Dagur - 16.09.2000, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2 0 00 - 35
ERLENDARFRÉTTIR
Obasjano forseti er kristinn maður frá suðurhluta landsins.
Kristnir menn óttast að
islömsk lög kljiifi Nigeríu
Múslimar í mörguin
fylkjum í noðurhluta
landsins hafa tekið
upp lög Kóranins og
hlýta ekki landslög-
um.
Nigeria er fjölmennasta ríki Afr-
íku og skiptast íbúarnir í 250
þjóðflokka. Er mannlífið því fjöl-
breytt og fólkið sundurleitt.
Landinu er skipt í fylki og í stór-
um dráttum eru íbúar í norður-
fylkjunum múslimar en kristnir
mcnn búa í syðri hlutanum. Þó
blandast trúarbrögðin meira og
minna um allt landið. Olíuríku
svæðin eru í sunnanverðu land-
inu og þar eru lífskjörin yfirleitt
betri en norðan til. Þetta er mjög
gróf skilgreining á landsháttum
og mannlífi en yfirleitt má segja
að í Nigeríu búi margar þjóðir
með sameiginlegt þjóðþing og
forseta, en fylkin hafa umtals-
verða sjálfstjórn.
Sem stendur er borgaraleg
stjórn í landinu, sem löngum hef-
ur búið við herforingjastjórn, sem
veigrar sér við að beita harð-
neskjulegum aðferðum í stjórnar-
störfum. En hætta steðjar að
samheldni landsmanna þar sem
nokkur fylki sem lúta stjórn mús-
lima, eða þar sem þcir eru í mikl-
um meirihluta hafa gert sharia að
landslögum, en sharia eru lög
sem byggð eru á Kóraninum og
samrýmast illa ýmsum ákvæðum
þeirra laga sem byggja á lýðræði
og mannréttindum.
Síðan í október í fyrra hafa átta
fylki í norðurhluta Nigeríu tekið
upp sharia og fleiri munu breyta
löggjöfinni innan tíðar. Breyting-
arnar hafa kostað hundruð
mannslífa og vafasamt er hvort
Nigería getur státað af því að vera
lýðræðisríki á framabraut ef held-
ur sem horfir.
Kristnir Nigeríumenn eru ótta-
slegnir og víða flýja þeir heimili
sín og skilja eigur sínar eftir og
bendir margt til að landið sé að
skiptast eftir trúarbrögðum.
Sharia bannar konum að vinna
utan heimilis eða aka í sömu
strætisvögnum og öðrum farar-
tækjum og karlmenn. Viðurlög
við þjófnaði eru að hendur eru
höggnar af þeim sem stela og
hýðingar eru refsingar við öðrum
glæpum. Námsskrá skóla miðast
við kenningar Kóranins og trúna
á Islam. Kristnum foreklrum er
bent á að þeir geti sent hörn sín í
einkaskóla og verða þá að greiða
allan kostnað af náminu.
Hluti af þessum breytingum
mun vera sú að norðanmenn vilja
fá meiri hlut af olíugróðanum til
sín en þeir telja sig fá nú. Þeir
svartsýnu spá að það geti komið
til svipaðra átaka og hófust 1967.,
þegar Iboar börðust fyrir sjálf-
stæði og var kallað Biafrastríðið.
Þá féllu um milljón manns.
Eins og rnenn muna áttu ís-
lenskir menn nokkurn þátt í þeim
átökum, aðallega ilugmenn og
stofnað var sérstakt flugfélag til
að flytja Biaframönnum birgðir.
Flestir af leiðtogum hersins eru
frá hinum fátæku norðurhéröð-
um og munu menn þar treysta á
að þeir styðji þá til áhrifa í suður-
hlutanum.
Obasjano forseti er kristinn
maður frá suðurhluta landsins.
Lagt hefur verið að honum að
taka í taumana og hanna að is-
lömsk lög gildi í landinu cða
nokkrum hluta þess. Hann neitar
og segist óttast að ef farið verið að
beita múslima hörku og hanna
sharia muni það einungis verða
til að hclla olíu á eld og geti leitt
til nýrrar og blóðugrar horgara-
styrjaldar. Hann telur að sharia
muni renna út í sandinn með tíð
og tíma og eðlilegt stjórnarfar
komast á í ríkinu. Vonandi verður
honum að ósk sinni.
ITMmHiTFCTI
Ólympíuleikamir settir
SYDNEY, - Setningarathöfn
ólymíuleikanna fór fram í
Sydney í Ástralíu í gær og þótti
það bera vott um tilraunir til
þjóðarsáttar í Ástralíu að það
var íþróttamaður úr hópi frum-
byggja sem fenginn var til að
kveikja sjálfan ólympíueldinn.
Opnunarathöfnin þótti einhver
sú skrautlegasta sem um getur
og þar var gert mikið úr því að
sýna fjölbreytileika Ástralíu,
bæði menningarlegan, land-
fræðilegan og kynþáttalegan.
Kyndilberinn sem kveikti eld-
inn heitir Kathy Freeman og er
hún heimsmeistari í 400 metra
hlaupi og talin munu hlanda
sér í baráttuna um gullið á
olympíuleikunum nú. Ólympíueldurinn logar í stórum járnskál sem
er við gríðarmikinn gosbrunn eða foss og það tók talsverðan tíma fyr-
ir eldinn að ná sér á strik í gærmorgun, þannig að bæði Freeman og
áhorfendur á olympíuleikvanginum, sem voru 1 10 þúsund talsisns,
biðu í miklum spenningi eftir því að eldurinn kviknaði. Allt í allt tók
það eldinn um 3 mínútur að kvikna og máttu aðstandendur leikana
þar þakka fyrir snör handtök verkfræðinga og vélvirkja sem löguðu
það sem úrskeiðis hafði farið.
Mðtmæli í fleiri ríkjum
BARCELONA, - Á sama tíma og Bretland og Belgía eru að ná sér eft-
ir lamandi áhrif mótmæla gegn háu eldsneytisverði, en í þessum
löndum eru mótmælin í rénun, hafa mótmælendur á Spáni, Irlandi
og Póllandi nú farið út á göturnar. Bílalestir spænskra vöru- og flutn-
ingabfla og bílar sem bændur voru á sameinuðust í því að aka hægt
á aðalhringveginum um Barcelona í gær. Svipaðar aðgerðir voru svo
hafnar í öðrum horgum. Enn aðrir mótmælendur voru að búa sig
undir mótmælastöður í borginni Segovia, en þar á að fara fram leið-
togafundur hins spænska forsætisráðherra, Jose Maria Aznar og hins
þýska Gerhards Schröeder.
Chemobyl lokað
PARIS - Leonid Kuchma forseti Úkraínu staðfesti í gær að ákveðið
hafi verið að loka endanlega þeim hlutum kjarnorkuversins í Cherno-
byl sem enn eru í notkun, en þar var sem kunnugt er eitt mesta
kjarnorkuslys sögunnar árið 1986. „Þetta er pólitísk ákvörðun og
verður jafnframt sögulegur atburður sem ég híð ykkur hlaðamönnum
að koma til að fylgjast með,“ sagði forsetinn í gær þar sem hann var
staddur í Frakklandi.
Kókaín í Seðlahankanum
CARACAS - Eiturlyfjaverslunin í Rómönsku Ameríku á sér lítil tak-
mörk og í vikunni náði hún inn í Seðalbankann í Venesúela. Gæslu-
menn gjaldeyrisforða landsins sem geymdur er í traustm hankahvelf-
ingum fengu þá óvenjulega sendingu, sem samanstóð af 130 kílóum
af hreinu kókaíni. ér var þó ekkert ólöglegt á ferð, heldur vildi ríkis-
saksóknari landsins finna einhvern öruggan stað til að geyma þetta
góss því lögreglan var húin að fylla allar sínar geymslur. Samkvæml
lögum í Venesúela má ekki eyða haldlögðum fíkniefnum fyrr en
rannsókn mála er lokið, og er það skýringin á því hversu mikið magn
safnast fyrir af þessum efnum.
Cathy Freeman, ástralski frumbygg-
inn sem kveikti ólympíueldinn í ár.
■ FRÁ DEGI TIL DflGS
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER
260. dagur ársins, 106 dagar eftir.
Sólris kl. 6.54, sólarlag kl. 19.49.
Þau fæddust 16. sept.
• 1638 Lúðvík fjórtándi, konungur Frakk-
lands.
• 1823 Mikael III., prins af Serbíu sem
ríkti 1839-42 og aftur 1860-68.
• 1923 Lee Kuan Yew, sem var forsætis-
ráðherra í Singapore 1959-90.
• 1924 Lauren Bacall, bandarísk leik-
kona.
• 1925 B.B. King, bandarískur blúsgítar-
Ieikari.
• 1939 Breyten Breytenbach, suður-
afrískur rithöfundur.
• 1956 Mickey Rourke, bandarískur leik-
ari.
Þetta gerðist 16. sept.
• 1810 var Mexíkó lýst sjálfstætt ríki, en
blóðugt stríð ríkti næstu 12 árin uns
Mexíkó varð í raun Iaust undan afskipt-
um Spánverja.
• 1936 strandaði franska hafrannsóknar-
skipið Pourquoi pas? í fárviðri við Mýr-
ar.
• 1963 var Malasíuríki formlega stofnað.
• 1974 tilkynnti Gerald Ford Bandaríkja-
forseti að liðhlaupar úr Víetnamstríðinu
og þeir sem sinntu ekki köllun í herinn
fengju dóm.
• 1977 lést gríska óperustjarnan María
Callas í París, 53 ára gömul.
Vísa dagsins
Maður gengur,
s\’o lengi seni lifir,
hvorki er vegur
undir né yfir.
Guðfinna Jónsdótlir frá Hömrum
Afmælisham dagsins
Omar Þorfinnur Ragnarsson sjónvarps-
maður og skemmtikraftur er sextugur í
dag. Ómar er landskunnur lýrir söng og
sprell fyrr á tímum og líflegan frétta-
flutning og sjónvarpsþætti sína á seinni
árum. Hann var skemmtikraftur að að-
alstarfi 1962-69 en réðst til sjónvarps-
ins sem íþróttafréttamaður árið 1969.
Auk þessara starfa lauk hann atvinnu-
flugmannsprófi árið 1967 og hefur not-
að það óspart í þágu sjónvarpsins. Hann
hefur einnig keppt í akstursíþróttum
meö góðum árangri.
Enginn er hamingjusamur án einhvers
konar blekkingar. Blekkingar eru jafn
nauðsynlegar fyrir hamingju okkar og raun-
veruleikinn.
Christian Nestoll Bovee, liandarískur rithöfundur.
Heflahrot
Hvers vegna borða Islendingar meira en
Færeyingar?
Lausn á síðustu gátu: Bæði „fimmtán" og
„fimmtíu" cru sjö stafa orð, með þeim sér-
kennum að ef þrír stafir cru teknir burt
verða „fimm“ eftir.
Veffang
Margt forvitnilegt er að finna um sögu vís-
indanna á breska Vísindasafninu:
www.sciencemuseum.org.uk/