Dagur - 08.12.2000, Side 7
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2000 - 7
JÓLAGJAHANDBÓK
Eftirréttir á jólum
Það erorðið tímabært
að huga að liátíðar-
matnum og ekki má
vanmeta mikilvægi
eftirréttanna. Héreru
fjórir eftirréttir sem
henta vel við hátíðleg
tækifæri. Einnigfylgir
uppskriftaf
eggjapúnsi sem er
partur afjólahaldinu á
Bretlandseyjum og í
Norður-Ameríku en
ekki mikið brúkað hér
á landi að mérvitandi.
Þá má spyrja, ef
jólaglöggið erkomið til
að vera, því ekki
eggjapúnsið?
Charlotteterta
„Malakoff"
20-25 fingrakökur (lady fingers)
175 g ósaltað smjör (lint)
175 g flórsykur
1 tsk. vanillusykur
225 g möndlur (smátt saxaðar)
4 1/2 dl rjómi, þeyttur
2-3 msk. romm
sítrónusneið til skreytingar
Raðið puttakökunum innan í
18 cm springform sem klætt er
með smjörpappír, gott er að
skera endann af og snúa skurð-
inum niður og sykruðu Iiliðinni
út, þannig standa kökurnar
betur. Þeytið smjörið, flórsyk-
urinn og vanillusykurinn vel
saman þar til blandan verður
froðukennd, blandið möndlun-
um og þremur fjórðu af þeytta
rjómanum saman við og að lok-
um romminu. Hellið blönd-
unni í formið og kælið vcl í 3-4
klukkustundir, skerið ofan af
puttakökunum ef þær standa
upp úr forminu áður en því er
hvolft á fat og það losað utan
af kökunni. Skreytið kökuna
með þeytta rjómanum sem eftir
er og sítrónusneið.
Charlotteterta
„Royale“rúlluterta
með jarðaberjasultu
____________4 egg___________
2 dl sykur
1 dl hveiti
3/4 dl kartöflunrjöl
1/2 tsk. vanillusykur
1/2 tsk. lyftiduft
1 dl jarðaberjasulta
Þeytið eggin og sykurinn vel
saman, bætið hinum þurrefn-
unum saman við og blandið
með sleif, hellið í ofnskúffu
með bökunarpappír og bakið
við 200°C í 12-15 mín. eða þar
til kakan er gullinbrún. Veítið
kökunni á taustykki sem sykri
hefur verið stráð á, snyrtið
endana og smyrjið sultunni vel
yfir kökuna áður en henni er
rúllað upp innan í stykkið. Þeg-
ar kakan er orðin köld er hún
skorin í sneiðar og raðað innan
í skál sem er klædd með smjör-
pappír.
Royale fylling:
4 1/2 dl mjólk
1 vanillustöng
5 eggjarauður
25 g matarlím
(u.þ.b. 8 matarlímsbiöð)
75 g flórsykur
3-4 msk. kirsuberjalíkjör
„Kirsch" (má vera safi
af kirsuberjum)
2 dl rjómi, þeyttur
Hitið mjólkina að suðu ásamt
vanillustönginni, takið af hita
og látið standa í 1 5-20 mínút-
ur. Þeytið eggjarauðurnar og
sykurinn saman. Skafið kjarn-
ann innan úr vanillustönginni,
setjið út í mjólkina, hitið aftur
að suðu og hellið í rnjórri bunu
út í eggjablönduna og þeytið á
meðan. Hellið blöndunni aftur
í pottinn og hitið varlega aftur
þar til blandan fer að þykkna,
hrærið stöðugt í á meðan með
trésleif. Hellið blöndunni í
skál, Ieysið matarlímið upp í
heitum líkjörnum og hellið
saman við eggjamjólkurblönd-
una, setjið skálina í kæliskáp
og hrærið í með sleifinni annað
slagið. Þegar blandan er farin
að þykkna er þeytta rjómanum
blandað saman við og blönd-
unni hellt í formið með
rúllutertusneiðunum. Kælið vel
yfir nótt áður en tertunni er
velt á fat og hún skreytt með
þeyttum rjóma.
___________Eggjapúns
6 eggjarauður
1 bolli sykur
1 dl romm (ljóst)
2 I rjómi
6 eggjahvítur
2 bollar flórsykur
a.t.h. allt hráefni þarf að vera kalt
Eggjarauðurnar og sykurinn
er stífþeytt, romminu er bætt
saman við í smá slöttum og
þeytt vel í á meðan. Þá er 1 1/2
1 af rjóma blandað út í og 3
eggjahvítum, blandan þeytt
létt. Hinar eggjahvíturnar eru
stífþeyttar ásamt flórsykrinum
og blandað út f með sleikju
ásamt afganginum af rjóman-
um. Geymið blönduna í kæli
þar til hún er borin fram, gott
er að strá örlitlu af möluðu
múskati yfir púnsið.
Jóladrumbur
Botn:
____________3 egg__________
75 g flórsykur
1/2 tsk. vanillusykur
75 g hveiti
25 g kókó
1 tsk. heitt vatn
Eggin, sykurinn og vanillu-
sykurinn eru þeytt vel saman
þar til blandan Ioðir vel við
þeytara. Blandið kókó og hveiti
varlega saman við með sleif og
að lokum vatninu. Hellið deig-
inu í vel smurða ofnskúffu og
bakið í 10-12 mín. við 200°C.
Sláið botninn á taustykki og
setjið á hann krem og rúllið
upp. I kökuna þarf tvær
rúllutertur (tvöfalda uppskrift
af deigi og kremi).
Krem:
100 g smjör (lint)
1 50-225 g flórsykur
4 msk. sjóðandi vatn
1/2 tsk. vanillusykur
Allt þeytt saman þar til kremið
er létt og Ioftkcnnt.
Krem utan á drumbinn:
100 g smjör (lint)
200 g flórsykur
1 tsk. Neskaffi
1 msk. sjóðándi vatn
80-100 g suðusúkkulaði (bráðið)
Smjör og flórsykur þeytt sam-
an, kaffið leyst upp í vatninu
og blandað út í ásamt
súkkulaðinu, þeytið vel saman
og smyrjið á tertuna áður en
kremið fer að storkna. Komið
tertunni fyrir á hæfilega stóru
tertufati og smyrjið kreminu
utan á þannig að hún líti út
eins og trjádrumbur. Kælið vel
áður en borið er fram og nú er
um að gera að gefa sköpunar-
gleðinni lausan tauminn við
skreytingarnar.
Pönnukökuterta
Pönnukökur:
100 g hveiti
1 egg
1 msk. bráðið smjör
örlítið salt
olía til steikingar
Öllu blandað saman og
pönnukökur bakaðar úr deiginu
(u.þ.b. 10 stk.)
Fylling:
5 epli afhýdd, kjörnuð og skorin
í þunnar sneiðar
50 g ósaltað smjör
75 g púðursykur
1 tsk. kanill
börkur af einni sítrónu
Brúníð eplin í smjörinu þar
til þau eru meyr, bætið kanil og
sítrónuberki saman við og takið
af hita. Setjið pönnuköku á
ofnplötu og setjið eplablöndu
ofan á og síðan aðra pönnu-
köku og svo koll af kolli þar til
pönnukökurnar eru búnar þá
er hjúpnum hellt yfir.
Hjúpur:
6 msk. apríkósumarmelaði
2 msk. romm
safi og börkur af einni sítrónu
50 g möndluflögur
Hitið marmelaði, romm, börk
og sítrónusafa í potti þar til
það hefur blandast vel saman,
hellið yfir pönnukökustaflann
og stráið möndlunum yfir og
bakið í ofni við 170°C í tíu
mínútur. Berið fram heitt með
rjóma og afganginum af hjúpn-
um.
Gangi ykkur vel og verði ykk-
ur að góðu.
3 dl mjólk
ciz'ceA'/o/*
-leikur i þínum höndum!
harmóníku
I 1 I
mfA
■m
hljóðfæraversliin_________
Leifs Magnússonar ehf.
GULLTEIGI 6. 105 REYKJAVÍK, SÍMI 568 8611
www.visir.is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR