Dagur - 12.08.2000, Síða 8

Dagur - 12.08.2000, Síða 8
8 - LAVGAHDAGUR 12. ÁGÚST 2000 LAVGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000 - 9 FRÉTTASKÝRING Dugwr Thgur FRÉTTIR Bjartsvni í barraeldí Maki hf. tekiix nýja barraeldisstöð sína að Lambanesreykjum í Fljótum í notkim. Uppbygging á Hraun- um framundan. Fjár- magna ailt með eigin fé. Arsframleiðsla áætluð allt að þúsund tonn. „Ef fyrirtæki eins og Máki er ekki spennandi fjárfestingakostur þá veit ég ekki lengur í hverju er ekki spennandi að fjárfesta,“ sagði Haraldur Haraldsson stjórnarfor- maður Máka hf. á aðalfundi fyrir- tækisins sem haldinn var í fyrra- dag. Fundurinn var haldinn að Lambanesreykjum í Fljótum, þar sem fyrirtækið er nú að taka í notkun nýja fiskeldisstöð sína. Hjá Máka hf. einbeita menn sér að eldi á hlýsjávarfisldnum barra og hefur öll starfsemin hingað til verið í eldisstöð félagsins á Sauð- árkróki. En með nýrri eldisstöð í Fljótum verður hægt að auka framleiðsluna stórlega og að mati forsvarsmanna fyrirtækisins er framtíðin björt, ef allt gengur að óskum. Ársframleiðsla verði 700 til 1.000 tonn Eldisstöðin að Lambanesreykjum var áður í eigu Miklalax hf. eins og stöðin að Hraunum, sem er þarna skammt frá. Sem kunnugt varð Miklilax gjaldþrota fyrir nokkrum árum og eftir það stóðu eldisstöðvarnar tvær auðar um nokkurra ára skeið. Seint á árinu 1997 fóru forrráðamenn Máka að beina sjónum að því að eignast þessi mannvirki, sem varð svo að veruleika í október 1998. Síðan þá hefur verið unnið að miklum endurbótum á stöðinni að Lambanesreykjum til að aðlaga hana harraeldi - og innan tíðar verður farið í framkvæmdir á Hraunum sem munu taka um þrjú ár. Hingað til hefur, eins og áður segir, allt eldi Máka verið á Sauðárkróki - en nú stendur til að hafa aðeins frumeldi barrans þar, millieldið á Lambanesreykjum og lokaeldið og slátrunina á Hraun- um. Fyrsti fiskurinn kom í stöð- ina á Lambanesreykjum t'yrir um mánuði síðan og eru j>að um 65 þúsund fiskar sem er á bilinu 70 til 100 gr. að stærð. Allt það sem hér að framan cr reifað er í fullu samræmi við áætlanir fyrirtækisins um stór- aukna framleiðslu. I dag er hún um 20 tonn á ári, en með stöð- inni á Labanesreykjum eykst hún í 130 tonn. Að sögn Guðmundar Arnar Ingólfssonar framkvæmda- stjóra Máka á hún svo að aukast stórum þegar stöðin á Hraunum verður komin í gagnið og verður þá á bilinu 700 til 1.000 tonn. „Þá sé ég fyrir mér að verðmæti framleiðslu okkar verði á ári hver- ju komin í um það bil 600 millj- ónir króna og það er svipað og tveggja milljarða króna togari kemur með á landi árlega. Upp- bygging Máka hf. mun hins vegar kosta einhvers staðar á bilinu 600 til 700 milljónir króna - eða sem nemur verðmæti væntanlegrar ársframleiðslu," segir Haraldur Haraldsson. Fjármagna allt með eigin fá Fram kom á aðalfundinum í fyrradag að uppbyggingin á Lambanesreykjum kosti nálægt 130 miilj. kr. og uppbyggingin á Sauðárkróki hefur kostað um 70 milljónir. En þá er hins vegar stærsti bitinn eftir, uppbyggingin á Hraunum sem „ ... ég myndi giska á kosti einhvers staðar á bil- inu fjögur til fimm hundruð millj- ónir,“ segir Haraldur Haraldsson. A aðalfundinum í fyrradag vakti hann jafnframt athygli á því, sem fram kemur í ársreikningi Máka, að framkvæmdir félagsins hafa svo til eingöngu verið fjármagn- aðar með eigin fé. Skuldir eru sáralitlar - eða um innan við tvær milljónir króna. Hlutafé Máka er nú um 130 milljónir króna og meðal hluthafa eru einstaklingar, fjárfestar, lífeyrissjóðir, félög og fleiri slíkir. Hafa og margir fleiri heitið loforðum í þeirri sókn sem framundan er á Hraunum, þan- nig að menn hafa fulla trú á við- fangsefninu, en á aðalfundinum í fyrradag fékk stjórn Máka heim- ild til þ ess að auka hlutaféð um 100 millj. kr. að söluvirði, en 40 millj. kr. að nafnvirði. „Að lyrirtæki af þessari stærð- argráðu þurfi að fjármagna upp- byggingu sína nær einvörðungu með hlutafé tel ég að sé því sem næst einsdæmi," segir Haraldur Haraldsson og bætir því við að það hafi verið í raun og sann hreinasta goðgá á síðari árum að biðja peningastofnanir um lán eða aðra fyrirgreiðslu til fiskeldis, svo illa séu menn brenndir eftir hrunið mikla í þessari atvinnu- grein fyrir um áratug. „En ég vænti þess að þetta fari að breyt- ast nú þegar menn fara til dæmis að sjá hvað við erum að gera hér,“ bætti hann við - en á Lambanes- reyki komu í fyrradag forystu- menn ýmissa vísindastofnana, fjármálafyrirtækja og stjórnmála- menn, menn sem hafa áhrif og kynntu sér hina merku starfsemi sem þarna fer fram. Sala þekkingar forsenda styrkja „Starfsemi Máka flokkast undir að vera hátækni og við erum leið- andi á okkar sviði í heiminum," segir Guðmundur Orn Ingólfsson sem er framkvæmdastjóri fyrir- tækisins. „Markmið okkar hafa frá upphafi miðast við þróun á svokölluðum endurnýtingarkerf- um, þar sem hreinsibúnaður ger- ir mögulegt að nota sama vatnið fjörutíu til áttatíu sinnum. Undir- staða cldisins er hreinleiki sjávar og jarðvarminn, sem hitaorku- gjafí. Ifelstu einkenni endurnýt- ingartækninnar eru að hér er beitt háþróaðri tækni sem gerir það mögulegt að ala fisk við hvaða hitastig sem er. Jafnframt gerir tæknin það að verkum að eldið verður nánast mcngunar- laust," sagði Guðmundur Orn, þegar hann kynnti fýrir gestum þá merku tækni sem notuð er við framleiðsluna. Starfsemi Máka hf. var sett á laggirnar árið 1994 og frá fyrstu tíð hafa menn beitt háþróuðum húnaði við framleiðsluna, sem mikillar þekkingar krefst að nota. Til að efla þróunarstarf sitt hefur Máki haft f’rumkvæði að fjórum vcrkefnum sem rekin eru á vett- vangi Evrópusambandsins. Hafa í gegnum það fengist ýmsir styrkir og nú þegar Iiggur fyrir loforð um styrk uppá 1,2 millj. evra til upp- byggingarinnar á Hraunum, sem hefjast á næsta vor. - Guðmundur Orn Ingólfsson segir jafnframt að þau fiskeldiskerfi sem Máki not- ast við séu afar verðmæt og nú sé veriö að skoða möguleika á því að aðlaga þau eldi á öðrum fiskteg- undum. Sala slíkrar þekkingar til annara fiskeldisfyrirtækja sé raunar forenda styrkveitingarnn- ar frá ESB. Hvítur niítlfiskur úr Miðjarðaxliafi En hvað er er barri? Það er hvítur matfiskur og hans helstu heim- kynni eru í hlýju Miðjarðarhaf- inu. Sem matur er hann talinn einn besti fiskur sem þekkist og er eftirsóttur og verðið er í nokkru samræmi við það enda er hann helst matreiddur á fínum veitingahúsum. Algengt kílóverð er um 600 kr. Helsti markaöur- inn eru lönd suður-Evrópu og Bandaríkin. Fer markaðurinn sí- fellt stækkandi enda hafa við- skiptavinir Máka verið hæstá- nægðir með þá vöru scm þeir haf’a fengið. Barinn er hinsvegar minna þekktur á markaði á norðurslóð- um - svo sem á lslandi - en það kann að breytast nú þegar fram- leiðslugeta Máka eykst og fram- boðið að þessum ágæta matfiski verður meira. Það er því ekki að ástæðulausu sem forystumenn Máka eru bjartsýnir í þeirri sókn sem framundan er. Skólastj órar örvænta vída Betur hefur gengið að ráða keunara víða úti á landi þetta árið heldur en oftast áður. Ástandið í Reykjavik er hins vegar öllu verra, og hera skóla- stjómendur sig í borginni margir hverjir heldur illa. Að sögn Guðrúnar Ebbu Olafs- dóttur, formanns Félags grunn- skólakennara, er það mjög mis- jafnt eftir skólum og eftir svæð- um hvernig gengið hefur að ráða kennara. „Þar sem margir kenn- arar hætta einhverra hluta vegna, þar eru menn í gríðarleg- um vandræðum með að fá nýtt fólk. Sums staðar vita menn hreinlega ekki hvcrnig þeir eiga að hefja skólastarfið. En þar sem er lítil hreyfing, eða fáir hætta, jjar bera menn sig nokkuð vel,“ segir Guðrún Ebba. Hún segir að erfiðleikarnir séu ekkert síður í Rcykjavík en á minni stöðum úti á landi, þar sem yfirleitt hefur verið crfiðast að manna kennarastöðurnar. „Þetta hefur verið mjög erf’itt og er alveg nýtt vandamál fyrir marga skólastjóra í Reykjavík." Ekkert heildaryfirlit er til yfir ástandið núna, enda eru ráðn- ingar í höndum skólastjóra og allur gangur virðist vera á því hvort fræðslufulltrúar sveitarfé- laga séu komnir með yfirlit yfir j^að hvernig gengið hefur að ráða í kennarastöður í skólun- um. Vitað er að vel hefur gengið að ráða í kennarastöður á Isa- firði, og sömu sögu er að segja fráAkureyri, Húsavík ogAuslur- héraði. Gott hljóð úti á landi „Þetta hefur bara gengið vonum framar,“ segir Gunnar Gíslason, skólafulltrúi Akureyrarbæjar, þar sem ástandið hefur annars oft verið mjög erfitt undanfarin ár. „Það er sáralítið eftir ófrágengið, það er einna helst að vanti sér- kennara. „ Vel hefur einnig gengið að f’inna kennara á Húsavík. „Við erum að verða húin að manna og erum bara ánægð með stöðuna," segir Dagný Annasdóttir, skóla- stjóri Borgarholtsskóla á Húsa- vfk. „Það er ekki mikið af leið- beinendum í vetur, en reyndar hefur verið mjög stöðugur kenn- arahópur hérna.“ Helga Guðmundsdóttir, for- stöðumaður fræðslu- og menn- ingarsviðs á Austurhéraði, hefur sömu sögu að segja. „Það hefur gengið alveg f’ráhærlega vel,“ segir hún. „Við erum fullmönn- uð og með nánast 100% rétt- indafólk. Það er bara fólk í ein- hverjum hlutastörfum í uppfýll- ingum sem er ekki með full rétt- indi. Við höfum ekki þurft að auglýsa nema einu sinni í vorum og kláruðum þá að ráða í háða skólana, bæði á Egilsstöðum og á Hallormsstað." „Þetta eru breyttir tímar“ Verið er að taka saman heildaryf- irlit yfir kennararáðningar í Reykjavík hjá fræðslumiðstöð Reykjavíkur, en þcir skólastjórar í Reykjavík scm Dagur hafði samband við sögðu ástandið vera mun verra þetta árið en þeir eiga að venjast. Víða er nú þegar búiö að ráða Ieiðbeinendur í sumar stöður, en það er annars ekki gert fyrr en vonlaust Jiykir að fá menntaða kennara. „Mér líst ekki nógu vel á stöð- una,“ segir t.d. Kristín G. Andr- ésdóttir skólastjóri Vesturbæjar- skóla, og sömu sögu segir Sigur- jón Fjeldsted, skólastjóri Hóla- brekkuskóla. „Þetta hefur verið algjört baks. Og Jiví miður er maður að fara út á þá braut að ráða leiðbeinendur, sem maður var að vonast til þess að jrurfa ekki að gera.“ „Þetta eru hreyttir tímar," seg- ir Sigurjón, og reiknar með því að mikið verði auglýst eftir kenn- urum jiessa helgi. „Ég man ekki eftir að hafa lent í þessari stöðu áður, og er þó búinn að vera ótrúlega lengi í þessu. Hér í eina tíð var þaö þannig að við vorum komin með nokkuð langan lista strax í mars eða byrjun apríl af fólki sem var að sækja um. En það er alveg liöin tíð.“ Sveitarfélögin bjóða misjöfn kjör I Melaskóla er staðan jiokkalega góð, að sögn Rögnu Olafsdóttur skólastjóra, Jió róðurinn hafi ver- ið þyngri en undanfarin ár. „Venjulega hef ég gengið frá nýráðningu í júní fyrir sumarfrí. Það er heldur óvenjulcgt að standa frammi fyrir þessu í ágúst." 1 Hafnarfirði hefur hins vegar gengið mjög vel að ráða kennara í sumar, að sögn Magnúsar Bald- urssonar skólafulltrúa. „Það var sáralítið eftir síðast þegar ég vissi. Þetta er síst verra en und- anfarin ár." Þegar Magnús er spurður um skýringar á j>ví, seg- ir hann að það „hljóti bara að vera svona eftirsóknarvert að kenna í Hafnarfirði." Hversu misjafnlega hefur gengið má j>ó að hluta til skýra með því að ráðningarkjör eru nú í höndum sveitarfélaganna. „Mér svona heyrist, það sem ég Jjekki til, að sveitarfélögin séu víða að bjóða betri kjör, alla vega í sumum sveitarfélögunum hérna í kring,“ segir Ragna Ólafsdóttir skólastjóri Mela- skóla. — GB

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.