Dagur - 10.03.2000, Síða 3

Dagur - 10.03.2000, Síða 3
FÖSTUDAGVR 10. MARS 2000 - 19 X^ur LÍFIÐ t LANDINU Hann steig helstil úrillur í ræðustól, fjargviðraðist einkum yfir hræsni Samfylkingarmanna sem létust vilja opnari stjórnsýslu og heiðarlegri vinnuhrögð stjórnmálaflokka og stjórnmálamanna en hefðu sjálfir ýmislegt óhreint í pokahorninu Davíð tekur æði Þegar frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur um fjár- reiður stjórnmálaflokka komst loks til fyrstu um- ræðu á Alþingi, eftir að hafa verið lagt fram fimm ef ekki sex ár í röð án þess að vera afgreitt, þá hafði forsætisráðherra, Davíð Oddsson um tvo, og þó í rauninni þrjá og kannski jafnvel Ijóra kosti að velja. Hann hefði í fyrsta lagi getað Iýst yfir stuðningi við frumvarpið. Það væri löngu tímabært og hreint ekki vansalaust fyrir okkur íslendinga að vera hér um bil eina landið í hinum vestræna heimi þar sem stjórnmálaflokkum er ekki skylt að birta nokkurs konar reikninga eða lista yfir þá sem leggja flokkunum lið með peningagjöfum og öðrum stuðningi. Nauðsynlegt og sjálfsagt frumvarp Þetta hefðu nú kannski verið gleðilegustu viðbrögðin, en líka þau óvæntustu - því Davíð er náttúrlega í ríkisstjórn en Jóhanna í stjórnarandstöðu og á Alþingi tíðl<ast ekki að frumvörp stjómarandstæðinga nái fi*am að ganga, hversu brýn eða mikilvæg sem þau eru. Þess vegna hefði líklega verið til of mikils mælst að Davíð hvetti nú litlu sjálfstæðismennina sína til þess að styðja nú frumvarp Jóhönnu með ráðum og dáð og atkvæði sínu. En hann hefði getað lýst yfir stuðningi við meginmarkmið ffum- varpsins - opnari og gegnsærri starfsemi stjórnmálaflokka þar sem minni hætta væri á spillingu og óeðlilegum hagsmunatengsl- um - en hins vegar væru á (rumvarpi Jó- hönnu ýmsir tæknilegir meinbugir sem gerðu það að verkum að ríkisstjórnin gæti ekki afgreitt það sem sitt mál. Hins vegar vildi svo skemmtilega til að rfkisstjórnin væri einmitt með í undirbúningi annað If umvarp á svipuðum nótum þar sem gall- amir á ffumvarpi Jóhönnu hefðu verið sniðnir af, og þetta frumvarp sitt myndi rík- isstjómin Ieggja ffam svo fljótt sem verða mætti og hraða afgreiðslu þess gegnum þingið. Þessi viðbrögð hefðu verið í alla staði eðlileg miðað við íslenska þinghefð og þá staðreynd að það er í rauninni varla nokkur Ieið að mótmæla því að frumvarp um opn- ari fjárreiður stjórnmálaflokkanna sé nauð- synlegt og sjálfsagt í lýðræðisþjóðfélagi. Geispaðíkór En ef Davíð hefði nú samt viljað mótmæla því, þá hefði hann svo sem getað reynt það. Hann hefði getað - í þriðja lagi - flutt ræðu á Alþingi þar sem hann gerði ósköp kurt- eislega lítið úr þeirri þörf sem Jóhanna Sig- urðardóttir og fleiri telja á slíku frumvarpi. Hann hefði getað talað um skyldur og rétt- indi stjómmálaflokka í víðum skilningi, ótta þeirra við að ef allt yrði birt jafnóðum opinberlega myndi það draga úr stuðningi við þá og mikilvægri stoð þar með kippt undan lýðræði í landinu; hann hefði getað haldið því fram að frumvarpið væri alger óþarfi þar sem þessi mál hefðu gengið átakalaust fyrir sig hingað til og smæð sam- félagsins gerði það að verkum að flestöll hagsmunatengsl væru hvort sem er meirog minna augljós og því engin þörf að fara að birta hvurja nótu úr bókhaldi stjómmála- flokkanna. Þrátt fyrir að hann efaðist ekki um að gott eitt vekti fyrir flutningsmanni frumvarpsins væri frumvarpið þó fullkom- inn óþarfi. Og þessi huggulega ræða hefði gert öllum litlu sjálfstæðismönnunum hans kleift með góðri samvisku að greiða at- kvæði gegn þessu óþarfa frumvarpi. Enn stóð Davíð Oddssyni til boða að gera ekki neitt, taka ekki til máls þegar Jó- hanna væri búin að mæla fyrir frumvarp- inu sínu, heldur í mesta lagi Iátast bæla niður geispa en þó þannig að allir litlu sjálfstæðismennimir hans tækju eftir því og geispuðu allir í kór og hæfust svo handa um að svæfa frumvarpið eins og hingað til hefur ævinlega verið gert. Hvar er gjaldkeri Alþýðuflokksins? Þannig hefði Davíð Oddsson forsætisráð- herra getað brugðist við á margvíslegan hátt: eðlilegan, kurteislegan, ldókindaleg- an. Það eina sem maður hefði talið að Davíð Oddsson gæti ekki gert er hann stóð andspænis þessu frumvarpi, það var hins vegar akkúrat það sem hann gerði. Eg þarf náttúrlega ekki að rekja hér það sem Davíð gerði. Hann steig helstil úrillur í ræðustól, fjargviðraðist einkum yfir hræsni Samfylkingarmanna sem lét- ust vilja opnari stjórnsýslu og heiðarlegri vinnubrögð stjómmálaflokka og stjórn- málamanna en hefðu sjálfir ýmislegt óhreint í pokahorninu, sagði sögu af ein- hverjum gjaldkera Alþýðuflokksins sem hefði sagt af sér af því hann fékk ekki að sjá einhveija dularfulla reikninga flokks- ins - sögu sem síðan hefur komið í Ijós að var kolvitlaus í hverju einasta smáatriði - og klykkti svo út með furðulegum fabúleringum um milljónir Öryrkjabanda- lagsins sem notaðar hefðu verið í kosn- ingabaráttu Samfylkingarinnar. Allt var þetta ansi dæmalaust, dónalegt og skringilegt í alla staði, og líka - það sem ég myndi hafa mestar áhyggjur af ef ég væri einn af litlu sjálfstæðismönnunum sem þurfa að treysta í blindni á foringja sinn - þetta var eins óklókt og nokkuð gat verið. Er Davíð eitthvað að förlast, myndi ég hugsa ef ég væri einn af litlu sjálfstæð- ismönnunum. Það var eins og maðurinn væri að spila út, að fara með eintómt fleipur sem auðvelt er að reka oní hann í svona harðri árás á andstæðingana, og hlaupa svo á dyr frekar en standa fyrir máli sínu. Davið er ekki vanur að vera stúpid... Honum þarf kannski ekkert endilega að vera að förlast. Við höfum séð þetta áður. Þetta var bara Davíð að taka æði. Að sönnu hefur hann sjaldan farið út á jafn hálan ís eða gefið á sér jafn auðveldan höggstað þegar hann hefur tekið æði hér áður fyrr, og það er kannski áhyggjuefni fyrir litlu sjálfstæðismennina hans. En það er Iíka eftirtektarvert af hvetju hann tekur svona æði, svona fáránlegt æði. Ut af frumvarpi um fjárreiður stjórnmála- flokkanna, frumvarpi sem hver sanngjarn maður hlýtur að sjá að er í rauninni í alla staði eðlilegt og sjálfsagt. Lá svona mikið á að kýla frumvarpið niður? Er kannski svona mikið að fela? Maður hlýtur altso að spyrja sig að því. Svo mikið að forsæt- isráðherra gerir sig sekan um það sem hefur þó sjaldan mátt saka hann um. Því ræðan var svo heimskuleg. Jafnvel þó svo Samfylkingarmenn væru uppfullir af hræsni og jafnvel þó svo Jóhanna Sigurð- ardóttir væri sjálfur Helmut Kohl bakvið tjöldin, þá er frumvarpið samt engu ónauðsynlegra eða verra fyrir það. Þó hinn dularfulli gjaldkeri Alþýðuflokksins væri eða hefði einhvern tíma verið til og þó svo Öryrkjabandalagið, Islensk erfða- greining og Sovéski kommúnistaflokkur- inn hefðu beinlínis dælt milljörðum króna í digra kosningasjóði Samfylkingar- innar, þá væri það auðvitað engin ástæða til að vera á móti frumvarpi af þessu tagi. Þvert á móti náttúrlega. Því var öll ræða Davíðs svona helstil - fyrirgefiði þó ég orði það svona: stúpid. Og Davíð er ekki vanur að vera stúpid, jafnvel ekki þegar hann tekur æði. Því er kannski eðlilegt að einhver óhugur Iæðist að Iitlu sjálfstæðis- mönnunum. Var þetta kannski útspekúleruð leikflétta? Eða var þessi ræða kannski þvert á móti alveg obboðslega klókindaleg leikflétta hjá Davíð? Útspekúlerað og ískalt kænskubragð? Var hann að draga athygl- ina frá frumvarpinu sjálfu með því að þykjast taka svona æði - nú talar enginn um frumvarp Jóhönnu en allir um öryrkja og einhvern dularfullan gjaldkera Alþýðu- flokksins. Var þetta svona sneddí hjá Dav- íð; nú mun enginn taka eftir því þegar frumvarpið verður svæft? En þá má reyndar Iíka spyrja: Lá svona mikið á að kveða frumvarpið í kútinn að forsætisráð- herra þjóðarinnar sá ekki annað ráð en taka æði í ræðustól á Alþingi og gera sig hlægilegan með staðlausu fleipri um ímyndaðan gjaldkera og stóreinkennileg- um fullyrðingum um kosningabaráttu Samörykjafylkingarbandalagsins? Alveg burtséð frá þeirri augljósu staðreynd að allar aðdróttanir um fjármálaspillingu í íslenskri pólitík ættu náttúrlega að hvetja til þess að svona frumvarp yrði samþykkt, ekki fellt, eins og Davíð var þó að mælast til að yrði gert. Eru litlu sjálfstæðis- mennintir stoltir? Þessum spurningum verður ekki svarað. Við vitum það af fenginni reynslu að þeg- ar Davíð hefur tekið æði og hlaupið á sig, þá svarar hann engu þegar á að reka oní hann æðiskastið. Hann lætur ekki ná í sig um hríð og hann urrar á fréttamenn sem ætla að spyrja hann útí slík mál. Og fréttamenn vilja ekki Iáta Davíð Oddsson urra á sig. Þess vegna mun hann ekki skýra mál sitt á neinn hátt, hann mun ekki draga upp úr hatti sínum gjaldkera Alþýðuflokksins og hann mun allra síst biðja nokkurn öryrkja afsökunar á ásök- unum um að samtök þeirra hafi gengið erinda tiltekins stjórnmálaflokks í kosn- ingabaráttunni. Þetta mál verður svæft, rétt eins og frumvarpið hennar Jóhönnu verður svæft. Að vísu tel ég víst að stór meirihiuti þingmanna sé í sjálfu sér íylgj- andi slíku frumvarpi - jafnvel litlu sjálf- stæðismennirnir - en Davíð hefur talað og þá er það ákveðið. En fyrst Davíð mun semsé engu svara og varla verða spurður, af ótta við að hann urri, þá Iangar mig að gefa nokkrum af litlu sjálfstæðismönnunum hans tækifæri til að svara fáeinum spurn- ingum um málið. Ég vel þá bara af handahófi - er til dæmis Þorgerður K. Gunnarsdóttir sannfærð um að frumvarp um opnari fjárreiður stjórnmálaflokkanna sé jafn slæmt mál og Davíð Oddsson vildi vera láta í ræðustól á Alþingi? Er Guðjón Guðmundsson viss um að einhver ímynd- aður gjaldkeri Alþýðuflokksins sé nægjan- leg ástæða til að láta þetta frumvarp hverfa? Er Katrín Fjeldsted sammála því mati foringja síns að peningar öryrkja hafi verið notaðir á blygðunarlausan hátt í þágu kosningabaráttu Samíylkingarinn- ar fyrir tæpu ári síðan? Er séra Hjálmar Jónsson sammála því líka? Og umfram allt: Eru þessir og aðrir litlir sjálfstæðis- menn stoltir af framgöngu foringja síns á Alþingi um daginn? Þau munu hugsa mér þegjandiþörfma... Athugið að þetta er opinber fyrirspurn sem mér þætti vænt um að fá svör við, og treysti á að einhverjir duglegir fjölmiðla- menn komi þeim áleiðís. En ég skal trúa ykkur fyrir því að þótt stjórnmálamenn fagni yfirleitt hverju tækifæri til að koma fram í fjölmiðlum þá munu þessir stjórn- málamenn og aðrir litlir sjálfstæðismenn ekki taka þessu tækifæri fegins hendi. Þvert á móti munu þau hugsa mér þegj- andi þörfina ef þau neyðast til að svara svona spurningum opinberlega. Því Da\áð Oddsson ræður Sjálfstæðisflokknum og hver sá Iítill sjálfstæðismaður sem tjáir sig um eitthvað sem viðkemur foringja sínum er kominn út á hálan ís. Og eink- um og sér í lagi er það feimnismál í Sjálf- stæðisflokknum þegar Davíð Oddsson tekur æði. Spurningin er því kannski fyrst og fremst þessi, er Davíð Oddsson að verða feimnismál fyrir alla íslensku þjóðina? Pistill llluga var fluttur í morgunþætti Rásar 2 í gær. UMBÚÐA- LAUST

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.