Dagur - 11.11.2000, Blaðsíða 5

Dagur - 11.11.2000, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 11. NÓVF.MBER 2000 - 29 Tfc^ur. FRÉTTIR gagnvart fjölmiölum og láti í sér heyra. Konur fjölmiölafæln- ari en karlar. Dr. Sigrún Stefánsdóttir, fjöl- miðlafræðingur, er einn kennara á námskeiði sem nefnd um auk- in hlut kvenna í stjórnmálum stendur fyrir á Akureyri nú um helgina. I gær var upphafsfund- ur námskeiðsins og þá var jafn- framt kynntur bæklingur um samskipti stjórnmálakvenna við fjölmiðla. Sigrún Stefánsdóttir var innt eftir því hvort dræm þátttaka kvenna væri þjóðfélag- inu að kenna eða hvort konur ættu sjálfar sök á. „Þátttaka kvenna er smám saman að aukast, en það er enn langur vegur í land. Onnur Norðurlönd standa sig mun bet- ur, t.d. Svíar, svo betur má ef Frá fundi nefndar um aukinn htut kvenna í stjórnmálum á Akureyri í gær. duga skal. Ég hef tröllatrú á því að fjölmiðlar hafi mjög mikil áhrif þar á til góðs eða ills. Ef konur fara að vera sýnilegri í fjöl- miðlum þá styrkir það konur sem vilja fara í stjórnmál. Það er því verkefni þjóðfélagsins alls og sameiginlegt hagsmunamál að efla hlut kvenna,“ segir Sigrún. Hún telur að í ljósi þátttöku kvenna í háskólanámi, ætti auk- in þátttaka ekki að vera þeim fjötur um fót. En það að fara í stjórnmál sé þó meira en að segja það, t.d. fyrir konu sem er með stóra fjölskyldu. „Ég finn það á þessum nám- skeiðum að konur vita voðalega lítið um fjölmiðla. Mín reynsla sem fjölmiðlamanneskja var sú að það var miklu algengara að karlar hefðu frumkvæðið og létu í sér heyra. Það vefst enn fyrir konum að þær geti átt frum- kvæðið og að málið sé svolítið í þeirra eigin höndum. Það þýðir ekki að sitja úti í horni í fýlu og segja: „ég sést aldrei, það taiar Konur fjölmiðlafælnari en karlar Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmað- ur á Austurlandi, segir að því fari fjarri að búið sé að finna „patent- lausn" til að auka þátttöku kven- na í stjórnmálum. En verið sé að reyna að breyta hugarfarinu og því sé m.a. leitað til fjölmiðl- anna. „Við höfum verið að búa til lista yfir konur sem hafa vit á ákveðnum þáttum, hæði í við- skiptum, stjórnmálum, íþróttalífi o.fl. og fjölmiðlarnir geti gengið að þessum upplýsingum og nýtt betur þekkingu kvenna á tiltekn- um þáttum. Konur eru fjölmiðla- fælnari en karlar, þó kannski síð- ur konur sem eru í stjórnmálum, en við erum ekki duglegar að ásækja fjölmiðla með okkar efni,“ sagði Arnbjörg Sveinsdótt- ir. - GG Segir konur vita lítið um íj ölmiðla A námskeiði um efl- ingu stjómmála- kvenna kemur fram að konur vita lítið um fjölmiðla. Miklu algengara að karlar hafi frumkvæðið enginn við mig.“ En Ijölmiðlar þurfa að fá að vita hvað konur eru að bjástra við til þess að geta fjallað um það. En fjölmiðlafólk er oft í tímaþröng og má ekkert vera að því að dekstra konur til þess að koma í viðtal. Þannig verða karlar stundum hefð en konur falla út,“ sagði Sigrún Stefánsdóttir. Íslandssími ætlar að hasia sér völl í heimilissímum. Samkejjpiri í lieimasmium Islandssími er kominn í sam- keppni við Landssímann um alla almenna símaþjónustu heimil- anna. Talsmenn Islandssíma staðhæfa að neytendur geti sparað um 11% frá núverandi gjaldskrá, hvar sem er á landinu. Er þá ónefnd lækkun íslands- síma á sfmagjöldum vegna net- notkunar heimilanna en hún er frá 20%-60% að sögn Péturs Péturssonar, upplýsingafulltrúa Islandssíma. Pétur segir að samkvæmt gögnum frá vísitöludeild Hag- stofunnar hafi símakostnaður fjölskyldna hérlendis numið um 6 milljörðum á síðasta ári. Ný gjaldskrá Islandssíma gæti því sparað fjölskyldum í landinu allt að 500 milljónum króna á ári, kjósi þær að hefja viðskipti við Islandssíma. Við þessa útreikn- inga hafi verið tekið tillit til far- símanotkunar heimilanna og millilandasímtala, sem Islands- sími hóf að bjóða í marsmánuði. Rflásstjómm viil fá ÞmgvaUabæiim Forsætisráðherra sagði að Þingvallabærinn væri ekki heppilegur sem sumarhús fyrir forsætisráðherra. Davíð Oddsson sagði Þingvallahæinn óheppilegan sem sum- arhústað fyrir forsæt- isráðherra. Rflds- stjómin vill fá hæinn sem móttökustað fyr- ir tigna gesti. Rannveig Guðmundsdóttir gerði Þingvallabæinn að umræðuefni á Alþingi í vikunni þegar hún spurði forsætisráðherra bver færi með eignar- og yfirráð yfir bæn- um og hins vegar hvaða áform ríkisstjórnin hafi um nýtingu Þingvallabæjarins í framtíðinni. Hún sagði fimm hursta Þing- vallabæinn vera eins og tákn Þingvalla innan lands og utan. Hún sagði að svo virtist sem ágreiningur væri kominn upp um hvernig nýta skuli bæinn í fram- tíðinni. Rannveig minnti á að í gegn- um tíðina hafi húið prestur í Þingvallabænum, sem lengi var jafnframt staðarhaldari og þjóð- garðsvörður. Þetta væri nú breytt og komin ný lög um þessi mál- efni. Þá hafi hluti hússins verið notaður af ríkisstjórninni til mót- töku tiginna gesta og sem sumar- bústaður fyrir forsætisráðherra. Ónæði yfir sumarið Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði að samkvæmt lögfræðilegu áliti sem Þingvallanefnd hefði kallað eftir hefði ríkið fullt eign- arhald á Þingvallabænum. Hann rakti hvernig húsið hefði verið nýtt sem opinber bústaður for- sætisráðherra og sem hústaður prests og þjóðgarðsvarðar þegar þau störf hafi farið saman. Hins vegar hafi Þingvallabærinn aldrei verið prestssetur sem slíkt og all- ur kostnaður af húsinu í heild verið greiddur af ríkinu. Hann sagði þarfir þjóðgarðsins varðandi starfsmannahald aðrar en áður. Hann sagði að hug- myndir um nýtingu hússins væru ekki full mótaðar. Ríkisstjórnin hefði hug á að fá meiri og betri aðstöðu til að taka þar á móti gestum cn þjóðgarðsvörður, Þingvallanefnd og prestur yrðu að hafa ákveðna aðstöðu. Hins vegar eru í sókninni um 50 manns og svo lftil sókn ber ekki sóknarprest með sama hætti og verið hefur. Forsætisráðherra sagði að Þingvallabærinn væri ekki heppi- legur sem sumarhús fýrir forsæt- isráðherra eins og hann hefur átt að vera. Yfir sumarið væri þar ekkert næði til hvíldar. Hann sagðist sjálfur hafa notað hann á haustin og vorin og dálítið yfir veturinn. Það væri meiri hvíld að því að vera í „sínum eigin kofa,“ eins og Davíð Oddsson tók til orða. - s.DÓR Reynt að a£La gagna um hvarf Einars Arnar Lögreglan í Kópavogi reyndi í gær með skipulögðum hætti að afla gagna um ferðir Einars Arnar Rirgissonar, 27 ára gam- als íhúa í Kópavogi. Skipulegri leit var hætt í fyrrakvöld en til hans hefur ekkert spurst í 3 sólarhringa. Einar Arnar Birgisson er iengst til vinstri á myndinni Tryggt gegn mengandi förmum Drög að nýjuTagarrumvarpi gera ráð fyrir að skipafélögum sem flytja mengunarfarma til landsins, verði skylt að tryggja sig gagnvart hugs- anlegum skaða. Tryggja á að fyrirtækin geti greitt þann kostnað sem hlýst af viðbúnaði vegna mengunarslysa og geta stjórnvöld þá hlutast til um hverjir geti siglt. Benda má á að siglingaleiðir olíuskipa liggja um mikilvægustu hrygningarslóðir þorsks hér við land. 10 sementspokar gerðn gæfumuninn Hjálparstarf kirkjunnar styrkti tæplega 100 indverskar fjölskyldur lil að eignast steinhús eftir að flóð höfðu sópað burt strákofum þeirra og yrirleitt aleigunni. Styrkurinn fólst ýmist í 1.000 múrsteinum eða 10 sekkjum af sementi. Andhra Pradesh fy'lki lagði til stóran hluta heildarkostnaðarins, en með því skilyrði að hver fjölskylda legði sjálf fram svolítinn skerf. Það tilboð gátu fátækir daglaunamenn á akri, með 25-80 kr. laun á dag, ekki þegið án aðstoðar. Þeir sem nutu að- stoðar H.k. voru hins vegar hólpnir og eiga nú væntanlega ný stein- hús. - HEl 26 veiðileyfasviptingar Fiskistofa svipti í október alls 26 skip veiðileyfum. Þar af voru fjögur skip svipt leyfum vegna afla umfram aflaheimildir og 22 sldp vegna veiða án aflaheimilda. Tvö skip voru svipt leyfum vegna brota í báðum flokkum, Jói Bjarna frá Höfn og Tjaldur frá Selfossi. Sviptingarnar voru annars vegna skipa úr öllum landshlutum. - fþg

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.