Alþýðublaðið - 21.02.1967, Page 10
t=RitstioiTOm Eidsson
Fram breytti 8:12
í 17:15 og vann Val
FH sigraði Armann auð-
veldlega með 31 gegn 21
Á sunnudagskvöldið fóru fram
tvíeir leikir í I. deild karla í ís-
landsmótinu í handknattleik. FH
lé|k gegn Ármanni og sigraði 31 —
2i og má segja að frammistaða
Ármenninga hafi verið góð. Seinni
lejkurinn var milli Fram og Vals
og var hans beðið með mikilli
spennu. Eins og menn muna þá
sigraði Valur í fyrri viðureign
þessara liða og litlu munaði að
svo faeri núna, en leiknum lauk
með sigri Fram 17—15, eftir að
Staðon |
7. deild.
; Staðan í 1. deild eftir leikina ;
■ í fyrrakvöld: -
; FH-Ármann 31:21 (17:8). I
\ Fram-Valur 17:15 (8:12). |
* FH 6 6 0 0 149:95 12 \
0 2 126:90 8 |
0 3 143:126 8 '
0 3 90:92 4 ;
0 3 92:100 4:
■ Fram 6
í Valur 7
■ Vík. 5
■ Hankar 5
S Árm. 7
4
4
2
2
0 0 7 89:176 0:
Valur haíði verið fjórum mörk-
um yfir í hálfleik.
★ FH—Ármann 31—21.
(17—8), (14—13).
Þegar lið FH kom á völlinn
kom í ljós að þar vantaði nokkra
leikmenn, Kristófer, Auðunn og
Einar voru ekki með, en í lið
Ármanns vantaði ennþá línu-
manninn þeirra Hrein. Það voru
Ármenningar sem skoruðu fyrsta
markið og var það Árni Samúels-
son sem það gerði. FH gengur
illa að skora og varði ungur pilt-
ur í Ármannsmarkinu mikið af
skotum FH-inga. Fram eftir hálf
leiknum var staðan nokkuð jöfn,
en eftir miðjan hálfleikinn fór
FH að síga framúr og var níu
mörkum yfir í hálfleik. í seinni
hálfleik börðust Ármenningar vel
og náðu FH-ingar aðeins að Sigra
hálfleikinn með eins marks mun.
Mikið var um ónákvgemar send-
ingar í þessum hálfleik og var
eins og FH-ingar hefðu engan á-
huga fyrir að sigra stórt. Nokkuð
var um grófan leik og verður það
að skrifast á reikning dómarans
sem leyfði alls konar hrindingar
og bolabrögð. Lið FH sýndi sinn
langlélegasta leik í langan tíma
og átti enginn leikmaður þar góð-
an leik. Birgir Finnbogason lék
í markinu í fjarveru Kristófers
og stóð sig vel, varði m.a. tvö
vítaköst. Lið Ármanns sýndi
þarna sinn bezta baráttuleik í
vetur og haldi þeir svona áfram
er ekki útilokað að þeir geti krækt
sér í stig.
★ Fram—Valur 17—15.
(8-12), (9-3).
Valsmenn tóku fijótlega for-
ystu í leiknum með óvæntu marki
frá Jóni Ágústssyni og skömmu
siðar skora þeir annað mark. Þá
i skora Framarar. Hermann bætir
marki við, en nú jafnar Fram
í 3—3, Valsmenn taka góðan
kipp og skora fimm mör.k í röð
og staðan er 8—3, en Fram jafn-
ar bilið, en Valsmenn leika af
gætni og hálfleiknum lauk sem
sagt með sigri Vals 12—8 og
bjuggust nú flestir við Valssigri.
En í seinni hálfleik taka Fram-
arar upp leikaðferð sem bjargar
þeim, Sig. Einarsson er látinn
elta Jón Ágústsson á röndum, en
Jón er uppbyggjari í samleik
Vals og er mjög laginn í að senda
á línu. Með þessu auk óheppni
Vals, sem létu 3 vítaköst fara í
súginn, tókst Fram að sigra.
Fyrstu 17 mín. hálfleiksins skor-
ar Valur ekki mark, en á þess-
um tíma náði Fram hins vegar
forystu. mest fyrir tilstilli Sig.
Einarssonar, sem auk þess að
gæta Jóns mjög vel ruglaði vörn
Vals mjög með sífelldum skipt-
Framhald á 11. síðu.
Hér skorar Sigurður Dagsson eitt af mörkum Vals á sunnudag,
Norwich Cify vann
Manchester United!
Ungur Framari, Sigurbergur Sigurgrímsson skorar.
Enska 2. deildarliðið Norwich
City, sem hér lék í sumar kom
heldur betur á óvænt í ensku bik-
arkeppninni á laugardag, þegar
liðið sigraði Manchester Utd. með
2 mörkum gegn 1. Leikurinn fór
IR sigraði
IBA 26:21
Á laugardag léku ÍR og ÍBA
í 2. deild íslandsmótsins í hand-
knaUleik. Leikui’inn fór fram á
Akureyri og lauk með sigri ÍR, 26
mörkum gegn 21. í hléi var stað-
an 11 gegn 10 fyrir ÍBA. Leikur-
inn var býsna skemmtilegur, en
ekki að sama skapi vel leikinn.
Á sunnudag var háð hraðkeppni
á Akureyri og lienni lauk með
sigri a-liðs ÍR.
í kvöld kL 20,15 fara fram 2
þýðingarmiklir leikir í 2. deild.
Fyrst leika KR og ÍBK og síðan
ÍR og Þróttur.
Staðan I 2. deild karla er þessi:
KR 5 3 2 0 8 120- 82
ÍR 5 3 117 121-107
ÍBK 4 1 2 1 4 85— 87
Þróttur 3 1 1 1 3 58- 65
ÍBA 5 0 0 5 0 82—125
fram á heimavelli Manchester Utd.
og áhorfendur voru yfir 60 þús-
und.
Ýmis fleiri óvænt úrslit urðu,
Frambald á 11. síðu.
Efnilegur
í síðustu viku var skýrt frá á-
gætum afrekum ungs Akurnesi
ings í sundi. Hann heitir Finnur
Garðarsson og er aðeins 14 ára
gamali. Finnur hafði yfirburði á
skólamóti á Akranesi. Á sundmóti
Keflavíkur, þar sem hann keppti
sem gestur í 100 m skriðsúndi,
vann hann m.a. Guðmund Þ. Harð
arson, Ægi, sem þar keppti einn-
ig sem, gestur. Davíð Valgarðsson
sigraði í sundinu. Hér er mynd af
þessum efnilega sundmanni.
10 21. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ