Dagur - 04.03.2000, Qupperneq 2
2 - LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
FRÉTTIR
L.
Allir erai með en
engirat ákveðinn
Enginn liefur enn tekið
opinberlega ákvörðun
um hvort hann gefur
kost á sér til for-
mennsku í Samíylking-
unni. Sumir volgir en
aðrir heitir. Niður-
staða skoðanakönnun-
ar hreytir engu.
Nú dregur að lokum þessa sér-
staka pókers sem nokkrir áhuga-
menn um formcnnsku í Samfylk-
ingunni hafa verið að spila að
undanförnu. Senn verða menn að
leggja spilin á borðið. Dagur ræddi
við helstu áhugamennina í gær og
í ljós kom að enn eru allir með í
spilinu en enginn hefur tekið op-
inberlega ákvörðun um hvort
hann gefur kost á sér. Framboðs-
frestur rennur út 16. mars.
1 fyrradag var birt skoðanakönn-
un úr vagni Gallup þar sem spurt
var hvern þátttakendur vildu fá
sem formann Samfylkingar. Þar
fékk Ossur Skarphéðinsson tæp-
lega 20% fylgi en Guðmundur
Ami Stefánsson og Jóhanna Sig-
urðardóttir tæplega 2% hvort af
þeim sem tóku afstöðu.
Össur Skarphéðinsson: Könnunin
dregur ekki úr mér.
Skemmir ekki
Össur Skarphéðinsson segist enn
ekki hafa tekið ákvörðun hvort
hann fer í formannsslaginn. Hann
var spurður að því í gær hvort
þessi útkoma í skoðanakönnun-
inni myndi ekki ýta undir það að
hann færi í slaginn?
„Hún dregur ekki úr,“ var það
eina sem hann vildi um málið
segja.
Heimildir Dags úr innsta hring
stuðningsmanna Össurar segja að
hann hafi þegar tekið ákvörðun
um að gefa kost á sér og muni
sennilega tilkynna það um næstu
helgi.
Guðmundur Ami Stefánsson er
staddur erlendis. Hann segir varð-
Guðmundur Árni Stefánsson:
Könnun Gallup herðir á honum.
andi þessa skoðanakönnun að
þarna hafi fólk verið spurt sem
ekki muni koma til með að taka
þátt í formannskjöri Samfylking-
arinnar. Þingmaður sem Iengi hef-
ur starfað með Guðmundi Arna og
þekkir hann vel segir hann hafa
gríðarlegt keppnisskap og svona
skoðanakönnun verði bara til að
herða hann í baráttunni. Ekki er
ólíklegt að Guðmundur Arni boði
til blaðamannafundar eftir viku
eða svo þar sem hann tilkynni um
framboð sitt.
Ætla að sjá til
Jóhanna Sigurðardóttir segist enn
vera að hugsa málið. Hún kallaði
til fundar nánustu samstarfsmenn
Jóhanna Sigurðardóttir: Mesta
óvissan með hennar framboð.
sína og ráðgjafa í fyrrakvöld. Fá-
mennt var á fundinum og sam-
kvæmt heimildum Dags er hún
ekki hvött af kunnum stuðnings-
mönnum sínum til að fara í for-
mannsslaginn.
Svanur Kristjánsson prófessor
lét líkindalega fyrir nokkru um að
hann hyggðist gefa kost á sér í for-
mannsslaginn. Aðspurður í gær
sagðist hann ekki hafa tekið
ákvörðun um hvað hann gerir.
„Eg ætla að bíða og sjá hveijir
gefa kost á sér og hvaða stefnumál
þeir ætla að setja á oddinn til þess
að gera Samfylkinguna að 40%
flokki í næstu kosningum áður en
ég tek endanlega ákvörðun," sagði
Svanur Kristjánsson. - S.DÓR
Nú á að tala um Landsspítala í
Fossvogi um gamla Borgarspítal-
ann.
Eittnafn
Sjúkrahúsin í Reykjavík hafa
verið sameinuð undir nafninu
„Landspítali, háskólasjúkrahús",
samkvæmt reglugerð heilbrigð-
isráðuneytisins um sameiningu
Ríkisspítala og Sjúkrahúss
Reykjavíkur sem kynnt var í gær.
Stjórn spítalans samþykkti á
fundi sínum síðastliðinn mið-
vikudag að mæla með þessu
nafni viðheilbrigðisráðherra.
Starfsemi Landspítala, há-
skólasjúkrahúss er á mörgum
stöðum. Gert cr ráð fyrir því að
nöfn staða haldi sér, svo sem
Landakot, Gunnarsholt, Arnar-
holt og Vífilsstaðir. I því sam-
bandi verði talað um „Landspít-
ala, Landakoti" eða „Landspít-
ala Arnarholti". Tvær stærstu
starfseiningar spítalans eru
Landspítali Hringbraut og
Landspítali Fossvogi. Þannig
verður hætt að nota nafnið
Sjúkrahús Reykjavíkur.
Landspítali, háskólasjúkrahús
verður stærsta fyrirtæki landsins
með um 5000 starfsmenn. Náin
tengsl verða áfram við Háskóla
íslands og fleiri menntastofn-
arnir.
Kaupmenn skjóta
á horgaryfirvöld
Aðalfundur Samtaka verslunarinnar fór fram i gær. Fremstur á myndinni
er Haukur Þór Hauksson formaður Samtakanna. - mynd: tbitur
Formaður Samtaka
verslunarijmar segir
að þegar verslun hopi í
miðhænum taki klám-
búllur við. Samtökm
vilja Jjingnefnd í evr-
ópumálum.
„Blómleg verslun í miðbæ er sómi
hverrar höfuðborgar. Samtökin
hvetja borgaryfirvöld til að taka
höndum saman við kaupmenn og
fjárfesta til að reisa miðbæ Reykja-
víkur aftur til vegs óg virðingar,"
sagði Haukur Þór Hauksson, for-
maður Samtaka verslunarinnar -
FIS (áður Félag íslenskra stór-
kaupmanna), meðal annars í ræðu
sinni á aðalfundi samtakanna í
gær. Hann skaut föstum skotum
að borgaryfirvöldum og sagði að
allt frumkvæði að umræðu um
þróun miðborgarinnar kæmi frá
einstaklingum og samtökum þeir-
ra. Hann sagði þróun miðborgar-
innar valda mönnum innan sam-
takanna miklum áhyggjum og
stórátaks væri þörf.
Haukur Þór sagði samtökin
hafa eftir megni stutt kaupmenn í
miðbænum í baráttu gegn aðgerð-
um borgaryfirvalda, „eins og Iokun
Hafnarstrætis í austur, sem stór-
skaðaði verslun í þeirri götu, og
íyrirhugaðar stórhækkanir stöðu-
mælagjalda. Þegar verslun hopar í
miðbænum taka við klámbúllur og
hætta á eiturlyfjastarfsemi, vændi
og öðrum ósóma eykst."
Þingnefnd mii Evrópuniál
I ræðu sinni á aðalfundinum vék
Haukur Þór einnig að Evrópumál-
um. Hann sagði lítið standa eftir
af EES-samningum og starfsfólk
sendiráðs Islands í Brussel teldi
sig merkja vaxandi tómlæti ESB
gagnvart EES-ríkjunum. Það væru
alvarleg tíðindi. Það væru líka al-
varleg tíðindi ef aðilar hér á landi
haldi ekki vöku sinni um þróun
mála í Brussel. Því hafi samtökin
m.a. farið þess á leit að fá fyrr ráð-
rúm til að gera athugasemdir við
nýja löggjöf og reglur ESB, eða
strax á því stigi þegar íslensk
stjórnvöld kæmu að málum.
Haukur Þór gerði það að tillögu
sinni í ræðunni að Alþingi setti á
fót sérstaka þingnefnd um Evr-
ópumál.
Vill útreikmng á vísitölu
heildsöluverðs
llaukur Þór sagði opinbera um-
ræðu um verðlag á nauðsynjavöru
vera með miklum ólíkindum hér á
landi. Af umræðunni mætti ætla
að venjuleg efnahagslögmál giltu
ekki á Islandi. „Fjöldi félags-
manna hefur fullyrt við mig að
verð hafi ekki hækkað í heildsölu
síðustu 12 til 18 mánuði. Gildir
þá einu hvort fyrirtækin eru að
selja vörur á dagvörumarkaði eða
á öðrum mörkuðum," sagði Hauk-
ur Þór m.a. og hvatti Hagstofuna
til að fara að reikna út neysluvísi-
tölu heildsöluverðs. Það væri
hægur vandi. Tvær dreifingarmið-
stöðvar hér á landi væru að selja
vörur á einu heildsöluverði til
fjölda smásölubúða. — RJB
Grandi græddi 708 „millur“
Hagnaður Granda hf. og dótturfyrirtækis þess, Faxamjöls hf., á ár-
inu 1999 nam 708 milljónum króna eftir reiknaða skatta, en árið
1998 var hagnaðurinn 403 milljónir króna. Hagnaðurinn er rúmlega
19% af veltu en var um 11% áriðáður. Er þetta mesti hagnaður
Granda frá upphafi. Rckstrartekjur samstæðunnar námu 3,6 millj-
örðum króna, sem er 61 milljón meiri velta en árið 1998. Hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnskostnað var 860 milljónir króna eða 23%
af rekstrartekjum og veltufé frá rekstri nam 615 milljónum króna
sem er 17% af rekstrartekjum. Fjáreignatekjur að frádregnum Ijár-
magnsgjöldum voru um 262 milljónir króna. Á aðalfundi 7. apríl
verður gerð tillaga um 11% arð til hluthafa.
Skífan kaupir Stjömubíó
Skífan hefur yfirteldð rekstur Stjörnubíós í Reykjavík en fyrirtældð,
sem er í eigu Norðurljósa Jóns Ólafssonar og fleiri, rekur einnig
Regnbogann auk þess að taka þátt í rekstri Borgarbíós á Akureyri. 1
tilkynningu frá Skífunni segir að kaupin á Stjörnubíói séu liður í
aukningu Skífunnar á þessum markaði. Nýtt kvikmyndahús í Smár-
anum í Iok ársins 2001 er það einnig. Með í kaupunum á Stjörnu-
bíói fylgdi umboðið fyrir Columbia/Sony á dreifingu til kvikmynda-
húsa. Fyrir var Skífan með önnur umboð fyrir Columbia/Sony. Með
þessu telja Skífumenn hafa aukið hlutdeild sína í dreifingu kvik-
mynda til bíóanna úr 20 í 32%. Á þessu ári mun Skífan einnig taka
yfir umboð á dreifingu kvikmynda frá MGM. Karl Ottó Schiöth, sem
hefur verið framkvæmdastjóri Stjörnubíós, mun koma til starfa hjá
Skífunni sem rekstrarstjóri kvikmyndahúsa Skífunnar.
ESB styrkir bæklunarskó
Fyrirtældð Stoðtækni Gísli Ferdinandsson hefur fengið styrk frá
Evrópusambandinu (ESB) til að þróa nýja tækni varðandi smíði á
bæklunarskóm. Styrkurinn er hluti af 5. rammaáætlun ESB og er
veittur til 2 ára. Samstarfsaðilar Stoðtæknis í verkefninu eru hol-
lenskir og skoskir og þar að auki er Viðskiptastofnun Háskóla Is-
lands hluti af verkefninu. Fleildarkostnaður við verkefnið er rúmar
80 milljónir og styrkir ESB það um 40 milljónir. Fyrsti formlegi
fundur samstarfsaðilana, ásamt fulltrúa Evrópusambandsins, var
haldinn í gær.