Dagur - 25.01.2001, Blaðsíða 11

Dagur - 25.01.2001, Blaðsíða 11
10- FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 - 11 FRÉTTIR SDMjjur Dtjgwr. Hæstiréttur á háliun ís Stjómskipiilegri sprengju kastað. Ný ör- yrkjalöggjöf „á ábyrgð Hæstaréttar“. Bréf for- seta Hæstaréttar for- dæmalaust og audstætt meginreglunni um þrí- skiptingu ríMsvaldsius. Jón Steiuar ósammála. Afar líMegt að reynt verði á vauhæfi a.m.k. forseta Hæstaréttar í væntaulegum dómsmál- um. Stjórnskipulegri sprengju var varp- að inn á Alþingi og í þjóðfélagið allt á þriðjudag, þegar forseti Alþingis, Halldór Blöndal, kynnti þingheimi bréf sem Garðar Gíslason forseti Hæstaréttar ritaði forsætisnefnd þingsins, en í bréfinu svarar forseti Hæstaréttar spurningu nefndarinn- ar um túlkun á niðurstöðu öryrkja- dómsins svokallaða frá 19. desem- ber. Stjórnarliðar túlkuðu svarbréf Garðars umsvifalaust sér í vil og með bréfið að vopni treystu stjórn- arliðar sér fullkomlega til að sam- þvkkja frumvarpið sem lög og stað- festa það sem þeir töldu nægilegt til að koma til móts við örvrkjadóm- inn. Þeir sáu í grundvallaratriðum ekkert athugavert við að löggjafar- valdið bæði dómsvaldið um svör eða að dómsvaldið svaraði. Stjórnarandstæðingar brugðust ævareiðir við bréfi forseta Hæsta- réttar og telja að það eigi eftir að draga dilk á eftir sér. Bréf forseta Hæstaréttar með þessum hætti hefði hvergi annars staðar á Vestur- löndum verið látið viðgangast, enda væri svarbréfið í sjálfu sér algjör- lega andstætt þrískiptingu valdsins. „Sjálfstædi dómaranna í hættu“ Eiríkur Tómasson lagaprófessor tekur og undir að bréfaskiptin milli forsætisnefndar Alþingis og forseta Hæstaréttar séu án fordæma og raunar hættulegt fordæmi og að þau geti opnað á að fleiri dómar verði skýrðir eftir á með þessum hætti. Fyrst og fremst eigi dómarn- ir sjálfir að vera nógu skýrir til að binda endi á ágreining. Eiríkur tel- ur að þessi vinnubrögð geti stofnað sjálfstæði dómaranna í hættu. Bréf Garðars Gíslasonar til for- sætisnefndar er svohljóðandi: „Vís- að er til bréfs 23, janúar 2001, þar sem þér farið þess á leit að forseti Hæstaréttar láti nefndinni í lé svar við því hvort með [öryrkjadómin- um] hafi verið slegið föstu að al- mennt sé andstætt stjórnarskrá lýð- veklisins Islands að kveða í lögum á um að skerðing geti orðið á Ijárhæð tekjutryggingar örorkulífevrisþega í hjúskap vegna tekna maka hans. I dóminum var aðeins tekin afstaða til þess hvort slík tekjutenging eins og nú er mælt fýrir um í lögum sé andstæð stjórnarskránni. Svo var greinir frá sinni túlkun, í nafni Hæstaréttar, ef það er ekki túlkun meirihluta kollega hans. En eru þá dómarar Hæstaréttar, þeir sem samþykktu bréfsinnihaldið, orðnir vanhæfir í þeim málum þar sem reynir á þessa túlkun? Sigurður Líndal segir að vanhæfi forseta Hæstaréttar eða dómaranna þar gæti komið til álita. „Segjum að ein- hver beri fyrir sig fordæmisgildi ör- yrkjadómsins, sem eld<i er ólíldegt, er hugsanlegt að vanhæfisspurning- ar vakni. Það gæti hugsanlega valdið vanhæfi ef dómstóllinn er í bréfi bú- inn að tjá sig fvrirfram um dóminn og það er óheppilegt. Ef aðrir fara í mál þykir mér líklegt að menn muni vitna til þessa dóms sem fordæmi og túlka með hliðsjón af því. En bréfið sjálft er þó um þcnnan öryrkjadóm og ekkert annað.“ „Garðax er gjörsamlega vanhæfur“ Ragnar Aðalsteinsson telur að vegna þessara afskipta Garðars Gíslasonar sé nánast útilokað að láta á málið reyna fyrir Hæstarétti með hann í dómnum. „Hann hefði átt að taka það skýrt fram í bréfinu að þetta væri frá honum einum komið og hans persónulegu skoðanir. Eg trúi því enn og treysti að hinir 8 hafi enga afstöðu tekið í þessu máli, þótt Garðar kynni að hafa rætt við þá, þannig að það þurfi ekki aðrir að víkja en Garðar. Þetta eru vanir og hæfir menn sem aldrei myndu láta koma sér í þessar aðstæður, að eyði- leggja Hæstarétt. Garðar er gjörsam- lega vanhæfur í málum er Iúta að Oryrkjabandalaginu eða málurn al- mennt er lúta að félagslegum rétt- indum sem þarna er verið að fjalla um,“ segir Ragnar. Jón Steinar telur hins vegar frá- Ieitt að forseti Hæstaréttar eða aðrir dómarar hafi gert sig vanhæfa í hugsanlegum málum þar sem revnir á þýðingu öryrkjadómsins. „Ég get ekki með nokkru móti séð að forseti réttarins, sem auðvitað hefur svarað í umboði dómstólsins, geri sig van- hæfan til að fjalla um dómsmál síð- ar, frekar en hinir dómararnir. Þetta gildir um bæði meirihluta og minni- hluta dómara í umræddum dómi. Þegar dómarar kveða upp dóma taka þeir afstöðu til sakarefna og þó þeir geri það hafa þeir ekki við það orðið vanhæfir til að fjalla síðar um skyld sakarefni, sem kunna að bera á fjör- ur dómsins." Ámi Steinar með stjómarliðum Að lokum má geta þess að á Alþingi veltu stjórnarandstöðuþingmenn því fyrir sér hvernig það hafi kornist óá- reitt í gegnum forsætisnefndina að bréf yrði skrifað til forseta Hæsta- réttar. I forsætisnefnd eiga sæti stjórnarþingmennirnir Halldór Blöndal, Isólfur Gylfi Pálmason og Guðjón Guðmundsson og stjórnar- andstæðingarnir Guðmundur Arni Stefánsson og Arni Steinar Jóhanns- son. Fram hefur komið að bréfritunin var afgreidd af þcim nefndarmönn- um sem náðist í og voru ekki erlend- is. Samkvæmt heimildum blaðsins var Samfylkingarmaðurinn Guð- mundur Arni í Frakklandi og frétti ekki af bréfinu lýrr en um kl. 1 5.30 í gær. Isólfur Gylfi var og fjarstadd- ur. Það voru því Halldór, Guðjón og þingmaður vinstri grænna, Arni Steinar, sem samþykktu að senda bréfið. Hefxirðu prófað að gista H já okkur? RauÖarárstígur 37 • 105 Reykjavfk • Sfmi 502 6250 • racoptionöhotofreykjavik.is • www.hotetreykjavik.is Frá bíaðamannafundi ráðherranna í gær. talið vera. Dómurinn felur ekki í sér afstöðu til frekari álitaefna en hér um ræðir. I því ljósi verður að svara spurningu yðar neitandi." Stjórnarliðar á Alþingi túlkuðu bréf forseta Hæstaréttar umsvifa- laust sér í vii, en jafnvel svarbréf Garðars er ekki skýrara en svo að það er opið fyrir túlkunum, sam- kvæmt svörum Ragnar Aðalsteins- sonar hæstaréttarlögmanns, sem sótti málið gegn Tryggingastofnun fyrir hönd Oryrkjabandalagsins. Erfið tíð Hæstaréttar framundan Ragnar segist trúa því og treysta að bréf forseta Hæstaréttar hafi verið á ábyrgð hans eins, en eldd hinna dómaranna 8. „Þetta eru ný við- brögð og röng viðbrögð í bréfinu. Þetta opnar fyrir afar erfiða tíð fyr- ir Hæstarétt á næstunni og kann að taka mjög Iangan tíma fýrir hann að vinna nauðsynlega tiltrú hjá fólk- inu. Þetta virkar enda á fólk þannig að valdhafarnir hafi of mikil ítök. Það var orðað við mig þannig áðan, að það ríktí sorg yfir því að ríkis- stjórnin hafi komist inn í þennan helgidóm, sem fólk lítur upp til.“ Bréfaskiftin l’ara fram í jjósi þess að niðurstaða Hæstaréttar hafi ver- ið óskýr. Er Ragnar sammála því? „Nei, niðurstaðan er skýr. Eg gerði ákveðnar dómkröfur í upphafi og síðan varðist ríkið þeim með ákveðnum rökum. Það velktist hvorki fyrir Öryrkjabandalaginu né Tryggingastofnun ríkisins um hvað ágreiningurinn snéríst. Bæði Hér- aðsdómi Reykjavíkur og Hæstarétti var fullkunnugt um hvað ágreining- urinn snérist um. Að lokum fór svo að Hæstiréttur féllst í einu og öllu á dómkröfur Öryrkjabandalagsins og því enginn vafi á því að það er bannað að skerða þá tekjutryggingu sem gilti í desember, sem er á nú- verandi verðlagi 33 þúsund krónur á mánuði." Er bréf forseta Hæstaréttar ekki í andstöðu við þessa túlkun Ragn- ars? „Nei. Forseti Hæstaréttar er annars vegar að tala um eitthvað al- mennt, en segir síðan skýrlega að 80 hérbergja hótel í hjarta Reykjavíkur • Vel útbúin, þægileg herbergi • Fjölskylduherbergi • Skemmtilegar 2ja hæða svítur • Bílageymsla • Stutt í gamla og nýja miðbæinn • Tveir veitingastaðir • I-Iuggulegur hótelbar Frábœr staösetning. Þegar þú ert í Reykjavík gistirðu hjá okkur. Hjartanlega velkomin/n! Því er spáð að erfið tíð sé framundan hjá Hæstarétti ísiands. En eru bréfaskiptin ekki óæskileg og jafnvel hættuleg út frá meginregl- unni um þrískiptingu ríkisvaldsins? „Forsætisnefnd ber fram fyrirspurn- ina og Hæstiréttur svarar. Frum- kvæðið kemur því ekld frá Hæsta- rétti. Eg veit ekki hvort það sé hægt að segja, að það brjóti í bága við þrí- skiptinguna að Alþingi spyrji Hæsta- rétt, án tilefnis frá réttinum. Eg full- yrði eklært á þessu stigi málsins, en auðvitað má segja að það verði að fara varlega í þetta með hliðsjón af sjálfstæði dómsvaldsins. Það kann að vera að líta megi svo á að Alþingi hafi sérstöðu, en mér finnst að þetta orki samt nokkuð tvímælis," segir Sigurður. Hvað sögðu hinir dómaramir? Ekki virðist með nokkru móti hægt að fá staðfest eða hafnað, hvort aðr- ir dómarar Hæstaréttar, allir eða einhverjir þeirra, hafi lagt blessun sína á innihald bréfs Garðars. Skrif- stofa Hæstaréttar staðfestir að efnið hafi verið borið undir aðra dómara, eða haft við þá samráð, en svarar engu til um hvort þeir hafi sagt já eða nei við innihaldi bréfsins. Það verður hins vegar að teljast með ólíkindum ef forseti Hæstaréttar hefur sent bréf (sem er nógu um- deilanlegt út af fyrir sig) um túlkun á dómi Hæstaréttar þar sem hann Góð tilboð í gangi ntina! HOTEL REYKJAVIK Alþingi lagafrumvarp þar sem þing- menn höfðu borið upp það erindi við forseta þingsins að ekki ætti að taka málið á dagskrá þar eð það bryti í bága við stjórnarskrána. Það var byggt á skoðun þeirra á því hvað fælist í viðurkenningardómi Hæsta- réttar. Þeim, sem þennan málflutn- ing hafa haft uppi, finnst dómurinn greinilega óskýr að þessu leyti - og það má vissulega fallast á það, hann hefði mátt vera miklu skýrari - en við þessar aðstæður tel ég alveg sjálfsagt að forsætisnefnd leiti til réttarins til að fá nánari skýringu á því hvað í þessum dómi felist." Jón Steinar segir að grunnreglan sé sú, að forsendur dómsins sjálfs eigi að svara því óyggjandi hvað í dóminum felist. „Það var því miður ekki þannig í þessu máli. Hér er um að ræða ákveðin stjórnskipuleg vandamál sem komið hafa upp hjá öðrum handhöfum ríkisvaldsins, í framhaldi af málinu og vegna þessa óskýrleika. Það lítur að efasemdum þingmanna um hvort frumvarpið væri tækt og ofan á það bættist um- ræða um hvort forseti lýðveldisins ætti að staðfesta Iögin með undir- ritun sinni. Mér finnst sjálfsagt að Hæstiréttur svari þessu við þessar aðstæður, en ég er ekki þar með að segja að það eigi að gera hvenær sem er og við hvaða aðstæður sem er án tillits til þess hver spyr.“ Ragnar Aðalsteinsson: Sorg ríkir yfir því að ríkisstjórnin hafi komist inn í þennan heigidóm. Almerai og viðurkennd sannindi Sigurður Líndal Iagaprófessor segir að ekki megi leggja meira í innihald bréfs forseta Hæstaréttar en þar komi í raun fram. „Það segir ekki svo mikið í þessu bréfi umfram það sem kalla má almenn og viður- kennd sannindi. Að dómurinn taki aðeins til þess sem verið var að fjal- la um, sem sé afmarkað deiluefni." Sigurður segist ekki vilja orða það svo, að Hæstiréttur sé kominn út á hálan ís. „En það er nú aðal- reglan að dómurinn skýri sig sjálf- ur, að í forsendum sé tekið þannig á málum að ekld þurfi að leika vafi á því hvert dómurinn er að fara og að dómarar þurfi ekld að skýra dóminn eftir á. Mér finnst dómur- inn í sjálfu sér ekki óskýr, að því leyti að dóma ber að mínu mati alltaf að túlka þröngt. Dómurinn er kveðinn upp til að binda endi á af- markaðan ágreining málsaðila og snýst eldd um annað. Ef tveggja kosta er völ um skýringu á dómi tel ég að maður hljóti að velja þrengri skýringuna. Sem í þessu tilviki er að tekjutenging sé heimil almennt séð, þ.e. að í þessu tilviki hafi verið óheimilt að tengja tekjutryggingu við tekjur maka eins og þar var gert. Sem þýðir ekki að það megi ekld gera með einhverjum öðrúm hætti." f3 ffSNi M Jón Steinar Gunnlaugsson: Sjáif- sagt að forsætisnefnd leiti til réttar- ins tii að fá nánari skýringu. Eiríkur Tómasson: Bréfaskiptin eru án fordæma og mynda hættulegt fordæmi. Sigurður Líndal: Hugsanlega van- hæfi ef dómstóllinn er búinn að tjá sig fyrirfram og það er óheppilegt. það sem Hæstiréttur hafi tekið á með dómnum hafi verið það, að bannað væri að skerða þá tekju- tryggingu sem var í gildi þegar dóm- urinn féll í desember. Með öðrum orðum að bannað sé að skerða þessar 33 þúsund krónur, aftur á bak og að mínu mati áfram." „Sjálfsagt að Hæstixéttur svari“ En stjórnarliðar túlka bréfið sér í vil? „I fyrsta lagi sögðu bæði forsæt- isráðherra og utanríkisráðherra að þetta væri bréf frá Hæstarétti, en fóru þar með rangt mál. I öðru lagi sagði að minnsta kosti utanríkisráð- herra og margir aðrir stjórnarþing- menn að Hæstiréttur væri að segja að það væri ekkert athugavert við lagafrumvarpið. Það gengi ekki gegn einu eða neinu. Með því að snúa þannig út úr bréfi Garðars Gíslasonar fengu þeir meirihluta- þingmennina til að samþykkja, enda litu þeir svo á að frumvarpið væri þar með á ábyrgð Hæstaréttar - hann væri búinn að ábyrgjast að þetta væri í lagi,“ segir Ragnar. Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður segir að hann telji bréf forseta Hæstaréttar alveg eðlilegt miðað við kringumstæð- urnar í málinu. „Þær eru mjög sér- stakar. Það er verið að fjalla um á Norðurlönd að greiða skuldir Fjármálaráðherrar Norðurlanda ræddu ástand og horfur í efna- hagsmálum á fundi sínum í Reykjavík í gær. Ráðherrarnir töldu að þróun efnahagsmáia á Norðurlöndum væri áfram hagstæð; verðbólga væri tiltöiu- lega Iág og atvinnuieysi fari minnkandi. Ráðherrarnir lögðu áherslu á nauðsyn þess að hafa hemil á kostnaðarþróuninni. A öllum Norðurlöndunum er búist við að skuldir hins opinbera fari áfram lækkandi og að verulegur afgangur verði á íjárlögum. Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu eru ráð- herrarnir sammála um mikilvægi þess að fylgja áfrani aðhalds- samri stefnu í efnahagsmálum, ekki síst í ríkisfjármálum, meðal annars til þess að eíla hagvöxt, hamla gegn verðbólgu og tryggja næga atvinnu. Gert er ráð fyrir á öllum Norðurlöndunum verði afgangur í búskap hins opinbera bæði á þessu og næsta ári sem verður að teljast hagstætt í alþjóðlegum saman- burði. Talin var hætta á þenslu í vissum greinum atvinnulífsins og töldu ráðherrarnir mikilvægt að fylgt verði aðhaldssamri launastefnu til að halda aftur af verðbólgu. Ráðherrarnir bentu hins vegar á að aukna verðbólgu á síðasta ári mætti að lang- mestu Ieyti rekja til hækkunar olfuverðs.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.