Dagur - 14.10.2000, Page 4

Dagur - 14.10.2000, Page 4
r 28-LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2000 FRÉTTIR Sverrir sakaður um siðferðisbrest Sverrir Hermannsson á nú i deilum við Gunnar Inga Gunnarsson en segist ekki viija tjá sig einu orði um ásakanir fyrrum varaformanns. Varaformaður segir af sér. Úr miðstjóm. Siðferði misboðið ítrekað. Tengist fjármálum flokksms. Sverrir segir ekki orð. Gunnar Jngi Gunnarsson varaþing- maður Frjálslynda flokksins í Reykjavík hefur sagt af sér sem varaformaður flokksins og einnig sæti sínu í mið- stjórn. Hann mun þó vcrða áfram í flokknum og gegna stöðu sinni sem varaþingmaður. Hann segir að ástæðan fyrir afsögn sinni sé að Sverrir Her- mannsson formaður floldisins hafi ít- rekað misboðið siðferðisvitund sinni með fjármál flokkksins. Hann vill þó ekki að svo stöddu tjá sig efnislega um málið. Sverrir segist ekki vilja tjá sig einu orði um ásakanir fyrrum varafor- FR É T TA VIÐTALIÐ manns að öðru leyti en því að Guðjón A. Kristjánsson þingmaður flokksins á Vestfjörðum verður starfandi varafor- maður þar til landsfundur ákveður annað. Traust og trúnaður í burtu Fráfarandi varaformaður segir að þetta mál snúist um samskipti sfn og Sverris sem hann segir að hafi ekki verið sem skyldi. Hann segir að Sverrir virðist brúka þess konar reglur í siðferði sem passa alls ekki við sínar. Að sögn Gunnars tengist þetta Jý’rst og fremst Ijármálum flokksins og gerræði for- mannsins. Hann segir að þetta geri sér auðveldara en áður að skilja hvers vegna Sverrir lenti í ó^öngum sem bankastjóri Landsbanka Islands. Hann segist þó ekki vilja tjá sig frekar efnis- lega um málið og m.a. vegna þess að hann á eftir að gera grein fyrir afstöðu sinni gagnvart ýmsum félögum sínum. Gunnar Ingi segir að þarna sé ekki um eitthvert eitt atriði að ræða sem sprett- ur upp í skyndingu heldur sé þarna um að ræða endurtekið efni í samskiptum þeirra. Fyrir vikið sé allur trúnaður og traust á milli hans og Sverris fyrir bf. Þar af leiðandi sé þetta einkum um persónuna Sverri, siðferði og samskipti við hann en hafi ekkert með pólitík að gera. Áfram varaþinjjiiiaður Hann segist þó áfram starfa sem vara- þingmaður vegna þess að hann telur sig hafa töluverðar skyldur og ábyrgð gagnvart kjósendum og þeim stefnu- málum sem flokkurinn hefur staðið fyrir. Engu að síður segist hann leggja það í hendur Sverris að gera grein fyr- ir þessu máli gagnvart kjósendum flokksins ef hann treystir sér til þess. Gunnar Ingi segir að ef hann þurfi að ræða málið efnislega þá muni hann fyrst snúa sér til umbjóðenda sinna og samstarfsmanna sinna. - GRH .D^ur A stofnfundi Starfs- greinasambandsins sýndi Pétur Sigurðsson formað- ur Verkalýðsfélagsins Baldurs að verkalýðsfor- ingjar kunna ýmislegt fyrir sér til að ná atliygli manna, þótt skiptar skoðanir séu um það livað það hefur skilað í buddu verkafólks. Á fundin- um vakti hann óskipta athygli fyrir leikræna tilburði fyrir framan sjón- varpsmyndavélar þegar hann ræddi um það hversu mörg og brýn verkefni séu framundan hjá nýja samhandinu. Til að leggja áherslu á orð sín Mæddi hann sig úr jakkanum, bretti upp ermarnar með þeim ummælum að nú sé tími til að láta verMn tala. Aö hætti unnendra góðra leikhúsverka fagnaði salurmn mjögþcssum tilþrifum leiótoga vestfirsMar alþýðu... Pétur Sigurðsson. Svo virðist sein draugar fortíðar muni elta hið nýja Starfsgreina- samband um eitthvert skeiö. Það er því álitamál hvenær memi ná að kveóa þá drauga niður þrátt íyrir hástemmdar yfirlýsingar um að þar ríM sátt og miMll kærlcikur meðal manna. í það iniimsta vekur þaö athygli í 35 miljón Móna fjárhagsáætlun sambandsins íýrir næsta ár cr gert ráð fýrir 5 miljónum króna í annan kostnað. Innifalið í þess- um kostnaði er m.a. kostnaður vegna starfsloka- samnings Bjöms Grétars Sveinssonar fyrrverandi formanns VMSÍ. Sem kunnugt er þá varð allt vit- laust út af þehn samningi í sumar... Björn Grétar Sveinsson. Bankamálin eru enn til umræðu í heitapottinum og sýnist sitt hverj- um. Úr röðum framsóknarmanna heyrast nú áhyggjufullar raddir vegna þcss að orðrómurinn um að þeir Halldór Kristjánsson úr Lands banka og Sólon Sigurðsson úr Bún- aðarbanka verði settir yfir nýja bankann. Þeir eru nefnilega báðir sjálfstæðis- mcmi og þyMr frömmurum það aumt ef slík lend- ing kæmi í málið... V_____________- Sólon Sigurðsson. Þorfinnur Ómarsson framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs. íslenskkvikmyndagerð tief- urslitiðbamsskónum. Gæði bíómyndafara vaxandi og skilningurá þýðingu þessa iðnaðarhefur aldrei verð meiri. Aldrei bjartara yfir kvikmyadagerð - Stórleikarinn Harrison Ford á leiðinni hingað, Björk slær í gegn, Totnh Raider nýlir sér landslagið við Vatnajökul, er Is- land í tisku sem aldrei j-yrr? „Þetta er a.m.k. forsmekkurinn að því sem koma skal. Við finnum þess merki að það sé heilmargt að gerast og það á vonandi enn eftir að vaxa.“ - Hvað dregur útlenska kvikmyndagerð- armenn helst hingað heim? „Sérstakt landslag í mörgum tilfellum eins og t.d. með Tomb Raider. Síðan hafa menn vonast til að nýju lögin um endur- greiðslu opni landið og geri það ákjósan- legra. Það munar ansi miklu ef við fáum hingað fólk á þeim forsendum. Landslagið er svolítið takmarkað sem aðdráttarafl eitt og sér.“ - Er það nauðsynleg gulrót að bjóða skatt- Jrtðindi eða aðra fyrirgreiðslu til áhuga- samra fjárfesta svo að ísland geti orðið Mekka kvikmyndagerðar, svo vitnað sé í orð fyrrverandi iðnaðarráðlterra? „Já. Með lögunum sem hann kom í gegn, en komið hefur í ljós að verður að breyta, held ég að hingað muni koma fólk sem ann- ars hefði ekki látið sjá sig. Hins vegar hafa menn áhyggjur af því að þessi prósenta [12%] sé heldur lág cn á það á eftir að reyna." - Hvernig stendur íslensk kvikmynda- gerð? „Hún stendur mjög vel. Viðbrögðin á myndirnar okkar bæði heima og erlendis eru núna þau bestu til þessa. Þrjár íslensk- ar myndir eru á toppnum yfir aðsóknar- mestu myndir þessa árs hérna og það hefur aldrei gerst áður. Ymsar milljónaþjóðir í Evrópu ná ekki þessu marki. Erlendis hafa myndir gengið betur en nokkru sinni. Það er búið að laga grundvöllinn miMð undanfarið. Kvikmyndasjóður hefur meira fé tíl ráðstöf- unar en fyrr og mun á næstu tveimur árum fá n.eira. Aðstæður hafa verið lagaðar ansi miMð og ásamt velgengninni þýðir það að við getum verið bjartsýnni en nokkru sinni fyrr. Það er líka gleðilegt að töluverð nýliðun er í gangi. Ungir menn eru að koma inn sbr. Fíaskó, íslenska drauminn og 101 Reykja- vík. Væntanlegar eru myndirnir Villiljós og Gemsar og þarna koma þvf í röð fimm myndir frá ungum mönnum og það er mik- ilvægt að hópurinn sé fjölbreyttur og breið- ur.“ - Er tslensk kvikmyndagerð loks húin að slíta harnskónum? „Já, það er engin spurning. Það er bjartara yfír greininni en nokkru sinni lýrr í sögu þjóðarinnar. Það sem skiptir mestu máli er að það er verið að vinna á svo mörgum svið- um. Gerð bíómynda hefur verið efld á sama tíma og menn eru að bæta aðstöðumögu- leika fyrir heimildarmyndir, stuttmyndir og annað. Sjónvarpsstöðvar þurfa ekM lengur að borga 10% af auglýsingatekjum sínum f menningarsjóð, enda er búið að leggja hann niður. Það þýðir að þær munu hafa meira fé til ráðstöfunar og svo mun endurgreiðslufyr- irkomulagið bæta hag bæði innlendrar og er- lendrar kvikmyndaframleiðslu hér á landi. Það er sem sagt ákveðin heildarstefna í gangi og jregar hún fer saman við myndirnar sem eru að koma fram núna og njóta mikill- ar velgengni, gerast merkir hlutir." - BÞ

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.