Dagur - 11.11.2000, Page 6

Dagur - 11.11.2000, Page 6
30 - LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2 00 0 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjórí: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Aðstoðarrítstjórí: birgir guðmundsson Skrífstofur: strandgötu 3i, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVIK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Simar: 460 6ioo OG 800 7080 Netfang rítstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 kr. á mánuði Lausasöluverð: 150 kr. og 200 kr. helgárblað Grænt númer: 800 7080 Netföng auglýsingadeildar: karen@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is Sirnar auglýsingadeildar: (REYKJAVfK)563-1615 Ámundi Ámundason (REYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss. (AKUREYRI)460-6192 Karen Grétarsdóttir Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símbréf ritstjórnar: 460 6i7i(AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK) RíMsútvarpið í fyrsta lagi Það eru viðtekin sannindi að vald spilli. Mikil völd spilla mikið. bar eru pólitísk völd að sjálfsögðu engin undantekning. Þetta virðist vera að sannast í sjórnun og starfsmannamálum á Ríkis- útvarpinu þar sem ástandið er orðið svo slæmt að starfsmanna- félagið sér sig knúið til að samþykkja sérstaka ályktun þar sem krafist er hlutlausrar úttektar á starfsmannamálum! Haft er eft- ir formanni félagsins í Degi í gær að starfsfólk sé verulega ugg- andi um framtíðina, og ein af undirliggjandi ástæðunum sé krefisbundin misbeiting pólitísks valds og áhrifa Sjálfstæðis- flokksins og menntamálaráðherra yfir stofnuninni. í öðru lagi Raunar hafa umkvartanir í þessum dúr heyrst áður frá forustu Starfsmannafélags RUV án þess að mikið hafi verið gert með þær, en látið svona í veðrinu vaka að þarna væru á ferðinni ör- fáir blóðrauðir bolsar og hatursmenn Sjálfstæðisflokks. Nú hins vegar duga ekki einu sinni slíkar viðbárur, því niðurstaðan úr könnun Ijármálaráðuneytis meðal ríkisstarfsmanna sýnir að starfsmenn RUV skera sig verulega frá öðrum ríkisstarfsmönn- um og um 80% þeirra telur að óþolandi pólitískar ráðningar við- gangist. f þriója lagi Þeja;ar svo er komið að fjórum af hverjum fimm starfsmönnum RUV finnst þeir starfa í pólitískri herkví Sjálfstæðisflokksins er augljóst að flokkurinn hefur bæði verið of lengi í mennamála- ráðuneytinu og farið illa með það vald sem hann hefur haft. Það segir enda allt sem segja þarf, að þrátt fyrir glymjandi vdð- vörunarbjöllur, virðist menntamálaráðherra ekki telja raun- verlulegan vanda á ferðum og snýr bara út úr fyrir starfsmanna- félaginu. Það er alkunna að þeir sem misnota áfengi og vímu- efni og eru í.bullandi neyslu átta sig oft ekki sjálfir á ástandi sínu og þurfa á utanaðkomandi hjálp að halda. Svipað gæti átt vað um langvinna misnotkun á valdi, utanaðkomandi aðstoð - t.d. sú endurskoðun hlutlausra aðila sem talað er um í ályktun starfsmanna - gæti orðið ágætis byrjun. Birgir Guðmundsson. Hið svíiifeita músli Garri er einn af þcim örfáu sem hefur látið helstu tískustrauma heilsufæðugeirans sem vind um eyrun þjóta. Hann hefur haldið sig við þær fæðuvenjur sem hann tamdi sér í æsku og borðað sitt ófituskerta lamba- kjöt með brúnuðum kartöílum, sósu, rauðkáli og rabbabara- sultu, ennfremurýsu með ham- satólg og soðnum rauðuni ís- lenskum, ásamt og með skyri, rjóma- tertum á sunnu- dögum og fleira gúmmólaði góðu. Grunnþáttur fæðuinntökunnar, eins og það heitir víst í matarvísind- um, hefur sem sé alltaf verið kjöt, fiskur og kart- öflur í ýmsum útgáfum. Þetta þykir ýmsum ekki nógu gott og þaðan af síður hollt. Enda hafa á síðustu árum verið gríðarlegar tískusveiflur í mataræði sem yfirleitt eiga að sögn seljenda og annarra hags- munaaðila, að tryggja öllum lengra og betra líf. En Garri hefur samt haldið sínu striki og er enn á dögum. Kartöfluætur Arum saman var haldið úti harðvítugum áróðri fyrir neyslu á ílölsku hveitigumsi á borð við pasta og lasagna og nánast full- yrt að þeir sem ekki hökkuðu þetta jukk í sig í öll mál væru fyrirfram dauðadæmdir, (sem við erurn auðvitað öll á endan- um, hvað svo sem \dð étum). Garri trúði reyndar lengi eins og aðrir þessum boðskap tals- manna pastainnflytjenda. Eða allt þar til hann rakst á viðtal við næringarfræðing í Mogga sem lullyrti að það gerði alveg sama gagn að éta kartöflur eins og að slafra í sig ítalskar hveitiskrúfur. ()g á dögunum kom svo frani annar fræðingur sem hélt því fram að kartöflur væru einkar óhollar vcgna óæskilegra próteina eða hvað það nú var, þannig að þetta er nú allt saman eitthvað á reiki eins og fleira í hollustugeiran- Góinur vill ráda Staðreyndin er auðvitað sú, eða hefur verið undan- farin ár, að það sem hollustupost- ular telja meinhollt í dag, er orðið frámunalega óhollt daginn eftir. Nýjar rannsóknir leiða alltaf eitt og annað í Ijós sem gert hef- ur fæðutískuna síbreytilega. I mörg ár Jjótti t.d. skyrið aðeins henta digrurn sveitajússum en nú vinnur engin horrengla svo fegurðarsamkeppni að hún þakki það ckki uppstyttulausu skyráti. Og það nýjasta er svo að toppurinn í hollustufæðinu, hið ómissandi músli í morgun- matinn, er í raun hið versta feitmeti og líkast til bráðdrep- andi. Að þessu komust danskir næringarfræðingar á dögunum. Og auðvitað eins víst að á næst- unni komist sænskir næringar- fræðingar að hinu gagnstæða. Er ekki hugsanlegt að það sé kominn tími til að huga að dýr- um merkurinnar í tengslum við fæð u val ni a n nskep n u n na r? Dýrin þekkja enga næringar- fræðinga og hafa ekki hugmynd um próteininnihald og kaloríu- magn þess sem þau éta. Þau bara éta rnest af því sem þeím þykir best og síðan hey í harð- indum og þcssi aðferð hefur reynst þeim vel. Eins og Garra. Enn sem komið er. - GARRl Verkfall framhaldsskólakennara dregur stóra hjörð af dilkurn á eftir sér. Afleiðingarnar konia víða frani og eiga eftir að setja mark sitt á þjóðlífið ef marka má viðbrögð úr ýmsum áttum. En þótt deilan setji efnahagslífð á hvolf og splundri allri menntunarviðleitni þeirra seni bera ábyrgð á uppfíæðslunni er það lítilvægt miðað við þær aðvar- anir sem fram koma um áhrifin á vesalings nemendurna, sem nú verða allir sem einn dópi og brenni- víni að bráð. Staðhæft er að iðjuleysið sé und- irrrót allra lasta og þegar ungling- arnir í framhaldsskólunum eru neyddir út úr kennslustofunum hafa þeir ekki í önnur hús að venda en glaumstaðina og verða þar um- svifalaust fórnarlömb alkóhóls og annarra eiturnautna. Eða svo segja þeir sem bera hag ungmennanna öðrum fremur fyrir brjósti. Mjög áhyggjufullur blaðaskrifari kom því á framfæri, að unigmenn- Glötun eða gagnlegt nám unum væri meira að segja boðið upp á að horfa á stúlkur bera sig í kringum súlu. Og á sama stað er hægt að kaupa áfengi. Engin von er til þess að nokk- ur strákur, varla kom- inn af gelgjuskeiði, nái sér nokkru sinni eftir svo svakalega lífs- reynslu. Hans lífsbraut er bein og stutt. Sið- gæðið hrynur og eiturnautnin setur hann í gröfina, segja siðgæðiseig- endur samfélagsins. Skarð í meimtabrauttna Svona geta kennarar skorið á sjálfa menntabrautina með því einu að standa við kröfugerð sína um líf- vænlegri laun en þeir njóta nú. Svo er það líka álitamál hvort verkfallið er ekki menntamálaráðherra ein- hliða að kenna, sem neyðir kenn- ara út í verkfall og nýtur fulltingis fjármálaráðherra við að reka nemendur út úr skólunum á miðri nám- sönn. I gegnum tíðina hef- ur því verið haldið að vinnulýð, að láti hann verk úr hendi falla nokkra stund blasi glöt- unin við. Nú er kenn- ingin uppfærð á ung- menni á framhalds- skólaaldri, sem verða umsvifalaust að drykkjuræflum eða einhverju ennþá verra, ef þeir njóta ekki nauðsynlegs aðhalds í kennslustofnununi. Þessi áróður er svo magnaður að stundum læðist að manni grunur uni hvort dagvist og skólakerfi cru ekki fremur staðir til að forða heimilum frá uppeldi og daglegri umönnun barna og unglinga en kröfuharðar menntastofnanir. Að minnsta kosti skín svona álit út úr kröfum og aðfinnslum margra for- eldra, sem stundum eru aö tjá sig um efnið. Hrakspár oj* von Það eru ekki beysnar bugmyndir um þá kynslóð unglinga sem nú eru að vaxa úr grasi, sem frarn koma í nöldrinu um að þeir lendi allir á glapstigum ef kennararnir sleppa hendi af þeim einhvern vetr- arpart. Hrakspárnar eru tíundaðar í fjöl- miðlum og hnykkt á þeim vitlaus- ustu. Krakkarnir eiga að hrökklast frá námi í stórum flokkum, þeir sem fara að vinna bera af því ævi- langan skaða og svo er það fíknin sem þruniar undir iðjuleysinu með tilheyrandi lífsleiða. Við þessu er ráð sem enginn mun hlíta. Það er að ungmennin tald að sér heimilisstörfin lýrir úti- vinnandi niæður og tveggjavinnu- staðafeður. Sú skólun kann jafnvel að vera enn gagnlegri en sú sem farið erá mis við í kennaraverkfalli. Námsefni kann að leynast víðar en í kennslustofum. Er augýsingum beint með óeðlilegum hættiað bömum? (Umboðsmaður bama telur brýnt að setja reglur um aug- lýsingar og böm) EinarBárðarson markadsstjóri Vísis.is „Hægt að finna dæmi sem stutt geta svona kenn- ingar, en stað- reyndin er hins vegar sú að þeir sem hugsa af al- vöru um ímynd sinnar vöru fara varlega þegar kemur að yngstu aldurshópunum. Það er vegna þess að þrátt fyrir ungan aldur eru krakkar neytendur og sjá hvað er falskt. Markaðssetning gagnvart yngsta aldurshópnum er vandasöm. Og ef menn mis- bjóða t.d. foreldrum með auglýs- ingum þá eiga menn það á hættu að hafa misst velvild þeirra fjöl- skyldna gagnvart vörunni um ókomna tíð. Og slfku vill enginn Ienda í. Vegurinn er vandratað- ur.“ Aðalheiður Hreiðardóttir leikskólastjóri á Akureyri. „I morgunsjón- varpi Stöðvar 2 sjáum við gjarn- an auglýsingar um leikföng og morgunkorn og á öllum sjónvarps- stöðvum sjást - á sama tíma og barnaefni er sýnt - auglýsingar um kvikmyndir bannaðar börn- um. I þessu er ekkert samræmi og Ijóst er að auglýsingum er beint með óeðlilegum hætti að börnum. Auglýsingar liafa mikil áhrif á bcirn, þau vita alveg hvað cr í tísku og hér í Ieikskólanum syngja þau slagara úr vinsælustu auglýsingunum.“ Sigurikir Jónsson framkv.stj. fonnaóiirS\l>, Samtaka verslunar og þjónustu. „Ég efast ekki um að svo sé í einhverjum til- vika, en hér á landi liggja þó ekki fyrir dæmi um slíkt. Hér hjá SVÞ hefur þetta ekki verið skoð- að sérstaklega, og ég á ekki von á því að það verði gert nema sér- stakt tilefni gefist." Ásta Ragnheiður Jóhannes- dóttir þingmaðurSamjylkingar. „Ég er hrædd um það. Meðal ann- ars kom fram í um fjöllun hjá einni af nefnd- um Alþingis að verið væri að beina auglýsingum að barnaefni í fjölmiðlum. Töldu fagmenn að slíkar auglýsingar hefðu áhrií á matarræði barna og að í vissum tilvikum gæti þessi áróður Ieitt til anorexíu. Því verðum við að vera á varðbergi gagnvart þvi sem auglýst er, þegar búast má við að börn séu við sjónvarpið. Hér þarí að setja reglur."

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.