Dagur - 11.11.2000, Qupperneq 9

Dagur - 11.11.2000, Qupperneq 9
32- LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000 - 33 FRÉTTASKÝRING Díyptr Manunon reynis niörgum erfiöur SIGURDÓR SIGURDÖRS SON SKRIFAR Heilbrigöisstofnanir fara lun 1,5 miUjarð fram úr fjárlögum. Stjórnendur segja rétt- mætar skýringar á því. Fjárlaganefndar- menn ætlast til að ekki sé farið fram úr fjárlögnm. Ríkisendurskoðun hefur staðfest að heilbrigðisstofnanir í landinu muni fara um 1,5 milljarð króna fram úr fjárlögum þessa árs. Þar af sé 1,1 milljarður vegna launa- skriðs og um 400 milljónir vegna annarra útgjalda. Það er í sjálfu sér ekkert nýtt að heilbrigðis- stofnanir fari fram úr fjárlögum. Hins vegar þykir mörgum þetta einkennilegt nú vegna þess að í fyrra var veitt nokkrum milljörð- um króna til að hreinsa upp skuldir heilbrigðisstofnana. Að auki voru skildir eftir dálitlir sjóð- ir hér og þar sem áttu að duga þessum stofnunum til að geta staðið við fjárlög á þessu ári. Það er því ekki nema von að fjárlaga- nefndarmenn séu allt annað en kátir með þessa niðurstöðu Ríkis- endurskoðunar á stöðunni. Miklir fjármunir í fyrra „Það voru settir í þetta mál mikl- ir fjármunir í fyrra sem hefur orð- ið til þess að vandinn er minni nú en hann hefði orðið. Ljóst er að þarna eru inni launahækkanir sem hafa farið fram úr forsend- um Ijárlaga, sem skýra hluta af þessari stöðu. Þarna virðist hafa orðið eitthvert launaskrið inn í heilbrigðiskerfinu. Einhverjir hópar hafa staðið útaf og fengið meiri hækkanir heldur en launa- forsendur fjárlaga gerðu ráð fyr- ir,“ segir Jón Kristjánsson, for- maður fjárlaganefndar. Hann segir þó að þessi auka- fjárveiting í fyrra hafi ekki dugað til að leysa vanda allra stofnan- anna. Þar hafi staðið útaf nokkr- ar stofnanir, sem hafi svo verið í skoðun á þessu ári. Nú eftir að Ríkisendurskoðun hefur farið yfir málið og gert fjárlaganefnd grein fyrir niðurstöðunni muni nefndin fara yfir málið á næstunni. Jón segir hitt alveg ljóst að fjár- laganefnd taldi sig hafa komið til móts við vanda allflestra sjúkra- stofnana. Aldrei áhyggjulausir Hann var spurður til hvaða ráða yrði gripið, hvort heilbrigðisstofn- unum yrði þá gert að hagræða og spara eða hvort um fjárveitingu til stofnananna yrði að ræða? „Forsendur fjárlaga liggja Ijósar fyrir. Eg vil ekkert segja um það á þessu stigi til hvaða ráða verður gripið. Umfangið í heilbrigðis- geiranum hefur aukist mikið á undanförnum árum. Allt tal um niðurskurð í honum er aiveg út í hött. Menn hafa alltaf verið að auka starfsemina ár frá ári. En hvað gert verður núna vil ég engu spá um.“ - Ef litið er ntörg ár aftur í tím- ann virðist alltaf koma upp fjár- skortur hjá heilbrigðisstofnunm á hverju ári. Er þetta ólæknandi? „I þessum geira eru menn aldrei áhyggjulausir í fjármálum. Hér er um afar váðkvæma starf- semi að ræða og þess vegna er umræðan um hana alltaf meiri en um aðra flokka. En því verður seint þannig fyrir komið að menn þurfi ekki að hafa áhyggjur af fjármálum opinberra stofnana, hvort sem er í heilbrigðisgeiran- um eða annars staðar," segir Jón Kristjánsson. Fjármunir verða að fylgja „Við höfum kynnt stjórnvöldum fjárhagsvanda upp á 350-400 milljónir. Það væri sú upphæð sem spítalinn þvrfti til að komast í gengum árið í ár með eðlilegum hætti. Þau atriði sem skýra vand- ann eru meðal annars slysaaldan á árinu. Við höfum skýrt frá hvað þurfti að kalla út af fólki vegna þessa á aukavaktir og fleira. Þetta nemur uni 40 milljónum. Við höfum í annan stað bcnt á að það voru flutt verkefni frá Trygginga- stofnun ríkisins til Landsspítal- ans - háskólasjúkrahúss, sem er ávísun á lyf. Við teljum að það sé eðlilegt að fjármunir fylgi því sem þarna er flutt til. Það teljum viö réttmæta beiðni. Þriðja atriðið sem við nefnum er að verðlags- þróun í landinu hefur sannanlega orðið önnur en forsendur fjárlaga gerðu ráð fyrir. Þar var talað um 3% verðbreytingu en raunin hef- ur orðið önnur eða um 5%,“ segir Magnús Pétursson, forstjóri Landsspítalans-háskólasjúkra- húss, um framúr keyrsluna. Hann segir að þungu Iiðirnir hjá spítalanum séu lyfjakostnað- ur og allt honum tengt, sem hef- ur hækkað um 8% milli áranna 1999 og 2000. Þar sé bæði um að ræða hækkandi verðlag og ný og dýrari lyf. Hann segir að verðlag varðandi spítalann sem hækkar umfram 3% á þessu ári verði að vandamáli. Síðan segir hann ýmsa aðra liði koma til að þeir séu mun minni vandi en allt varð- andi lyljakostnaðinn. Þar nefnir hann sem dæmi að ekki hafi ver- ið búið að lenda öllum launaað- Iögunar samningum í fyrra. Það hafi dregist fram eftir þessu ári. Sé margt öðruvísi „Starfsmenn spítalans hafa lagt sig mjög fram um að reyna að halda kostnaði innan marka. Það var farið í ýmis konar niðurskurð eða sparnað í ársbyrjun. Margt af því hefur gengið eftir en það er þá bara eitthvað annað sem bólgnar upp,“ segir Magnús. - Þú varst um langt árabil ráðu- neytisstjóri i fjármálaráðuneytinu og hefur eflaust ekki tekið þvt fagnandi þegar heilbrigðisstofnan- ir voru að keyrafram úr fjárhagsá- ætlun. Nú ert þú hinu megin við borðið. Líturðu vandann öðrum augum nú en þegar þú varst ráðu- neytisstjóri? „Hlutverkin eru vissulega ólík. Mig langar að hafa örlítinn for- mála að svarinu. Hér er um að ræða starfsemi sem er ekki alveg stjórnað eftir peningunum ein- um. Við erum með starfsemi þess eölis að allir geta komið hingað og fengið þjónustu. Eg hef hverki Ríkisendurskoðun hefur staðfest að heilbrigðisstofnanir í landinu muni fara um 1,5 milljarð króna fram úr fjárlögum þessa árs. Þar af sé 1,1 milljarður vegna launaskriðs og um 400 milljónir vegna annarra útgjalda heimild né löngun til að tak- marka það. Ef innkomur vaxa hjá mér á bráða- og slysamóttöku um 1 5% á ári, þá verð ég að fá við- urkenningu á því. Ibúum fjöigar hér um 2% á ári. A því þarf ég líka að fá viðurkenningu. Jón Kristjánsson: Þvi verður seint þannig fyrir komið að menn þurfi ekki að hafa áhyggjur af fjármálum opinberra stofnanna, hvort sem er i heilbrigðisgeiranum eða annars staðar. Hitt er svo rétt sem þú sagðir að ég djöflaðist á stjórnendum heilbrigðisstofnana hér áður fyrr ef þeir fóru fram úr og þá þótti þeim skilningur minn knappur þegar ég sagði þeim að láta þetta stemma. Eg verð að viðurkenna Magnús Pétursson: Það gengur ekki að eiga að framleiða endalaust lækningar og að það sé ekkert samhengi á milli framleiðslu og peningainnkomu. að vissulega hefur maður Iært dá- lítið og skilið starfsemina betur en áður. En kjarni málsins er sá að Ijármögnunarkerfinu á þessu verður að brcyta. Það gengur ekki að eiga að framleiða endalaust lækningar og að það sé ekkert Einar Oddur Kristjánsson: Ef einhverjir forstjórar stofnana vilja hækka laun þá verður það að leiða til þeirrar hagræðingar að það borgi sig. samhengi á milli framleiðslu og peningainnkomu," sagði Magnús Pétursson. Bætum ekki launaskrið „Við hreinsuðum upp allar þessar stofnanir á sfðasta ári og skildum Guðný Sverrisdóttir: Ef einhver ætlar að halda því fram að það kosti ekki neitt að sameina svona stofnanir, þá veður sá hinn sami í villu og svima. eftir potta lýrir ráðherrann til að jafna ef eitthvað vantaði upp á. Við bættum launabreytingum samkvæmt samningum og sam- kvæmt taxtabreytingum við, en það er alveg ljóst, hvaða stofnun scm í hlul á, við bætum ekki launaskrið. Það á öllum að vera dagljóst. Ef einhverjir forstjórar stofnana vilja hækka laun þá verður það að leiða til þeirrar hagræðingar að það borgi sig," segir Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar. Hann segir að menn gætu rétt ímyndað sér í hvaða stöðu Alþingi væri ef forstjórar stofnana hefðu sína hentisemi með það hver Iaunin væru og svo kæmi ríkið um hver áramót borgaði. Einar var spurður hvort hann væri með þessu að segja að heil- brigðisstofnanir yrðu að taka þennan 1,5 milljarð króna á sig og leysa vandann með hagræð- ingu eða niðurskurði? Taki á sig laimabreytingar „Við gerðum öllum stofnunum ríkisins, bæði hjúkrunarstofnun- um og öðrum, nákvæma grein fyrir því við fjárlagaumræðuna haustið 1999 að mjög hart yrði gengið eftir því að menn fylgdu fjárlögum. Fjármálaráðuneytið gaf út sérstakar leiðbeiningar og starfsreglur um hvernig skyldi eftir þessu farið og með því fý'lgst. Þess vegna er ætlast til þess að þessar stofnanir taki þetta á sig ef hér er fyrst og fremst um breyt- ingar á launum að ræða, eins og Ríkisendurskoðun lætur liggja að,“ segir Einar Oddur. Hann segir að það séu ýmis vandamál í gangi hjá ríkisstofn- unum sem þurfi að skoða. Þar sé um óleyst má að ræða sem þurfi aö leysa. Hann nefnir í því sam- bandi daggjaldastofnanir. Þær þurfi að skoða gaumgæfilega og þá sérstaklega greiðsluflæði til þeirra. Hann segir að það starf sé þegar byrjað. Margir glíma við vandann „Annars er það ekki sér íslenskt að heilbrigðisstofnanir fari fram úr fjárhagsáætlunum. Allar þjóðir Evrópu glíma við þann vanda hvernig hemja eigi kostnaðar- aukningu í heilbrigðismálum. Hann kemur til af ýmsu en mestu veldur að það er alltaf að koma ný og meiri tækni í lækningum og hún er dýr. Við Islendingar, eins og aðrar þjóðir V-Evrópu, viljum hafa mjög góða heilbrigðisþjón- ustu. Það er enginn vafi á því að samkvæmt erlendu mati er ís- lensk heilbrigðisþjónusta mjög Gísli S. Einarsson: Gera verður kröfu til þess, hvort sem um er að ræða heilbrigðisstofnanir eða ein- hverjar aðrar stofnanir, að menn haldi sig við þau fjárlög sem þeim eru sett. Laimakostnaðumm 22% hærri en 1998 Ríkisendurskoðim grunar að heilbrigðis- stofnanir landsins fari 1,5 miUjarða framúr fjárlögum í ár, nær tvöfalt meira en í ný- legum áætlunum þeirra sjálfra. A grundvelli mats á afkomuhorf- um heilbrigðisstofnana telur Rík- isendurskoðun að fjárþörf þeirra stefni allt að 1,5 milljarða um- fram fjárheimildir fjárlaga 2000. Nú í scptember námu fjárheim- ildir 87 heilbrigðisstofnana tæp- um 36 milljörðum króna, sem er 1,8 milljarða (5%) hækkun frá síðasta ári. I júlí sl. óskaði Ríkis- endurskoöun eftir upplýsingum þessara stofnana, annars vegar um ai’komuna á fyrri hluta ársins og hins vegar um áætlaða afkomu þeirra í árslok 2000. IIin 7% lunfram heimildir Ársáætlun þeirra hljóðaði upp á 880 milljónir umfram fjárheim- ildir ársins, eða rúmlega 36,8 milljarða - sem er 2,5% umfram heimildir og 5% umfram rekstrar- koslnað síðasta árs. Landsspítal- inn er með sléttan helming þcssa kostnaðar, 18,4 milljarða. Ríkis- endurskoðun gerir aftur á móti ráð fyrir að stofnanirnar vanmeti útgjöldin, þau muni hækka um 7% milli ára, í 37,5 milljarða. Launin 77% Launaútgjöld eru langsamlega stærsti kostnaðarliðurinn (77,5%). Sjálfar áætla stofnanirn- ar að launaútgjöldin verði 28,5 milljarðar á árinu, sem er 1,8 milljarða og tæplega 7% hækkun frá 1999, eða kringum tvöfalt meiri hækkun en fjárlög gerðu ráð fyrir. Samkvæmt því hcfur launakostnaðurinn hækkað 22% að meðaltali frá 1998. Ríkisend- urskoðun telur að launaútgjöldin hækki ennþá meira, eða um 1% til viðbótar áætlun stofnananna sjálfra. En þessi 22% mcöalhækkun skiptist mjög misjafnlega: Mesta hækkunin er tæp 33% á heilsu- gæslustofnunum, rúm 30% á daggjaldastofnunum og tæp 27% á hjúkrunarheimilum. Á stóru (deildskiptu) sjúkrahúsunum er hækkunin hins vegar 19% og inn- an við 18% á öðrum sjúkra- og heilsugæslustofnunum. Óraunhæfar áætlanir Á móti umframhækkun launa ætla sjúkrahúsin og heilsugæslan að spara á öðrum sviðum. Annan kostnað en laun áætla stofnanirn- ar aðeins 8,3 milljarða í ár - snöktum minna en 1999. Ríkis- endurskoðun finnst þetta nokkuð óraunhæfar áætlanir - líklegra að þessi kostnaður verið allt að 8,7 milljarðar, eða 4% hærri en í lýrra. Um 700 m framúr á fyrra misseri Á fyrri helmingi ársins 2000 áætl- uðu stofnanirnar að þær mundu eyða 17,7 milljörðum (umfram sértekjur), eða um 48% af því sem þær gerðu ráð fyrir á árinu öllu. 1 revnd urðu útgjöldin hins vegar 18,4 milljarðar, eða um 700 millj- ónir umfram hinar nýlegu áætl- anir heilbrigðisstofnanna sjálfra. Hlutfallslega fóru heilsugæslu- stöðvarnar langlengst fram úr áærlunum sínum, hátt í 9%, en daggjaldastofnanirnar minnst að- eins 1%. Á sjúkrahúsunum virð- ast menn hafa feilreiknað sig um 3-4% að jafnaði. 525.000 krónurá fjölskyldu Þótt áætlanir heilbrigðisstofn- anna um 36,8 milljarða útgjöld á árinu stæðust, samsvara þau uni 525.000 kr. á hverja fjögurra manna fjölskyldu í landinu. Sem fyrr segir er helmingur þess kostnaðar á Landsspítalanum einum og samtals 23 milljarðar (62%) á deildaskiptu sjúkrahús- unum sex. Hin sjúkrahúsin tólf áætla útgjöld sín 3,5 milljarða. Heilsugæslan áætlar 2,5 milljarða kostnað. Hjúkrunarheimilin 4,1 milljarð og daggjaldastofnanirnar (dvalarheimilin) 3,8 miiljarða. - hei 77 milljóna hækkun hjá SÁA Áætluð hæld<un milli ára er hlut- fallslega langmest hjá: Fellaskjóli í Grundarfirði (57%), Dvalar- heimilinu í Borgarnesi (29%), SÁÁ (28%), Heilsug. í Garðabæ (22%), Hrafnistu í Hafnarfirði (19%), Heilsug. í Reykjavík og Hveragerði (17%), Hraunbúðum í VE (16%), Heilsug. í Kópavogi, Þorlákshöfn og Eir (15%). - HEI góð,“ segir Einar Oddur. Hann segir að við séum að eyða í hærri kantinum til heilbrigðis- mála, sem hlutfall af þjóðartekj- um, en erum þó ekki hæstir. Hann segir líka að þótt margir segi að föst fjárlög gagnvart heil- brigðisstofnun séu oft grimm, þá eigi menn ekki aðra völ en að krefjast þess að farið sé eftir fjar- lögunum. Sameiningin kostar sitt Guðný Svcrrisdóttir er stjórnar- formaður Ríkisspítalanna. Hún bendir á að ef Landsspítalinn-há- skólasjúkrahús fer um 400 millj- ónum fram úr fjárhagsáætlun þá séu það 2% af heildarkostnaði. Það sé í sjálfu sér ekki há pró- senta en aftur á móti margar krónur. „Það eru til skýr rök fyrir þess- ari fram úr keyrslu á fjárlögum. Ekki minna en 130 milljónir króna eru vegna verðlagsbreyt- inga. 1 fjárlögum var gengið út frá 3% verðlagsbreytingum en þær urðu 5%. Þetta sá enginn fyrir og fullkomin skýring er á öllu öðru. Inn í þetta kemur launaskrið vegna kjarasamninga en ekki það að verið sé að laða fólk að með vf- irborgunum. Loks má ekki gleyma því að við erum að sameina þarna tvær stór- ar stofnanir, Landsspítalsnn og Sjúkrahús Reykjavíkur f Lands- spítala-háskólasjúkrahús, sem eru með veltu upp á 20 milljarða króna á ári. Ef einhver ætlar að halda því fram að það kosti ekki neitt að sameina svona stofnanir, þá veður sá hinn sami í villu og svima," segir Guðný. - Hvemig verður þessu mætt hjá ykkur? „Auðvitað ber okkur að reyna að reka sjúkrahúsin innan ramma fjárlaga og ef við fáum ekki leið- réttingu okkar mála þá verðum við að hagræða og spara með ein- hverjum hætti. En ég spyr á móti, hvað vill þjóðin? Vill hún að við lengjum biðlistana eða hvað?“ segir Guðný Sverrisdóttir. Geta ekki skorist imdan ábyrgð Gísli S. Einarsson er fulltrúi Samfylkingarinnar í ljárlaga- nefnd. Hann var spurður hvernig hann vildi mæta þessum vanda heilbrigðisstofnana? „Eins og þetta blasir við mér verða menn að taka tillit til þeirra lyfja hækkana sem hafa orðið. Menn verða líka að taka tillit til skekkju í restrargrunni ef um hana er að ræða. Eg þvkist viss um að iint skekkju er að ræða í einhverjum tilvikum. Síðan verð- ur að gera kröfu til þess, hvort sem um er að ræða heilbrigðis- stofnanir eða einhverjar aðrar stofnanir, að menn haldi sig við þau fjárlög sem þeim eru sett. En auðvitað geta komið upp á tilvik sem menn verða að mæta. Þar má nefna sem dæmi þá miklu slysaöldu sem varð í sumar. Slíku verða menn að mæta,“ segir Gísli. Hann hendir á að vegna henn- ar hafi verið um mikla yfirvinnu að ræða enda stóðu yfir sumarfrí starfsfólks spítalans þegar þetta gerðist. Gísli segir að fram hjá því verði ekki vikist að bæta spítalan- um þetta upp. „Aftur á móti tel ég að launa- skrið sem slíkt eigi ekki að eiga sér stað eftir að búið er að gera kjarasamninga. Við í fjárlaga- nefnd gengum út frá ákveðnum grunni í fjárlagagerð lýrir árið 2000. Ég hef því varið fjárlaga- nefnd í þessu máli vegna þess að ég taldi að allt lægi á borðinu. En ef það er að koma í ljós nú að svo var ekki, þá vil ég að menn standi ábyrgir fyrir mistökunum, svo ég tali nú ekki um ef ekki hafa verið gefnar upp allar upplýsingar sem þurfti. Menn geta ekki skorast undan slíkri ábyrgð," segir Gísli S. Einarsson.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.