Dagur - 20.07.2000, Page 9
T^mi-
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2 000 - 9
ÍÞRÓTTIR
Blikastelpurnar fagna marki 11-3 sigurleiknum gegn KR.
Blikastelpiir bestar
Eftir leiM 9. iunferd-
ar Landssímadeildar
kvenna, sem lauk í
fyrrakvöld, er Breiða-
blik komið með tvegg-
ja stiga forystu í topp-
sæti deildarinnar, eft-
ir 1-3 sigur á íslands-
meisturum KR.
Leikur KR og Breiðabliks á KR-
vellinum í fyrrakvöld er einn sá
skemmtilegasti sem sést hefur í
kvennaknattspyrnunni í sumar
og voru um 500 manns mættir á
völlinn til að fylgjast með þessum
tveim sterkustu liðum kvenna-
boltans beijast um efsta sætið í
deildinni. KR-stelpurnar byijuðu
betur í leiknum og virtust ætla að
yfirspila Blikastúlkur, sem léku
gegn sterkum vindi. Þær voru þó
ekkert á því að gefast upp og
höfðu fljótlega náð góðum tökum
á miðjunni og yfirhöndinni í
leiknum. Þær héldu boltanum
vel og spiluðu skynsamlega gegn
vindinum, en voru þó heppnar að
KR tókst ekki að skora úr einum
fjórum hættulegum færum. Olga
Færseth fór þar fremst í flokki
KR-inga og náði að skapa sér þrjú
góð færi sem fóru forgörðum, en
það hættulegasta fékk þó Guð-
laug Jónsdóttir, sem lét Þóru
Helgadóttur, stórgóðan markvörð
Blika, verja frá sér.
Skothríð á KR-markið
Eftir markalausan fyrri hálfleik
mætti heimaliðið mjög ákveðið
til leiks í þeim seinni og fékk
fljótlega upplagt færi, þegar
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir
skaut í stöng. Þar ,með virtist
mestur'vindur úr KR-ingum og
Blikar tóku öll völd á vellinum.
Skotin dundu á KR-markinu og
voru þau orðin hátt í tuttugu
þegar upp var staðið. Aðeins þijú
þeirra rötuðu þó rétta leið og var
eitt Jjeirra, það þriðja sem Lauf-
ey Olafsdóttir skoraði á 83. mín-
útu, sérstaklega glæsilegt og trú-
lega fallegasta mark tímabilsins.
Hún lét vaða af um 35 metra
færi og skrúfaði boltann beint í
markvinkilinn. Fyrsta markið var
einnig glæsilegt, en það gerði
Margrét Ólafsdóttir á 74. mín-
útu af um 30 metra færi, þegar
hún náði þrumuskoti á mitt
markið ofarlega, sem Fanney
markvörður KR virtist misreikna.
Annað markið kom svo tveimur
mínútum seinna, en það gerði
Eyrún Oddsdóttir af stuttu færi
eftir hornspyrnu.
Asthildur Helgadóttir, lagaði
sfðan stöðuna fyrir heimaliðið á
85. mínútu, en hún átti einna
bestan leik KR-inga ásamt Olgu
Færseth og Guðrúnu S. Gunn-
arsdóttur. Hjá Breiðabliki var
vart veikan blett að finna og var
allt Iiðið að spila mjög vel.
Jafnt í Eyjnm
A mánudgskvöldið fór fram leik-
ur IBV og Vals í Eyjum, þar sem
úrslitin urðu 2-2 jafntefli eftir að
Eyjaliðið hafði náð 2-0 forystu í
upphafi seinni hálfleiks. Eyjalið-
ið var mun betra í fyrri hálfleikn-
um og sótti stíft, án þess þó að
nýta færin, fyrr en á 21. mínútu,
þegar Bryndfs Jóhannesdóttir
skoraði eftir góðan undirbúning
Kelly Shimmins, sem stal bolt-
anum af varnarmönnum Vals.
í upphafi seinni hálfleiks, á
46. mínútu skilaði góð samvinna
þeirra Samönthu Britton og
Karen Burke svo öðru marki
Eyjaliðsins, þegar Burke sendi
boltann beint á kollinn á Britton
úr aukaspyrnu. Þrátt fyrir mót-
spyrnuna neitaði Valsliðið að
gefast upp og skilaði barátta
þeirra tveimur mörkum með
mínútu millbili. Það fyrra gerði
Rakel Logadóttir á 58. mínútu
eftir að hafa fengið stungusend-
ingu inn fyrir vörnina, en As-
gerður Ingibergsdóttir það sein-
na mínútu seinna, eftir varnar-
mistök Eyjaliðsins.
FH jafnaði á síðnstu stnndu
A Kaplakrikavelli fór fram leikur
FH og Akraness, þar sem einnig
varð 2-2 jafntefli eftir að ÍA
hafði náð 2-0 forystu strax í upp-
hafi leiks, með mörkum þeirra
Aslaugar Akadóttur og Elínar
Steinarsdóttur. Skagaliðið var
mun betra f upphafi, eða þar til
Hönnu G. Stefánsdóttur var
skipt inná í liði FH, sem gjör-
breytti leik liðsins. Hanna var
mjög drífandi á miðjunni og þeg-
ar leið á seinni hálfleikinn höfðu
FH-stelpurnar náð góðum tök-
um á leiknum. Þeim tókst þó
ekki að skora fyrr en á 82. mín-
útu, en markið skoraði áður-
nefnd Hanna úr vítaspyrnu, eftir
að brotið hafði verið á Valdísi
Rögnvaldsdóttur. FH sótti stíft á
síðustu mínútunum og uppskar
með baráttu sinni annað mark,
sem Guðrún Guðjónsdóttir skor-
aði, þegar fjórar mínútur voru
liðnar af viðbótartíma.
Á sunnudag vann Stjarnan 6-1
sigur á Þór/KA í Garðabænum
og tryggði sigurinn Stjörnunni
tímabundið toppsætið í deild-
inni, eða þar til Breiðablik vann
KR í fyrrakvöld, en eftir umferð-
ina er Stjarnan í öðru sætinu,
einu stigi á undan KR.
Staðan:
Breiðablik 9 7 1 1 40:7 22
Stjarnan 9 6 2 1 22:9 20
KR 9 6 1 2 38:9 19
ÍBV 9 3 5 1 19:11 14
Valur 9 4 1 4 28:13 13
ÍA 8 1 3 4 9:29 6
FH 9 0 2 7 8:54 2
Þór/KA 8 0 I 7 5:37 1
Landssímadeild kvenna - Úrslit leikja
1 Breiðabl. Stjarnan KR ÍBV Valur ÍA FH Þór/KA
Breiðablik 6-0 1-2 25.7. 10.8. 4-0 2-0 30.8.
Stjarnan 3.9. 26.8. 0-0 1-0 5-0 5-1 6-1
KR 1-3 0-1 3-0 2-0 11-0 30.8. 11.8.
ÍBV 3-3 3©.8. 2-2 2-2 11.8. 7-0 1-0
Valur 0-3 2§,7. 3.9. 0-2 5-0 26.8. 7-1
ÍA 26.8. 1-1 25,7. 1-1 30.8. 5-0 20.7.
FH 1-8 10.8. 0-12 3.9. 2-11 2-2. 2-2
Þór/KA 0-10 0-3 1-5 26.8. 0-3 3.9. 25.7.
KNATTSPYRNA
Velur í landsliðið
Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari 21-árs landsliðs kvenna í knattspyrnu,
hefur valið sextán manna hóp sem tekur þátt í Opna Norðurlandamóti
21 -árs landsliða, sem fram fer í Bamberg í Þýskalandi dagana 28. júlí til
3. ágúst. Islenska liðið er í erfiðum riðli, en auk þess leika í riðlinum lið
Þýskalands, Noregs og Danmerkur. I hinum riðlinum leika Svíþjóð,
Bandaríkin, Finnland og Sviss. Landsliðshópinn skipa: Markverðir eru
Þóra B. Helgadóttir (Breiðabl.) og María B. Ágústsdóttir (Stjörn.). Aðr-
ir Ieikmenn eru Erna B. Sigurðardóttir (Breiðabl.), Eva S. Guðbjörns-
dóttir (Breiðabl.), Eyrún Oddsdóttir (Breiðabk), Hjördís Þorsteinsdóttir
(Breiðabk), Hrefna H. Jóhannesdóttir ^Breiðabk), Laufey Ólafsdóttir
(Breiðabk), Sigríður Ása Friðriksdóttir (IBV), Elín Jóna Þorsteinsdóttir
(KR), Guðrún Gunnarsdóttir (KR), Elfa B. Erlingsdóttir (Stjörn.),
Katrín Jónsdóttir (Val) og Rakel Logadóttir (Val). Eldri Ieikmenn: Mar-
grét R. Ólafsdóttir, fyrirliði (Breiðabl.) og Rakel Ögmundsdóttir
(Breiðabk).
Eins og fram kemur í upptalningunni er leyfilegt að styrkja hópinn
með tveimur eldri leikmönnum og hefur Jörundur valið þær Margréti R.
Ólafsdóttur og Rakel Ögmundsdóttur, báðar úr Breiðabliki. Margrét
hefur áður leikið 20 leiki með 21-árs liðinu en Rakel engan og báðar
hafa þær verið í A-Iandsliðshópnum.
Allar aðrar í hópnum, nema Eyrún Oddsdóttir, Breiðabliki, hafa áður
leikið með liðinu og er Hrefna H. Jóhannesdóttir, Breiðabliki, þeirra
leikjahæst með 13 leiki og þær Rakel Logadóttir, Val og Laufey Ólafs-
dóttir, Breiðabliki, með 12 leiki.
Fyrsti leikur íslenska Iiðsins verður gegn Þýskalandi föstudaginn 28.
júlí, síðan Noregi 30. júlí og loks Danmörku 1. ágúst. Fimmtudaginn 3.
ágúst verður síðan leikið um sæti.
Jón Amar skráður í sex greinar
Meistaramót Islands í írjálsum fþróttum fer fram á Laugardalsvelli um
helgina og verður keppt á laugardag og sunnudag. Undankeppni hefst
báða dagana kl. 10:00, en aðalkeppnin kl. 14:00. Búast má við spenn-
andi og góðu móti þar sem landsliðsfólkið er nýkomið frá þátttöku í Evr-
ópubikarkeppni landsliða og þeir keppendur úr Ólympíuhópnum sem
dvelja erlendis mæta allir til Ieiks, nema Martha Emstsdóttir, IR, en hún
dvelur við æfingar og keppni í Bandaríkjunum. Jón Amar Magnússon
tugþrautarkappi úr Tindastóli, er skráður í sex greinar á mótinu, en hann
er nú í Iokaundirbúningi fyrir stórmót, sem fram fer í Talance í Frakk-
landi um aðra helgi. Óhætt er að lofa stórkeppni í kringlukasti karla, þar
sem Magnús Aron Hallgrímsson fær góða keppni frá Iranum Nick
Sweeney og Norðmönnunum sterku, Olaf Jenssen og Svein Inge Valvik,
sem keppa sem gestir á mótinu. Guðrún Amardóttir, Ármanni, Vala
Flosadóttir, ÍR, Þórey Edda Elísdóttir, FH og Vigdís Guðjónsdóttir, HSK,
mæta allar til leiks og mun Vigdís væntanlega gera atlögu að Ólympíu-
lágmarki í spjótkasti. Einar Karl Hjartason, hástökkvari úr IR, verður því
miður ekki með vegna meiðsla og missir því af gullnu tækifæri til að
reyna við ÓL-lágmarkið sem er innan seilingar.
Dagsliðið kvenna 9. umferð
Lovísa Sigurjónsdóttir Bakel Özmundsdóttir
Stjömunni Breiðabliki
Hanna G...§teíansdóttir Justine Lorton
FH Stjömunni
Karen Burke Margrét Ó.I.afs.dóttir
ÍBV Breiðabliki
Tammv Scrivens Sigríður Á. Friðriksd.
FH ÍBV
Sigrún Óttarsdóttk Rósa 1. Steinþórsd.
Breiðabliki Val
ÞÓTá B. Helgadúttir
Breiðabliki
Dagsliðið karia 10. umferð
Momir Mileta Scott Ramsev
ÍBV Grindavík
Ólafur Örn Biarnason Haraldur Hinriksson
Grindavík ÍA
Steinar Guðgeirsson Einar Þór Danfelsson
Fram KR
Kiartan Antonsson Guðjón Ásmundsson
ÍBV Grindavík
Hlvnur Birgisson Hlvnur Stefánsson
Leiftri ÍBV
Fialar Þorgeirsson
Fram