Dagur - 16.12.2000, Page 8
Vm- LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2000
B^ur
KIRKJUS TARF
Sunnudagur 17. desember - 3. sunnudag-
ur í aðventu
ÁSKIRKJA
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA
Barnamessa kl. 11:00. Sýnt verður leikritið
„Ósýnilegi vinurinn" með Stoppleikhópnum.
Skemmtileg sýning fyrir alla fjölskylduna.
Jólasöngvar fjölskyldunnar kl. 14:00. Börn úr
Fossvogsskóla sýna helgileik. Barna- og
stúlknakórar syngja. Syngjum saman og
undirbúum komu jólanna. Pálmi Matthías-
son.
DÓMKIRKJAN
Messa kl. 11:00. Sr. JakobÁgúst Hjálmars-
son. Kór aldraðra syngur undir stjórn Sigur-
bjargar Hólmgrímsdóttur. Organisti Marteinn
H. Friðriksson. Jólahátíð barnanna kl. 14:00
í umsjá Bolla P. Bollasonar og sr. Jakobs Ág.
Hjálmarssonar. Skólahljómsveit Vesturbæjar
leikur jólalög. Flutt veðrur leikritið „Leitin að
Jesú“. 'Æðruleysismessa kl. 20:30. Sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir og sr. Jakob Ág. Hjálmars-
son flytja samtalsprédikun. Bræðrabandið
og Anna S. Helgadóttir sjá um tónlist og
Bjarni Arason og Grétar Örvarsson taka
lagið.
ELLIHEIMILIÐ GRUND
Messa kl. 14:00. Prestur sr. Ólafur Skúlason
biskup. Organisti Kjartan Ólafsson. Félag
fyrrverandi sóknarpresta.
GRENSÁSKIRKJA
Jólaskemmtun barnanna kl. 11:00. Tónleikar
Kirkjukórs Grensáskirkju kl. 17:00. Sr. Ólafur
Jóhannsson.
HALLGRÍMSKIRKJA
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00.
Barna- og unglingakór Hallgrimskirkju syng-
ur og flytur helgileik undir stjórn Bjarneyjar
Ingibjargar Gunnlaugsdóttur og Magneu
Sverrisdóttur. Organisti Hörður Áskelsson.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Ensk jólamessa
fyrir enskumælandi fólk, fjölskyldur þeirra og
vini verður kl. 14.00. Mótettukór Hallgrims-
kirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn org-
anistans Harðar Áskelssonar, Bernharður
Wilkinson leikur einleik á flautu og séra Sig-
urður Pálsson prestur i Hallgrímskirkju
stjórnar athöfninni. Eftir guðsþjónustuna
býður breska sendiráðið kirkjugestum að
þiggja kaffi í kirkjunni.
LANDSPÍTALINN
Messa kl. 10:00. Sr. Guðlaug Helga Ásgeirs-
dóttir.
HÁTEIGSKIRKJA
Kirkjudagur Háteigssafnaðar. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11:00. Sr. Carlos A. Ferrer, Pétur
Björgvin Þorsteinsson, fræðslufulltúi, Sólveig
Halla Kristjánsdóttir, guðfræðinemi og Guð-
rún Helga Harðardóttir, djáknanemi. Messa
kl. 14:00. Organisti Douglas A. Brotchie. Sr.
Tómas Sveinsson. Aðventusöngvar við
kertaljós kl. 20:00. Ræðumaður biskup ís-
lands hr. Karl Sigurbjörnsson. Kór kirkjunnar,
Hulda Guðrún Geirsdóttir, sópran, Peter
Tompkins, óbóleikari og Douglas A.
Brotchie, organisti og kórstjóri, flytja tónlist
eftir Albinoni, Bach, Distler, Dvorák,
Vedonck og Vivaldi.
LANGHOLTSKIRKJA
Kirkja Guðbrands biskups. Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11:00. Jólasöngvar við kertaljós.
Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Organisti
Jón Stefánsson. Kakó í safnaðarheimilinu á
eftir. Komið með sýnishorn af smáköku-
bakstrinum.
LAUGARNESKIRKJA
Sunnudagaskóli og ekta jólaball kl. 11:00 í
umsjá Mömmumorgna. Athugið að eiginlegt
messuhald fellur niður og börnin eiga kirkj-
una að þessu sinni. Prestur, djákni, organisti
og Kór Laugarneskirkju þjóna ásamt öðrum
starfsmönnum safnaðarins og her
Mömmumorgnakvenna sem bjóða uppá
smákökur og drykki í safnaðarheimilinu.
Samveran hefst á helgistund í kirkjunni, þar
sem brúðustelpan Dúlla lætur í Ijós sitt skína
uns leikurinn berst yfir í safnaðarheimilið,
þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir söng
og stjórnar dansi með óvæntri aðstoð ofan
úr fjöllum.
NESKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 11:00. Prestur sr. Halldór
Reynisson. Organisti Reynir Jónasson.
Sunnudagaskólinn og 8-9 ára starfið á sama
tíma. Kirkjubíllinn ekur um hverfið á undan
og eftir eins og venjulega. Safnaðarheimilið
er opið frá kl. 10:00. Kaffisopi eftir guðs-
þjónustu. í safnaðarheimilinu er sýning á
nokkrum verkum, sem börn í Mela- og
Grandaskóla unnu i tengslum við kristni-
tökuhátíð.Jólatónleikar sinfóníuhljómsveitar
áhugamanna kl. 17:00.Einleikari Ári Þór Vil-
hjálmsson. Einsöngur Inga J. Backman.
SELTJARNARNESKIRKJA
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00. Starfsfólk
sunnudagaskólans leiðir stundina. Jólalögin
verða sungin, helgileikur sýndur og óvæntir
gestir koma í heimsókn. Barnakór Seltjarn-
arness syngur. Notaleg stund fyrir alla fjöl-
skylduna. Verið öll hjartanlega velkomin.
Starfsfólk Seltjarnarneskirkju.
ÁRBÆJARKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 11 fellur niður. Jólastund
sunnudagaskólans og Fylkis kl. 13:00-15:00.
Byrjað verður í kirkjunni með jólasöngvum
barnakórs kirkjunnar. Jólaguðspjallið og
jólasöngvar. Þá liggur leið niður í safnaðar-
heimilið á jólastrésskemmtun. Kátir sveinar
mæta með góðgæti í poka. Allir velkomnir,
ungir sem aldnir. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA
Jólasöngva- og fjölskylduguðsþjónusta kl.
11. Barnakórinn syngur. Tekið er við söfn-
unarbaukum til Hjálparstarfs kirkjunnar. Gísli
Jónasson.
DIGRANESKIRKJA
Aðventuhátíð. Kór Snælandsskóla undir
stjórn Heiðrúnar Hákonardóttur. Tekið á
móti söfnunabaukunum „Brauð handa
hungruðum heimi“ og seld friðarkerti Hjálp-
arstarfs kirkjunnar. Kaffisala til styrktar
hjálparstarfinu. Stjórnun og undirbúninur:
Kór Digraneskirkju og starfsfólk hjálpar-
starfsins. Hugvekju flytur Kristín Bögeskov,
djákni frá Hjálparstarfi kirkjunnar. Aðventu-
hátíðin hefst kl. 20:30.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Jólaskemmtun á
_ eftir í safnaðarheimilinu. Umsjón: Margrét
Ó. Magnúsdóttir. Guðsþjónusta tileinkuð
eldri borgurum kl. 14:00. Ritningarlestrar og
bænagjörð: Sr. Guðmundur Karl Ágústsson,
sr. Hreinn Hjartarson og Lilja G. Haligríms-
dóttir, djákni. Hr. Sigurbjörn Einarsson bisk-
up prédikar. Gerðubergskórinn syngur undir
stjórn Kára Friðrikssonar. Organisti. Lenka
Mátéová. Einsöngur: Lovísa Sigfúsdóttir.
Kaffiveitingar í safnaðarheimili eftir guðs-
þjónustuna. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA
Sunnudagaskóli kl. 11:00 í Grafarvogskirkju.
Sunnudagaskóli kl. 13:00 i Engjaskóla. Út-
varpsguðsþjónusta kl. 11:00. Prestur sr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur. ein-
söngur Valdimar Haukur Hilmarsson. Org-
anisti: Hörður Bragason. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA
Lofgjörðarguðsþjónusta kl. 11. Sr. íris Krist-
jánsdóttir þjónar. Kór Snælandsskóla syng-
ur jólalög og leiðir safnaðarsöng undir stjórn
Heiðrúnar Hákonardóttur. Undirleikari Lóa
Björk Jóelsdóttir. Barnaguðsþjónusta í
Lindaskóla kl. 11 og i kirkjunni kl. 13. Geng-
ið í kringum jólatréð. Aðventusöngvar kl.
20.30. Kammerkór Hjallakirkju syngur jóla-
sálma og söngva. Upplestur milli sálma. Við
minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðju-
dag kl. 18. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA
Barnastarf i safnaðarheimilinu Borgum kl.
11:00. Jólastund. Messa kl. 11:00. Kór
Kópavogskirkju syngur, organisti Julian
Hewlett. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Söngur, frá-
sögn. Foreldrar velkomnir með börnunum.
Guðsþjónusta kl. 14.00. Sr. Irma Sjöfn Ósk-
arsdóttir prédikar. Stúlknakór Selfosskirkju
syngur í guðsþjónustunni undir stjórn Mar-
grétar Bóasdóttur. Kl. 20. Aðventutónar.
Gróa Hreinsdóttir og Margrét Bóasdóttir flyt-
ja Ijófa aðventutónlist við kertaljós. Sóknar-
prestur.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK
Jólatrésskemmtun barnastarfs Fríkirkjunnar í
•Reykjavík verður haldin næstkomandi
sunnudag 17. des kl. 11:00 og hefst hún
með stuttri jólastund i kirkjunni. Síðan verð-
ur farið upp í safnaðarheimili og dansað í
kringum jólatréð. Líklegt þykir að sveinninn
jóla komi í heimsókn með smá nammi í
poka.
LANDIÐ
AKUREYRARKIRKJA
Jólafagnaður sunnudagaskólans í Safnaðar-
heimilinu kl. 11. Guðsþjónusta kl. 17 með
þátttöku frímúrara. Séra Svavar A. Jónsson.
Forsöngvari Óskar Pétursson, Barnakór
Lundarskóla syngur undir stjórn Elínborgar
Loftsdóttur. Ath. messutímann! Fundur í
Æskulýðsfélaginu kl. 17 í kapellu. Jóla-
söngvar Kórs Akureyrarkirkju kl. 20. Syngj-
um jólin inn!
GLERÁRKIRKJA
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Sara og
Ósk ræða við börnin. Barnakór Brekkuskóla
syngur og leiðir söng undir stjórn Arnórs Vil-
bergssonar. Jólatónleikar kórs Glerárkirkju
kl. 17.00.
PÉTURSKIRKJA
Messa laugardaginn 16. desember kl. 18.00.
Messa sunnudaginn 17. desember kl. 11.00.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Á AKUREYRI
Aðventustund kl. 16.30. Krakkakirkjan sýnir
leikrit, mikill söngur og stutt hugleiðing.
HJÁLPRÆÐISHERINN Á AKUREYRI
Kl. 11.00 „Við syngjum jólin inn“. Börn og
unglingar sýna helgileik og syngja. Kveikt
verður á jólatrénu. ATH. engin samkoma
verður kl. 20.00.
BÆGISÁRKIRKJA
Aðventukvöld verður fyrir Bakka- og Bægis-
ársóknir í Bægisárkirkju sunnudaginn 17.
desember kl. 20:30. Helgileikur fermingar-
barna og kirkjukórs í samstarfi við Leikfélag
Hörgdæla undir stjórn Aðalsteins Bergdal.
Kórsöngur kirkjukórs Möðruvallaklausturs-
prestakalls. Lúsíusöngur nemenda Þela-
merkurskóla undir stjórn Guðmundar Engil-
bertssonar og mikill almennur söngur.
Ræðumaður verður Halldór Gunnarsson frá
Búðarnesi. mætum öll og njótum sannrar
jólastemmningar í húsi Guðs.Sóknarprestur
og sóknarnefnd.
GRENIVÍKURKIRKJA
Aðventukvöld kl. 20.30. Kór kirkjunnar syng-
ur undir stjórn organistans Petru Björk Páls-
dóttur. Kveik verður á aðventukransinum og
lesin jólasaga. Söngkvartettin Ómur syngur
og nemendur úr Tónlistarskóla Eyjafjarðar
leika á hljóðfæri undir stjórn Bjargar Sigur-
björgnsdóttur. Sr. Guðmundur Guðmunds-
son héraðsprestur flytur aðventuhugleiðingu.
Börnin úr kirkjuskólanum taka lagið og loks
sýna fermingarbörnin jólahelgileik.
LÁGAFELLSKIRKJA
Aðventustund barnastarfsins kl. 11.15. Börn
úr TTT kirkjustarfinu og úr sunnudagaskól-
anum flytja dagskráratriði. Skólakór Mos-
fellsbæjar syngur undir stjórn Guðmundar
Ómars Óskarssonar. Nemendur úr tónlistar-
skólanum leika á hljóðfæri. Mýsla, músapési
og Konni koma í heimsókn. Tekið verður á
móti söfnunarbaukum Hjálparstarfs kirkjunn-
ar og líklegt er talið að jólasveinn eigi leið
hjá í lok stundarinnar. Þórdís djákni, Sylvía
og Hreiðar stjórna dagskránni. Organisti:
Jónas Þórir. Athugið að aðventustundin
kemur í stað hinnar almennu guðsþjónustu
safnaðarins þennan dag. Jón Þorsteinsson.
LANDAKIRKJA
Kl. 11:00. Barna- og fjölskylduguðsþjónusta.
Helgileikur nemenda í 6. bekk SF í Hamars-
skóla. Kennari þeirra, Svanhvít Friðþjófs-
dóttir, stjórnar hópnum og Bára Grímsdóttir
stýrir söng. Kveikt verður á hirðakertinu á
aðventukransi kirkjunnar. Allir hjartanlega
velkomnir. Tekið verður á móti söfnunar-
baukum fyrir Hjálparstarf kirkjunnar. Kl.
20:30. Jólafundur Æskulýðsfélags Landa-
kirkju. Æskilegt að foreldrar mæti enda eru
þeir sérstaklega velkomnir á þennan fund.
Pakkaskipti, kökuhlaðborð og helgistund.
HVERAGERÐISKIRKJA
Kl. 17:00 Orgelstund - Tónlist aðventu og
jóla
HÓLMAVÍKURKIRKJA Á JÓLUM
Aftansöngur verður í Hólmavíkurkirkju á að-
fangadagskvöld kl. 18.00 og í Drangs-
neskapellu ki. 21.00. Helgistund í sjúkrahúsi
Hólmavíkur jóladag kl 11.00 fh. Messa á
Kollafjarðarnesi, jóladag kl. 14.00 og á
Óspakseyri sama dag kl. 16.00. Messa á
Prestbakka annan dag jóla kl. 14.00 og á
Stað i Hrútafirði á gamlársdag kl. 14.00.
Oganistar verða Ólavía Jónsdóttir og Pálína
Fanney Skúladóttir. Ágúst Sigurðsson
Þökkum sýnda vináttu
og virðingu við andlát
ÁSMUNDAR STEINSRS JÓHANNSSONAR,
lögfræðings.
Ólöf Snorradóttir,
Ásta Margrét Ásmundsdóttir,
Snorri Ásmundsson,
Jóhann Ásmundsson,
Ásmundur Ásmundsson,
Valur Ásmundsson,
Margrét Jóhannsdóttir
og fjölskyldur.
AÐVENTUSÖNGVAR
VIÐ KERTALJÓS
Aðventusöngvar við kertaljós verða í Háteigskirkju sunnudaginn 17. des-
ember kl. 20:00. Biskup íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, verður ræðu-
maður kvöldsins. Kór Háteigskirkju, Hulda Guðrún Geirsdóttir, sópran,
Peter Tompkins, óbóleikari og Douglas A. Brotchie, organsti og kórstjóri,
flytja tónlist eftir Albinoni, Bach, Distler, Verdonck og Vivaldi. Að þessu
sinni verða aðventusöngvarnir helgaðir þrjátíu og fimm ára vígsluafmæli
kirkjunnar. Á undanförnum árum hefur mörgum þótt Ijúft að koma í kirkj-
una á aðventusöngvana, hátíðleiki og fegurð hafa einkennt þessar stundir,
sem eru eins og kærkomið hlé i miklu annriki aðventunnar og endurskin
þess Ijóss, sem kemur. Það eru allir hjartanlega velkomnir og aðgangur
ókeypis.