Dagur - 09.08.2000, Page 2
2 - MIDVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2000
FRÉTTIR
Tkyptr
Vill upplýsmgakerfL
Shengen út a land
Kristinn H. Gunnarsson.
Kristinn H. Guimars-
son: Það er býsna mik-
ið af starfsemi hins
opinbera, sem hægt er
að staðsetja annars
staðar en hún er í dag.
Mál íslenskrar miðl-
unnar brennur fyrst
og fremst á ráðhemm-
um.
Kristinn H. Gunnarssonar, for-
maður stjórnar Byggðastofnunar
hefur í bréfi til heilbrigðisráð-
herra lagt til að Lyfjastofnun,
sem er ný stofnun, verði staðsett
út á landi. Sömuleiðis hefur hann
skrifað dómsmálaráðherra bréf
og lagt til að Persónuverndin og
Shengen-upplýsingakerfið verði
staðsett út á Iandi. Þar er Iíka um
nýjar stofnanir að ræða. Hug-
myndin mætir litlum fögnuði
starfsmanna þessara stofnana og
hafa m.a. báðir forstöðumenn
þeirra lagst gegn hugmyndinni.
„Það er býsna mikið af starf-
semi hins opinbera, sem hægt er
að staðsetja annars staðar en hún
er í dag. Hins vegar hefur stefna
alþingis verið sú að ný starfsemi
verði sett út á land nema eitthvað
sérstakt mæli því mót, eins og
getur verið stundum. Þetta var
ákveðið til þess að vera ekki að
hreyfa mikið við þeim stofnunum
sem eru fyrir til að Iosna við þau
átök sem gjarnan myndast þegar
slík ákvörðun er tekin. Því er það
mikilvægt að ráðherrar fylgi eftir
þessari stefnu þegar um er að
ræða nýja starfsemi og nýjar
stofnanir," segir Kristinn H.
Gunnarsson.
Shengen-upplýsinga kerfið
Hann segir að nokkuð hafi áunn-
ist í þessum málum og nefnir að
Jafnréttisstofa, sem er ný stofn-
un, hafi farið út á land. Sömu-
leiðis Landsskrá fasteigna sem á
að fara til Akureyrar.
„Síðan eru það nýjar stofnanir
eins og Persónuverndina,
Shengen-upplýsingakerfið, sem
ég skrifaði líka út af til dóms-
málaráðherra og Lyfjastofnunin.
Þá er upptalið sem var nýtt á
Iiðnum vetri,“ segir Kristinn H.
Gunnarsson.
Hann segir að Persónuverndin
sé alveg ný stofnun og þ\a þurfi
engum að segja upp. Lyíjastofn-
unin sé að hluta til ný en að hluta
yfirtaki hún gömul verkefni. Störf
þeirra sem voru í gömlu stofnun-
unum verði lögð niður og því
þurfi í raun ekki að segja neinum
upp.
Ráðherrauna er valdið
Varðandi það að ckki urðu til
ncma 3 ný störf við flutning ís-
Ienskrar miðlunnar út á Iand var
Kristinn spurður hvort þar væri
um mistök að ræða. Hann sagðist
ekki ætla að dæma um það.
„Driftin í málinu hefur orðið
miklu minni en menn ætluðu.
Málið brennur fyrst og fremst á
ráðherrunum. Þeirra er valdið og
þeirra er aflið til að gera það sem
menn segjast ætla að gera. Þeir
þurfa að sýna í verki að þeir fylgi
eftir þessari stefnu ríkisstjórnar-
innar,“ sagði Kristinn H. Gunn-
arsson. — S.DÓR
Óiafur Ragnar Grímsson.
Forseta-
heimsókn
tilKanada
Forseti Islands, Olafur Ragnar
Grímsson, hefur farið vítt um
Kanada í opinberri heimsókn
sinni, en hún hófst á föstudag í
Winnipeg. Þaðan fór forsetinn og
fylgdarlið til Vancouver, sem er á
vesturströndinni, og kynntu sér
meðal annars skipulag og rekstur
þjóðgarða þar um slóðir.
A mánudaginn var forsetinn
viðstaddur hátíðahöld á íslend-
ingadaginn í Gimli og hélt þar há-
tíðarræðu. Hann fagnaði í ræðu
sinni þeim mikla árangri sem
náðst hefði við að kynna íslenska
sögu og mcnningu á því ári sem
nú er að líða.
I gær fór íslenska sendincfndin
til Halifax þar sem forsetinn hitti
forráðamenn fyrirtækja og ræddi
við viðskipta- og iðnaðarráðherra
Nova Scotia.
Forsetinn hefur einnig hitt Vest-
ur-íslendinga að máli á fyrrnefnd-
um stöðum.
Borgin fer í hart
Fyrirtækið Lfna.net hefur fengið verk hjá Reykjavíkurborg sem Landsíminn
er ósáttur við að hafi ekki farið í útboð. Máiið er komið í hart.
Úr því Landssíminn
hefux kært Reykjavík-
urborg, viH Alfreö
Þorsteinsson láta
bjóða út aUa síma-
þjónustu og gagua-
flutninga.
Alferð Þorsteinsson, borgarfull-
trúi R-listans og stjórnarformað-
ur Innkaupastofnunar Reykjavík-
urborgar, vill láta kanna, hvort
ekki sé rétt að hjóða út símaþjón-
ustu og gagnaflutninga, sem
Landssími Islands hefur til þessa
séð Reykjavíkurborg fyrir. Þetta
eru viðbrögð Alfreðs við því, að
Landssíminn hefur kært til fjár-
málaráðuneytisins þá ákvörðun
Innkaupastofnunar Reykjavíkur-
borgar, að borgin semji beint við
Línu.net um nýja ljósleiðarateng-
ingu til grunnskóla Reykjavíkur-
borgar frekar en að bjóða þessa
þjónustu út.
Alfreð lýsir sérstaklega yfir
undrun sinni á „þeim vinnu-
brögðum Landssímans, að leita
ekki eftir neinum skýringum af
hálfu borgaryfirvalda, eins og
venjan er þegar menn eru ósáttir
við afgreiðslu mála. Hann rýkur
bara beint í að kæra okkur, sem
eru mjög óvenjuleg vinnubrögð."
Hann bendir á að Reykjavík sé
í viðskiptum við Landssímann
sem nema á milli 100 og 200
milljónum króna á hverju ári. Þar
er um að ræða hæði almenna
símaþjónustu og aðra gagna-
flutninga. „Það verður skoðað á
næstunni, hvort þessi þjónusta
verður ekki boðin út. Enda eru
náttúrlega komin núna á mark-
aðinn lyrirtæki sem geta sinnt
þessu," segir Alfreð Þorsteinsson.
„I öðru lagi hljóta menn líka að
velta því fyrir sér, að fyrst Lands-
síminn heitir þessari aöferð,. þá
hlýtur hann að vera seldur undir
þessa aðferð líka, að menn farið
að skoða þá viðskipti Landssím-
ans við opinbera aðila aðra, t.d.
ríkisstofnanir og ráðuneyti. Þar
eru viðskipti upp á hundruð
milljóna króna á hverju ári, sem
öll fara fram án útboðs. Þannig
að nú hefur málið opnast alveg
upp á gátt.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks,
á sæti í stjórn Innkaupastofnun-
ar og greiddi atkvæði með því að
samið yrði við Línu.net um Ijós-
leiðaratengingu grunnskólanna
þegar málið kom til afgreiðslu
þar í síðustu viku.
Vilhjálmur segir, að á þessum
fundi hafi tölvuráðgjafi Reykja-
víkurborgar fullyrt að Landssím-
inn gæti ckki boðið í þessa þjón-
ustu. „Þarna er greinilega eitt-
hvað ekki í lagi í samskiptum
borgarinnar og Landssímans
hvað þetta varðar," segir Vil-
hjálmur.
Vilhjálmur hefur farið fram á
að málið verði tekið upp á ný í
stjórn Innkaupastofnunar, þar
sem „kröfur og sjónarmið Lands-
símans skoðuð ítarlega. Og ef
það reynist svo vera að fullyrð-
ingar Landssímans standist, þá
finnst mér sjálfgert að hann fái
að bjóða í þessa þjónustu," segir
Vilhjálmur Þ. Vilbjálmsson. — GB
Banaslys við Þelamörk
Þýsk kona beið bana í um-
ferðarslysi við Þelamörk á
sunnudag. Slysið varð með
þeim hætti að tveimur bíl-
um var ekið suður þjóðveg
eitt. Við afleggjarann á
Þelamörk gaf fremri bíllinn
stefnuljós og hægði ferð-
ina. Aftari híllinn, sem var
45 manna rúta frá Guð-
mundi jónassyni, tók ekki
eftir því fyrr en of seint að
bíllinn hafði hægt ferðina
og varð því að nauðhemla.
Það dugði ekki til og til
þess að forða árekstri
sveigði hann yfir á hina ak-
greinina. Þar lenti hann framan á fólksbíl á norðurleið með þeim afleið-
ingum að ökumaður bifreiðarinnar lét lífið. Onnur þýsk kona sem var far-
þegi í bílnum slasaðist lítils háttar og var hún útskrifuð af Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri á mánudagskvöld.
Að sögn lögreglunnar á Akureyri var ökumaður rútunnar klárlega inn-
an hraðatakmarkana en eftir situr spurningin um hvort haH verið ekið of
hratt miðað við aðstæður. Þ.e. þrátt fyrir að hinn ökumaðurinn hafi gef-
ið stefnuljós náði hann ekki að hægja ferðina með ofangreindum afleið-
ingum. — GJ
Eins og sjá má á þessari mynd sem tekin var
á slysstað var áreksturinn harður en talið er
að konan sem var ökumaður fótksbifreiðar-
innar hafi látist samstundis.
Löggan í árekstri
Ómerkt lögreglubifeið á leið á slysstað Ienti í árckstri skammt frá bænum
Dvergastcini í Glæsibæjarhreppi á sunnudag. Bifreiðinni var ekið á mik-
illi ferð á eftir bílalest og settu þcir á forgangsljós og hófu að aka fram úr.
Ekki tóku allir eftir bílnum og sveigði bíll sem ætlaði sér heim að bæ í veg
fyrir Iögreglubílinn. Bílamir tveir skullu saman og þykir mikið mildi að
ekki varð alvarlegt slys. Lögreglumennirnir tveir svo og ökumaður hinnar
bifreiðarinnar voru íluttir á sjúkrahús en voru útskrifaðir síðar sama dag.
Bílarnir eru báði óökuhæfir. - gj
Kexverksmiöjan Frón seld
Íslensk-Ameríska verslunarfélagið og Innnes hafa keypt allt hlutafé Kex-
verksmiðjunnar Frón af Eggerti Magnússyni og fjölskyldu. Að sögn for-
svarsmanna fyrirtækjanna er markmiðið með kaupunum að tryggja stöðu
þeirra á markaði. Frón var stofnað 1926 og framleiðir um 30 tegundir af
kexi og smákökum, en innflutningur á ýmsum tengdum vörum hefur
færst í vöxt síðustu ár. Kaupverð er ekki gefið upp.