Dagur - 16.08.2000, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGU R 16. ÁGÚST 2 000 - 9
Úr vináttulandsleik íslands og Möltu fyrr í sumar.
Stefnir í horku-
leik gegn Svíum
Ólympíuveisla
í Sjónvarpinu
íslenka karlalandsliðið
í knattspymu mætir
Svíum á Laugardals-
velli í dag. Atli Eð-
valdsson, landsliðs-
þjálfari, stillir upp
okkar sterkasta liði og
sama má segja um Svía
sem mæta með fíma-
sterkt lið.
í dag ld. 18:45 mætir íslenska
karlalandsliðið í knattspyrnu liði
Svfa á þjóðarleikvanginum í Laug-
ardal og er leikurinn liður í Norð-
urlandamóti landsliða. Islenska
liðið hefur þegar Ieikið þrjá af
fimm leikjum á mótinu, gegn
Norðmönnum, Finnum og Færey-
ingum, en þeir fóru fram á La
Manga á Spáni fyrr á árinu. Voru
það fyrstu Ieikir Atla Eðvaldssonar
sem landsliðsþjálfara og urðu úr-
slit eftirfarandi:
Island - Noregur 0-0
Island - Finnland 1-0
Island - Færeyjar 3-2
Úrslit annara leilija:
Færeyjar - Finnland 0-1
Svíþjóð - Danmörk 1 -0
Danmörk - Noregur 2-4
Noregur - Svíþjóð 1 -1
Danmörk - Finnland 1 -2
Stadun á mótinu:
ísland 3 2 10 4-3 7
Finnland 3 2 0 1 3-2 6
Noregur 3 1 2 0 5-3 5
Svíþjóð 2 1 10 2-14
Færeyjar 2 0 0 2 2-3 0
Danmörk 3 0 0 3 3-7 0
Svíar með sterkt lið
Svíar taka Ieikinn í dag mjög alvar-
lega og líta á hann sem mikilvæg-
an þátt í undirbúningi liðsins fyrir
undankeppni HM-2002, sem
hefst 2. september n.k., en þá
mæta þeir liði Azerbajdzjan á úti-
velli í Baku, á sama tíma og ís-
lenska landsliðið leikur gegn Dön-
um í sömu keppni hér heima. Þeir
eru því mættir með sitt sterkasta
lið, að undanskildum þeim
Joachim Björklund frá Valensía á
Spáni og Niclas Alexanderson frá
enska liðinu Everton, sem fengust
ekki lausir í leikinn.
Sænski landsliðshópurinn
Markverdir:
Magnus Hedman, Coventry
Magnus Kihlstedt, Brann
Aðrir leikmenn:
Patrik Andersson, B. Múnchen
Teddy Lucic, AIK
Olof Mellberg, R. Santander
Roland Nilsson, Helsingborg
Michael Svensson, Halmstad
Anders Andersson, Alaborg
Marcus Allbáck, Orgryte
Daniel Andersson, Bari
Kennet Andersson, Fenerbahce
Henrik Larsson, Celtic
Fredrik Ljungberg, Arsenal
Hákan Mild, IFK Gautaborg
Johan MjoIIby, Celtic
Stefan Selakovic, Halmstad
Anders Svensson, Elfsborg
Magnus Svensson, Bröndby
Okkar sterkasta lið
Leikurinn í dag er ekki síður mik-
ilvægur fyrir íslenska landsliðið,
sem fær lítinn tíma til undirbún-
ings fyrir leikinn við Dani í und-
ankeppni HM um mánaðamótin,
en sá Ieikur er reyndar einnig liður
í Norðurlandsmótinu og því sann-
kallaður sex stiga leikur. Atli Eð-
valdsson mætir með okkar sterk-
asta lið til leiks í dag, þar sem að-
eins Heiðars Helgusonar frá
Watford er saknað, en hann á við
smávægileg meiðsli að stríða. Það
má má því búast við hörkuleik, þar
sem ekkert verður gefið eftir.
íslenski landsliðshópurinn
Markveróir:
Birkir Kristinsson, IBV
Arni Gautur Arason, Rosenborg
Aðrir leikmenn:
Rúnar Kristinsson, Lilleström
Eyjólfur Sverrisson, H. Berlin
Arnar Grétarsson, Lokeren
Þórður Guðjónsson, Las Palmas
Ríkharður Daðason, Viking
Helgi Sigurðsson, Panathinaikos
Hermann Hreiðarss., Wimbledon
Helgi Kolviðsson, Ulm
Brynjar B. Gunnarsson, Stoke
Auðun Helgason, Viking
Tryggvi Guðmundsson, Tromsö
Pétur Marteinsson, Stabæk
Arnar Þór Viðarsson, Lokeren
Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea
Rikki skoraði fjögur gegn
Svíuni
Island hefur einu sinni unnið sig-
ur gegn Svíum og var það hinn eft-
irminnanlega dag 29. júní árið
1951 er Island vann einnig sigur á
öðrum Norðurlandaþjóðum í land-
skeppni í fijálsum íþróttum. Um-
ræddur landsleikur þjóðanna, sem
fram fór á gamla Melavellinum
fyrir framan 5.700 áhorfendur, var
fimmti landsleikur Islands og urðu
lokatölur 4-3, en staðan í leikhléi
var 2-0. Landslið íslands var skip-
að þeim Bergi Bergssyni, Karli
Guðmundssyni fyrirliða, Hauki
Bjarnasyni, Hafsteini Guðmunds-
syni, Einari Halldórssyni, Sæ-
mundi Gíslasyni, Olafi Hann-
essyni, Ríkharði Jónssyni, Þórði
Þórðarsyni, Bjarna Guðnasyni og
Gunnari Guðmannssyni. Ríkharð-
ur Jónsson gerði öll mörk Islands á
32., 38., 48. og 82. mínútu leiks-
ins og var það nýtt met sem Amór
Guðjohnsen jafnaði síðan í lands-
leik gegn Tyrkjum þann 17. júlí
árið 1991, sem Island vann 5-1.
Sigurður Grétarsson skoraði þar
fimrnta mark Islands. Síðast var
Ieikið við Svía áriðl994 á Laugar-
dalsvellinum og unnu Svíar þar 1-
0 sigur.
Ríkharóux lika fljótastur að
skora
Fjögurra marka metið var ekki það
eina sem Ríkharður setti á ferlin-
um, því hann var einnig sá leik-
maður sem var fljótastur að skora í
landsleik. Það gerði hann í leik
gegn Belgum þann 4. september
árið 1957, eftir aðeins 15. sek-
úndna leik. Það dugði þó skammt
því Belgar unnu leikinn 5-2. Þórð-
ur Þórðarson skoraði hitt mark Is-
lands. Albert Guðmundsson varð
hins vegar fyrstur til að skora mark
fyrir Island í landsleik, en hann
gerði bæði mörkin gegn Noregi í
öðrum landsleik Islands, sem
Norðmenn unnu 4-2. Fyrsti lands-
leikur Islands var hins vegar gegn
Dönum þann 17. júlí árið 1946 á
Melavellinum, að viðstöddum
8.000 áhorfendum, þar sem Danir
unnu 3-0. Sigur hefur aldrei unn-
ist gegn Dönum, en strákarnir
okkar fá til þcss kærkomið tæki-
færi á Laugardalsvellinum, þegar
við mætum þeim í áðurnefnduin
sex stiga Ieik. — GG/ek
íslenska RQdssjón-
varpið mun bjóða
landsmönnum upp á
viðamikla dagskrá frá
Ólympíuleikunum í
Sydney, sem hefjast
með setningarathöfn
þann 15. september
n.k. Að sögn Ingólfs
Hannessonar, yfír-
manns íþróttadeildar
Sjónvarpsins, á hann
von á glæsilegum og
spennandi leikum.
Senn Iíður að því að Ólympíuleik-
arnir í Sydney hefjist, með öllu því
tilstandi og spenningi sem þeim
tilheyra. Leikarnir hafa hingað til
þótt eftirsóknarvert sjónvarpsefni
og víst að íslenskt íþróttaáhugafólk
bíður spennt eftir að veislan hefj-
ist þann 15. september n.k. Ríkis-
sjónvarpið mun að vanda sjá til
þess að við hér á norðurhjara ver-
aldar fáum okkar skammt af
skemmtuninni og eru starfsmenn
íþróttadeildar Sjónvarpsins nú í
óða önn að Ieggja lokahönd á
skipulagningu dagskrár, sem að
þessu sinni verður mjög viðamikil
að sögn Ingólfs Hannessonar, yfir-
manns íþróttradeildar.
Leikamir hefjast 15. sept.
„Við heljum að sjálfsögðu beina
útsendingu frá leikunum frá opn-
unarhátíðinni, föstudaginn 15.
september og hefst hún kl. 07:00.
Eftir það verðum við með á hveiju
kvöldi svokallað „Ólympíukvöld“,
strax eftir tíufréttir, eða frá kl.
22:15. Þar verður sent út í eina til
eina og hálfa klukkustund og mun
Logi Bergmann Eiðsson leiða þær
útsendingar frá stúdíóinu í Efsta-
leiti. Þar verður farið yfir helstu
atriði líðandi sólarhrings og sýndar
upptökur sem hafa sumar verið
sýndar fyrr um daginn og nóttina á
undan. Við getum kallað það
flaggskipið í Sydney-pakkanum,
en í beinu framhaldi af þeim verð-
um við í nokkrum tilfellum með
beinar útsendingar, sem eru þá
morgunsendingar frá Sydney, því
tímamunurinn er jú ellefu ldukku-
stundir. Þar munum við leggja
áherslu á að fylgja okkar keppnis-
fólki eftir, þannig að þar verður þá
Páll Guðlaugsson, þjálfari úrvals-
deildarliðs Keflvíkinga í knatt-
spyrnu, er hættur störfum hjá fé-
laginu. I fréttatilkynningu frá
Keflvíkingum segir að samkomu-
Iag hafi orðið um það í gær milli
Páls og stjórnar Knattspyrnu-
deildar Keflavíkur að hann hætti
þegar störfum og hafi þeir Gunn-
ar Oddsson og Þorsteinn Bjarna-
son nú tekið við þjálfun liðsins.
Keflvíkingum hefur gengið af-
leitlega í deildinni að undanförnu
og ekki unnið nema einn af síð-
ustu níu leikjum, sem var gegn
KR-ingum í 10. umferðinni.
Miklar væntingar voru gerðar til
liðsins í upphafi tímabilsins, ekki
síst vegna bættrar æfingaaðstöðu
í nýju Reykjaneshöllinni og lofaði
helst um að ræða útsendingar frá
undanrásum í sundi og frjálsum
íþróttum. Þessar beinu útsending-
ar gætu í sumum tilfellum staðið
til klukkan eitt eða tvö, eftir því
hvort okkar fólk er að keppa. Síð-
an verður hlé á útsendingum flest
allar nætur til klukkan 05:30, en
þá byrjum við með samantektar-
pakka sem sýndir verða til kl.
07:00. í kjölfarið af því verðum við
svo með beinar útsendingar og
upptökur fram eftir morgni. Þar
verður sýnt það helsta sem er í
gangi hverju sinni og síðan aftur
kl. 11:30. Þessi morgundagskrá
verður síðan endursýnd fyrir upp-
haf venjubundinnar dagskrár milli
ldukkan 15:00 og 16:30. Svona
verður þetta í grófum dráttum alla
dagana meðan leikarnir standa, en
þeim Iýkur með lokaathöfn þann
1. október, sem auðvitað verður í
beinni útsendingu frá kl. 07:00 til
11:00,“ sagði Ingólfur.
Glæsileg hátíð
Að sögn Ingólfs mun Sjónvarpið
senda íjóra starfsmenn til Sydney.
„Það eru íþróttafréttamennirnir
Samúel Orn Erlingsson, Geir
Magnússon og Adolf Ingi Erlings-
son og síðan einn tæknimaður.
Mér sýnist að allur pakkinn verði
heldur umfangsmeiri en síðast
þegar leikarnir fóru fram í Atlanta
fyrir Ijórum árum. Þetta verður
líka að mörgu leyti skemmtilegra. I
fyrsta lagi vegna þess að þessir
samantektarpakkar verða lengri og
þá fær fólk enn betra yfírlit yfir
leikana. Auk þess bætum við inní
eyður nokkrum boltaleikjum og
má þar nefna leiki í körfubolta,
handbolta og væntanlega fótbolta.
Eg er sannfærður um að þessir
Ieikar eiga eftir að verða mjög góð-
ir og muni slaga hátt upp í gæðin
á leikunum í Barcelóna, sem að
mínu mati eru bestu Olympíuleik-
ar sem haldnir hafa verið til þessa.
Það bendir allt til þess að þetta
verði glæsileg og spennandi hátíð.
Enda bíð ég spenntur eftir setn-
ingunni, sem hefst nákvæmlega
kl. 07:00 föstudaginn 15. septem-
ber og mun standa til kl. 10:00.
Við munum síðan endursýna að
hluta frá setningarathöfninni í
fyrsta „Olympíukvöldinu" um
kvöldið. Eg vil einnig geta þess að
fram að leikunum verðum við með
átta þátta upphitunarseríu, sem
heitir „Baksviðs í Sydney" og þar
verða leikarnir rækilega kynntir,11
sagði Ingólfur að lokum.
byrjunin góðu eftir sigra í tveimur
fyrstu umferðunum. Síðan fylgdi
slæmt 5-0 tap gegn Eyjamönnum
í þriðju umferðinni og síðan hef-
ur Iítið gengið. Liðinu hefur þó
tekist að vinna þrjá sigra á Is-
lands- og bikarmeisturum KR-
inga í sumar, báða deildarleikina
og síðan í bikarnum.
1 fyrra lentu Keflvíkingar í átt-
unda sæti deildarinnar, en eru nú
í því sjötta með 17 stig, eftir ljóra
sigra, fimm jafntefli og jafnmörg
töp. Tapið gegn FH-ingum í 8-
liða úrslitum bikarsins í fyrra-
kvöld, er eflaust kornið sem fyllti
mæiinn og menn þar á bæ talið
heppilegra að breyta til á loka-
spretti deildarkeppninnar, þar
sem fjórum umferðum er ólokið.
Páll hættur með
KefLvfldnga