Dagur - 29.03.2000, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGVR 29. MARS 2000 - 13
ÍÞRÓTTIR
Kristinn Guömundsson, markvörður HK stillir til friðar eftir árekstur þeirra Magnúsar Más Þórðarsonar og
Sigurðar Sveinssonar i lok leiks HK og Aftureldingar.
Blóð, sviti og tár
í Djgmnesmu
HK tryggði sér í fyrra-
kvöld oddaleik gegn
íslandsmeistunim
Aftureldingar í 8-liða
einvígi úrvalsdeildar
karla í handknattleik,
í vægast sagt rudda-
legum leik, sem fram
fór í íþróttahúsinu í
Digranesi. Oddaleik-
urinn fer fram að Var-
má í kvöld.
Annar leikur HK og Afturelding-
ar í 8-liða úrslitum úrvalsdeildar
karla í handknattleik, sem fram
fór í íþróttahúsinu í Digranesi í
fyrrakvöld, er einn sá ruddaleg-
asti sem lengi hefur sést. Aftur-
elding hafði unnið fyrsta leikinn
að Varmá með sjö marka mun
19-12 og því var að duga eða
drepast fyrir HK til að tryggja
oddaleik. Það tókst eftir blóð,
svita og tár og urðu lokatölur 24-
22 fyrir Kópavogsliðið eftir að
staðan var jöfn 9-9 í hálfleik.
Neyðarúrræði í dómgæsl-
muii
Eftir nokkuð jafnan leik framan
af, þar sem Afturelding hafði
frumkvæðið lengst af, Ieystist
leikurinn upp í hreina fúl-
mennsku, þar sem leikmenn
beggja liða notuðu hvert tæki-
færi til að berja hver á öðrum.
Ruddamennskan gekk svo langt
að þegar um það bil sjö mínútur
voru til leikhlés, þurftu dómarar
leiksins, þeir Hlynur Leifsson og
Anton Pálsson, að sýna einum
leikreyndasta leikmanni vallar-
ins, Alexei Trufan hjá Aftureld-
ingu, svokallaðan „kross“, sem er
harðasta refsing sem dómarar
geta beitt í leik. „Krossinn" er
hreint neyðarúrræði í dómgæsl-
unni og eingöngu beitt þegar öll
önnur úrræði eru þrotin. Enda
var þetta í fyrsta skipti í sögu úr-
slitakeppninnar, þar sem dómar-
ar þurfa að grípa til þessa úrræð-
is og var full þörf á því í þessu til-
viki.
Fólskulegt brot
Trufan rak olnbogann, eins og
sást í endursýningu Sjónvarps-
ins, af miklu afli í andlit Alex-
anders Arnarsonar, línumanns
HK, sem steinlá í gólfið við
höggið. Fólskulegt brot sem á
ekki heima í íþróttum, hvað svo
sem á undan er gengið og til
skammar fyrir viðkomandi.
„Krossinn" þýðir það að viðkom-
amdi leikmaður er útilokaður frá
frekari Ieik og lið hans þarf að
leika manni færri það sem eftir
er Ieiks. Það hefði því mátt ætla
að menn hefðu látið þar við sitja,
en svo var ekki, því þegar leið að
lokum leiksins fékk annar leik-
maður HK að kenna á rudda-
mennskunni og nú varð það Sig-
urður Valur Sveinsson, sem fékk
mikið högg beint á varirnar eftir
viðureign við Magnús Má Þórð-
arson inni á línunni. Svo mikið
var höggið, sem menn voru ekki
á einu máli um hvort var ásetn-
ingur eða óvart, að tennur losn-
uðu í Sigurði og fyrir sprakk svo
sauma þurft saman eftir leik.
Þessi tvö atvik, sem lýst hefur
verið, voru þó aðeins toppurinn
á ísjakanum, því leikurinn ein-
kenndist meira og minna af geð-
vonsku og stressi, þar sem leik-
menn voru meira og minna utan
vallar eftir tveggja mínútna
brottvísanir, sem alls urðu sjö í
seinni hálfleik.
Markverðimir bestir
Eftir jafna stöðu í hálfleik, komst
Afturelding marki yfir f leiknum,
en síðan ekki söguna meir þar
sem HK hélt tveggja marka for-
skoti mest allan Ieikinn. Mesta
furða hvað leikmenn Aftureld-
ingar héldu út manni færri, þar
sem Bergsveinn Bergsveinsson,
markvörður, skipti við útileik-
mann meðan liðið spilaði sókn.
Það gekk ágætlega upp, því segja
má að HK hafi aldrei náð að nýta
sér það allan hálfleikinn. Manni
færri í vörninni tókst Aftureld-
ingu þó með hörkuleik að halda
HK niðri og var helst að þeir Sig-
urður Valur og Óskar Elvar Ósk-
arsson, næðu að nýta sér liðs-
muninn, en þeir urðu marka-
hæstir HK, Sigurður með 8/1
mörk og Óskar með 7/1.
Hjá Aftureldingu var Gintaras
Savukynas markahæstur með
níu mörk, en Bjarki Sigurðsson
næstur með 6/3. Bestu menn
beggja liða voru þó markverðirn-
ir, þar sem Hlynur Jóhannesson,
hjá HK varði alls 23 skot, á með-
an Begsveinn tók 19.
Spemtandi oddaleikiir
Það verður spennandi að fylgjast
með því hverning liðin mæta
stemmd til leiks í kvöld, eftir
þennan hörmungarleik í fyrra-
kvöld og vonandi að menn hafi
grafið strfðsaxirnar. Það yrði
hneisa fyrir íþróttina, leikmenn
og liðin ef annar eins Ieikur end-
urtæki sig að Varmá í kvöld og
vonandi að liðin beri sóma til að
láta þvflfkt ekki gerast. Hand-
knattleiksunnendur hafa oft
fengið að sjá harða Ieiki, en þessi
var fyrir neðan beltisstað, eins og
þekkt er í hnefaleikunum. Alla
vega má búst við spennandi leik
þar sem sigurliðið kemst áfram f
fjögurra liða úrslitin og þar ætti
drengileg barátta að duga til að
ná fram úrlitum.
Aðrar viðureignir í 8-liða úr-
slitiun
Staðan í öðrum viðureignum 8-
Iiða úrslitanna eru þau að KA
vann FH með sjö marka mun,
27-20, á Akureyri um helgina
áttu Iiðin að leika annan Ieikinn
í Kaplakrika í gærkvöld. I viður-
eign Hauka og IBV unnu Hauk-
ar Eyjamenn með sex marka
mun í Hafnarfirði, 27-21 og var
öðrum leik liðanna sem átti að
fara fram í E' jum í gærkvöld,
frestað til kvöldsins í kvöld.
Framarar sem unnu Stjörnuna
með eins mark mun, 22-21, eftir
framlengdan Ieik í Safamýrinni á
sunnudaginn, léku síða gegn
Stjörnunni í Garðabænum í gær-
kvöldi og eru úrslitin birt í úr-
slitadálki á bls. 12.
Anelka með Real gegn United
Nú eru allar líkur á því að franska vand-
ræðabarnið Nicolas Anelka verði í liði
Real Madrid gegn Manchester United
þegar liðin mætast í 8-liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu í næstu viku. An-
elka er að ljúka 45 daga banni sem félag-
ið dæmdi hann í vegna þess að kappinn
neitaði að mæta á æfingar í heila þrjá daga
vegna mótmæla.
Real er í vandræðum með framherja,
vegna meiðsla Fernando Morientes og er
Anelka næsti kostur þjálfarans, Vicente
del Bosque. Del Bosque, þurfti að horfa
upp á lið sitt gera markalaust jafntefli á
heimavelli sínum gegn Rayo Vallecano í
spænsku deildinni um helgina og vill hann því ólmur gera breyting-
ar á liðinu, eftir slaka frammistöðu framherja liðsins. Því er búist við
að Anelka komi inn í byrjunarlið Real strax í vikunni, þar sem hann
hefur þegar beðist afsökunar á framferði sínu, en það gerði hann á
fréttamannafundi í gær og var það skilyrði fyrir því að hann fengi að
spila.
„Við erum í erfiðri stöðu og hreinlega verðum að fá Anelka inn í
liðið. Allir leikmenn liðsins eru mér mikilvægir og þar á meðal An-
elka. Þó agi sé nauðsynlegur þá verður stjórnin að leysa þessi mál,
þannig að Anelka geti spilað," sagði del Bosque þjálfari Real í lyrra-
dag.
Anelka, sem aðeins hefur skorað eitt mark í spænsku deildinni frá
því hann var keyptur til félagsins í sumar, var settur á séræfingar í
fyrradag og eftir þá fyrstu mætti hann á fund með sérstakri aganefnd
félagsins, ásamt Didier bróður sínum, þar sem hann féllst á að biðj-
ast afsökunar opinberlega.
130 marka maður til Liverpool
rnio
/> •
’ ..y JJf r ■ £-■ ,/>
/ y\
Cherno Samba.
Enska fótboltaundrabarnið Cherno Samba,
sem verið hefur á mála hjá Millwall, mun lík-
lega gagna til liðs við Liverpool á næstu dög-
um. Auk Liverpoll, hafa ensku stórliðin
Manchester United, Leeds og Arsenal öll
reynt að krækja í þennan fimmtán ára knatt-
spyrnusnilling, sem að sögn fjölmiðla er sá
efnilegasti sem lengi hefur komið fram á
Bretlandseyjum. Samba dvaldi hjá Liverpool
um síðustu helgi og lék þá með 16-ára liði fé-
lagsins gegn Everton, þar sem hann skoraði
glæsilegt mark, gegn nágrannaliðinu. Seinna
um daginn var honum svo boðið að horfa á
leik Liverpool gegn Newcastle, þar sem hann fékk að hitta allar hel-
stu stjörnur félagsins. Ef af samningum verður, mun Liverpool
greiða Millwall um 1,5 milljónir punda fyrir strákinn, um 175 millj-
ónir íslenskra króna, og er sagt að hann sé vel þeirra peninga virði.
Samba er í 15-ára Iandsliðshópi Englands undir stjóm Clive Allen og
segir Allen að þarna sé snillingur á ferðinni. „Ef ég ætti að bera hann
saman við einhvern leikmann í ensku deildinni í dag þá væri þar
helst að nefna Andy Cole. Samba er góður skotmaður, jafnvígur á
báða fætur og einstaklega lunkinn við að finna leiðina í markið,"
sagði Allen.
Samba sem er fæddur í London er mjög hávaxinn og slagar hátt í 1,90
m. Hann hefur verið í herbúðum Millwall síðan hann var átta ára og
hefur alltaf verið mjög markheppinn. Sem dæmi um það, þá skoraði
hann 130 mörk í 22 Ieikjum með 12-ára liði Millwall á einni og sömu
Ieiktíðinni. Hann virðist hafa erft hæfileikí) sína frá föður sínum, sem
var landsliðmaður með Gambfu, en hefur lengst af búið í Englandi.
Talið er að Samba vilji helst af öllu komast til Liverpool, en að sögn
talsmanns enska knattspyrnusambandsins mun það grípa inní til að
úrskurða um kaupverðið ef samningar nást ekki milli félaganna. Þar
sem strákur er aðeins fimmtán ára verður hann að setjast á skólabekk
í knattspyrnuakademíu Liverpool, eins og lög gera ráð fyrir um unga
knattspyrnumenn, þar sem hann fær alla nauðsynlega kennslu um
leið og hann meðtekur knattspyrnufræðin.
Óheppnin eltir Redknapp
Jamie Reoknapp, leikmaður Liverpool, sem lék sinn fyrsta Ieik með
aðalliði Liverpool gegn Newcastle um helgina,
eftir langvarandi meiðsli, er aftur kominn á
sjúkralista eftir meiðsli sem hann hlaut á ökkla
í Ieik með varaliði félagsins á mánudaginn.
Redknapp átti að fara í læknisskoðun í gær,
þar sem sérfræðingur Liverpool ætlaði að
skoða öklann, en að sögn sjúkraþjálfari liðsins
átti hann ekki von á að meiðslin væru það
slæm að Redknapp gæti ekki leikið gegn
Coventry um næstu helgi. Að sögn Gerard
Houllier, framkvæmdastjóra Liverpool, voru
meiðslin það slæm að Redknapp treysti sér
ekki til að ldára leikinn. „Eg vona að hann komist sem fyrst í gang
aftur þvf hann er okkur mjög mikilvægur eins og hann sýndi í leikn-
um gegn Newcastle um helgina. Hann er baráttujaxl sem aldrei gefst
upp og hefur góð áhrif á liðið. Hann er okkur því mjög mikilvægur á
lokasprettinum í deildinni," sagði Houllier.
Jamie Redknapp.