á tímabilinu
1956-60 upp í 68% á árunum 1980-85
og áfram í 71% á árunum 1985-90.
Borgarráð ákvað fyrir
nokkru að efua til laug-
tímastefnumótunar um
framtíð Reykjavíkur og
eru framundan ýmiss kon-
ar ráðstefnur og fundarhöld með
hagmunahópuin af því tilefni. Er
búið að skipuleggja átakið ræki-
lega, en Reykjavíkurlistanum
hefur hins vegar ekki auðnast að
kynna þetta átak almennilega
fyrir almenningi. Og nú hyggst
Sjálfstæðisflokkurinn stela heiðrinum; aug-
lýstu í sunnudagsmogganum ráðstefnu um
framtíð Reykjavíkur. Fúll stuðningsmaður
Reykjavlkurlistans í pottinum muldraði eittliað
um Davlðs Stefánsson, konuna sem kyndir ofn-
inn og að sumir skrifuðu í öskuna öll sín bestu
Ijóð. Hann taldi einsýnt að borgarbúarmyndu
nú álykta að meirihluthui væri að herma eftir
minnihlutanuml!....
Vísa eftir Svein Sigurjónsson á Galtalæk í Land-
sveit uin Össur Skarphéðinsson, Siv Friðleifs-
dóttur og lirafnamál á Alþingi og birt var í Smátt
og stórt í gær brenglaðist og er hún því birt hér í
pottinum rétt upp sett.
Siv á skilið líka lof
leiðina glóru ratar,
Hrafiiafjöldinn er utn of,
eins og leiðirkratar.
Ólafsfirðingar eru nú famir að
ókyrrast nokkuð vegna atvinnu-
mála í hænum og er búist við að
mikið fjölmemii verði á almenn-
um borgarafundi um atvinnu-
mál og byggðaþróun með þing-
mönnum og öðrum ráðamönn-
um sem boðaður hefur verið í
Tjamarborg á laugardag. Á föstudag rennur út
frestur til að lýsa kröfum í þrotabú Sæunnar Ax-
els og þá fer að skýrast hversu stórt gjaldþrotið
er. í pottinum þykir mönnum athyglisvert að
Sæunn sjálf mun ekki hafa sést á Ólafsfirði frá
þvl skömmu eftir yfirlýsinguna um gjaldþrot -
hún mun vera stödd í Brasilíu í viðskiptaerind-
FRÉTTAVIÐTALID
Hámark jarðvirkni næstu áratugi
Ragnar
Stefánsson
jaiðskjálftafræðingur.
Kenningar um að ísland sé
krnnið inn í tímabil aukinnar
jarðvirkni. Tíðari eldgos og
jaiðskjáfltar. Erfittaðspá ná-
kvæmlega um stað og stund.
„Við erum frekar á þvf að við séum komin
inn í tímabi! vaxandi jarðvirkni. Eg vil kalla
þetta jarðvirkni. Við höfum verið að fikra
okkur inn í þetta tímabil, síðustu tvo áratug-
ina höfum við séð ýmis merki um að við
séum á þessari leið. I Islandssögunni skipt-
ast á tímabil þar sem er mikil virkni og svo
aftur minni og menn hafa komist að þeirri
niðurstöðu að það hafi verið í sögunni um
það bil hundrað og fjörutíu ára á milli
virknistoppa. Samkvæmt því ætti næsti
toppur að vera eftir Qörutíu ár ef við miðum
við að síðasti toppur hafi verið í kringum
1900. Þetta þýðir ekki að akkúrat þá verði
mest af jarðskjálftum eða eldgosum en það
eru líkur lyrir því að áratugina í kringum
þessa toppa sé tiltölulega mikið um að vera.“
- Erunt við þú að tula um stórar hamfar-
ir eða eitthvað sem vísindamenn taka
meira eftir en almenningur?
„Það má vel vera. Almenningur tekur þó
meira eftir þessu núna en áður í því menn
fylgjast miklu betur með þessum hlutum en
áður. Ég held samt sem áður að þessi aukn-
ing sem við erum að horfa á núna sé raun-
veruleg. Það gætu orðið tíðari eldgos heldur
en venjulega, eins og við höfum reyndar
upplifað síðasta áratuginn og einhver aukn-
ing í jarðskjálftavirkni. Það þýðir í sjálfu sér
ekki að það þurfi að vera mjög stórir skjálft-
ar og ég hef frekar viljað kalla þetta jarð-
virkni."
- Þannig að menn eru jafnvarkárir og
áður að tala um Kötlugos eða Suðurlands-
skjálfia í þessu sambandi?
„Já, en það eru þónokkrar líkur á því að á
næstu fjörutíu árum verði tiltölulega stór
skjálfti á Suðurlandi og við höfum haldið því
fram. En hvort hann verður á meðal allra
stærstu skjálfta er erfitt að fullyrða nokkuð
um. Þetta kemur þannig út að það er meiri
færsla í gangi, meiri hreyfing í landinu og
sumsstaðar getur þessi aukna hreyfing og
spenna leitt til eldgosa og annars staðar til
jarðskjálfta. Ég held hins vegar að við áttum
okkur ekki á því hvar og hvenær fyrr en að
því kemur nánast. Ekkert frekar en í þessu
Heklugosi núna. Við vitum almennt að það
má búast við ýmsu frá þessum slóðum, til
dæmis frá Heklu, og það mátti búast við því
að það yrði aftur gos þessi árin. En í sjálfu
sér vorum við ekkert örugg um það því það
er ekki alltaf öruggt þó það sé spenna, hreyf-
ingar og innskot neðan úr jörðinni að það
verði gos úr því. Við vissum ekki fyrr en með
mjög skömmum fyrirvara að það yrði gos úr
þessu.“
- Sem sagt að þrátt fyrir hetri mælitæki,
meiri mælingar og meiri þekkingu með
hverju áritiu, þá sýnir náttúran okkur
afiur og afiur hve lítið við vitum í raun?
„Já, það má orða það þannig. Þekkingin
fer þó alltaf vaxandi og við komumst alltaf
nær því að geta sagt með Iengri fyrirvara
hvað verða muni. Þessi niðurstaða um
aukna jarðvirkni sem er í gangi er meðal
annars komin út úr slíkum rannsóknum,
bæði sögulegum rannsóknum og rannsókn-
um á jarðskjálftavirkni og gosum. En þetta
er bara almenn þekking á sögunni og það
sem er að gerast þessi árin er ákveðin stað-
festing á því að þær hugmyndir séu réttar.
Við eigum erfitt, ennþá, með að höndla ná-
kvæmlega hvað er að gerast niðri í jörðinni."
- HI
'IJ