Dagur - 14.10.2000, Qupperneq 1

Dagur - 14.10.2000, Qupperneq 1
F ækkun st arfsfolks bitnar á kommum Konur á miðjiun aldri eru um það bil 80% aí starfsmönnum útibúa bankanna sem eru í bættu að missa vinn- una. Formaður Sam- bands íslenskra bankamanna segir að tal iini að vextir lækki með stækkun banka sé bull. Það hafi hver- gi gerst í nágranna- löndum okkar. „I útibúum Landsbanka og Bún- aðarbanka, bæði á höfuðborgar- svæðinu og út á landi, eru konur í miklum meirihluta starfs- manna eða allt að 80%. Víða er það þannig að útibústjórinn er karlmaður en allir hinir starfs- mennirnir konur. Þetta eru gjarnan konur á aldrinu 45-65 ára sem hafa gert bankastörf að ævistarfi sínu og eru því með langan starfsaldur. Það eru ein- mitt þessar konur sem eru í mestri hættu að missa atvinnuna við samruna rík- isbankana. Við hjá Sambandi ís- lenskra banka- manna munum gera það að al- geru forgangs- verkefni að verja hagsmuni þess- ara kvenna þegar kemur að sam- einingu bank- anna og fækkun starfsfólks,“ sagði Friðbert Traustason, for- maður Sam- bands íslenskra bankamanna, í samtali við Dag í gær. Friðberl, Kristínu Guðbjörns- dóttur, formanni Starfsmannafé- lags Landsbankans og Þorsteini Þorbergssyni, formanni Starfs- mannafélags Búnaðarbankans var tilkynnt um ákvörðun ríkis- stjórnarinnar um samruna bank- ana á sérstökum fundi með við- skiptaráðherra í gærmorgun. Bull að vextir lækki Kristín Guð- björnsdóttir sagði eftir þann fund að það væri svo sem ósköp lítið sem hún gæti sagt um málið. Fólk stæði frammi fyrir gerðum hlut og gæti ekkert annað gert en að bíða og sjá hverju fram vindur. Hún tók f'ull- komlega undir með Friðbert Traustasyni um að verja yrði konurnar sem störfuðu í útibú- unum og hefðu gert bankastörf að ævistarfi. Þær væru nær allar á miðjum aldri og ættu ekki auð- velt með að fara í önnur störf ef þeim verður sagt upp. Friðbert Traustason sagði að það væri reynslan frá samein- ingu banka í nágrannalöndunum að sú hagræðing sem af því átti að hljótast hefði ekki skilað sér í lægri vöxtum eða ódýrari þjón- ustu fyrir almenning. Nefndi hann í því sambandi sameiningu sparisjóðanna í Svíþjóð í stóran banka, Sparbankan. Hann rann svo saman við Föreningsbanken. Starfsfólki þeirra var fækkað úr 13.000 í 1 1.000 á tveimur árum. Vextir og þjónustugjöld hefðu ekki lækkað. „Það er farið af stað með að það eigi að hagræða, ná fram ódýrari rekstri, auka hag hluthaf- anna og lækka kostnað til neyt- enda. Þetta hel’ur alls staðar mis- tekist. Það sem útaf stendur er að fjármálamenn eru að taka sér stöðu. Menn hugsa svona banka- samruna fyrst og fremst út frá því að styrkja stöðu sinna fyrir- tækja á markaðnum. Þetta er eins og stöðubarátta á skákborði. Að fullyrða það að vextir lækki með stærri bönkum er hreint bull. Það hefur ekki gerst," segir Friðbert Traustason. - S.DÓR Sjá einnig blaðstðu 29 Úrói er meðal starfsmanna vegna samruna ríkisbankanna. Misiiolkuii fer vaxandi Sú skoðun er almenn að mis- notkun á erlendu vinnuafli sé að aukast hér á landi. Það er að minnsta kosti niðurstaða at- kvæðagreiðslu um spurningu Dags á Netinu. Dagur spurði: Hefur misnotk- un á erlendu vinnualli færst í aukana á Islandi? Mikill meiri- hluti, eða 72% svöruðu spurning- unni játandi, en 28% töldu að slík misnotkun hefði ckki farið í vöxt. Nú er hægt að greiða atkvæði um nýja spurningu Dags á vefn- um, en hún hljóðar svo: Getur fækkun banka aukið samkeppni og þjónustu? Spurt er í tilefni af ákvörðun ríkisstjórnarinnar um sameiningu ríkisbankanna. Slóðin er sem fyrr: visir.is Wmi ? -d ■ ':■■■ ■ IföiÉ Éfe:, :’mw Halldór Björnsson tekur við hamingjuóskum félaga sinna eftir að hann var í gær kjörinn formaður hins nýja Starfsgreinasambands íslands. Halldór hafði ætlað að draga sig í hlé frá félagsstörfum í verkalýðshreyfingunni en varð að láta undan þrýstingi félaga sinna. Hann gæti því tekið undir með Stuðmönnum sem sungu: „Það er engin leið að hætta." Sjá einnig bls. 26 Tryggingastofnun sendi um 700 ís- lendingum búsettum erlendis bæt- ur í fyrra. Ellilífeyrisþegum ytra hefur fjölgað um 83% á þremur árum og öryrkjum um 40%. Lífeyris- f>gar flytiaur íandi íslenskir öryrkjar og ellilífeyris- þegar virðast í auknum mæli taka sig upp og flylja til útlanda. Nær 500 lífeyrisþegar voru bú- settir ytra á sfðasta ári og hafði þá fjölgað um 21% Irá árinu áður og 62% á síðustu þremur árum, samkvæmt nýjum tölum Trygg- ingastofnunar ríkisins. Lang- flestir hafa sest að á hinum Norðurlöndunum, aðallega Dan- mörku og Svíþjóð. Um 2,3% ís- lenskra öryrkja (nær 1 af hverj- um 40) eru nú búsettir í útlönd- um og um 1,1% allra ellilífeyris- þega. Greiðslur Trygginga- stofnunar til þessara hópa námu rösklega 142 milljónum í fyrra. En að viðbættum örorkustyrkj- um, barnalífeyri og fæðingaror- lofi námu greiðslur stofnunar- innar til útlanda nær 200 millj- ónum króna í fyrra. Yfir 80 lífeyrisþegar fluttu úr landi i fyrra Ororkulífeyrisþegum erlendis fjölgaði hlutfallslega mest í fy'rra, um rúman fjórðung eða úr 159 upp í 200 manns og helmingur þeirrar fjölgunar er í Danmörku. Ellilffeyrisþegum Ijölgaði úr 233 upp í 273, hvar af um 40% sett- ust að utan Norðurlandanna (kannski í suðrænni löndum), en sá hópur hefur stækkað hlut- fallslega hratt á síðustu árum. Aftur á móti hefur hópur ör- orkustyrkþega erlendis verið nokkuð svipaður síðustu fjögur ár (milli 30 og 40) og barnalíf- eyrisþegar líka, nema í lýrra þeg- ar þeim fjölgaði heldur (90). Fæðingarorlof greiddi Trygginga- stofnun í fyrra til 1 12 einstak- linga búsettra crlendis, næstum helmingi færri fjórum árum áður. - HEl Fóstur- eyðingiun fjölgar bls. 32-33 HHHHHHHHHHHHHHHHHBHI OUufélögin hafa alveg sjálfdænu bls. 34 Guimar baunar á Sverri bls. 28

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.