Dagur - 23.11.2000, Blaðsíða 10
10 — FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2000
ERLENDAR FRÉTTIR
Indverskur hermaður fylgist með liðssafnaði Pakistana við iandamærin.
Stríðsástand
á viðkvæmu svæði
Á Kashmír að hljóta
sjáifstæði, tilheyra
Indlandi áfram eða
sameinast Pakistan?
Það sem af er þessa mánaðar
hafa 60 manns fallið í Kashmír í
átökum milli indverskra her-
manna og múslima. Síðan deil-
urnar um yfirráð þessar héraðs
við rætur Himalajafjallgarðsins
hófust yfir alvöru íyrir áratug
hafa um 50 þúsund manns látið
Iífið. Kahsmír er á yfirráðasvæði
Indlands, en margir íbúanna eru
múslimar og greinir þá um hvort
Jandið á að tilheyra Pakistan,
vera sjálfstætt eða jafnvel undir
indverskri vernd. Indverjar gera
lítið úr sjálfstæðiskröfum
múslimana, en telja að undirróð-
ursmenn og óróaseggir komi frá
Pakistan og að skæruliðar séu
ckki annað en pakistanskir her-
menn.
Víst er um það, að í Kashmír
og á landamærunum við Pakist-
an eru stöðugar skærur milli
indverskra og pakistanskra her-
manna. Deilurnar um Kasmír
eiga sér bæðir trúarlegar og
þjóðernissinnaðar orsakir. Þegar
yfirráðum Breta lauk var landinu
skipt í tvennt og síðar í þrennt.
Hindúar ráða Indlandi en
múslimir Pakistan, sem fyrst
skiptist í austur og vestur hluta
með Indland á milli. Síðar varð
austurhlutinn að Bangladesh og
er sjálfstætt ríki, fátækt og van-
burðugt. Um Kashmír náðist
ekki samkomulag þar sem íbú-
arnir eru bæði múslimir og
hindúar.
Málin í þessum heimshluta
eru flókin og sjónarmiðin ósætt-
anleg og hefur engum tekist að
koma af stað neins konar friðar-
ferli. Það sem einkum vekur ugg
vegna vondrar sambúðar ná-
grannaþjóðanna er, að bæði Ind-
verjar og Pakistanar hafa komið
sér upp kjarnorkuherafla og sýna
styrk sinn með raðsprenginum í
tilraunaskyni.
Herdeildir nágrannanna eru
gráar fyrir járnum sitt hvoru
megin landamæranna og ekki
líöur svo dagur, að ekki sé dúnd-
rað úr fallstykkjum yfir landa-
mærin úr báðum áttum. Sú skot-
hríð hefur ágerst mjög á haust-
mánuðum.
Alitið er að í Kashmír séu á
milli 200 þúsund og 500 þúsund
manna indverskur her. Er þetta
mesti liðssafnaður á óróasvæði
sem nú er vitað um. Er ekki
árennilegt fyrir Pakistana að
gera innrás í Kashmír þótt þeirra
her sé einnig öflugur.
Múslimar í Kashmír krefjast
sjálfstjórnar og sjálfstæðis hér-
aðsins, en Pakistanar fara eldd
dult með, að þeir álíta héraðið
hluta af sfnu landi. Vopnaðar
sveitir múslima í Kashmír hafa
lengi gert indversku hersveitun-
um skráveifur. I júlí s.l. samdi
stærsti hópurinn sem berst gegn
indverskum yfirráðum, Hizbul
Mojahedin, um vopnahlé. En
þeir samningar enduðu með
ósköpum, sprengjuárásum og
skothríð þegar Indverjar neituðu
að Pakistanar ættu nokkra aðild
að friðarsamkomulagi.
Nú eru samningaumleitanir
enn í uppsiglingu og Indverjar
segja sig fúsa að ræða við full-
trúa múslima, sem þeir eru ný-
búnir að sleppa úr fangelsum,
um framtíð Kashmír. Sem fyrr er
Pakistönum meinað að eiga
hlutdeild að samningaviðræðun-
um, en vonir standa til að þeir
geti tekið þátt í þeim á síðari
stigum. Enda verður ekki samin
friður á þessum slóðum, nema
að allir deiluaðilar hafi þar hönd
í bagga, því allir verða að gefa
eftir af sínum kröfum ef einhver
von á að verða um árangur. — OÓ
Cheney fær aðkenningu
TALLAHASSEE, Florída - Embættismenn kjör-
stjórna stóðu í ströngu í gær við handtalningu at-
kvæða í forsetakosningunum í gær eftir að hæsti-
réttur hafði heimilað slíka talningu og gefið frest til
að skila inn niðurstöðum fram á helgina. En inn í
þessa dramtísku atburðarás bárust síðan fréttir af
því að Dick Cheney, varaforsetaefni Repúblikana
hefði verið fluttur á sjúkrahús í hasti með verki fyr-
ir brjóstinu. Þetta er algjörlega ný vending í hinni
æsilegu framvindu sem forsetakosningarnar, eða Dick Cheney
talningin öllu heldur hefur tekið á sig, því Dick með aðkenningu
Cheney hefur sjúkdómssögu varðandi hjartaveik- að hjartaáfalli.
leika.
Fjórir Palestínumenn drepnir
GAZA - ísraelskir hermenn skutu fjölmörgum skotum á bifreið sem
Palestínumenn voru í í gær við vegartálma á Gazasvæðinu og drápu
með því fjóra Palestínumenn. Þessi átök eru hluti af vaxandi óróa á
svæðinu og ofbeldið er þar að stigmagnast. Israelski herinn segir að
hinir dauðu hafi verið hryðjuverkamenn í Fatah samtökunum sem
Yasser Arafat stýrir og að á meðal þeirra hafí verið hátt settir skæru-
liðaforingjar. Fatah hins vegar segir að Iraelar haldi sig við sama hey-
garðshornið og drepi miskunnarlaust saklausa borgara og segja að í
þessum bíl hafi einungis verið saklausir borgarar og einn hinna látnu
hafi verið kona.
Birgðasöfnun hiá hílaverksmiðjum
DETROIT - DaimlerChrysler AG’s Chrysler group, sem er undir
þýskri stjórn tilkynnti í gær að starfsemi í þremur Bandarískum sam-
setningarverksmiðjum yrði hætt í eina viku í næstu viku til að koma
í veg fyrir enn frekari birgðasöfnun hjá fyrirtækinu. Lokunin á hins
vegar einungis að vera tímabundin og er gagnaðgerð af hálfu stjórn-
enda til að mæta því áfalli sem varð í afkomu á þriðja ársfjórðungi.
Þessar lokanir í næstu viku koma í kjölfar þess að fyrirtækið lokaði
um vikutíma sjö af 13 samsetningarverksmiðjum íyrirtækisins fý'rír
um það bil mánuði síðan.
Stjórumálasamhaud á Balkanskaga
SARAJEVO - Háttsettir bosnískir og júgóslavneskir embættismenn %
tilkynntu í gær að þessi nágrannaríki myndu taka upp á ný stjórn- 9
málasamband eftir eina til tvær vikur. Atta ár eru síðan þau slitu
stjórnmálasambandi. Hinn nýju utanríkisráðherra Júgóslavíu Goran
Svilanovic sagði í gær að hann vonaðist til að ríkisstjórn sín tæki
ákvöðrun um stjórnmálasambandið fljótlega en enn væri ekki búið að
taka þessa ákvörðun endanlega.
Madoima
giftist Guy
LONDON - Bandaríska popp-
stjarnan Madonna og kærastinn
hennar, hinn breski Guy Ritchie
munu ganga í hjónaband í næstu
viku og setjast að í London. Þetta
kemur fram í síðdegisblaðinu
Sun í gær. Þau skötuhjú eiga
saman Ijögurra mánaða gamlan
son og eru sögð bæði ástfangin
og hamingjusöm.
Skötuhjúin Guy Ritchie og
Madonna.
■ FRÁ DEGI
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER
328. dagur ársins, 34 dagar eftir.
Sólris kl. 10.22, sólarlag kl. 16.05.
Þau fæddust 23. nóv.
• 1859 Billy the Kid, bandarískur byssu-
bófi, sem myrti a.m.k. 27 manns áður
en hann var sjálfur skotinn 21 árs að
aldri.
• 1887 Boris Karloff, enskur hrollvekju-
leikari sem frægastur var fyrir hlutverk
sitt sem Frankenstein.
• 1919 Peter F. Strawson, breskur heim-
spekingur.
• 1933 Krzysztof Penderecki, pólskt tón-
skáld.
• 1940 Svanhildur Jakobsdóttir söngkona.
• 1953 Hlfn Agnarsdóttir leikstjóri.
Þetta gerðist 23. nóv.
• 1499 var maður, sem kallaði sig Perkin
Warbeck, tekinn af Iífi í Englandi fyrir
TIL DAGS
að þykjast vera erfingi ensku krúnunnar.
• 1838 var kirkjugarðurinn við Suðurgötu
í Reykjavík tekinn f notkun.
• 1947 kom bandaríski kvikmyndaleikar-
inn Tyrone Power til Islands og vakti
heimsókn hans mikla athygli á sínum
tíma.
• 1973 gerðist það í fyrsta sinn í Banda-
ríkjunum að þingkona eignaðist barn
meðan hún átti sæti á þingi, en hún var
Yvonne Watson Braithwaite Burke,
demókrati frá Kaliforníu.
• 1995 samþykktu serbar f Bosníu friðar-
samkomulagið sem gert var í Daytona í
Bandaríkjunum.
Vísa dagsins
Þegar runninn er af þér
ídealski sviminn,
neðst við askbotn undu þér
með asklokfyrir himinn.
Steingrímur Thorsteinsson
Afmælisham dagsins
Ljóðskáldið Paul Celan var fæddur árið
1920 í bæ sem hét Cernauti og tilheyrði
þá Rúmeníu en heitir nú Chernovtsy og
tilheyrir Úkraínu. Réttu nafni hét hann
Paul Antschel. Hann var Gyðingur og
bjó aldrei í Þýskalandi, en var engu að
síður eitt helsta ljóðskáld á þýska tungu
næstu áratugina eftir seinni heimsstyrj-
öldina. Meðan stríðið stóð yfir fór hann
í einangrunarbúðir og foreldrar hans
voru myrtir. Paul Celan lést 20. apríl
árið 1970.
Það er betra að halda kjafti og virðast vera
heimskur heldur en að opna hann og taka
af allan vafa. Mark Twain
Heilahrot
Maður nokkur liggur Iátinn úti á víðavangi.
Hann heldur fast um hring, og það er
greinilegt á öllu að þessi hringur átti þátt í
dauða hans. Hvernig dó þessi maður?
Lausn á sfðustu gátu: Næsti stafur er P.
Hér er um að ræða stafi f efstu bók-
stafaröðinni á íslensku lyklaborði.
Vefur dagsins
Tónskáldafélag Islands er með gagnagrunn
íslenskrar tónlistar á vefnum, þar sem hægt
er að finna jafnt tónskáld sem tónverk:
www.teymi.is/tonis
I