Dagur - 09.09.2000, Qupperneq 8
I
8- LAUGARDAGUR 9. S E P T E M B F. R 2000
FRÉTTASKÝRING
Miisiii og tæmar
Alfreö Þorsteinsson
sakar Sjálfstæðisflokk-
inn um að misnota
Landssímann í póli-
tískri baráttu gegn
Reykjavíkurlistanum.
Stjómarandstaðan seg-
ir rOdsstjómarsam-
starfíð tekið að trosna.
Þegar svífur að hausti lifnar jafn-
an yfir pólitíkinni í landinu. Langt
er síðan að lifnað hefur )íir henni
að hausti með jafnmiklu
sprengjuregni og að þessu sinni. Sá
sem hefur látið sprengjurnar falla
er Alfreð Þorsteinsson, borgarfull-
trúi Framsóknarflokksins af
Reykjavíkurlistanum.
Þetta byijaði með yfirlýsingum í
blaðaviðtölum, meðal annars hér í
Degi, fýrir nokkrum dögum, en
stærsta sprengjan féll á borgar-
stjórnarfundi í lyrrakvöld. Þá sak-
aði Alfreð Sjálfstæðisflokkinn um
að misnota valdaaðstöðu sína á
nánast öllum sviðum þjóðlífsins.
Hann sagði meira að segja að Sjálf-
stæðisflokkurinn skipaði eftir
flokkslínum í stöður dómara við
hæstarétt, hvað þá annað. Þessi
ásökun kemur í kjölfar þess mikla
slags sem verið hefur á milli
Reykjavíkurlistans og Landssím-
ans, sem Alfreð segir að Sjálfstæð-
isflokkurinn beiti, eins og hann
eigi fyrirtækið, í hatursbaráttu
sinni gegn Reykjavíkurlistanum.
I ljósi þess að þetta gerist um
sama leyti og upp á yfirborðið
koma harðar deilur um ýmiss stór-
mál innan ríkisstjórnarinnar, verð-
ur að líta á yfirlýsingar Alfreðs Þor-
steinssonar sem stórpólitísk tíð-
indi. Alfreð er foringi framsóknar-
manna í borgarstjórnarmálum og
því vega pólitísk ummæli hans
þungt.
Landssímiiui misnotaður
„Það er ekki nokkur vafi á því í
mínum huga að Sjálfstæðisflokkur-
inn beitir Landssímanum fyrir sig í
baráttunni við Reykjavíkurlistann.
Þegar Landssíminn er að kæra
okkur íyrir Samkeppnisstofnun af
þeirri ástæðu að Lína-Net geti orð-
ið markaðsráðandi, þá er það bara
broslegt. Þetta er eins og borgar-
stjóri sagði: Þetta er eins og risi
sem rymur vegna þess að lítil mús
strýkst við tærnar á honum. Það er
hreint með ólíkindum hyað þeir
seilast langt. Síðan kemur úrskurð-
ur menntamálaráðherra, Björns
Bjamasonar, í þessu máli. Það hef-
ur komið fram að hann var ekki
með neitt kærumál í höndum til
að úrskurða um. Upphafleg kæra
er vegna samnings sem var felldur
í borgarráði og nýr samningur
gerður. Þegar nýi samningurinn
komst á var hann ekki kæranlegur
lengur. Sjálfstæðisflokkurinn
seilist alveg ótrúlega Jangt til að
koma höggi á Reykjavíkurlistann,"
segir Alfreð Þorsteinsson.
Hann segir menn orðna lang-
þreytta á þessari sífelldu afskipta-
semi ráðherra Sjálfstæðisflokksins
af málefnum Reykjavíkurborgar.
„Þeir hafa hvað eftir annað verið
að þvælast fyrir og koma höggi á
okkur. Raunar er það mat sveitar-
stjórnarmanna út um land, ekki
bara vinstrimanna heldur sjálf-
stæðismanna Iíka, að þetta ofboðs-
lega hatur forsætisráðherra og
annarra ráðherra Sjálfstæðisflokks-
ins á Reykjavíkurlistanum sé farið
að há sveitarfélögum víða um land.
Sjálfstæðismenn koma í veg fyrir
að sveitarstjórnir út um land fái
eðlilega leiðréttingar í fjámálum
sínum," segir Alfreð.
I’irriiigur ut í
Sjálfstæðisflokkmn
Hann sagði á borgarstjórnarfund-
inum í fyrradag að Sjálfstæðis-
flokkurinn væri búinn að koma
sínum mönnum fyrir í öllum lykil-
stöðum í kerfinu eftir meira en 10
ára stjórnarsetu. Hann sagði í sam-
tali við Dag að í störfum sínum,
hvort heldur er sem formaður
stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur eða
í öðrum störfum sem borgarfull-
Alfreð Þorsteinsson: Orðinn lang-
þreyttur á sífelldri afskiptasemi ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins afmál-
efnum Reykjavíkurborgar.
Steingrfmur J. Sigfússon: Sjálf-
stæðisflokkurinn hegðar sér alveg
eins og hann eigi alla hluti I ríkis-
kerfinu
Ússur Skarphéðinsson: Sjálfstæðis-
flokkurinn er I styrjöld við Reykja-
víkurlistann á öllum þeim vígstöðv-
um sem hann getur opnað I gegn-
um ríkisstjórnina.
trúi, yrði hann mjög mikið var við
fyrirstöðu í kerfinu sem sjálfstæð-
ismenn stjórna.
Alfreð hefur lýst þeirri skoðun
sinni að Framsóknarflokkurinn
eigi að taka þátt í myndun vinstri-
stjórnar eftir næstu þingkosningar.
Hann var spurður hvort hann hefði
rætt þessa hugmynd sína innan
flokksins?
„Auðvitað eru þessi mál rædd.
Staðan í dag er sú að við gegnum
til ríkisstjórnarsamstarfs við Sjálf-
stæðisflokkinn sem miðast við að
haldi út kjörtímabilið. I dag sé ég
ekkert í spilunum sem bendir til
annars en að svo verði. Hins vegar
er gríðarlegur pirringur hjá mörg-
um framsóknarmönnum út í Sjálf-
stæðisflokkinn, þannig að maður
veit svo sem aldrei hvað gerist,"
sagði Alfreð Þorsteinsson.
FuIIyrða má að þarna hafi Alfreð
sagt það upphátt sem margir fram-
sóknarmenn, jafnvel í þingliðinu,
eru að hugsa um þessar mundir.
Vitað er að sjálfstæðismenn eru dá-
lítið taugaóstyrkir vegna þessara yf-
irlýsinga Alfreðs Þorsteínssonar.
Þeir hafa til þessa verið öruggir
með sig. En nú er bátnum ruggað,
bæði með þessum yfirlýsingum og
þeim pirringi sem kominn er upp í
ríkisstjórnarsamstarfinu.
RÚV lagt í einelti
Stjórnarandstaðan á þingi telur að
hér sé um stórpólitískar yfirlýsing-
ar að ræða. Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður VG, segir að það sé
að sínum dómi gott mál að upp
skuli renna fyrir æ fleiri framsókn-
armönnum hvert þeirra hlutskipti
er í þessari ríkisstjórn.
„Það er mergurinn málsins að
Alfreð Þorsteinsson sér að þeir Iáta
nota sig í þágu íhaldsins, sem er að
valda sig sem aldrei fyrr á öllum
vígstöðvum samfélagsins. Eina
undantekningin frá því er Reykja-
víkurborg og örfá sveitarfélög önn-
ur þar sem Sjálfstæðisflokkurinn
ræður ekki ferðinni. Eg er alveg
sammála Alfreð um það að Sjálf-
stæðisflokkurinn hegðar sér alveg
eins og hann eigi alla hluti í ríkis-
kerfinu. Ég hef sjállur á undan-
förnum árum, við litla hrifningu
Björn Bjarnasonar menntamála-
ráðherra, nefnt sem dæmi hvernig
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt
Ríkisútvarpið í einelti. Ég hef tekið
það sem mjög ljótt dæmi um það
hvernig menn eigi ekki að fara með
völd sín,“ segir Steingrímur Jó-
hann.
Hann segir að vissulega séu aðr-
ir stjórnmálaflokkar ekki með
hreinan skjöld í sambærilegum
málum. Bæði Framsóknarflokkur-
inn og Alþýðuflokkurinn gamli hafi
á stundum séð um að koma sínum
mönnum að hér og þar. Það séu
samt hreinir smámunir í saman-
burði við Sjálfstæðisflokkinn. Löng
stjórnarseta hans nú sé farin að
marka þetta verulega. Þeir hafi
haft svo langan tíma til að koma
sínum mönnum að út um allt kerf-
ið að það sé að skapast óheilbrigt
ástand.
Vinstristjóm
„Varðandi það sem Alfreð segir um
vinstristjórn eftir næstu þingkosn-
ingar tel ég það vera hið besta mál
ef einhver veðrabrigði eru að verða
í Framsóknarflokknum, að minns-
ta kosti meðal sumra framsóknar-
manna. í því sambandi vek ég at-
hygli á því að við værum þá ekki
bara að tala um nafnbreytingu á
ríkisstjórn. Við erum að tala um
Þung orð féllu I sal borgarstjórnar í fyrrakvöld og telja margir að þ<
stefnubreytingu. Verkefnið er að
mynda hér vinstristjórn í skilningn-
um ríkisstjórn með vinstrisinnaða
stefnu. Það er okkar markmið. Við
leggjum höfuðáherslu á að menn
hverfi frá þeirri hægristeinu og ný-
fijálshyggju, með tilheyrandi nið-
urskurði í velferðarmálum og vax-
andi misskiptingu í þjóðfélaginu,
sem blasir alls staðar við,“ segir
Steingímur J. Sigfússon.
Hann segist þó eiga von á því að
Alfreð Þorsteinsson eigi dálítið
verk fyrir höndum að ræða við for-
mann sinn, Halldór Asgrímsson,
sem þó hlýtur að vera næsta skref-
ið. Hann segist ekki útiloka að
þessi sprengja, sem Alfreð hefur
kastað inn í stjórnmálin nú á
haustdögum, verði til þess að
hreyfa svo við framsóknarmönnum
að hreyfing komist á þessi mál öll-
sömul. Hann segir að vel megi vera
að þessar linnulausu árásir Sjálf-
stæðisflokksins á Reykjavíkurlist-
ann verði til þess að framsóknar-
menn hugsi sinn gang varðandi
stjórnarsamstarfið. Við þetta bæt-
ast svo allmörg mál sem deilt er
um innan ríkisstjórnarinnar sem
gætu orðið til þess að trosnaði enn
frekar en þegar er orðið í stjórnar-
samstarfinu.
Styrjöld við R-listann
„Ég skil vel reiði framsóknar-