Dagur - 16.09.2000, Page 6

Dagur - 16.09.2000, Page 6
30-LAUGARDAGVK 16. SEPTEMBER 2000 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: elías snæland jónsson Aöstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu si, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6ioo OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 KR. A mAnuði Lausasöluverð: íso kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Netföng auglýsingadeildar: karen@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is Símar auglýsingadeildar: CREYKJAVÍK)563-i 615 Aniundi Amundason (REYKJAVÍKJ563-1642 Gestur Páll Reyniss. (AKUREYRIJ460-6192 Karen Grétarsdóttir. Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símbréf ritstjórnar: 460 617i(akureyri) 551 6270 (REYKJAVÍK) Byggdatillögur í fyrsta lagi Það er nokkuð augljóst að Framsóknarflokkurin hyggst skapa sér pólitíska vígstöðu á fleiri sviðum en í Evrópumálunum. Byggðamálin virðast eiga að verða annar aðalhornsteinn flokksins £ stjórnmálaumræðu næstu missera. Þannig kemur það saman að ungir framsóknarmenn senda frá sér harðorðar ályktanir um árangur Davíðs Oddssonar í starfi byggðaráð- herra og Kristinn H. Gunnarsson þingflokksformaður fram- sóknar og stjórnarformaður Byggðastofnunar fæst til að viðra róttækar hugmyndir sínar um róttæka uppstokkun á Byggða- stofnun sem slíkri og í raun á byggðaáherslum stjórnvalda í leiðinni. í öðru lagi Engin ástæða er til að ætla annað en þær hugmyndir sem Kristinn H. viðraði í Degi í gær séu í raun hugmyndir forustu Framsóknarflokksins og að í þær hafi verið lög talsverð vinna og umræða innan flokksins. Þær lúta í fyrsta lagi að innra starfi stofnunarinnar og í öðru lagi að því að stórefla stofnun- ina og gera hana að áhrifameiri þátttakanda í atvinnu og sam- félagsuppbyggingu út um land. Hvað fyrri þáttinn varðar, virð- ist bundinn mildl von við stefnumörkunarhlutverk stofnunar- innar. Það er auðvitað gott og blessað, en erfitt er að sjá að sá hluti hugmyndanna boði mikla byltingu frá því sem nú er. Iþriðjalagi Sá hluti hugmyndanna, sem snýr að samstarfi og samþætdngu Byggðastofnunar og annara opinberra stofnana og sjóða eru hins vegar mjög áhugaverðar. I gegnum slíkan samruna eða samstarf væri hugsanlega hægt að ná upp þeim slagkrafti og því valdi sem gæti gert gæfumuninn. Utfærslan yrði hins veg- ar vandasöm og eflaust á köflum umdeild. Mikilvægt er líka að gæta þess að þó menn skapi öflugri tæki til aðstýra þróuninni í ákveðna átt, þá má hún ekki verða óeðlilega þvinguð. Utspil Kristins er því spor í rétta átt og góður grunnur fyrir frekari umræðu um málið. Birgir Guðmnndsson Islandi aJlt! í gærmorgun var Garri með verk í hægra hlaupafætinum og fann til eymsla í vinstra eyra, eyranu sem hann snéri einmitt alltaf að ræsinum á héraðsmótunum í gamla daga þar sem Garri rann árum saman skeiðin tvenn og þrenn, allt frá 100 og upp í 10.000 metra. Líkast til eru stöðugir hvellirnir í startbyss- unni höfuðorsök 30% heyrn- artregðu í vinstra eyra Garra og spurning hvort hann á ekki skaðabótakröfu á UMFI vegna þessa, en það er nú önnur saga. En sem sagt, Gárra leið illa víða í gær- morgun og laumaðist því heim svo lítið bar á til að láta sér lfða bet- ur. Og til að hafa ein- hvern félagsskap þegar heim var komið, því maður er jú manns gaman, kveikti hann á sjónvarpinu og þar var margt um manninn því í kringum 200 þjóðir voru í þeim svifum að þramma inn á olympíuleik- vanginn í Sydney að sögn Samúels Arnar. Hestar á sterum? Þetta var forvitnilegt áhorfun- ar. Þarna var mikið af ungu og spengilegu fólki með forljóta hatta og önnur höfuðföt enn síðri og bros á vör. Meira kom á óvart hvað mikið var um feitlagna miðaldra karla hjá flestum þjóðum og prýðilega þrýstnar kvinnur einnig. Lík- ast til hafa karlarnir verið far- arstjórar og konurnar sleggju- ellegar kúluvarparar. Og Sammi tuðaði og tilnelndi flesta þá sem hann taldi lík- lega til að vinna til verðlauna á leikunum og spáði mikið og spökuleraði í því. En Garra var annað ofar í huga. Hann var alltaf að velta því f)rrir sér hvort þessi eða hinn væri á sterum eða öðrum árangursbætandi efn- um. Skyldu 70, 80 eða 90% af þessu glæsilega unga fólki vera á sterum?, hugsaði hann. Er hugsanlegt að jafnvel hest- urinn sem fánaberi Bermuda ætlar að ríða á leikunum sé á einhverjum kolólöglegum súper-höfrum? Eru kannski einhver forboðin fjölmúlavíl falin í fótabúnaði margra keppenda sem gerir þeim hægara um vik að hlau- pa hraðar og stökkva hærra? Er einhver kepp- enda frá Jómfrúreyjum ennþá jómfrú? Er þetta allt kannski bara svínarí og svindl frá upphafi til enda? Ungmeiuiafélagsandiim Þannig hugsaði hinn nei- kvæði og svartsýni Garri í gærmorgun. Eða allt þar til Ungverjarnir hurfu af skerm- inum og íslenska sveitin þrammaði léttstíg og glaðbeitt inn á leikvanginn. Þarna var augljóslega allt með felldu. Þarna gekk Ioksins inn ung- mennafélagsandinn holdi klæddur. Þarna voru aungvir sterar með í farteskinu, engin brögð í tafli og engar barba- brellur í skónum. Þetta fólk var mætt á staðinn útbelgt af harðfiski og hákarlalýsi, mætt til þess að tapa með sæmd en ekki til að sigra með svikum og svindli. Þarna voru raun- verulega á ferð heilbrigðar sálir í hraustum lfkömum. Og Garri tekur undir orð hins vitra Salómons, fyrirgef- iði Samúel: „Islenska sveitin er nú fyrir miðjum velli og ber sig glæsilega og Guðrún fer fyrir þeim myndarlega". íslandi allt! -GARRI Lostamidlun er lausnin Landsbyggðar-miðlun er farin á hausinn og sýnist sem lítil þörf hafi verið á þeirri fjarmiðlun, eða fjarvinnslu, eða hvað þetta er allt kallað og lítil verkefni hafi feng- ist til að halda starfseminni gangandi. Reykjavíkurforstjóri og sveitarstjórar kenna hverjir öðrum um og einhverjir aurar hafa farið í vaskinn. Milklar vonir voru bundnar við tjarmiðlunina til atvinnuupp- byggingar, sem er töfraorð allrar byggðastefnu. Þorpastjórar fá stjörnur í augun þegar einhverj- um dettur í hug að búa til nokk- ur störf í verstöðum sem kvóti og tækni eru löngu búin að úrelda þótt seinþroska pólitíkusar hafi aldrei af því f’rétt. I fisklausum útgerðarplássum þykir því tilvalið að koma upp fjarvinnslu þar sem samskipta- tæknin er orðin helsta atvinnu- grein nútfmans og vaxtarbroddur allra framfara. En það fer íljótíega tins vrir fjarmiðlunarfýrirtækjum eins og fiskvinnslunni, sem allt mannlíf byggðist á forðum. Vinnslustöðv- arnar fengu engan fisk og um skeið var atvinnu haldið uppi með byggingu félagslegra íbúða og þegar þvf blómaskeiði lauk varð fátt til bjargar. Svo fer eins fyrir fjarmiðlunarfyrirtækjum og frysti- húsunum, verkefnin skortir. Fnunkvæði Nú kennir hver öðrum um verk- efnaskortinn og eru litlar hug- myndir uppi um hvernig bæta á úr. En í Reykjavík blómstrar fjar- vinnslan sem aldrei fýrr og úrræðagóðir menn og konur stofna hvert fyrirtækið af öðru og græða á tá og fingri. Dreifbýlismiðlunin gæti vel náð sér í væna sneið af kökunni með dálítili röggsemi. Til að mynda er ein arðbærasta tegund fjarmiðlunar lostafull símasam- töl. Arsvelta þeirra fyrirtækja sem veita þá þjónustu er talin í milljöðrum króna. Daglegar heil- sfðuauglýsingar og viðamiklar auglýsingar í sjónvarpi sýna að þetta er atvinnugrein sem borgar sig vel. Það er algjör óþarfi að láta Reykvíkinga eina sitja að þessum arðbæra atvinnuvegi og þeir geta meira að segja halað sér inn peninga úr strjálbýlinu með því einu að Idæm- ast við einmana karla, sem hafa misst allt kvenfólk byggðarlags- ins suður. Arðbær draumaveröld Ekki sýnist verkefnaskorturinn hamla atvinnugreínínni og gæti dreifbýfismiðlunin alveg eins gert það gott a þessum vettvangi. Kvenfólkið í plássunum er áreið- anlega ekkert síður fært um að leiða karla „inn í lostafulla draumaveröld", eins og heitið er í auglýsingum, en dömurnar fýr- ir sunnan, sem starfa við marg- miðlunina. Frumkvæði er eitt af tískuorð- um viðskiptalífsins, enda þýðir Iítið að stofna fyrirtæki og bíða eftir viðskiptum. Það verður að bera sig eftir þeim. Farið er að veina eftir opinberum viðskipt- um hjá dreifbýlismiðlun, sem aldrei verður fugl né fiskur. En lostabarnsinn stendur öllum op- inn og kvað gefa vel af sér. Lostamiðlun er sjálfsagt ekkert verri atvinna en hver önnur og þar má finna „atvinnutækifæri“ með svolítilli atorku og frum- kvæði. Og stofnun slíks fyrirtæk- is er síst meira niðurlægjandi en að jarma eftir opinberri aðstoð og gelur orðið „drífkraftur at- vinnutækifæranna", þar sem fjarmiðlunargræurnar eru þegar fyrir hendi. LANDS SÍMINN Síminrt er gróðafyrirtæki. ro^ftr Hverjar verða lyktimar í úrvalsdeildinni í knatt- spymu? (KR og Fylkir berjast um Is- landsmeistaratitilinn, en Fram, Stjarnan og Breiðablik þurfa að verjast falli í I. deild.) Þorvaldur Örlygsson, þjálfari KA. „Af því sem ég hef séð að und- anförnu þá eru KR og Stjarnan þau lið sem hafa verið í bestu formi. Því vænti ég þess að KR-ingum takist að ná í íslandsmeistartitilinn annað árið í röð. Breiðablik og Fram eru bæði að berjast á botninum og þar veðja ég á Blikana, því þeir hafa verið ferskari en Fram- arar í síðustu leikjum. Engu að síður þykir mér sárt að sjá á eftir Fram niður í 1. deild, en einhver verður jú að falla.“ Ama Steinsen, íþróttahennari og KRingur. „Eg trúi því að KR-ingum takist að klára þetta verkefni og ná titlinum, enda er þetta reynslumik- ið og vel skipað lið. Lokatölur leiksins við KR verða þrjú mörk gegn einu. I botnbaráttunni býst ég við að Stjarnan falli niður um deild, því Frömurum tekst að ná jafntefli við Breiðablik. Eg er ekkert endi- Iega viss um að Fylkismenn sigri Skagann, það sýndi sig í leik Fylkismanna gegn Grindavík á dögunum að þeir þola illa þá pressu sem á þcim hefur verið, sem kannski er líka skiljanlegt." Þröstiir F.milsson, ritstjóri ogKR-ingur. „I rauninni er óþarfi að svara þessu. KR-ingar verða Islands- meistarar klukk- an 15:47 í dag. Hins vegar verð- ur þessi leikur við Stjörnuna erf- iður, mfnir menn sigra þetta með einu marki gegn engu eða þá tveimur mörkum gegn einu. A botninum verður ekki síður barist, og ég er ansi hræddur um að Framarar fari niður í 1. deild, á eftir Leiftri. Það ljótt að segja þetta, en ég óttast að raunin verði einmitt þessi.“ | ' J Haraldur Haraldsson, forstjóri og Fylkismaður. „Okkur Fylkis- mönnum tekst að vinna Ieikinn gegn Akurnesing- um með þremur mörkum gegn einu og þannig verðum við Islandsmeistarar. Ekld þar fyrir utan að við Fylkis- menn eigum inni unninn leik, eftir að Grindvíkingar þegar þeir skoruðu mark með því að koma boltanum inn í netið með hendi. Svona á hvergi að liðast meðal siðmenntaðs fólks."

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.