Dagur - 12.08.2000, Side 2

Dagur - 12.08.2000, Side 2
2 — LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000 . FRÉTTIR Ytriflot vegna o tgírðing fluleka Stór flotgirðmg verð ur sett upp utau uin ])á olíugirðingu sem nú er vegna olíulek- ans á Seyðisfirði. Siv Friðleifsdóttir segir óvíst hvenær farið verður í varanlegar aðgerðir. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra fékk samþykkt á ríkis- stjórnarfundi í gær að veittar yrðu tvær milljónir króna til að kaupa svo kallaða ytri flotgirð- ingu vegna olíulekans úr flaki E1 Grillo í Seyðisfirði. Stjórnskipuð nefnd kom með þá tillögu í vor, til að sporna við olíulekanum í sumar, að auk venjulegrar flot- girðingar yrði sett svo nefnd ytri flotgirðing. Umhverfisráðherra sagði í samtali við Dag í gær að gert hefði verið ráð fyrir að heimamenn bæru kostnaðinn af ytri flotgirðingunni, sem er 2 milljónir króna. Það gekk hins vegar ekki eftir og því var sam- þykkt að ríkisstjórnin útvegaði þcssar tvær milijónir. Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra. „Nú verður farið í það að setja þessa ytri flotgirðingu upp enda er það nauðsynlegt samkvæmt reynslunni íjúlí sl. I norð-austan og suð-vestan áttum má gera ráð fyrir að olfan slettist yfír þá flot- girðingu sem nú er komin upp. Þessi ytri flotgirðing er í útliti svipuð og laxeldiskví og um 200 metra Iöng og með upphækkun í formi dúks sem nær 1,2 metra yfir girðinguna," sagði Siv Frið- leifsdóttir. Óljóst tmi varanlegar aðgerðir Umhverfísráðherra var spurð að því hvenær búast mætti við að farið yrði út í varanlegar aðgerð- ir sem er að ná olíunni úr flak- inu? „Það er óljóst á þessari stundu. Sérfræðingar sem skoðað hafa þetta mál fyrir umhverfisráðu- neytið segja í sínu mati að því fyrr sem farið verður í varanlegar aðgerðir því betra. Þótt ekki þurfi að búast við neyðarástandi á næstunni, þá aukast líkurnar á vaxandi olíuleka eftir því sem tíminn líður enda komin tæring í hluta flaksins," sagði Siv. Hún segir það afar ólíklegt að það gefi sig margir tankar í einu en olían er í mörgum tönkum, þannig að hættan á miklu oh'u- flóði þarna er þvf ekki mikil. Siv segir að gert sé ráð fyrir að það muni kosta um 200 milljóniur að ná allri olíunni upp. Hún segir að ef til vill megi lækka þann kostnað með því að fara með verkið í alþjóðlegt útboð og að hún teldi æskilegt að gera það. Það er fyrst og fremst dýr tæknibúnaður og dýrir sérfræð- ingar við þessa hreinsun sem hleypa kostnaðinum upp. Hún sagðist ekki geta sagt til um það á þessar stundu hvort farið yrði í þetta verkefni á næsta ári. -S.DÓR Fólkió sem farist hefur í slysum síðustu daga er allt ungt fólk.. Átta farist á sex dogum Átta manns hafa látist af slysför- um á Islandi á sex dögum. Þar af eru sjö Islendingar, sá elsti 35 ára. Ohappahrinan hófst snemma síðustu helgi þegar sex ára drengur drukknaði við bæinn Stafafell í Lóni. Á sunnudag varð harður árekstur fólksbif- reiðar og rútu og lést þá þýsk ferðakona. Kvöldið eftir fórust þrír karlmenn í fíugslysi við Skerjafjörð. Á miðvikudag fórust tvö ungmenni í árekstri á Suður- landsvegi og í fyrradag lést ung kona sem legið hafði þungt haldin frá því að fíugslysið varð. Margir Iiggja alvarlega slasað- ir eftir slysin undanfarið. Þar af eru tveir úr flugslysinu og einn eftir bílslysið í Svínahrauni. Blóðhankinn lýsti yfír neyðará- standi í vikunni vegna hins óvanalega ástands og brugðust landsmenn vel við því ákalli. Birgðir Blóðhankans eru aftur orðnar ásættanlegar. -bþ Ríkið áhlutaaf VaUiallarhúsmu Björn Bjarnason menntamála- ráðherra segir að ríkið eigi hlut í mannvirkjunum á Þingvöllum sem Jón Ragnarsson hóteleig- andi hyggst selja til bresks auð- kýfings. Upphæðin sem nefnd hefur verið, þykir ótrúlega há, eins og Dagur greindi frá í gær en óljóst er hvort nokkuð verður af kaupsamningunum vegna fyr- irvara sem eru á slíkri sölu. Þá virðist sem aðeins sé um tilboð að ræða en ekki undirritaðan kaupsamning. Fram hefur komið að leita verður til dómsmálaráðuneytis- ins með leyfisveitingu þegar ís- lenskar fasteignir eru seldar út- Iendum rfkisborgurum. Þá á Jón ekki lóðina heldur bara húseign- irnar. Hreppurinn vildi ekki nýta sér forkaupsrétt en sumir halda því fram að ríkið eigi forkaups- rétt f þessu tilviki. Sannarlega á það stundum við þegar um frið- Iýst svæði er að ræða eða þjóð- garða. Einnig er Ijóst að kaupandi getur ekki framkvæmt neitt á svæðinu þótt salan fari fram. Lög kveða á um að ekkert jarðrask megi vinna við Valhöll nema mcð leyfi Þingvallanefndar. Ríkið hef- ur Iengi sýnt því áhuga að kaupa mannvirkin á ÞingvöIIum. -BÞ Vilja kaupa landlð Jarðasala og fasteigna- sala er komin í tísku hjá útlendingiun og íslendingum búsett- um erlendis. Stóraukinn áhugi er hjá útlend- ingum á íslenskum jörðum og fasteignum. Magnús Leópolds- son fasteignasali segir að Island sé greinilega komið í tísku. Það virðist hafa spurst út að hér sé töluvert land falt og það sé mun ódýrara en þekkist f kringum okkur. „Þessi áhugi nær ekki bara til útlendinga heldur líka til Islend- inga sem búið hafa lengi erlend- is. Þetta eru áberandi mildar breytingar," segir Magnús. Magnús Leópoldsson fasteignasali: Miklu ódýrara að kaupa land hér en í nágrannalöndunum. Einkum á hann við jarðasölu en Magnús segir einnig að nokk- uð sé um að fasteignir seljist. Mest er spurt eftir náttúrufegurð og er greinilegt að kaupendur líta helst til útivistarmöguleika í þessum efnum. Nálægð við þjón- ustu hefur einnig dálítið að scgja en Magnús segir að enginn sér- stakur landshluti virðist vinsælli en annar í augnablikinu. „Eg hef engan nákvæman sam- anburð á verði en menn sem til þekkja segja mér að það kosti miklu, miklu minna að kaupa land hér en annars staðar í kring- um okkur,“ segir Magnús. Skýr- inguna telur hann einkum þá að eftirspurnin sé miklu meiri þar en hér. Magnús hefur sjálfur haft milligöngu með allmargar sölur en vill gæta trúnaðar í þeim efn- um. -BÞ Hættulegt kemtsliihús Stór og voldug múrstykki hafa hrun- ið úr svokölluðu Hitaveituhúsi að Hafnarstræti 88 á Akureyri síðustu daga og er greinileg slysahætta því samfara. Tónlistarskólinn á Akureyri notaði húsið undir slagverkskennslu sl. vetur og var þá gagnrýnt að það væri í óviðunandi ástandi. Heil- brigðiseftirlitið lokaði því tímabund- ið en það var opnað aftur eftir und- anþágu og kennt í þvf til vors. Karl Petersen tónlistarkennari kenndi í húsinu í fyrravetur og hann veit ekki til þess að búið sé að finna nýtt hús- næði sem Ieysi hið gamla af. Hann óttast jafnvel að bærinn muni enn ætla sér að halda kennslunni áfram næsta vetur, en það væri varasamt. „Húsið er að hruni komið og það er stórhættulegt að vera hérna með starfsemi. Þetta eru stór stykki sem hafa hrunið niður á gangstéttina, fólk getur hæglega slasað sig,“ segir Karl Petersen. Hann getur þess ein- nig að unglingar snæði stundum nestið sitt undir húsveggnum en hann hafi nú varað þá við ástandinu. Stærstu brotin sem hrunið hafa úr kennsluhúsi Tónlistarskólans á Akureyri eru um metri á lengd og nema nokkrum kílóum. Karl Petersen tónlistarkennari segir húsið stórhættulegt. -BÞ Fyrirhænastund í FeHa- og Hólakirkju Vegna þeirra hörmulegu slysa sem orðið hafa síðustu daga verða sóknarprestar og djákni Fella- og Hólabrekkusókna í Reykjavík með fyrirbænastund í kirkjunni næstkomandi mánudag kl. 18:00. Flver kirkjugestur kveikir þar á bænakerti og sameinast í bæn fyrir þeim sem eiga um sárt að binda vegna Iátins ástvinar. Jafnframt verður beðið fyrir þeim sem liggja þungt haldnir á sjúkrahúsum, fyrir að- standendum þeirra og þeim sem annast þá. Organisti kirkjunnar leik- ur á orgelið og allir eru velkomnir. -SBS

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.