Dagur - 17.02.2001, Side 1

Dagur - 17.02.2001, Side 1
Húsið sem áður var Laugavegur 13 er nú við Efstasund. Verið er að gera það upp. Mynd. £ Ól. Laugavegur fluttnr í Kleppsholtið Húsið að Laugavegi 13 í Reykjavík á sér langa sögu. Árið 1871 fær Pétur Valgarðsson útmælda lóð, 33 x 31 álnir á horni Laugavcgar og Smiðju- stígs. Hann fær leyfi til að byggja hús á suðvestur horni lóðarinnar. Ekki er getið um stærð hússins en það mun þó hafa verið reist. Fjórum árum síðar fær Pétur leyli lil þess að bvggja hjall á lóð- inni, 6x6 álnir að flatarmáli. D.Thomsen kaupir eignina í ágúst árið 1900. Ári síðar selur hann Siggeiri Torfasyni eignina. Tvílyft hús Haustið 1901, þremur mánuð- um eftir aö Siggeir kaupir Lauga- veg I 3, rífur hann byggingarnar sem á Ióðinni standa og byggir þar tvílyft verslunar- og íhúðar- hús, 15 x 12 álnir að flatarmáli með risi og kjallara að viðbættum skúr, 3x4 álnir að grunnfleti. Húsið var tekið til virðingar f júní 1902. Þar segir að það sé byggt úr bindingi, klætt utan með gólfborðúm, pappa og list- um og járni yfir. Þak er á lang- böndum, klætt járni með pappa í milli. Fyllt er í binding með mar- hálmi. 1 neðri hæðinni er sölu- búð, tvö herbergi og gangur. Allt þiljað innan, strigalagt, veggfóðr- að og málað. 1 sölubúðinni eru hillur og skápar á veggjum.og búðarborö með skúffum. Á hæðinni eru tveir ofnar. Á efri hæðinni eru sex íbúðar- herbergi, eldhús, búr og tveir gangar. Allt þiljað og málað. Þar eru þrír ofnar og ein eldavél. Þegar þessi virðing var gerð var ekki búið að innrétta risið en þar voru síðan gerð fjögur íbúðarher- bergi, eldhús, tveir fastir skápar og gangur, með sama frágangi og á hæðinni. Undir húsinu er kjall- ari með steinstejpugólfi. Þar eru þrjár geymslur, þvottahús og gangur. lnn- og uppgönguskúr er við norðurhlið hússins byggður eins og það. Við austurhlið hússins er skúr, byggöur af bindingi, klædd- ur með járni á langböndum með járnþaki á langböndum. I skúrn- um er trégólf. Samkvæmt íbúaskrá frá árinu 1906 eiga hcima í húsinu: Sig- geir Torfason kaupmaöur, fædd- ur 1862, Helga Vigfúsdóttir kona hans, fædd 1859 og börn þeirra Ásgeir Tryggvi, Sigurður, Krist- ján, Lára, Guðmunda Sylvia og Siggeir. Auk þeirra voru á heimil- inu. Þuríður Sæmundsdóttir vetrarstúlka, Halldóra Jónsdóttir sem einnig er skráð vetrarstúlka og Oddur Sveinsson vikapiltur á fimmtánda ári. Sjd bls. 2.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.