Dagur - 05.12.2000, Side 19
Útsvarsprósenta í
Skagafirðií 12,7%
Byggðarád heiur sam-
þykkt drög að sam-
komulagi við Flugu
ehf. um uppbyggingu
og rekstur reiðhallar á
Sauðárkróki. Sam-
kvæmt því á að skulda-
jafna 12 milljónir á
móti gatnagerðar- og
tengigjöldum og leggja
til rekstrarstyrk auk
gerðar hílastæða.
Unnið er að því að fýrri umræða
um fjárhagsáætlun sveitarfélags-
ins Skagafjarðar fýrir árið 2001
komi til fyrri umræðu fyrir jól.
Einstaka málaflokkar fara til
nefnda í vikunni. A fundi byggða-
ráðs sl. miðvikudag var samþykkt
að útsvarsprósentan yrði 12,70%
árið 2001, með fyrirvara um sam-
þykkt á breytingu laga um tekju-
stofna sveitarfélaga. A fundinum
lét Ingibjörg Hafstað, Skagaljarð-
arlista, bóka:
„Eg undirrituð óska að það sé
bókað að ég set mig ekki á móti
tillögu að hækkun útsvarspró-
sentu í 12,70% sem er það há-
mark sem sveitarfélögum er heim-
ilt að nota, en vek á því athygli að
þessi hækkun er að stærstum
hluta tilkomin vegna þeirra út-
gjalda sem ríkisvaldið hefur velt
yfir á sveitarfélögin. Sveitarfélag-
inu Skagafirði er auk þess, fjár-
hagsstöðu sinnar vegna, nauðsyn
að hafa prósentuna í hámarki. En
þar sem ég geri ekki ráð fyrir að
hafa mikið um það að segja
hvernig þessu fé verði varið, þá sit
ég hjá við afgreiðslu."
Snorri Björn Sigurðsson, bæjar-
stjóri, segist ekki vita við hvað sé
miðað þegar talað sé um slæma
stöðu sveitarfélagsins Skagafjarð-
ar, þó allir séu sammála um að
skuldirnar séu miklar. „Sam-
kvæmt árbók sveitarfélaga erum
við hvorki skuldugasta sveitarfé-
lagið á Islandi né á Norðurlandi,
og töluvert langt frá því sé miðað
við íbúatölu. Eg bendi á að orku-
fyrirtækin hér eru vel stæð þó
sveitarsjóður skuldi mikið og við
eigum hlutafé í fyrirtækjum sem
eru gulls ígildi. Eg á fastlega von á
því að eignir verði seldar, en eign-
irnar eru hærra metnar en skuld-
irnar, s.s. hlutur sveitarsjóðs í
Steinullarverksmiðjunni. Sveitar-
sjóður á fasteignir sem eru alfarið
nýttar af öðrum aðilum en okkur.
Það er oft ekki horft á það að fast-
eignir sem skuldir hvíla á gefa líka
af sér leigutekjur," segir Snorri
Björn Sigurðsson.
Umdeilt samkomulag
um reiðhöll
Lögð voru fram drög að sam-
komulagi við Flugu ehf. um upp-
byggingu og rekstur reiðhallar á
Sauðárkróki. Samkvæmt því á að
Snorrí Björn Sigurðsson, bæjarstjóri.
skuldajafna 12 milljónir á móti
gatnagerðar- og tengigjöldum og
Ieggja til rckstrarstyrk auk gerðar
bílastæða. Byggðarráð samþykkti
samkomulagið með fjórum at-
kvæðum gegn atkvæði Ingibjargar
Hafstað.
„Það er mjög alvarlegt mál að
leggja í ljósi bágrar stöðu sveitar-
sjóðs til þetta áhættuljármagn.
Vinnulag Flugu, sem stendur að
byggingu reiðhallarinnar sem
tengist rekstri Hestamiðstöðvar
Islands, er forkastanlegt. Söfnun
almenningshlutafjár gekk ekki
nógu vel í sumar og þá koma for-
svarsmenn Flugu á hnjánum til
sveitarfélagsins, þó það hafi aldrei
verið hugmyndin í upphafi. Þetta
gerist æ ofan í æ. Alls konar
þrýstihópar bvrja á framkvæmd-
um og koma svo til sveitarfélags-
ins þegar allt er stopp og stelnir í
óefni. Eg vil að þessu linni," segir
Ingibjörg Hafstað.
Skipulag Faxatorgs
til endurskoðunar
lngibjörg Hafstað lét einnig bóka:
„Við undirritaðir fulltrúar S-lista
áteljum þann drátt sem orðið hef-
ur á afgreiðslu á erindi Eikar hf.
frá 8. júní s.l. og vísum í því sam-
bandi til Stjórnsý'slulaga nr. 37 frá
1993.“ Eik er byggingaverktaki
sem sótti um Ióð við Faxatorg þar
sem bæjarskrifstofurnar og Bún-
aðarbankinn eru. Sveitarstjóri
segir að Eik haff viljað byggja
skrifstofuhúsnæði fyrir sunnan
torgið en umhverfis- og tækni-
nefnd hafi ekki treyst sér til þess
að verða við óskum Eikar þar sem
skipulagið geri ekki ráð lýrir svona
byggingu. Svæðið kringum Faxa-
torgið hefur verið tekið til endur-
skipulagningar og sú vinna er að
hefjast. Því hafi ekki verið hægt að
verða við erindi Eikar, en vissu-
Iega hefði verið hægt að svara Eik-
armönnum fyrr.“
Lagt var fram bréf á byggða-
ráðsfundinum frá Sambandi
sveitarfélagi á Norðurlandi vestra,
SSNV, þar sem óskað var eftir
svörum við því hvort sveitarfélagið
gæti tekið þátt í kaupum eða Ieigu
og rekstri skólaskips. Einnig var
Iagt fram afrit af bréfi Sjávarút-
vegsráðuneytisins frá þvf í sept-
ember um sama máleliii. Byggð-
arráð samþykkti að hafna erind-
inu. GG
Valþór Hlöðversson, framkvæmda-
stjóri Athygli, og Jóhann Úlafur
Halldórsson, framkvæmdastjóri
Áforma, handsala samkomulag um
sameiningu fyrirtækjanna.
ÁformogAthygli
sameinast
Fjölmiðlabræðurnir Jóhann Ólaf-
ur og Atli Rúnar Halldórssynir
hafa gengið til samstarfs með
sameininingu Aforma á Akureyri
og Athygli í Reykjavík. Hið nýja
almannatengsla og kynningarfyr-
irtæki mun bera nafn Athygli og
verður starfsstöðin á Akureyri
stækkuð. Eftir sameinihguna
munu starfsrrienn Athygli verða
12 talsins.
Jóhann Ólafur var eigandi og
framkvæmdastjóri Aforma en
hann er nú kominn í hóp eigenda
Athygli eftir breytinguna. Asamt
honum eiga V'alþór Hlöðversson,
\tli Rúnar Halldörsson, Kristinn
Gylli Jónsson og Arni Þórður
Jónsson lýrirtældð.
/ tilefni af opnun nýrrar verslunar Bónuss á Akureyri sl. laugardag gaf verslunin barnadeild FSA eina milljón króna til
tækjakaupa. Bónus hefur nú verið starfandi í á tólfta ár og með pokakaupum á þessum árum hafa viðskiptavinir fyrir-
tækisins gert Bónus kleift að styrkja Barnaspítala Hringsins um 25 milljónir króna. Frá fyrsta degi starfsemi Bónuss
hefur það verið eigendum fyrirtækisins mikið keppikefli að geta látið fé afhendi rakna til tækjakaupa fyrir veik börn.
Er það von Bónuss að þessi peningagjöf til barnadeildar FSA nú megi verða til að stuðla að bættri heilsu barna á
Norðurlandi. Á myndinni afhendir Jóhannes Jónsson Magnúsi Stefánssyni, yfirlækni barnade/ldar FSA, gjöfina.
Eignasala kom í veg fyrir stórfellt tap
á rekstrarárinu en bjartara er
framundan.
Vonbrigði
hjá Skúma-
iðnaði
Skinnaiðnaður hf. á Akureyri var
rekinn með tæplega tveggja millj-
óna króna hagnaði á liðnu rekstr-
arári en því lauk þann 31. ágúst
sl. Rekstrarárið 1998-1999 var
félagið rekið með 134,4 milljóna
króna tapi en meginskýringin á
viðsnúningnum er sala eigna í ár.
Mestur hluti húseignanna á Gler-
áreyrum hefur verið seldur og var
bókfærður söluhagnaður 145
milljónir vegna þessa.
Markmið brugðust
„Þessi niðurstaða veldur okkur
vonbrigðum, enda er hún mun
lakari en við gerðum ráð fýrir í
áætlunum okkar,“ segir Bjami
Jónasson, framkvæmdastjóri
Skinnaiðnaðar. Hann segir eink-
um tvo þætti ráða mestu um að
afkoman er ekki betri en raun ber
vitni. „Annars vegar var gengis-
þróunin félaginu óhagstæð en
um 60% af tekjum félagsins eru í
e\Tu eða mynt tengdri þeim gjald-
miðli. Þá seldum við minna magn
en við gerðum ráð f\TÍr inn á þá
markaði sem borga hæsta verðið.
Þessir þættir gerðu það að verk-
um að markmið okkar náðust
ekki.“ Hinn meginþátturinn,
sem hafði áhrif á afkomuna, seg-
ir Bjarni vera hærri framleiðslu-
kostnað en ráð var fýrir gert og
loks að óhagræði vegna flutnings
á starfseminni yfir í nýtt húsnæði
hafi haft nokkurn kostnað í för
með sér.
Betri horfiir
A síðustu mánuðum hefur eftir-
spurn eftir mokkaskinnum, sem
cr meginframleiðsluvara Skinna-
iðnaðar, farið vaxandi og verð
hækkað. Bjarni segir að margt
bendi lil að þessi þróun muni
halda áfram. Hann segir að jafn-
framt sé unnið markvisst að því
að ná kostnaði við framleiðsluna
niður. Því standi vonir til að salan
á yfirstandandi rekstrarári verði
meiri en í lýrra og að framlegðin
aukist á milli ára. BÞ
Bamadeild í
nýtt húsnæði
Bamadeild Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri flytur væntanlega á
föstudag í nýtt húsnæði sem ver-
ið hefur í byggingu undanfarin
misseri. Unnið hefur verið að því
af verktakanum, H\Tnu, að hrein-
sa deildina og hefur það verið
fjáröflunarverkefni íþróttafélags-
ins Þórs.
Einnig stendur fýrir dyrum að
taka formlega í notkun nýja end-
urhæfingarsundlaug að Kristnesi,
og verður það gert sama dag og
barnadeild FS.A af' heilbrigðisráð-
herra, lngibjörgu Pálmadóttur.
GC