Dagur - 23.11.2000, Síða 1

Dagur - 23.11.2000, Síða 1
Tekst að hemj a “Stdra bróður“? Persónuvemdarlögin taka gildi iiin áramót- in. Ráðherra fær á næstunni ólíkar til- lögur frá tölvunefnd og lögregluyfirvöld- um. Tekist á um hvað megi skrá og hvað megi geyma það lengi. Lögregluyfirvöld og tölvunefnd munu á næstunni senda dóms- málaráðuneytinu umsögn og til- lögur um efni reglugerðar, þar sem nánar verður kveðið á um þá stefnu persónuverndarlaga að ekki skuli skrá meira af persónu- upplýsingum en þörf er á og ekki geyma slíkar upplýsingar, þar með talið rafrænar, lengur en þörf er á. Miðað við reynsluna er- lendis má búast við því að tillög- ur lögreglu og tölvunefndar verði ærið ólíkar. Sú er að minnsta kosti reynslan víða í Evrópu og í Noregi fer nú fram heit umræða um skráningu og geymslu rafrænna persónu- upplýsinga. Lögregla þar vill fá að geyma allar rafrænar upplýsingar, svo sem um flugferð- ir einstaklinga, ferju- ferðir, farsímanotk- un og rafpóstsend- ingar (e-mail) í heilt ár. Deilan nær ein- nig til geymslu á gögnum úr umferð- armyndavélum. Leitað að guUniun meðalvegi „Persónuverndarlög- in taka gíldi nú um áramótin, en þar er gert ráð fyrir því að dómsmála- ráðherra skuli mæla nánar fyrir um vinnslu persónuupplýsinga hjá lögreglu, þ.e. um öryggi per- sónuupplýsinga, innra eftirlit með vinnslu þeirra og svo um tímalengd á varðveislu slíkra upp- lýsinga. Vinna að reglugerð er í gangi í ráðuneytinu og við erum því á leiðinni með að fá botn í þetta. En ég kannast ekki við að upp hafi komið formleg ágrein- ingsmál til tölvunefndar er lúta nákvæmlega að þessu,“ segir Páll Hreinsson dósent, formaður tölvu- nefndar í samtali við Dag. „A hinn bóginn eru til allnokkur er- lend dæmi þess að gömlum persónu- upplýsingum úr skrám lögreglu um stjórnmálamenn hafi ólöglega verið veittar til fjölmiðla til þess eins að koma höggi á þá í kosningabar- áttu,“ bætir Páll við. Hann kannast vel við umræðu erlendis um geymslu og tíma- lengd varðveislu ýmiss konar per- sónuupplýsinga í rafrænu formi. „Það er og hefur verið mikil tog- streita um þetta. Persónuvernd- arstofnanir í Evrópu vilja tak- marka þetta, en á móti sækja lög- regla og leyniþjónustur fram og vilja fá að skrá og varðveita gífur- legt magn upplýsinga. Þarna tog- ast á tvenns konar sjónarmið, annars vegar að hafa upp á af- brotamönnum í gegnum nýja tækni og hins vegar að ekki verði skráð og geymt meira af persónu- upplýsingum en þörf er á - og menn hafa nokkuð ólíkar skoðan- ir á því hvar hinn gullni meðal- vegur Iiggur," segir Páll. Ekki ttmabært Hann segir að stefna tölvunefnd- ar byggist á sjöundu grein per- sónuverndarlaga, þar sem segir meðal annars að ekki skuli skrá meira en þörf er á eða geyma lengur en þörf er á. Jón Snorrason, yfirmaður efna- hagsbrotadeildar Ríkislögreglu- stjóra, segir að innan embættisins sé enn verið að vinna að umsögn og tillögugerð og því ekki tíma- bært að greina frá stefnu embætt- isins í þessum efnum. Ekki tókst að afla upplýsinga um gang reglu- gerðarsmíðarinnar frá dómsmála- ráðuneytinu í gær. - FÞG Deilan nær einnig tii geymslu á gögnum úr umferðarmynda vélum. Góðærið sett í sjóð Hagfræðistofnun Háskóla ís- lands leggur m.a. til í haust- skýrslu sinni að rekstrarafgangur á ríkissjóði verði lagður í sérstak- an sjóð í stað þess að nýta hann til að greiða upp erlendar skuld- ir. Sjóðurinn verði síðan notaður til að fjárfesta erlendis. Eftir sem áður haldi ríkisjóður áfram að gefa út skuldabréf. Bent er á að sambærileg leið hefur verið farin í Noregi með góðum árangri. Vinna við skýrsluna sem ber heit- ið „Velferð og viðskipti: Um eðli og orsakir viðskiptahalla" var m.a. styrkt með rúmum 4 miljón- um króna frá forsætisráðuneyt- inu. Stofnunin telur að á þennan hátt sé þekking á lánaumsýslu og áhættustjórnun með lántökum hins opinbera haldið við auk þess sem fjármálamarkaðurinn hefði nauðsynlega viðmiðunarvexti. Sjfl ttarlega umfjöllun «' bls. 13 Ússur Skarphéðinsson formaður Samfylkingarinnar og Margrét Frímannsdóttir varaformaður skoðuðu í gær starfsemina hjá Ako-Plastos á Akureyri. Þau ræddu m.a. við starfsmenn og skoðuðu plastpokagerð. mynd: brink Hvar er Davíð í kennaradeilunni? spyr formaður Samfylkingar. Lýsir eftir Davíð Ossur Skarphéðinsson, formað- ur Samfylkingarinnar, lýsir eftir afskiptum Davíðs Oddssonar forsætisráðherra af kennaraverk- fallinu. Össur sat í gær fund með framhaldsskólakennurum á Akureyri og kom fram á fundin- um að áfram verði barist. Össur segir að afleiðingar verkfallsins fari að verða mjög alvarlegar hvað úr hverju og brýnt sé að rík- isstjórnin taki almennilega á þessum vanda. „Verkstjóri ríkisstjórnarinnar er forsætisráðherra og þegar mál eru komin í hnút og þjóðarhags- munir í húfi, er það skylda for- sætisráðherra að miðla málum þannig að lausn finnist. Nú mæla um 20.000 námsmenn göturnar og margir þeirra munu tapa önninni, það er jafnvel mögulegt að heill vetur glatist. Ætlar forsætisráðherrann ekki að gera neitt í málinu heldur standa bara álengdar og fylgjast með?“ spyr Össur. Formaður Samfylkingarinnar bendir á að samninganefnd rík- isins komi tómhent á hvern fundinn á fætur öðrum og ríkis- stjórnin tali um að kröfur kenn- ara séu skýjum ofar. Hann spyr hvort menn geri sér ekki grein fyrir því að ef verkfallið dragist enn frekar á langinn, komi upp öngþveiti næsta haust í fram- haldsskólunum. Bjöm og Geir burt Össur segir að ef hann væri sjálf- ur í sporum forsætisráðherra, myndi hann stfga fram og taka málið úr höndum fjármála- og menntamálaráðhera. En er Öss- ur sjálfur tilbúinn að hækka laun kennara um 70%? „Hvenær hefur það gerst að gengið væri að öllum kröfum annars við- semjanda? Aldrei. Málið snýst ekki um að ganga að öllum kröf- um kennara. Það snýst um lendingu og samningsvilja.“ - BÞ Qclslagfitu 14 • Slml 462 1300 -taktu þær allar og sparaðu krónurnar www.ormsson.is

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.