Dagur - 12.08.2000, Side 1
Verð ílausasölu 200 kr.
83. og 84. árgangur - 151. tölublað
Utilokað að fhrtj a
Lyfj amálastomun
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigdisráðherra fór ásamt Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráöherra á sjúkrahús
Landspítalans við Hringbraut og í Fossvogi í gær. Þau þökkuðu starfsfólki fyrir vel unnin störf og fór sérlega vel á
með heilbrigðisráðherra og hjúkrunarfólki eins og myndin ber með sér. Sjá umfjöllun bls. 5.
Ingibjörg Pálmadóttir
heilbrigðisráðherra:
Ég tel nánast faglega
útilokað að llytja
stofnunina út á land
og tel að þaö væri
jafnvel auðveldara að
fiytja heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytið
út á landsbyggðina.
Kristinn H. Gunnarsson, for-
maður stjórnar Byggðastofnunar
og formaður þingfloldcs Fram-
sóknarflokksins, liefur lagt til að
Lyfjamálastofnun verði flutt út á
land þegar lyfjaeftirlitið og lyfja-
nefnd verða sameinuð. Hann
telur að þar sé um að ræða nýja
stofnun en Ingibjörg Pálmadótt-
ir heilbrigðisráðherra er á ann-
arri skoðun.
„Eg tel nánast faglega útilokað
að flytja stofnunina út á land og
tel að það væri jafnvel auðveld-
ara að flytja heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytið út á landsbyggð-
ina. Það er sjálfsagt hægt að
senda ákveðin verkefni til
vinnslu út á landi en ekki stofn-
unina í heild sinni. Þetta mál
hefur mikið verið rætt hér í ráðu-
neytinu og skoðað vel. Við höf-
um skoðað allt í senn faglegar og
fjárhagslegar forsendur og gert
það vegna stefnumótunar al-
þingis um flutning stofnana út á
land. í þessu tilviki er það þann-
ig að um það bil 90% af verkefn-
um Lyfjamálastofnunar eru
bundin við fyrirtæki, stofnanir
og sérfræðinga á suð-vesturhorni
landsins. Þessi starfsemi er
bundin við eftirlit með innflytj-
endum Iyfja og eftirlit með apó-
tekum. Þær forsendur munu
ekkert breytast þótt við myndum
flytja stofnunina út á land,“
sagði Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra í gær.
Ekki ný stofnun
Hún segir að ef flytja ætti Lylja-
málastofnun út á land væri það
mjög flókið mál og faglega sé það
nánast útilokað. Ingibjörg tekur
það skýrt fram að Lyfjamála-
stofnun sé ekki ný stofnun.
Heldur sé hér verið að sameina
lyfjaeftirlitið og Iyfjanefnd í eina
stofnun sem heitir Lyfjamála-
stofnun. Þess vegna sé ekki um
nýja starfsemi að ræða né fjölg-
un starfa. I þessum tveimur
stofnunum vinnur 18 manns.
Þar af vinna 6 manns í eftirlitinu
og 12 í nefndinni.
„Ég mun leggja áherslu á það
við nýjan forstjóra stofnunarinn-
ar, sem ráðinn verður innan tíð-
ar, að hann setji öll þau verkefni
út á land sem hægt er að vinna
þar. Þá á ég við þá eftirlitsþætti
sem eru út á landi og þau verk-
efni önnur sem mögulegt er að,
vinna annars staðar en í Lyíja-
málastofnun,“ segir Ingibjörg
Pálmadóttir, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra. — S.DÓR
Vill skoða fhitning Shengen
Halldór Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra, telur rétt að kanna vel
hvort hægt sé að hafa upplýs-
ingakerfi Shengen úti á landi.
Eins og Dagur hefur skýrt frá
lagði Kristinn H. Gunnarsson,
formaður stjórnar Byggðarstofn-
unar, til í bréfi til dómsmálaráð-
herra að upplýsingaþjónusta
Shengen verði flutt út á land,
sem liður í því að efla atvinnu á
landsbyggðinni. Vitað er að þessi
hugmynd mætir andstöðu hjá
ríldslögreglu-
stjóra sem fer
með hina svo
nefndu Sirene
skrifstofu sem er
skrifstofa alþjóð-
legra tolla og lög-
reglusamskipta.
Þeirri skrifstofu
mun upplýsinga-
þjónusta
Shengen tilheyra
og vitað er að rík-
islögreglustjóra-
embættið vill
halda henni.
„Mér finnst
sjálfsagt að það
verði skoðað
vel,“ sagði Hall-
dór f viðtali við
Dag um mögu-
leikana á að flyt-
ja þessa þjónustu
út á landi. „Oll
upplýsingakerfi
eru þess eðlis að það skiptir oft á
tíðum ekki meginmáli hvar
vinnslan fer fram. Mér þykir
mikilvægt að fjölga þess konar
störfum úti á landi og við eigum
að fara jákvætt í gegnuni alla
möguleika, sem mönnum koma
til hugar í þeim efnum. En þetta
mál er nú í höndum dómsmála-
ráðuneytisins og ég veit ekki
hvernig það stendur þar,“ sagði
Halldór Ásgrímsson. — S.DÓR
Davíð eldd
stjómað frá
EimsMp
„Ég var hins vegar stuðningsmaður
Davíðs Oddssonar þegar hann var
kosinn formaður Sjálfstæðisfloklis-
ins og tel að sú niðurstaða hafi ver-
ið afar farsæl fyrir flokkinn. Við
Davíð tölum saman þegar við höf-
um áhuga á og megum vera að því
en við eigum ckki daglega fundi og
forsætisráðneytinu er ekki stjórnað
frá Eimskip eins og einhvcrjir virð-
ast vilja trúa,“ segir Hörður Sigur-
gestsson, sem verið hefur forstjóri
Eimskipafélags íslands síðustu tvo
áratugi, í helgarviðtali Dags. Hörð-
ur lætur nú af því starfi, sem sagt
er það valdamesta í íslensku við-
skiptalífi, og lítur yfir ferilinn í við-
talinu.
Eitt stórfcnglegasta tónverk ís-
lenskra tónbókmennta, ballett-
vcrkið Baldur eftir Jón Leifs, verð-
ur llutt í fyrsta skipti af fullskipaðri
sinfóníuhljómsveit, dansflokki,
sólódönsurum, kór og einsöngvara
í næstu viku. Helgarblaðið fjallar
ítarlega um þann menningarvið-
burð.
Systurnar Vala og Inga Svala
Þórsdætur eru víðförulir listamenn
af Iífi og sál sem
fylgja eftir sín-
um hugmynd-
um. Litlu sveita-
stelpurnar frá
Skriðuklaustri
hafa svo sannar-
lega látið til sín °Q ^n9a
taka og lifa líf- Svata Þórsdætur.
inu lifandi, eins
og nánar má sjá í helgarblaði Dags.
Sveppatíminn er að hefjast.
Áhugasamir um sveppatínslu geta
nú farið að brýna hnífana, dusta af
bastkörfunum og halda út í skóg-
lendið. En það er margt að varast
eins og fram kemur í matargati
helgarblaðsins. Svo er það einnig
bækur og bíó, myndlist og matar-
gerð, kynlíf og krossgáta, sönn
dómsmál, veiðimennska, spurn-
ingaleikur og margt margt fleira.
Góða helgi!