Dagur - 01.03.2000, Page 7

Dagur - 01.03.2000, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2000 - 7 TW«r ÞJÓÐMÁL Hrærmgamar á vinstri vængnuin Hræringar á vinstri væng stjór- mála halda áfram, en nú er Iokakaflinn í sameiningarferli Samfylkingarinnar hafinn. Það er nú orðið ljóst að Alþýðubanda- lagið lifir. Það er að vísu erfða- breytt með sjónarmiðum græn- ingja og Kvennalistans. I þess- um flokki eru til reiðu skoðanir á flestum málum, sem yfirleitt eru um að fylgjast ekki með straumi tímans og andæfa gegn öllum breytingum í samfélalginu. Vinstri grænir eru líklega aftur- haldssamasti flokkur í Vestur Evrópu þótt finna megi lík stjón- armið hjá Vinstri sósíalistum á Norðurlöndum og hjá Græningj- um annars staðar. Skoðanir um hið óumbreytan- lega samfélag hafa vissulega hljómgrunn hjá ákveðnum hópi fólks. Þessi hópur er greinilega nógu stór til þess að halda stjórn- málaflokki lifandi. Það er að vísu deilt um hvort hann sé 10, 15, eða 20% af kjósendum. Eg vil halda fram neðri mörkunum þegar til kosninga kemur. Formaimsslagur Nú á að stofna flokk úr Samfylk- ingunni og það er ekki óeðlilegt að svo sé gert. Samfylkingin hefur liðið fyrir óskýrar línur um forustu og óskýra stefnu þar sem reynt hefur verið að sigla á milli skers og báru og reyna að styggja ekki einstaka skoðanahópa. „Vinstri grænir eru líklega afturhaldssamasti flokkur í Vestur Evrópu þótt finna megi lík stjónarmið hjá Vinstri sósí- alistum á Norðurlöndum og hjá Græningjum annars staðar," segir Jón Kristjánsson m.a. í grein sinni.. Leiðin til hins stóra Jafn- armannaflokks er löng og ströng og enn bendir ekkert til þess að Samfylkingin verði annað og meira en erfðabreyttur Krata- flokkur með nokkrum Alþýðu- bandalagsmönnum sem flökrar við því að vera á móti öllu. Vinstri vængur íslenskra stjórn- mála er sundraður sem fyrr, og enn stendur fjögurra flokka kerfi. Hver verður formaður? Nú hefur Margrét Frímannsdótt- ir Iýst því yfir að hún sækist ekki eftir formannsembætti í Sam- fylkingunni. Það eru því allar líkur á að Ossur Skarphéðinsson og Guðmundur Arni Stefánsson berjist um formannsstólinn, en vissulega gæti Jóhanna Sigurðar- dóttir blandað sér í leikinn. Eg ætla mér ekki að spá um hvernig þessi slagur fer, hvort sem tveir eða þrír taka þátt í hon- um. Þeir Guðmundur Árni og Ossur eru kosningaþrælar og hafa pólitískt nef, bakland og áróðurstækni og vita hvað þeir eiga að tala um hverju sinni. Enginn skyldi vanmeta Jóhönnu þegar hún fer á skrið. Það sýndi prófkjörið fyrir síðustu kosningar. Össur mun vissulega höfða mest til gráa svæðisins sem var milli Alþýðuflokksins og Alþýðubanda- lagsins. Hann og Margrét myndi verða par sem brosir til vinstri. Guðmundur Arni hefur hins veg- ar sterkar rætur í gamla Alþýðu- flokknum. Hann er baráttumað- ur og hefur á bak við sig skipulag. Guðmundur sýndi kjark í því að samþykkja Fljótsdalsvirkjun fyrir áramót . Þótt hann eigi tengsl austur ráku þau hann ekki til þess. Líklegt er að með því hafi hann viljað gefa merki um raunsæi í atvinnu og efnahags- málum, en það er nú fáséður eig- inleiki á vinstri væng stjórnmál- anna. Skilningur á því að vel- ferðarkerfið þurfi að byggjast á öflugu atvinnulífi er af skornum skammti í herbúðum Samfylk- ingarinnar og Vinstri grænna. Þversögnin Þversögnin mikla lyrir Samfylk- inguna og Vinstri græna er að stjórn miðju og hægri aflanna í íslenskum stjórnmálum hefur búið í haginn íyrir velferðarkerf- ið í landinu. Atvinnulífið hefur fengið aðra umgjörð en áður og er sterkara. Launatekjur hafa auldst og þar með tekjur ríkis- sjóðs. Það hefur gert það mögu- legt að greiða niður skuldir ríkis- sjóðs. Það hefur einnig verið lagt til hliðar fyrir skuldbinding- um þar á meðal lífeyrisskuld- bindingum. Hin mikla vaxta- byrði ríkissjóðs er að minnka. Þetta gefur allt aðra stöðu til nauðsynlegrar endurskoðunar á tryggingingarkerfinu og þeim tekjutengingum sem þar eru við lýði. Þær voru flestar settar á í samstjórn Krata og Sjálfstæðis- flokksins þótt enginn vilji kann- ast við þær núna. Þessi verkefni eru nú framund- an hjá ríkisstjórninni, en við gerð fjárlaga fyrir árið 2000 höfðu þau verkefni forgang að leggja fram fjármagn vegna byggðamála, heilbrigðismála og fíkniefna- mála. JÓN KRISTJÁNS- SON formaður fjárlaga- nefndar Alþing/s skrifar Tækifærí laudsbyggðar tu vaxtar og þróunar SVANFRÍÐUR JÓNAS- DÓTTIR alþingismaður Samfylkingar, skrifar Um leið og einhæfum störfum í sjávarútvegi og landbúnaði fækk- ar, verða til ný störf í þjónustu sem tengjast sömu greinum. Þessi nýju störf byggja nýrri tækni og þekkingu. Þau krefjast menntunar eða endurmenntun- ar. Þessi nýju störf verða ekki til í sjávarþorpunum eða í dreifbýl- inu. Um leið og störfum f sjávar- útvegi og landbúnaði fækkar úti á landi fjölgar þessum störfum á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt fréttum er staðan sú núna að laus störf á höfuð- borgarsvæðinu hafa aldrei verið fleiri f janúar. Eftirspurnin er mest í þjónustu við atvinnurekst- ur og þá einkum í upplýsingaiðn- aði og tæknigreinum. A sama tíma er vaxandi at- vinnuleysi á ýmsum stöðum á landsbyggðinni. Þróun undanfar- inna ára sýnir, svo ekki verður um villst, að ef landsbyggðin ætl- ar að eiga möguleika til vaxtar og þróunar þá verður að skapa þekk- ingarumhverfi þar sem það er mögulegt og setja nýjar forsend- ur fyrir menntun og endur- menntun íbúanna og þjónustu; fyrir meiri fjölbreytni. Þróun mannlífs og búsetu þarf að hugsa út frá framtíðarmöguleikum at- vinnulífs og menningar á hverju svæði; ekki út frá fortíð, eða for- tíðarvanda, sem stundum er not- aður af stjórnvöldum sem afsök- un fyrir aðgerðarleysi. Jafn adgangur að nýrri tækni Enn er mikill aðstöðumunur þeirra sem vilja, eða þurfa að nýta sér hina nýju samskipta- tækni til náms, fjarvinnslu eða atvinnusköpunar ýmiskonar eftir því hvar þeir búa á landinu. Þó leiðrétt verðskrá fyrir Ieigulínur hafi tekið gildi nú á haustmánuð- um, eftir að hafa lengi verið of- „Það dugar ekki að skilja landsbyggðina eftir með þaö hlut- verk eitt að takast á við samdrátt í land- búnaði og sjávarút- vegi, eða hrekjast undan honum eins og undanfarin ár.“ reiknuð á lengri leiðunum, landsbyggðinni í verulegan óhag, hefur það verðbil sem háð hefur starfsemi af þessum toga víða um landið hreint ekki verið brúað. Enn er þess beðið að ríkisstjórn- in grípi til þeirra ráða sem duga svo allir landsmenn sitji við sama borð við nýtingu upplýsingahrað- brautarinnar og jafni þannig að- stöðu fólks um allt Iand til að byggja upp nútíma þjónustu og nýta menntunarkosti; að byggja upp atvinnulífið. Það dugar ekki að skilja landsbyggðina eftir með það hlutverk eitt að takast á við samdrátt í landbúnaði og sjávar- útvegi, eða hrekjast undan hon- um áfram eins og undanfarin ár. Hin nýja byggðastefna Störfum við frumframleiðslu í landbúnaði og sjávarútvegi, jafn- vel iðnaði,mun halda áfram að fækka en sérhæfðum störfum í þjónustu ýmiskonar mun fjölga að sama skapi. Til að landsbyggð- in eigi þarna raunhæfa mögu- leika þarf að bregðast við með auknu framboði á aðgengilegri menntun. Fólk um land allt verð- ur að hafa tækifæri til að afla sér nýrrar kunnáttu og þekkingar til að verða færara um að takast á við atvinnuháttabreytingar með skapandi hætti, og sjálfstrausti. Það vill líka gleymast að menn- ingin er bæði gefandi og atvinnu- skapandi, ekki bara í höfuðborg- inni heldur Iíka úti á landi. Og hin nýja tækni, lykillinn að upp- lýsingasamfélaginu, á að vera öll- um landsmönnumjafn aðgengi- leg, á sama verði. 1 því er hin nýja byggðastefna fólgin.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.