Dagur - 23.11.2000, Síða 4

Dagur - 23.11.2000, Síða 4
4 - FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2000 FRÉTTIR Það kostar sitt að vista börn á leikskólum, en nokkuð er mismunandi eftir sveitarfélögum hve mikill sá kostnaður er. 36% verðmimur á leíkskólaplássiun Ekkert eitt sveitarfélag sker sig úr. Þó virðast leikskólapláss í dreifbýli gjarnan vera ódýrari en á höfuðborgarsvæðinu. Alls 35,8% verðmunur er milli sveitar- félaga á fimm tíma leikskólavistun með hressingu og hádegisverði. Þessi þjón- usta er dýrust hjá Reykjavíkurborg, Bessastaðahreppi, Austur-Héraði, Kópavogsbæ, Stykkishólmsbæ og Dalabyggð og kostar frá 14.100 til 14.800 kr. Odýrust er þessi þjónusta hjá Gerðahreppi, Vatnsleysustrandar- hreppi, á Seyðisfirði, í Mýrdal og Vest- urbyggð og kostar þar á bilinu 10.900 til í 1.700 kr. Skrifstofa Neytendasamtakanna á Akureyri kannaði gjaldskrár leikskóla á vegum sveitarfélaga í október sl. og má Iesa þessar niðurstöður úr könnuninni. Svör bárust frá fjörutíu og tveimur sveitarfélögum af 49 sem fengu fyrir- spurn og er verðmunur mestur hvað varðar forgangshópa eða 43,7%. Hæst eru gjöldin í Dalabyggð, Olafsfirði, Stykkishólmi, Húnaþingi-Vestra eða á bilinu 11.100 til 11.800 kr. Ódýrust er dagvistun fýrir þessa hópa í Bolungar- vík, Hafnarfirði, Akureyri og Snæfells- nesbæ það er að segja 8.200 til 8.500 kr. Atta tíma vistun með fullu fæði er dýrust á Seltjarnarnesi, Bessastaða- hreppi og Austur-Héraði og kostar 22.000 til 23.200 kr. en ódýrust er hún hjá Fjarðarbyggð, Gerðahreppi og Búðahreppi, kostar 17.000 til 17.800 kr. og munar þar 37% á hæsta og lægsta verði. Mesti verðmunur í könn- uninni eða 55% er á sama dæmi fyrir forgangshópa sem er dýrast í Ólafs- firði, Stykkishólmi og Dalabyggð, kost- ar tæplega 17.000, en ódýrast á Akur- eyri 10.900 kr., í Reykjavík 1 1.300 kr. og í Hafnarfjarðarbæ 12.000 kr. Misiiiunanili aðstæður Ekkert eitt sveitarfélag sker sig úr í þessum dæmum en hæstu gjöldin eru hjá Reykjanesbæ, Stykkishólmsbæ, Dalabyggð og Ólafsfjarðarkaupstað, en þau lægstu hjá Bolungarvíkurkaup- stað, Fjarðarbyggð, Hafnarfjarðarbæ og Snæfellsnesbæ. Aðstæður eru um margt ólíkar hjá sveitarfélögunum og hefur það áhrif á útkomuna. Til dæm- is var ekki spurt um hlutfall leikskóla- kennara í starfsliði leikskólanna og ekki athugað hvernig húsnæði eða að- búnaður skólanna er. Ekki var lagt mat á gæði fæðis, systkinafsláttur er mjög mismunandi og svo framvegis. — Bt> JDí&ftr Eins og áður hefur kom- ið fram í heita pottinum er mikið spáö í næsta for- stjóra Byggðastofnunar. Nú heyrist að Valgerður Sverrisdóttir hafi mikinn áhuga á að ráða í starfið Valtý Sigurbjamarson ráð- gjafa á Akureyri, en Valtýr var hér á árum áður forstöðumaöur útibús Byggðastofnunar á Akur- eyri. Er Valtý m.a. talið það til tekna - auk þess að vera almemit vel hæfur í starfið - að hann var kosningastjóri Frainsóknarflokks- ins á Norðurlandi eystra í síðustu kosiúngum, en Valgerður er sem kuimugt er kjörin í þvi kjör- dæmi. Innan úr Framsóknarflokknum liafa lúns Valgerður Sverris- dóttir. vegar lieyrst hávær viðbröð við þessum sögu- sögnum, enda telja gamalgrónir flokksmemi að það væri glapræði iyrir Valgerði að ráða fymim kosmngastjóra sinn, slík ráðning beinlhús liróp- aði á gagnrýni um pólitíska spillingu og gerði af- mælisveisluna góðu að smámáli. Einn gamall frammari orðaði það svo að það væri sama liver- su hæfir menn væm að öðm leyti, en það að hafa verið kosiúngastjóri ráðherra gerði þá sjálfkrafa óhæfa í öll ráðherraskipuð embætti... Það vakti nokkra athygli í pottmum að Björn Bjama- son, meimtamálaráðherra, snuprar Steingrím Her- mannsson tyrir þau um- mæli í nýútkominni ævi- sögu aö Bandaríkjamenn hefðuhrotið margítrekaðar yíirlýsingar sínar um að kjamorkuvopn hefðu ekki verið á íslandi. Telur Bjöm þessar yfirlýsingar fyrrverandi forsætisráðherra landsins „með ólíkindum" en fhmur um leið þá skýringu á þeim að hér sé um að ræða „viðleitni til að skapa vanda fyrir núverandi iitanríkisráöherra" Hall- dór Ásgrhnsson sem tók viö af Steingrhni sem fonnaður Framsóknarílokksins. Já, þær ganga vlða ljósum logum samsæriskenningamar!... Biörn Bjarnason. FRÉ T TA VIÐTALIÐ Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir alþingismaður Samjylkingarinnar og tiefndamiaður ífélagsmálanefndAl- þittgis Öryrkjabandalag íslands hefur lagstgegn því að mál- efni skjólstæðinga þeirrafær- istyfir til sveitarfélaganna. Yfirfærsla málefna öryrkja í uppnámi Páíí Pétursson, félagstnálaróðherra, hefur fltttt á Alþingi lagafrutnvarp utn félags- þjónustu sveitarfélaga sem tn.a. jjallar um yfirfærsltt málefna öryrkja til sveitar- félaganna. Umræðttnni lauk á þriðjudag og það er til timræðu í félagsmálanefnd á þessum morgni. Er lagafrumvarpið t ttpp- námi? „Svo mikið er víst að það eru blikur á lofti vegna þess að Öryrkjabandalagið hefur sent inn nýja umsögn þar sem bandalagið lýsir þvf yfir að það hafi miklar og vaxandi efa- semdir um réttmæti þess að flytja málefni fatlaðra f’rá ríki til sveitarfélaga. Örykja- bandalagið hvetur stjórnvöld til að falla frá frumvarpi þar um, þótt í því og fylgifrum- vörpum þess sé margt jákvætt sem með góð- um vilja má fella að gildandi lögum um mál- efni fatlaðra og tengdum lögum, enda mikil og um margt afar gagnleg vinna að baki. Ör- yrkjabandalagið telur að hjá því verði vart horft að aðstæður fatlaðra gefa því miður ekki tilefni til að afnema lögin um málefni þeirra. Þvert á móti sé það eindregin skoð- un Öryrkjabandalagsins að í þeim efnum megi færa margt til bctri vegar með því að auka við og efla lögin um málefni fatlaðra." - Liggttr þát ekki Jyrir að frumvarpið verði þá ekki dregið til haka? „Félagsmálaráðherra sagði aðspurður í umræðunni hvað verða mundi um málið ef að heildarsamtök fatlaðra væru andsnúin því að það yrði aldrei gert að lögum ef það væri í andstöðu við afstöðu þeirra og skoð- anir. Eg er sammála honum að ekki gangi að gera þetta í andstöðu við heildarsamtök fatl- aðra. Örykjabandalagið og Þroskahjálp voru á sínum tíma sammála þessari yfirfærslu og það kemur fram í frumvarpinu. Áður en frumvarpið var lagt fram í september kom bréf frá Öryrkjabandalaginu og þar segir að bandalagið hafi miklar og vaxandi efasemd- ir um réttmæti þess að flytja málefni fatl- aðra frá ríki til sveitarfélaga. Þá hvatti Ör- yrkj' bandalagið stjórnvöld til þess að falla frá frumvarpi þar um þótt í því og fylgifrum- varpi þess sé margt jákvætt sem með góöum vilja megi fella að gildandi lögum um mál- efni fatlaðra. Eg hef áhyggjur af því að þessi staða sé komin upp í málinu og e.t.v. hafi það siglt í strand." - Telurðu að þetta riðli gerð fjárhagsáætl- unar sveiUtrfélaga sem ntí er unnið að? „Það breytir kannski litlu hjá sveitarfélög- um sem eru reynslusveitarfélög, eins og t.d. Akureyri, en það hefur hins vegar farið fram mjög mikil vinna við undirbúning að laga- frumvarpinu og hjá sveitarfélögunum sem eru að undirbúa þessa yfirtöku, sem var frestað fyrir 2 árum. Öll sú vinna er unnin fyrir gýg ef málið verður ekki að lögum. Yf- irfærslunni átti að lylgja fjármagn en hún átti ekki að taka gildi fyrr en að ári svo það kemur ekki núverandi Ijárlagagerð þeirra við.“ - Það er kannski ekki rétt að leita að sökttdólg, en var sambandinu við Oryrkja- battdalagið eitthvað ábótavant? „Þeir áttu fulltrúa í nefndinni. En þeir hafa greinilega verið að skoða þessi mál í nágrannalöndunum og telja að þar sé veriö að hverfa frá því að hafa þennan málaflokk hjá sveitarfélögunum og því hafa þeir fullar efasemdir um að stjórnvöld séu á réttri leið ef marka má nýjustu umsögn þeirra um málið.“ — GG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.