Dagur - 09.08.2000, Blaðsíða 4
Þótt færra hafi verið á Akureyri en menn vonuðust eftir vantaði ekki fjörið á balli í Sjallanum þar sem Skítamórall lék. - mynd: brink
eina sanna Björk er ein hel-
sta stórstjaman á Edinborg-
arhátíóirun sem nú stendur
yfir í menningarhöfuöborg
Skotlands. Þannig var |)aö kvik-
myndm „Dancer hi the Dark“ sein
opnaði kvikmyndahátíö borgar-
innar og á dagskránni er einnig yf-
irlitssýning á myndböndum lienn-
ar. Um hvort tveggja er mikió fjall-
að í fjöbniólum á Bretlandseyjum,
meðal annars nú um helgina í Thc
Sunday Times í Lundúnmn - en þar er farið mjög
lofsamlegum orðum mn þemian þekktasta íslend-
ing fyrr og síðar...
Björk Guð-
mundsdóttir.
Segj a orð bæi ar-
sti dra vera dýr
Sjaldan hafa eins fáir látið
sjá sig á útihátíð á Akur
eyri og í ár. Menn eru
svekktir og henda hver á
annan. Dýr orð bæjarstjóra
og slæm veðurspá eru talin
hafa fælt unglinga frá
hænum. Eftir sátu ekki
nógu margir til að hátíðin
borgaði sig.
Fjölskylduhátfðin á Akureyri stóð svo
sannarlega undir nafni um verslunar-
mannahelgina því unglingar undir 18
ára aldri auk fólks upp í 25 ára aldur
létu varla sjá sig á svæðinu. „Eg held að
sjaldan eða aldrei hafi orð bæjarstjóra
haft eins mikil áhrif og nú,“ segir Ingþór
Asgeirsson, talsmaður miðbæjarsamtak-
anna. Þarna er Ingþór að vitna í blaða-
mannafundinn fræga sem haldinn var í
Listigarðinum fyrir skemmstu. Ungling-
arnir ákváðu þvf að fara annað og stór
hluti akureyrskra unglinga með þeim.
„Krakkarnir fóru á Skagaströnd enda
fannst þeim þau ekki vera velkomin
hér.“
Þrátt fyrir að unglingarnir hafi ekki
látið sjá sig voru á milli fjögur og fimm
þúsund manns í bænum um helgina og
eitthvað var þetta fólk að skilja eftir sig.
„Kaupmenn í miðbænum eru sáttir. Þeir
voru að vísu að leggja fé í hátíðina en
fjölskyldufólk er frekar að versla heldur
en unglingarnir og því gátu þeir lokað
hvenær sem var ef traffíkin væru ekki
nógu mikil," segir Ingþór.
Hvað fór úrskeiðis
En það voru ekki allir að græða á hátíð-
inni. Skemmtistaðir bæjarins voru langt
frá því að vera fullir og telja margir að
þar hafi hátt miðaverð skipt máli. Til að
fara á dansleik í Sjallanum þurfti að
reiða fram 2000 krónur og eftir að inn
var komið máttu menn kaupa alla dryk-
ki á barnum. Margir ákváðu þvf að vera
frekar bara í heimahúsum eða tjaldpar-
tíi. Þar sem hinar stóru hljómsveitir eru
oftar en ekki á prósentum gæti reynst
erftitt að ná þeim aftur í hús að ári.
Á tjaldstæðum bæjarins var ekki
nema hrot af þeim fjölda sem vanalega
er og eiga skátarnir jrví í vandræðum
með að láta enda ná saman.
En hverjum er um að kenna? Miðbæj-
arsamtökin benda á sýslumann og bæj-
arstjóra og hinn almenni bæjarbúi segir
að lög hafi verið brotin með því að ætla
að meina ungmennum aðgang að bæn-
um. Aðrir segja að þarna hafi verið farið
að landslögum enda séu unglingar ekki
Iögráða fyrr en þeir hafi náð 18 ára
aldri. „Strangt til tekið þá hafa foreldrar
heimild til þess að leyfa börnum sínum
að fara ein á svona samkomur. En ég tel
að með orðum sínum hafi sýlsumaður
og bæjarstjóri verið að beina þeim til-
mælum til foreldra að senda börn sín
ekki ein af stað. Þau orð báru árangur
og voru að mínu mati í góðu Iagi,“ segir
Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður
barnaverndarstofu.
Nú enn aðrir segja að það hversu
seint undirbúningurinn fór af stað og
slæm veðurspá hafi haft mest að segja.
Hvernig sem þau mál eru J)á ætti að
vera Ijóst að hátíðin í ár var flopp og
menn ætla að nota næsta ár til að hugsa
sinn gang. - GJ
Og talandi um Sunday Tirnes. Þetta vlrta vikulúaö
er eitt margra erlendra blaða sem birta viðtöl og
greinar um Futurice sýninguna sem hefst hér á
landi á föstudaginn. Blaðið reynir þar að útskýra í
ináli og mynduin hvers vegna tískufólkið streymi
til íslands sem sé enn „tlie hottest placc to be.“
Hreimur Orn
Heimisson.
Verslunarmaniiahelgin gekk án
áfalla á Akureyri enda gæsla mikil
þar í bæ. Sjallamenn vildu ekki
vera mirnú mcim í gæslmmi og
fengu konu á miðjum aldri til þess
að standa í dyrunum. Hún tók
hlutverk sitt afar alvarlega og
spurði stóra jafiit sem smáa mn
skilríki. Upp úr miðnætti kom síð-
an ungur maður iim í andyri og
ætlaði að labba beint inn. „Hvert heldur þú að þú
sért að fara góði minn,“ kveður þá við í kellu. „Nú
inn,“ svarar stráksi og er grehiiiega liissa. „Ja þú
verður fyrst að borga og síðan vil ég fá að sjá skil-
rfld,“ segir koiian. „Ég er nú eighflega að fara að
syngja hér í kvöld,“ svarar drengurhm sem heitir
Hreimur Öm Heimisson. „Og ert þú með skflrfld til
að samia það,“ jirumar sú gainla og nú voru dyra-
verðimir í kringum hana orönir lieldur skrýtnir í
framan. Söngvaranmn miga tókst eftir rnikið stapp
að komast inn á staðhm þar sem hann hélt uppi
miklu stuði fram efth nóttu. Konan hélt áfram að
vera í dyrunum og spurði mn skilrfld af enn ineiri
hörku en áður...
FRÉ T TA VIÐTALIÐ
Matthías
Halldórsson
aðstoðarlandlæknir
LögregUn íEyjum tóJt lyfð
efedrín afmörgum þjóöhátíð-
argestum, sem jundiðhöj&u
upp á því „snjállræði“ að taJta
það í nefiðog m.a. til að auJta
áfengisþolið og úthaldiðal-
mennt.
Efedrín úrelt lyf - nema sem „dóp“
- Hvers konar efni er efedrín?
„Efedrín er lyf sem áður var notað til lækn-
inga og hefur verið á Iyljaskrá. Það var notað
við astma hér áður fyrr, enn er nú úrelt lyf og
ekki not fyrir það Iengur til inntöku. Það sýndi
sig að það var meira notað til örvunar heldur
en til lækninga og þótti því ekki ástæða til að
hafa það lengur á lyljaskrá.
- Er þetta þú ekki hættulegt efni?
„Þetta telst ekki stórhættulegt efni. Það var
til dæmis í mixtúrum sem var gefin bömum,
m.a. í Paradríl með efedríni. En segja má að
þetta sé gagnslítið Iyf.“
- Er þoð skylt einhverjum ólöglegumfíkni-
efnum?
„Þetta er skylt amfetamíni og hefur ekki
ósvipaða verkun. En menn sækjast ekki eins
mikið í efedrínið eins og amfetamínið. Og
vafalítið er það heldur ekki jafn hættulegt eins
og amfetamínið varðandi ávanahættu."
- Er þér ókunnugl um oð efedrín sé notað
að róði hérlendis?
„Ég held að það sé ekki mikið. Þetta virðist
einhver ný bóla sem er að koma upp aftur.
Það var á tímabili - meðan þetta var skráð sem
læknislyf - þá voru sumir sem gengu svolítið til
lækna til að fá lyfið. En eftir að það var tekið
af skrá hefur það verið Iítið til vandræða þar til
nú.“
- Þjóðluítíðargestir munu hofa fundið það
þjóðráð að auka áhrifin með því að taka efnið
ínefið?
„Eg þekki ekki til þeirrar notkunar, en ýmis
ráð eru notuð til að komast f vímu. Fyrst og
fremst er þetta eldgamalt læknislyf sem hefur
vissa þýðingu í blöndu með öðrum efnum, en
enga til inntöku eitt og sér.“
- Flokkast það ekki tneð fíkniefnum?
„Það var ekki eftirritunarskylt lyf meðan það
var á lyíjaskrá.“
- Svo væntanlega verður þá ekki tekið eins
alvarlega á sölu og notkun efedríns eins á
t.d. amfetamíni?
„Ég býst varla við því. Nema þá helst hvern-
ig ,-''lk hefur komist yfir þessi efni. Fólk má
ekki flytja þau til landsins og því sfður afhenda
þau öðrum eða selja þau hér.“
- Nýlega heyrðist aðfarið sé að hera á sölu
á „læknadópi“ - þ.e. lyfjum semfengin eru
út á lyfseðilfrá lækni?
„Það hefur borið töluvert á að fólk sé að
sækjast í morfíntöflur. Það er vitanlega mjög
slæmt, þvf morfín er gott sem læknislyf og
sumir sjúklingar sem þurf a mjög á því að halda
við verkjum - meðal annarra krabbameinssjúk-
lingar. Svo út af fyrir sig er þetta gott lyf og
ekki fallegt að kalla það „læknadóp" - raunar
mjög slæmt vegna þessara sjúklinga sem jrurfa
á morfíni að halda, því fyrir þá er þetta auð-
vitað ekki „dóp“ heldur nauðsynlegt lyf sem
þeir þurfa á að halda til að deyfa mikla verki.
En aðrir sem ekki þurfa þess með eru nú
farnir að ganga á milli margra lækna til að
safna að sér lyfseðlum fyrir þessi lyf og koma
þá oft með alveg ótrúlegustu sögur um verki
og sjúkdóma, sem þeir alls ekki hafa. Koma þá
gjarnan með þá sögu að þeir nái ekki til síns
eigin læknis og reyna þannig að vekja með-
aumkun læknanna. Lyíjaeftirlitið benti sér-
staklega á einn aðila sem farið hafði til mjög
margra lækna og safnað miklu magni. I kjöl-
far þess sendum við aðvaranir til allra Iækna á
Iandinu. En læknar eiga helst eldd að ávísa
sterkum verkjalyljum fyrir fólk sem þeir þekk-
ja ekld til. Helst á það bara að vera heimilis-
læknirinn og hugsanlega sá sérfræðingur sem
áður hefur haft með sjúklinginn að gera.“
- HEI