Dagur - 08.12.2000, Side 6
I
Afgangar af
j ólamatmnn
Það er ekki ólíklegt að afgangur
verði af jólamatnum hjá ein-
hveijum þvi gjaman er Iagt
mikið í hann hvort sem um er
að ræða ijúpur, hangikjöt, gæs-
ir, hamborgarhrygg, kalkún,
lambahrygg, svínasteik eða eitt-
hvað allt annað. Þegar verða af-
gangar er um að gera að nýta
þá vel, gera vel við jólasteikina.
Rjúpur
Það er frábært að brytja rjúpurnar
eða gæsirnar í sósuna og hita
mjög, mjög hægt. Helst skal hita
blönduna í tvöföldum potti
þannig að gufan af vatninu sjái
um hitunina. Þá er engin hætta á
að brenni við. Síðan er upplagt að
setja heitar kartöflur út í og bera
fram rauðkál með. Ekki er verra
að hafa heitar tartalettur til að
setja sósublönduna í.
Hangikjötið
Það er alltaf gott kalt en það er
líka gott í eggjakökur. Slá saman
eggjum og ijóma, 1 msk. rjómi á
móti hveiju eggi, setja smátt
brytjað hangikjötið út í eggja-
blönduna og fylla tartalettur að
2/3. Síðan skal baka þetta í ofni á
vægum hita þar til eggin stífna.
Hamborgarhryggurmn
Afgangana af honum má nýta á
marga vegu. Það er t.d. sniðugt
að sjóða pasta, helst grænt,
bræða þá rjómaost og setja brytj-
að kjötið út í. Setja skal álíka mik-
ið af osti og kjöti. Gott er að setja
smá pipar út í ostinn og nokkrar
skeiðar af parmesanosti yfir.
Kalkúnniun
Við afgangana af kalkúninum er
um að gera að búa til kalkúnapæ.
Þá er keypt frosið smjördeig, það
flatt út og sett í eldfast mót.
Brytjuðu kalkúnakjöti er stráð yfir
deigið og þá sósunni þar á eftir.
Síðan má setja deiglok yfir en þá
þarf að klippa gat í miðjuna svo
að gufan komist út án þess að
gera deigið rakt. Gott er að pensla
yfír pæið með slegnu eggi og það
þarf að bakast við 200°C hita þar
til kakan verður gullinbrún.
Nýja svinasteikin
Hana er frábært að nýta ofan á
brauð. Það er um að gera að
smyrja stóra brauðsneið og mælt
er með óseyddu rúgbrauði. Yfir
sneiðina er gott að setja vænar
flísar af steik og þá góða hrúgu af
rifnu rauðkáli, niðursoðnum per-
um fínt sneiddum, sýrðunt gúrk-
urn og soðnum sveskjum. Ekki
má gleyma að setja svolítið af ný-
möluðum, svörtum pipar yfir
steikina. Svona sneið er heil mál-
tíð út af fýrir sig. Allra best er að
setja stökka puru með en ólíklegt
að hún sé til svona daginn eftir.